Þjóðviljinn - 24.02.1988, Page 1
Miðvikudagur 24. febrúar 1988 44. tölublað 53. órgangur
Eimskip
Vinnustöðvun til aðvörunar
Hafnarverkamenn hjá Eimskip lögðu niður vinnu ígær. Óánægðir
með hveseintgengur í Garðastrœti. Viljum launahœkkun strax ogþað
refjalaust
Hafnarverkamenn hjá Eim-
skipafélaginu lögðu niður
vinnu frá hádegi í gær til morguns
tii að þrýsta á að hreyfing kæmist
á samningaviðræðurnar í Garð-
astræti. - Við tökum þessum
seinagangi ekki lengur. Það er
ljóst að við erum ekki tiibúnir að
fallast á samninga á nótum Vest-
urgötusamkomuiagsins á Vest-
fjörðum sem byggjast á búreikn-
ingum Bryndfsar, sögðu karlarn-
ir í Sundahöfn, sem voru að tygja
sig til heimferðar í gær er Þjóð-
viijann bar að um hádegisbiiið.
Aðgerðir hafnarverkamann-
anna voru ákveðnar með
skömmum fyrirvara. - Þetta eru
okkar prívat aðgerðir. Dagsbrún
kemur hér hvergi nærri.
Þegar forráðamönnum Eim-
skipafélagsins varð ljóst í gær-
morgun að hverju stefndi, var
reynt að losa vörugáma við Faxa-
skála með aðkeyptum vinnu-
krafti frá Löndun sf, sem að öllu
jöfnu sér um lestun togaranna.
Að sögn hafnarkarlanna var
skjótt brugðu við og losun gám-
anna stöðvuð snarlega.
Hafnarverkamenn Eimskipafélags-
ins í Sundahöfn tygja sig til heimferð-
ar um hádegisbilið í gær. Þeir segjast
grípa til vinnustöðvunar til að þrýsta á
að atvinnurekendur fáist til að ræða
af alvöru um nýja kjarasamninga.
Mynd E. Ól.
Að sögn hafnarkarlanna er
vaxandi óánægja meðal hafnar-
verkamanna með hve seint miðar
í viðræðum við atvinnurekendur.
- Þeir hafa ekki fengist til að tala
um það sem skiptir máli - launin.
Eimskipafélagið hefur sýnt vilja
til að ræða við okkur af alvöru, en
fær litlu áorkað gagnvart Vinnu-
veitendasambandinu.
- Það er búið að leggja mikla
vinnu í kröfugerðina og samn-
ingaviðræðurnar. Við sættum
okkur ekki við að samið verði á
þeim nótum sem fiskvinnslan æt-
Íast til að samið verði á.
Olíulekinn
Vatnsbóli Keflvíkinga ógnað
Vilhjálmur Ketilsson bœjarstjóri: Uggandi um að olía kunni að berastí
vatnsból við Þverholt. Frekari niðurstaðna að vœnta
Við bíðum enn eftir frekari nið-
urstöðum mælinga á ferðum
oiíunnar. Vitanlega erum við
mjög uggandi um að olía kunni að
berast í vatnsbólið við Þverholt,
en það er ekki í nema um 600
metra fjarlægð frá þeim stað þar
sem olían barst út í jarðveginn,
sagði Viljálmur Ketilsson, bæjar-
stjóri í Keflavík, í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Nýlega sýndu mælingar að
olían sem lak úr olíubirgðarými
hersins á Keflavíkurflugvelli
stefndi á vatnsból Keflvíkinga í
stað þess að renna með grunn-
vatni til sjávar eins og álitið hafði
verið.
Vilhjálmur sagðist hafa lagt til
á fundi með nefndinni sem fjallar
um og fylgist með afdrifum
olíunnar, að boraðar yrðu tvær
borholur í stefnu að vatnsbólinu.
— Að svo stöddu treystu sér-
fræðingar sér ekki til að staðfesta
að olían bærist í átt að Þverholts-
vatnsbólinu. Því var ákveðið að
gera frekari mælingar á þeim hol-
um sem þegar hafa verið boraðar
og sjá til með frekari borun, sagði
Vilhjálmur.
Að sögn Vilhjálms hafa banda-
rísk stjórnvöld ekki enn svarað
málaleitan Keflavíkur- og Njarð-
víkurbæjar um að þau greiði götu
fyrir gerð framtíðarvatnsbóla
fyrir bæjarfélögin og standi
straum af kostnaði sem því er
samfara.
-rk
Reykjavíkurskákmótið
Tímahrak!
Það er ekki hægt að segja annað en
að áhorfendur hafi haft gaman af 1.
umferð Reykjavíkurskákmótsins sem
hófst í gær.
Margir keppenda lentu í miklu
tímahraki og þá sérstaklega góðkunn-
ingi okkar, Walter Brown. Honum
tókst að leika á okkar mann, Jóhann-
es Agústsson, í tímahrakinu og eftir
miklar sviptingar varð Jóhannes að
játa sig sigraðan enda hafði Brown þá
tekist að máta kóng hans!
Helgi og Jón L. unnu báðir sínar
skákir en Margeir lenti í erfiðleikum
gegn Guðmundi Gíslasyni. -hl.
Sjá bls. 2
Snyrtivörur
Varaliturinn lækkar lítið
Einstaka tegundir af stein-
púðri, varalit, augnskuggum,
rakspíra og öðrum ómissandi
snyrtivörum hafa snarlækkað í
verði undanfarnar vikur,
neytendum til hagsbóta. Þessar
verðlækkanir eru tilkomnar
vegna niðurfellingar vörugjalds
og lækkunar á tollum, til að vega
upp á móti matarskatti ríkis-
stjórnarinnar.
Samkvæmt úttekt Verðlags-
stofnunar hafa áhrif tollabreyt-
inganna frá áramótum hins vegar
almennt ekki komið fram í lækk-
un smásöluverðs. Að óbreyttu
innkaupsverði, gengi og inn-
lendum kostnaði ætti verðlækk-
unin á augnfarða, kinnalit og
varalit að vera 48%, verðlækkun
á ilm- og snyrtivörum að vera um
31% og verð á kremum og nagla-
og hársnyrtiefnum að vera 9,5%
lægra en fyrir áramótin.
Nýleg verðkönnun Verðlags-
stofnunar í 38 snyrtivöruverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu sýnir
að einstaka vörutegundir hafa
lækkað, sumar um allt að 45% en
aðrar ekki í samræmi við tolla-
lækkanir.
-Ig-
Samningar
Rólegur
gangur
Fiskverkendur vilja að
ríkisstjórnin sýni spil
sín. Búistvið
viðrœðuslitum.
Kauptölur enn ekkert
rœddar
Viðræður Verkamannasam-
bandsins og Vinnuveitenda-
sambandsins í Garðastræti þok-
uðust lítið áfram í gær. Þær hóf-
ust seinni partinn og menn tóku
sér kvöldmatarfrí og settust aftur
við um hálfníuleytið.
Forsvarsmenn fiskvinnslufyrir-
tækja héldu sérstakan fund í gær
og samþykktu þar að halda áfram
samningaviðræðunum. Þeir lýstu
því þó þar yfir að þeir myndu ekki
undirrita neina samninga fyrr en
þeir fengju að vita til hvaða efna-
hagsráðstafana ríkisstjórnin
hygðist grípa.
1 gær þrýstu talsmenn Verka-
mannasambandsins á um svör frá
atvinnurekendum um starfsald-
urshækkanir. Umræður um
kauptölur eru lítt eða ekki hafn-
ar. Margir reikna með að viðræð-
urnar strandi um leið og reynt
verður að hefja alvöruviðræður
um kaupliði nýrra samninga.