Þjóðviljinn - 24.02.1988, Qupperneq 9
latast
dæmis varð málflutningur guð-
anna þriggja ansi duaflegur (og
bjargaði ekki sú góða hugmynd
að láta þá koma til jarðar á
reiðhjólum), sömuleiðis varð rýr
þáttur stórfjölskyldunnar sem
settist upp hjá Sén Te með
smjaðri og frekju herfilegri. En
þeir sem með stærri hlutverk fóru
stóðu sig með sóma - Hilmir
Snær Guðnason sem var flug-
maðurinn atvinnulausi, Edda
Jónsdóttir, sem var sú sérgóða
ekkjufrú Sín, Þórný Jóhanns-
dóttir sem var Mí Tsí húseigandi,
Daníel Ágúst Haraldsson sem lék
vatnssalan Vang og Hróðmar
Dofri Hermannsson, sem átti
einkar útsmoginn leik í hlutverki
Sjú Fús rakara. Marta Nordal fór
með mikið og vandasamt og tvö-
falt hlutverk Sén Te - Sjúi Ta af
ágætum dugnaði og útsjónarsemi
og engum blöðum var um það að
fletta að texti hennar komst betur
til skila en flestra annarra.
Sýningunni var mjög vel tekið.
áb
Paganini
rræna húsinu
Annað kvöld kl. 20:30 verða þeir
svo aftur í Norræna húsinu og
flytja þá auk verka eftir fyrrnefn-
da höfunda, verk eftir Villa Lo-
bos, Sarasate og Veracini, svo
einhverjir séu nefndir.
LG
Auglýsing um áburðarverð 1988
Tegund Efnainnihald Verð í
N-P205-K20-Ca-S feb. mars apríl maí júní júlf ágúst
Kjarni 33- 0- 0- 2- 0 12320 12640 12980 13340 13700 14080 14440
Magni 1 26- 0- 0- 9- 0 10260 10520 10800 11100 11400 11720 12020
Magni 2 20- 0- 0-15- 0 8480 8700 8940 9180 9440 9680 9940
Móði 1 26-14- 0- 2- 0 14260 14640 15020 15440 15860 16280 16720
Móði 2 23-23- 0- 1- 0 15400 15800 16220 16660 17120 17580 18040
Græðir 1 14-18-18- 0- 6 15640 16060 16480 16940 17400 17880 18340
Græðir 1A 12-19-19- 0- 6 15340 15740 16160 16600 17060 17520 17960
Græðir 3 20-14-14- 0- 0 13900 14260 14640 15040 15460 15860 16280
Græðir 5 15-15-15- 1- 2 13380 13720 14100 14480 14880 15280 15680
Græðir 6 20-10-10- 4- 2 13040 13380 13740 14120 14500 14900 15280
Græðir 7 20-12- 8- 4- 2 13280 13640 14000 14380 14780 15180 15560
Græðir 8 18- 9-14- 4- 2 12620 12940 13300 13660 14040 14420 14780
Græðir 9 24- 9- 8- 1,5- 2 13800 14160 14540 14940 15360 15760 16180
Blákorn 12-12-17- 2,6- 7,7 17380 17840 18320 18820 19340 19860 20380
Þrífosfat 0-45- 0- 0- 0 11540 11840 12160 12500 12840 13180 13540
Kalíklóríð 0- 0-60- 0- 0 8120 8340 8560 8800 9040 9280 9520
Kalísúlfat 0- 0-50- 0- 0 13680 14020 14400 14800 15200 15620 16020
Áburðarkalk 5- 0- 0-30- 0 4060 4180 4280 4400 4520 4640 4760
Áburðarverksmiðja ríkisins selur þann áburð sem hún framleiðir eða flytur til landsins
einungis búnaðarfélögum, samvinnufélögum, verslunarfélögum, kaupmönnum, hrepps-
og bæjarfélögum eða öðrum opinberum aðilum.
Áburðarverksmiðja ríkisins afhendir áburð sem hún selur til ofangreindra aðila á sama
verði miðað við áburðinn afhentan úr vörugeymslu Áburðaverksmiðjunnar í Gufunesi
eða vörugeymslu áburðarflytjanda á eftirgreindum höfnum:
Ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Patreksfjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
ísafjörður
Norðurfjörður
Hólmavfk
Hvammstangi
Blönduós
Sauðárkrókur
Hofsós
Ólafsfjörður
Siglufjörður
Dalvík
Akureyri
Grenivík
Svalbarðseyri
Húsavík
Kópasker
Þórshöfn
Vopnafjörður
Mjóifjörður
Seyðisfjörður
Borgarfjörður eystri
Neskaupsstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Hornafjörður
Vestmannaeyjar
Óski kaupandi áburðar, sem búsettur er utan svæðis sem takmarkast af Mýra - og Borg-
arfjarðarsýslu, Kjósarsýslu, Gullbringusýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, að fá áburð
afhentan í Gufunesi og annast flutning áburðarins sjálfur skal hann fá endurgreitt sem
nemur flutningskostnaði Áburðarverksmiðjunnar á næsta hafnarstað ásamt uppskipun-
ar- vöru- og sjótryggingargjaldi.
Áburðarverksmiðjan mun ekki annast flutninga til Dalasýslu, Austur- Barðastrandasýslu
og Vestur- Skaftafellssýslu. Hinsvegar mun Áburðarverksmiðjan greiða flutningsstyrk til
áburðarkaupenda í framangreindum sýslum og ákvarðast flutningsstyrkurinn hverju
sinni með hliðsjón af flutningskostnaði til næstu hafnar.
Greiðslukjör
Árið 1988 eru greiðslukjör vegna áburðarviðskipta sem hér segir:
a) Staðgreiðsla á verði viðkomandi mánaðar.
b) Kaupandi greiðir áburðinn með tíu (10) jöfnum greiðslum sem hefjast í febrúar
en lýkur í nóvember.
c) Kaupandi greiðir áburðinn með átta (8) jöfnum greiðslum sem hefjast í mars en
lýkur í október.
d) Kaupandi greiðir áburðinn með sex (6) jöfnum greiðslum sem hefjast í apríl en
lýkur í september.
e) Kaupandi greiðir áburðinn með fjórum (4) jöfnum greiðslum sem hefjast í maí en
lýkur í ágúst.
Gjalddagi er 25. hvers mánaðar.
Sá hluti áburðar sem afhentur er á lánskjörum skuldfærist á staðgreiðsluverði sem í gildi
er í afhendingarmánuðinum en frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir afhending-
armánuð reiknast vextir á höfuðstól skuldarinnar.
Gerður skal viðskiptasamningur um lánsviðskipti
Vextir skulu á hverjum tíma vera þeir sömu og afurðalánavextir sem auglýstir eru hjá
Landsbanka íslands sem í dag eru 33,0%. Vextir greiðast eftir á, á sömu gjalddögum og
afborganir.
Kaupandi skal leggja fram tryggingu fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru lánsviðskipti.
Gufunesi 11. febrúar 1988
ÁBURÐARVERKSMKXJA RÍKISINS