Þjóðviljinn - 24.02.1988, Page 15

Þjóðviljinn - 24.02.1988, Page 15
og þetta líka... Firma- og félagshópakeppni Vals verður haldin í íþróttahúsi Vals við Hlíðarenda helgina 5.-6. mars. Allar upplýsingar veittar í síma 11134. Heimsmet var sett í 800 metra hlaupi innanhúss þegar austur-þýska stúlkan Christine Wachtel hljóp vegalengdina á 57.64 sekúndum. Bernd Schuster sem hefur ekki gengið sem best í Barcelona, hefur ákveðið að ganga til liðs við stórliðið Real Madrid á næsta keppnistímabili. Líklegt er að hann semji til þriggja ára að sögn spænskra blaða. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið! Heimsbikarkeppnin 1998 er komin í sviðsljósið eftir að Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakka, gaf út þá yfirlýsingu að Frakkar hefðu unnið réttinn til þess að halda keppnina. Talmenn FIFA eru alls ekki sammála forsætisráðherranum og segja að enn eigi eftir að bjóða keppnina út og vonast til að sem flestir taki þátt í því, þar á meðal Frakkar. Ákvörðun um mótsstað fyrir 1994 keppnina verði tekin nú í sumar en ákvörðunin fyrir 1998 ekki fyrr en 1992. Skíðaganga Reykjavíkurmeistaramót í skíða- göngu var haldið í Bláfjöllum á laugardaginn. ( 15 km göngu sigraði Viðar Kárason SR á 55.16 og i 2. sæti var Viggó Benediktsson KR á 55.31. í 5 km göngu unglinga sigraði Bragi Viðarsson SR á 25.56, í 2. sæti Mar- inó Sigurjónsson SR 29.53 og í 3. sæti Davíð Jónsson Ármanni á 31.42. I 5 km göngu öldunga sigraði Hörður Guðmundsson á 31.31 og í 2. sæti Páll Guðbjörnsson 32.58. I 3,5 km göngu 12 ára sigraði Arngerður Viðarsdóttir á 23.37 Sparwasser sem er austur-þýskur knatt- spyrnukappi, hefur gengið til liðs við Eintracht Frankfurt þar sem hann mun þjálfa liðið. Juergen Sparwasser, sem er 39 ára gam- all lék áður með austur-þýska landsliðinu. ÍÞRÓTTIR Handbolti í kvöld Valsheimili kl. 18.00 l.deild ka. Valur-UBK Hafnarfjörður kl.20.00 l.deild kv. Haukar-KR kl.21.15 l.deild kv. FH-Valur Digranes kl.20.00 2.deild kv. UBK-Grótta Keflavfk kl.20.00 2-deild kv. ÍBK-HK Verðlaunahafar á unglingameistaramótinu. Badminton Getraunir TBR sigursælir með fjóra þrefalda íslandsmeistara Mikillfjöldi þátttakenda á unglingameistaramóti Islands um helgina Það voru keppendur frá TBR sem sópuðu til sín verlaununum á mótinu, unnu 25 gullpeninga og 12 silfurverðlaun. UMSB kom á óvart, vann 5 gull og 4 silfur en í A hlaut „aðeins" 9 silfur en ekkert gull. Þar munaði mest um Borg- firðinginn Sigríði Geirsdóttur sem vann 3 gull. Það voru þau Birna Petersen, Brynja Steinsen, Njáll Eysteinsson og Gunnar Pet- ersen sem unnu 3 gullverðlaun hvert fyrir félag sitt TBR. TBR...................25 gull 12 silfur UMSB..................5 gull 4 silfur Víkngar...............2gull 5 silfur ÍA...........................9 silfur HSK..........................2 silfur Hnokkar Einliöaleikur: Ivar Örn Gíslason TBR vann Tómas Garö- arsson Víkingi 10-12 og 11 -0 en Tómas gaf Handbolti Stefán skaut Þór í kaf Pórgerði ekki mark íl5 mínútur. Axel átti stórleik Þórsarar áttu ágætis lokakafla gegn KR á laugardaginn en hafa undanfarið átt ágætis byrjunar- kafla. Þórsarar byrjuðu vel og héldu jöfnu alveg upp að 5-5 en þá kom Akuroyri 20. febrúar Pór-KR 21-24 (8-13) Mörk Pórs: Jóhann Samúelsson 6, Sig- urður Pálsson 6 (3v), Erlendur Hermanns- son 3, Kristján Kristjánsson 2, Gunnar M. Gunnarsson 2, Hörður Sigurharðarson 1 og Sigurpáll Aðalsteinsson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 15. Útaf: Kristján Kristjánsson, Gunnar M. Gunnarsson, Hörður Sigurharðarson og Sigurpáll Aðalsteinsson allir 2 mín. Spjöld: Gunnar M. Gunnarsson gult Mörk KR: Stefán Kristjánsson 10 (3v), Sigurður Sveinsson 7, Þorsteinn Guðjóns- son 4, Guðmundur Pálmason 2, Guð- mundur Albertsson 1. Varln skot: Gísli Felix Bjarnason 11 (1 y), Leifur Dagbjartsson 1. Utaf: Guðmundur Albertsson, Jóhann- es Stefánsson og Gísli Felix Bjarnason 2 min hver. Spjöld: Sigurður Sveinsson og Guð- mundur Albertsson gul. Dómarar: Steinþór Baldursson og Egill Markússon voru frekar slakir. Maður leiksins: Axel Stefánsson Þór -HK/ste slæmur kafli. Þeim tókst ekki að skora mark á meðan Stefán Krist- jánsson stórskytta gerði hvert markið á fætur öðru úr þrumu- skotum og kom liði sínu í 5-11. Það var of mikið fyrir heima- mennina sem náðu þó að halda í við þá og var staðan í hálfleik 8- 13. í síðari hálfleik náðu KR-ingar að gera 2 fyrstu mörkin og voru þá komnirí8-15. Akureyringarn- ir gáfust þó ekki upp, náðu að saxa á forskotið en aldrei nægi- lega mikið. Þeir komust í 16-19 og 20-22 en þá var það bara að verða of seint. Það var svo Stefán sem var aftur á ferðinni á loka- sekúndu leiksins með þrumuskot sem innsiglaði sigur KR, 21-24. Það ætlar ekki að ganga hjá Þórsurum að vinna leik. Þeir hafa náð ágætisköflum en það er ekki nóg, það þarf að duga til leiks- loka. Erlendur Hermannsson þjálfari Þórsara kom inná eftir langt hlé og Axel Stefánsson átti stórleik. KR fékk þarna kærkom- in stig. Enginn með 12 rétla Þrefaldur pottur á laugardaginn 3. lotuna vegna meiösla. Tvfliöaleikur: Ivar Örn Gislason og Njörður Ludvigsson TBR unnu Róbert Guðmundsson og Hjalta Harðarson TBR 15-12 og 15-8. Tvenndarleikur Hnokkar og Tát- ur: Brynja Steinsen og Njörður Ludvigsson TBR fengu leik á móti Tómasi Garðarssyni og Valdísi Garðarsdóttir Vikingi gefin vegna meiðsla Tómasar. Tátur Einlibaleikur: Brynja Steinsen TBR vann Drífu Harðar- dóttur ÍA 11-1 og 11-0. Tvíliðaleikur: Brynja Steinsen TBR og Valdís Jónsdóttir Víkingi unnu Drífu Harðardóttur og Birnu Guðbjartsdóttur |A 15-1 og 15-7. Sveinar Einliöaleikur: Gunnar Petersen TBR vann Halldór Vikt- orsson TBR 11-6 og 11-5. Tvíliöaleikur: Gunnar Petersen og Halldór Viktorsson TBR unnu Skúla Sigurðsson og Kristján Daníelsson TBR 15-1 og 15-6. Tvenndarleikur sveinar og meyjar: Gunnar Petersen og Áslaug Jónsdóttir TBR unnu Halldór Viktorsson og Önnu Steinsen TBR 15-4 og 17-15. Meyjar Einliöaleikur: Anna Steinsen TBR vann Áslaugu Jóns- dóttur TBR 11 -5 og 11 -3. Tvíliöaleikur: Anna Steinsen og Áslaug Jónsdóttir TBR unnu Aðalheiði Pálsdóttur og Guðlaugu Júlíusdóttur TBR 15-3 og 15-3. Drengir Einliöaleikur: Óli Ziemsen TBR vann Birgi Örn Birgisson UMSB 15-7 og 15-12. Tvíliðaleikur: Óli Ziemsen og Sigurjón Þórhallsson TBR unnu Birgi örn Birgisson og Borgar Axels- son UMSB 15-8, 6-15 og 15-6. Tvenndarleikur drengir og telp- ur: Birgir örn Birgisson og Sigríður Geirsdóttir UMSB unnu Óla Ziemsen og Sigrúnu Er- lendsdóttur TBR 15-10, 12-15 og 15-11. Eflaust hörkuleikur Telpur Einliöaleikur: Sigríður Geirsdóttir UMSB vann Ágústu Andrésdóttur lA 11-5 og 11-4. Tvíliöaleikur: Sigríður Geirsdóttir og Heidy Johansen UMSB unnu Jóhönnu Snorradóttur og Sig- urbjörgu Skarphéðinsdóttur HSK 15-5 og 1511 Piltar Elnliöaleikur: Njáll Eysteinsson TBR vann Jón Ziemsen TBR 15-4 og 15-6. Tvíliöaleikur: Njáll Eysteinsson og Jón Ziemsen TBR unnu Karl Viðarsson (A og Finn Guð- mundsson UMSB 15-2 og 15-7. Tvenndarleikur piltar og stúlkur: Njáll Eysteinsson og Birna Petersen TBR unnu Jón Ziemsen og Ásdísi Þórisdóttur TBR 15-4 og 15-3. Stúlkur Einliöaleikur: Birna Petersen TBR vann Hafdisi Böðv- arsdóttur lA 11-4og 11-1. Tvíliöaleikur: Birna Petersen og Sigrún Erlendsdóttir TBR unnu Vilborgu Viðarsdóttur og Bertu Finnbogadóttur lA 15-8 og 17-15. -ste Næsta laugardag gæti einhver hcldur betur dottið í getraunap- ottinn. Engin röð var með 12 rétta að þessu sinni frekar cn síð- ast og er því potturinn þrefaldur. Það voru því fluttar 1.660.000,00 kr. í pottinn sem spilað er um á laugardaginn og má búast við gífurlegri sölu í kjölfar þess. í 25. leikviku voru aðeins 10 með 11 rétta og gaf hver röð eigandanum 42.800,00. Þar voru 8 raðir úr Reykjavík en ólán elti manninn á Hjalteyri sem var með einn leik tvítryggðan og sá leikur brást honum heldur betur því hann var rangur. Hópleikurinn Af vinningshöfum í 25. leikviku voru 4 þátttakendur úr hópleiknum. Það voru hóparnir Axel II, Ragnar, Nágrannar og BIS en 3 þeir síðastnefndu skiluðu sínum röðum í tölvutæku formi. 1X2... 1X2... 1X2...1X2...1X2... 26. leikvika: ISiíléÍS t Derby-West Ham.................................1 112x1211 Newcastle-Chelsea..............................1 112 11111 Portsmouth-Liverpool...........................2 22222222 Q.P.R.-Wimbledon...............................1 1x211111 Sheffield Wed-Tottenham........................1 1 1 2 2 2 1 1 x Watford-Coventry...............................x 111112x1 Barnsley-lpswich...............................1 1 1 1 1 x 1 1 x Huddersfield-Birmingham........................1 x x x x 1 2 x x Leeds-Blackburn................................1 1 1 1 1 1 2 1 x Leicester-Man.City.............................x 111111x2 Middlesbro-Bradford............................1 11x1112 1 Swindon-Millwall...............................x x x 1 x 1 1 x x 1X2 Bikaikeppni Hópleikur íslenskra getrauna sem hófst hjá fyrirtækinu á þessu tímabili hefur fallið í góðan jarð- veg hjá íslenskum tippurum. Hóparnir cru af öllum stærðum og gerðum og hluti hópleiksins hefur verið á bilinu 30-40% af heildarsölu. Verðlaunin eru glæsileg, 5 manna ferð á stórleik í Evrópu í vor á vegum íslenskra getrauna auk þess sem ákveðið hefur verið að hópar í 2. og 3. sæti fái einnig verðlaun þegar upp verður stað- ið. Nú hafa íslenskar getraunir ákveðið að hrinda af stað annars konar hópkeppni sem hefur mælst vel fyrir. Það er nokkurs konar bikarkeppni og mun hefj- ast þann 2. apríl n.k. Henni mun ljúka í síðustu leikvikunni á þessu tímabili, þann 7. maí. Sigurvegarinn mun hljóta veg- legan bikar til eignar og sæmdar- heitið „Bikarmeistari getrauna 1988“. Þá munu íslenskar get- raunir bjóða til kvöldverðar fyrir 5 manns á einu af betri veitinga- húsum borgarinnar. Staðan í 1 .deild karla FH . 13 10 3 0 363-284 23 Valur . 13 10 3 0 283-209 21 Víkingur.. . 13 9 0 4 334-289 18 UBK . 13 8 0 5 281-285 16 Stjarnan. . 13 5 2 6 295-318 12 KR . 13 5 1 7 281-295 11 IR . 13 4 2 7 277-308 10 Fram . 13 4 1 8 294-320 9 KA . 13 2 4 7 261-281 8 Þór . 13 0 0 13 247-327 0 Reglur: 1. Þátttökurétt hafa þeir hópar sem eru í 64 efstu sætunum í hóp- leik getrauna eins og staðan verð- ur að lokinni 30. leikviku, þann 26. mars næstkomandi. 2. Keppnin er í útsláttarformi. Þannig verða 2 hópar dregnir saman í innbyrðis keppni í hverri viku. Sá hópur sem hefur fleiri leiki rétta sigrar en hinn fellur út. Fái keppendur jafn marga leiki rétta vinnur sá sem er oftar með næstbesta skorið og svo koll af kolli. Dugi þessi aðferð ekki til skal varpað hlutkesti svo úrslit fá- ist. 3. Hver hópur má fylla út allt að 96 röðum í sérhvert skipti sem hann hefur þátttökurétt og skal röðunum skilað vandlega merkt- um hópnafninu og “Bikarkeppni getrauna". Allir hafa frjálst val um form útfyllingarinnar en skilafrestur er þangað til kl. 15.00 á föstudegi fyrir leikdag. fslensk- ar getraunir bjóða keppendum upp á símaþjónustu í sambandi við bikarkeppnina og geta þeir fyllt út raðir sínar í síma 688322. Athygli er vakin á því að 1. umferðin er í páskavikunni og síðasti skiladagur í bikarkeppn- ina fyrir þá hópa sem hefja kepp- ni er miðvikudagurinn 30. mars. Hópum er heimilt að nota þessar 96 raðir sem hluta af hópleiknum sem að sjálfsögðu heldur sínu striki. Tipparar eru hvattir til að fylgjast vel með framvindu mála. Miðvikudagur 24. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.