Þjóðviljinn - 26.02.1988, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBANDALAGK)
Alþýðubandalagið Hafnaríirði
30 ára afmælishátíð
30 ára afmælishátíð Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldin í Fé-
lagsheimilinu Garðaholti, laugardaginn 5. mars nk. (á afmælisdaginn að
sjálfsögðu) og hefst með borðhaldi kl. 20.00.
Dagskráin auglýst síðar, svo og miðasala en félagar eru beðnir að taka frá
tíma fyrir hátíðina. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Framhaldsaðalfundur
Framhaldsaðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn í
Rein, mánudaginn 29. febrúar kl. 20.30
Á dagskrá: Málefni Reinar. Félagar mætum öll og verum stundvís. Heitt á
könnunni. Reinarkaffið svíkur engan.
____________________________________________________Stjórnln
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 29. febrúar kl. 20.30, Dagskrá:
Fundargerðir bæjarstjómar fyrir bæjarstjórnarfund 1. mars. Önnur mál.
Stjórnin.
ABK
Morgunkaffi ABK
Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Elsa Þorkelsdóttir fulltrúi í fé-
lagsmálaráði og áfengisvarnanefnd verða með heitt á könnunni laugardag-
ínn 27. febrúar kl. 10-12. Allir velkomnir.
Skoðunarferð í Smárahvamm
Kl. 12.30 sama dag býður bæjarmálaráð til skoðunarferðar í Smárahvamm
og Fífuhvamm. Farið verður frá Þinghóli. Félagar eru hvattir til að mæta í
ferðina. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Félagsfundur
Félagsfundur ABK í Þinghóli mánudaginn 29. febrúar kl. 20.30. Fundarefni:
Heimir Pálsson kynnir Smárahvammsmál. Skipulagsmál og önnur mál. -
Stjórnin.
ÆSKUIYÐSFYLKINGIN
Utanríkismálanefnd ÆFAB
Fundur laugardaginn 27. febrúar að Hverfisgötu 105 kl. 13.30.
Farið verður yfir gögn um afvopnunarsamninginn og stjórnstöð í Keflavík.
Undirbúningur fyrir ráðstefnu.
Allir velkomnir. - Nefndin.
Ratsjárstofnun
Ratsjárstofnun óskar eftir að ráða starfsmenn vegna
reksturs ratsjárstöðva hérlendis.
Umsækjendur verða að hafa lokið námi í rafeinda-
virkjun eða hafa sambærilega menntun.
Starfsmenn mega gera ráð fyrir að þurfa að sækja
námskeið erlendis og hér á landi. Námstfmi erlendis
hefst í apríl nk. og stendur í um 2 mánuði.
Laun eru greidd á námstímanum.
Umsókn ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af því,
sakavottorði og heilbrigðisvottorði berist Ratsjárstofn-
un, Laugavegi 116, fyrir 16. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Ratsjárstofnun.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ratsjárstofnun í
síma 62 37 50.
Reykjavík, 26. febrúar 1988.
Ratsjárstofnun.
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni íslands er
laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1.
apríl næstkomandi.
Æskilegast er að umsækjendur hafi lokið há-
skólaprófi í bókasafnsfræði.
Starfið er einkum fólgið í skráningu blaða og
tímarita í þjóðdeild safnsins.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu fyrir 22. mars næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
23. febrúar 1988
Zsofia Polgar tefldi glæsilega í gærkvöldi. Mynd Sig.Mar
Polu þráskákaði
með unna stöðu!
Lev Polugaévsky tefldi við Karl
Þorsteins í þriðju umferð Reykja-
víkurskákmótsins sem tefld var í
gærkvöidi. Polu hafði hyítt og
fékk snemma betra tafl. í tíma-
hrakinu komst hann í mikla
kóngssókn og fórnaði Iirók. Hann
átti hins vegar mjög lítinn tíma
eftir, sá ekki einfalda vinningsleið
og tók jafntefli með þráskák. Það
má því segja að heilladísirnar hafi
verið Karls megin í þetta sinn.
Helgi Ólafsson tefldi við Tor-
ben Sörensen. Helgi fékk þægi-
legt frumkvæði út úr byrjuninni
og vann peð. Daninn skipti upp í
hróksendatafl en tókst ekki að
halda jöfnu.
Jón G. Viðarsson missti hrók í
tímahraki gegn Jóni L. og gafst
þá upp. Jón L. hafði reyndar haft
betra tafl allan tímann.
Hannes Hlífar virðist vera í
góðu formi því að hann þjarmaði
að Margeiri Péturssyni og þegar
skákin fór í bið hafði Hannes
betra tafl en Margeir á góða
jafnteflisrnöguleika.
Áskell Örn Kárason vann Jan-
ez Barle í mislitu biskupaenda-
tafli sem var jafntefli með bestu
taflmennsku. Barle lék hins veg-
ar illa af sér.
Hvítt: L. Polugaévsky (Sovétríkjun-
um)
Svart: Karl Þorsteins (íslandi)
Katalan.
1. Rf3 d5
2. c4e6
3. g3 dxc4
(Algengara er að bíða með að drepa á
c4 þangað til hvítur hefur leikið d4.
Nú kemur upp katalónsk byrjun á d4
hvíts.)
4. Da4+ Rd7
5. Bg2cS
6. Dxc4 Rgf6
7. Db3 Hb8
8. O-O b5
9. a4 a6
10. axb5 axb5
11. d3 Bd6
12. Rc3 O-O
13. Rg5 Re5
19/ini\88
REYKJAVÍKUR
V SKÁKMÓTIÐ
(Betra er 13. - Bb7 14. Rge4 Rxe4 15.
Rxe4 Be7 16. Bf4 Bd5 og svartur
sténdur ágætlega.)
14. Rge4 Rxe4
15. Rxe4 Rc6
16. Be3 Rd4
17. Bxd4 cxd4
18. Hfcl
(Hvítur stendur nú greinilega betur
vegna yfirráða yfir a- og c-línunni.)
18. - Bb7
19. Rxd6 Dxd6
20. Ha7 Bxg2
21. Kxg2 g6
22. Hac7 Hb6
23. Hlc5 Ha8
24. Dc2 Kg7
25. Dcl
(Hvítur hefur nú „þrefaldað" á c-
línunni og svartur getur ekki annað
en beðið þess sem verða vill. Síðasti
leikur hvíts er jafnframt lúmsk
gildra.)
25. - Ha2?
(f gin Ijónsins! Betra var 25. - e5.)
'Wák :i<m- wm x 'M^ x
m, S: ilri
I'B ¦ABÍ?B
26. Hh5!! c5
(Ekki 26. - gxh5? 27. Dg5+ Kf8 27.
Hc8+ og mátar.)
27. Dh6+ Kf6
28. Hxf7+! Kxf7
(Eða 28. - Ke6 29. Dg7! gxh5 30.
Hf6+ Kd5 31. Df7+ De6 32. Hxe6
Hxe6 33. Dd7+ Hd6 34. Dxb5+ Ke6
35. Dc4+ og vinnur.)
29. Dxh7+ Kf6
30. Dh8+ Ke6
31. Dg8+ Kf6
32. Dh8+ Ke6
33. Dg8+
iia
i w m i
Wfc Wá W&, IKI
¦ wk kM'
Polugaévsky var alveg að falla á tíma
og því þráskákaði hann og bauð jafn-
tefli. Karl þáði það að sjálfsögðu með
þökkum því að framhaldið gæti t.d.
orðið 33. - Kf634. Hh6! Kg5 35. h4+!
Kxh6 36. Dh8+ mát!
Polgar-systur hinar ungversku
ferðast um heim allan með foreldrum
sínum og tefla á skákmótum. Pær
vekja iðulega mikla athygli enda sýna
þær oft á tíðum mjög góða tafl-
mennsku. f gær vann Zsofia Polgar,
sem er aðeins 13 ára, Snorra Bergs-
son á glæsilegan máta:
Hvítt: Snorri Bergsson
Svart: Zsofia Polgar
Sikileyjarvörn.
1. e4c5
2. Rf3e6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 d6
6. g3 Rc6
7. Bg2 Bd7
8. O-O Be7
9. Be3?!
(Betra er 9. Rxc6.)
9. - Re5
10. b3 a6
11. h3 Dc7
12. Rce2 O-O
13. g4 h6
14. a4 d5
15. f4 Rg6
16. e5 Re4
17. c4 Hfd8
18. Bxe4?
(Öruggast er 18. cxd5 exd5 19. Hcl
Da5 og staðan er óljós.)
18.-dxe4
19. Dc2 Bc5!
20. Dxe4 Bc6
21. Dc2
Rxe5!!
22. fxe5 DxeS
23. Bf2?
(Eina vörnin var 23. Bf4 Bxd4+ 24.
Rxd4 Dxd4+ 25. Kh2 en svartur hef-
ur samt sem áður tögl og hagldir.)
23. - Hxd4!
24. Rxd4 Bxd4
25. Bxd4 Dxg3+
Og hvítur gafst upp enda mát í næsta
leik.
6 SÍÐA - WÓÐVILJINN
Úrslit ígær
L. Polugaévsky - Karl Þorsteins:
1/2-1/2
R. Ákesson - W. Browne: V2-V2
V. Kotronias - C. Höi: V2-1/2
J. Tisdall - M. Gurevich: 0-1
Hannes Hlífar - Margeir Péturs.:
bið
A. Adorjan - E. Gausel: V2-V2
Jón G. Viðarsson - Jón L: 0-1
Helgi Ólafsson - T. Sörensen: 1 -0
G. Dizdar - J. Lautier: bið
Sigurður Daði - Zsuzsu Polgar:
0-1
S. Dolmatov-BragiHalldórs.: 1-0
Stefán Briem - W. Schoen: 0-1
J. Barle - Áskell Örn Kárason: 0-1
Lárus Jóhannes. - Þröstur Þórh.-
0-1
Snorri Bergsson - Zsofia Polqar:
0-1
Arnar Þorsteins. - Ásgeir Þór: 1-0
Dan Hanson - Bjarni Hjartarson:
1-0
B. Östenstad - Tómas Her-
manns.: 1-0
Magnús Sólm. - L. Christiansen:
0-1
Sævar Bjarnason - Tómas
Björns.: bið
Þráinn Vigfús. - Judit Polgar: V2-
V2
Þorsteinn Þorst. - Halldór G.: 0-1
Guðmundur Gíslas. - Bogi Páls.:
1-0
Þröstur Árnason - Benedikt J.: 0-
1
Árni Ármann - Róbert Harðarson:
0-1
Jóhannes Ág. - Ögmundur Krist.:
A. Luitjen - Davíð Ólafsson: 0-1