Þjóðviljinn - 26.02.1988, Side 7
Palestína
Shultz mættur
til leiks
Pótt enginn virðist telja hann eiga hlutverki að gegna. Tveir
Palestínumenn voru vegnir og hópur ísraelskra friðarsinna hvetur
dáta til andófs
I' sraelskir hermenn skutu í gær
tvo palestínska pilta til bana í
miklum mótmælaaðgerðum á
herteknu svæðunum. I sama
mund lenti flugvél Georges
Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Jerúsalem en
hann kveðst þangað kominn til
þess að blása nýju lífi í friðarum-
ræðu Miðausturlanda.
Talsmaður ísraelshers greindi
frá því að meira en 100 Palestínu-
menn hefðu verið teknir höndum
í þorpinu Khabatijeh á vestur-
bakka Jórdanár í gær og væru
þeir grunaðir um hlutdeild í af-
töku svikara úr eigin röðum. Hús
tveggja manna hefðu verið eyði-
lögð af sömu ástæðu.
Shultz var keikur og brattur við
komuna til ísraels í gær. Honum
mæltist á þessa lund: „Atburðirn-
ir að undanförnu hafa fært
mönnum heim sanninn um þá
staðreynd að óbreytt ástand
þjónar ekki hagsmunum neins.“
Fréttastofa Palestínumanna
greindi frá því síðdegis í gær að
kennsl hefðu verið borin á lík
tveggja síðustu fórnarlamba ísra-
elsmanna á vesturbakkanum.
Hinir látnu væru Sami Al-Dajeh,
og Isam Khalifa. Sá fyrrnefndi
bjó í Nablus og var 14 ára gamall.
Khalifa var búsettur í Jenín og
var á 19da aldursári.
Talsmaður ísraelshers stað-
festi að til mikilla mótmælaað-
gerða Palestínumanna hefði
komið á herteknu svæðunum í til-
efni komu Shultz. En sínir menn
hefðu verið við því búnir.
Bandaríski utanríkisráðherr-
ann segist hafa nýjar tillögur
meðferðis um friðarsáttmála og
skipan mála á vesturbakkanum
og Gazasvæðinu. Það er svosem
gott og blessað en sá er hængur á
Mótmæli Palestínumanna á herteknu svæðunum halda áfram, þrátt fyrir
Shultz.
Suður-Kórea
Roh sver
Roh Tae Woo tók formlega við
embætti forseta Suður-Kóreu
í gær. Hét hann við það tækifæri
að í framtíðinnni yrðu lýðræðis-
legar leikreglur og mannréttindi
haldin í heiðri í landi sínu. Einnig
sagðist hann ætla að bæta sam-
skipti Suður-Kóreu við banda-
menn sína í hópi ríkja heims.
Fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, James Baker að nafni, var
fulltrúi Reagans forseta síns við
svardagann í gær og einnig var
þar mættur Noboru Takeshita,
forsætisráðherra Japans. Ekki
hafði Roh verið forseti nema í
tvær klukkustundir þegar hann
hóf viðræður við þá um aukin
ríkjatengsl.
I hátíðarræðu sinni sagði Roh
þá tíð á enda að „sterki maður-
inn“ sæti yfir hlut manna í Suður-
Kóreu. Hann kvaðst sjá fyrir
hugskotssjónum „stórbrotið
skeið alþýðumannsins sem njóta
mun góðs af lýðræðisumbótum
og þjóðarsátt.“ Sjálfur myndi
hann ekki skella skollaeyrum við
orðum andstæðinga sinna.
Ekki virtust allir dáleiddir af
töframætti fyrirheita Rohs. Um 2
þúsund vinstri sinnaðir náms-
menn slógust drykklanga stund
við sveitir lögregluþjóna í höfuð-
borginni Seoul og sögðu „kosn-
ingasvindlaranum“ að fara
norður og niður. Reuter/-ks.
að ísraelska ríkisstjórnin er klofin
í afstöðu til erindis hans, Palest-
ínumenn vilja hvorki heyra hann
né sjá og leiðtogar arabaríkja eru
barmafullir tortryggni.
fsraelskir friðarsinnar dreifðu í
gær bæklingum meðal dáta á her-
teknu svæðunum þar sem þeir
eru hvattir til þess að óhlýðnast
fyrirskipunum um að berja eða
skjóta Palestínumenn.
f pésanum eru upplýsingar um
það hvenær skipanir yfirmanna
varði við lög og hvenær ekki. Þar
er vitnað í lögspekinga, herreglu-
gerðir og Genfarsáttmála númer
4.
Höfundar heyra til samtökum
sem heita „Öllu eru takmörk
sett.“ Þeir rita: „Hafið hugfast!
Ef þið fáið fyrirskipanir um að
berja fólk að ósekju eða pynda
fanga varðar það við herlög að
hlýða!“ Reuter/-ks.
Sovétríkin
Armenar ólmir af reiði
Sovésk stjórnvöld vilja sporna gegn fréttaflutningi afgífurlegum
mótmœlum ílýðveldunum Armeníu ogAzerbaijan
Ekkert lát virðist ætla að verða
á mótmælum fólks í Jerevan,
höfuðborg Armeníu. I gær
flykktust þúsundir manna um
stræti og götur og kröfðust þess
að landamærin að Azerbaijan
yrðu tafarlaust dregin á ný.
„Allur miðbærinn einsog hann
leggur sig er troðfullur af fólki.
Ég hef aldrei séð annað eins,“
sagði ónefndur sjónarvottur í
símasamtali við fréttamann Re-
uters í Moskvu. Hann bætti því
við að lögreglumenn hefðu ítrek-
að reynt að dreifa mannfjöldan-
um en allt komið fyrir ekki.
Ráðamönnum er bersýnilega
ekki að skapi að heimsbyggðin fái
fréttir af þjóðernisólgu innan
endimarka ríkis síns því í gær
gerðu þau allt sem í þeirra valdi
stóð til þess að hindra fréttaflutn-
ing frá Armeníu og Azerbaijan.
Erlendum fréttamönnum, sem
sótt hafa um fararleyfi til Armen-
íu, hefur verið tjáð að lýðveldið
sé „lokað“ um stundarsakir og
símasamtöl þeirra við andófs-
menn í Jerevan hafa verið rofin
hvað eftir annað.
Ljóst má vera að tugir þúsunda
manna hafa undanfarna daga
haft í frammi hatrömm mótmæli í
Armeníu og krafist þess að hér-
aðið Nagorno-Karabakh í ná-
grannalýðveldinu verði armenskt
svæði á ný.
Fyrrnefndur heimildamaður
sagði andófsfólki vera mikið niðri
fyrir og sú saga flygi fjöllum
hærra að til mannskæðra átaka
hefði komið á milli herlögreglu
og mótmælenda í héraðinu sem
styrinn stendur um.
Talsmaður Kremlverja sagði í
gær að hann hefði engu að bæta
við þær fátæklegu fréttir sem birst
hefðu í sovésku pressunni um
málið. Hann gat þess þó að „yfir-
Iýsingar" um Nagorno-Karabakh
væri að vænta á þriðjudaginn
kemur.
Það fer ekki á milli mála að
sovéskir ráðamenn líta þessa at-
burði í Armeníu og Azerbaijan
mjög alvarlegum augum. f fyrra-
dag greindi Tass fréttastofan frá
því að yfirmaður héraðsdeildar
kommúnistaflokksins í Nagorno-
Karabak, Boris Kevorkov, hefði
verið leystur frá störfum sökum
„vítaverðrar vanrækslu." Ó-
kyrrðin meðal smærri þjóða og
þjóðarbrota, í Miðasíuhluta So-
vétríkjanna og Eystrasalts-
löndum, veldur aðalritaranum
Gorbatsjov miklum áhyggjum.
Svo miklum að í síðustu viku á-
kvað hann að kalla saman sér-
stakan miðstjórnarfund um
þjóðamálið.
Forsaga uppþotanna í Armen-
íu og Azerbaijan nær aftur til
árdaga Sovétríkjanna. Við lyktir
borgarastyrjaldarinnar árið 1920
ákváðu oddvitar stjórnar bolsé-
víka að héraðið Nagorno-
Karabakh skyldi flutt frá Armen-
íu til Azerbaijan þótt 90 af hundr-
aði íbúa þess væru Armenar. Frá
fornu fari hefur verið grunnt á því
góða á milli þjóða lýðveldanna
tveggja enda Armenar kristnir
menn með sinn einkasið en íbúar
Azerbaijan sítamúslimir upp til
hópa.
Reuter/-ks.
Suður-Afríkustjórn
Lætur kné fylgja kviði
H
víta minnihlutastjórnin í
Suður-Afríku lætur skammt
stórra högga á milli þessa dagana
og virðist hafa í hyggju að afnema
minnsta vott mannréttinda
blökkumanna. í gær ákváðu þeir
að hefta mjög ferða- og athafna-
frelsi helstu forystumanna svert-
ingja sem eru ekki annaðhvort
þegar á bak við lás og slá eða
njóta kirkjugriða.
Óvíst er hve mörgum leið-
togum þeldökkra hefur verið gert
að halda kyrru fyrir en þeir eru
ekki taldir færri en 7. Þeirra á
meðal eru frú Alertína Sisulu og
Archie Gumede. Vitað er að
nokkrir hinna bannfærðu fóru í
felur. Samkvæmt tilskipuninni
frá því í gær er fólkinu meinað að
halda fréttamannafundi og gert
að dvelja heima hjá sér lungann
úr sólarhringnum.
Kirkjuráð Suður-Afríku efndi
til neyðarfundar í gær þar sem
prestar voru hvattir til að mót-
mæla gerræði ráðamanna úr pre-
dikunarstólum á sunnudaginn
kemur. Meðal fundarmanna var
erkibiskup ensku biskupa-
kirkjunnar í Suður-Afríku, nób-
elsverðlaunahafinn Desmond
Tutu. Hann beindi orðum sínum
til þjóða heims og skoraði á þær
að einangra stjórn hvítra manna
„til þess að þeir neyðist til að
sveigja af þeirri tortímingarbraut
sem þeir feta nú.“ Reuter/-ks.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA R(KISSJÓE)S
(2.FLB1985
Hinn 10. mars 1988 erfimmti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggöra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 5 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini
kr. 2.620,85
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. september 1987 til 10. mars 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 1968 hinn 1. mars 1988.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 5 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars 1988.
Reykjavík, febrúar 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS
Föstudagur 26. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7