Þjóðviljinn - 27.02.1988, Blaðsíða 1
Laugardagur 27. febrúar 1988 47. tölublað 53. árgangur
Nýir Garðastrœtissamningar
34 þúsund í samningslok
Gildistímifram i mars á nœsta ári. Lágmarkslaun í
samningslok 34.000 krónur. Fjórir
samninganefndarmenn neituðu að skrifa undir
Samningar tókust á fímmta
tímanum í gærmorgun, eftir
að samninganefndir Verka-
mannasambandsins og atvinnu-
rekenda höfðu setið samfellt í 36
klukkustundir á samningafundi.
Samningurinn færir félögum
VMSÍ um 13,5% hækkun launa á
samningstímabilinu, sem er til 18.
mars á ári komanda.
Fjórir samninganefndarmenn
VMSÍ, sem verið hafa í farar-
broddi sem talsmenn fiskverka-
fólks, neituðu að skrifa uppá
samkomulagið þegar kom að
undirskrift. Þetta voru fulltrúar
Austfirðinga, Akurnesinga og
Vestmannaeyinga.
Við gildistöku samningsins
hækka grunnlaun um 1525 krón-
ur á mánuði. Aðrar grunnlauna-
hækkanir á samningstímabilinu
eru sem hér segir: 1. júní 3,25%,
1. september 2,5% og 1. febrúar
2,0%. í lok samningstímans
verða lágmarkslaun 34.004 krón-
ur, í stað 29.975 króna í dag.
Að auki er gert ráð fyrir des-
emberuppbót kr. 4500 sem legg-
ist ofan á laun fólks í fullu starfi,
en helmingi minni upphæð fyrir
þá sem eru í hálfu starfi.
í samningnum er tekið upp
nýtt starfsaldurshækkanakerfi í
fimm þrepum. Mest er hækkunin
eftir 12 ára starf eða 8%. Maður
með 12 ára starfsaldur hefur því
um 35.000 króna mánaðarlaun.
Samið er um tvö rauð strik, 1.
júlí og 1. nóvember. Gengið er út
frá að verðbólga á árinu verði
ekki hærri en 16%.
Efnahagsnefnd ríkisstjórnar-
innar, sem í eiga sæti tveir ráð-
herrar frá hverjum stjórnarflokk-
anna, sat á fundi í gær og ræddi
aðgerðir í efnahagsmálum, sem
ríkisstjórnin hyggst grípa til upp-
úr helgi.
Sjá bls. 5, 6 og bak
Félagsmálaráðherra
Hyggst kæra Þjóviljann
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur ákveðið
að kæra Þjóðviljann til siða-
nefndar Blaðamannafélagsins
fyrir að neita að gefa upp heimild-
armann sinn innan ráðuneytis
hennar sem vitnað var til í fors-
íðufrétt biaðsins á fímmtudag um
ráðhússmálið.
í bréfi sem ráðherra sendi
blaðinu í gær segir Jóhanna m.a.
að hún uni því ekki að „gefið sé í
skyn að starfsmenn ráðuneytis
míns séu bornir þeim sökum að
hafa gerst brotlegir í opinberu
starfi, þótt ég láti mér í léttu rúmi
liggja frásögn blaðsins að öðru
leyti.“ Ráðuneytið muni því vísa
málinu til siðanefndar Blaða-
mannafélagsins þar sem „óviðun-
andi sé að saklaust fólk sé bendl-
að við brot í starfi," eins og segir
orðrétt í bréfi ráðherrans.
Þjóðviljinn hefur í samtölum
við ráðuneytisstjóra félagsmála-
ráðuneytisins alfarið neitað því
að gefa upp nafn heimildarmanns
síns innan ráðuneytisins fyrir um-
ræddri frétt. Vísar Þjóðviljinn til
2. greinar siðareglna Blaða-
mannafélagsins þar sem segir
orðrétt: „Blaðamaður virðir
nauðsynlegan trúnað við
heimildarmenn sína.“
-<g
Sjá bls. 2
Menningarsjóður
RÚV mjólkað
Útvarpsstjórifer fram á að störfstjórnar
Menningarsjóðs verði könnuð. Útvarpið
greiddi 60 miljónir enfœr 8,5 miljónir. Stöð2
greiddi 5,4 miljónir enfœr 5,7 miljónir
Vestmannaeyjar
Snöt í hart
- Okkur getur ekki litist á
þennan samning, enda höfum við
áður vísað Vestfjarðasamningn-
um og kröfugerð Verkamanna-
sambandsins frá okkur, sagði Vil-
borg Þorsteinsdóttir, formaður
verkakvennafélagsins Snótar i
Vestmannaeyjum, en félagið hef-
ur boðað verkfall frá og með
föstudegi í næstu viku.
Snót hefur ekki tekið þátt í
störfum Verkamannasambands-
ins síðan í haust er fulltrúar fisk-
vinnslufólks gengu út af fundi
sambandsins.
Vilborg sagði að atvinnurek-
endur í Eyjum hefðu fram til
þessa daufheyrst við kröfum
Snótar. - Það getum við ekki sætt
okkur við og þessvegna sjáum við
okkur ekki annað fært en að boða
verkfall, sagði Vilborg. -rk
r
Utvarpsráð mótmælti í gær
skýringum stjórnar Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva á því
hversvegna Ríkisútvarpinu hefur
verið úthlutað svo lítið úr sjóðn-
um.
RÚV hefur greitt 60,5 miljónir
í sjóðinn en fær aðeins úthlutað
rúmum 8,5 miljónum á meðan
Stöð 2 fær úthlutað rúmum 5,7
miljónum en hefur aðeins greitt
tæpar 5,4 miljónir í sjóðinn.
Sjóðstjórnin segist hafa sett sér
þá vinnureglu að úthluta ekki til
þeirra sem skulda sjóðnum. Tel-
ur útvarpsráð þetta mistúlkun á
reglugerð og misbeitingu valds,
sem stjórnin hefur ekki. Auk
þess er bent á að RÚV hafði fyrir
úthlutunina 15. febrúar að fullu
greitt sinn hlut.
Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri hefur farið fram á að
ríkisendurskoðun rannsaki
vinnubrögð sjóðstjórnar.
-Sáf
Vel fer á með Breiðavaðshryssunni og fósturhreini Jóhanns bónda Magnússonar. (Mynd: Björn S. Júlíusson)
Hreinkálfur í fóstur
Dafnar vel á mjólk og heyi eftir rýran kost í haga
Austur á Héraði hefur bóndinn
á Breiðavaði í Eiðaþinghá
tekið hreindýrskálf í hús og elur
hann á mjólk og heyi.
Jóhann Magnússon bóndi
sagði við Þjóðviljann að kálfur-
inn hefði verið máttlaus og
aumingjalegur þegar hann kom
fyrir um hálfum mánuði, en væri
nú allur að hjarna við. Framtíð
dýrsins sagði hann óráðna. Ef
það dafnaði vel væri annað hvort
að sleppa því með vorinu eða
temja það og setja fyrir sleða.
Tveir kennarar við Alþýðuv
skólann á Eiðum fönguðu:
hreindýrskálfinn, þar sem hann1
var einn á rangli í nálægri skógar-
girðingu í ætisleit. Var ætlunin að
sýna hann nemendunum, sem
voru ekki gleggri en svo, að þau
héldu að dýrið væri hundur.
Undanfarið hsfa hreindýrin
mikið sótt niður í byggð á Austur-
landi og hafa 10-20 dýr fundist
þar dauð. Jón Pétursson dýra-
læknir á Egilsstöðum sagði að
dauða dýranna mætti meðal ann-
ars rekja til snöggra fóðurskipta.
Þau væru hungruð og farin að
taka orku frá sjálfum sér, er þau
kæmust snöggíega í æti á lág-
lendi. Vömbin í hreindýrunum
væri ekki innstillt á að melta
þessa fæðu, sem oft væri léleg,
s.s. kvistir og berjalyng, sem þau
sæktu ekki í nema í neyð.
mj
Sambandið
Allt á reiðiskjálfi
Sjá bls. 3