Þjóðviljinn - 27.02.1988, Blaðsíða 3
Eysteinn Helgason kemurtil landsins
í dag og segist ætla að greina frá því
hvernig málið hefur borið að.
FRÉTT1R
Sambandið
Sprengjan springur
í allar áttir
Guðjón B. Ólafsson tryggði sér meirihluta í stjórn
Iceland Seafood með því að ráða Ólaf Friðriksson
kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki sem framkvæmda-
stjóra verslunardeildar og notaði þann meirihluta svo
til að bola Eysteini Helgasyni og Geir Magnússyni úr
störfum. Óljóst hverjar ástæður uppsagnanna eru.
Könnun á fjárreiðum Guðjóns fyrir vestan gæti verið
ein af orsökunum, eða öfund. Dallasdrama við
Sölvhólsgötu
„Þegar menn kasta svona
sprengjum fram einsog gert hefur
verið undanfarna daga, verða
þeir að gera sér grein fyrir því að
slíkar sprengjur geta sprungið í
allar áttir,“ sagði háttsettur emb-
ættismaður í Sambandinu við
Þjóðviljann í gær.
Guðjón B. ðlafsson og Sigurð-
ur Markússon flugu vestur um
haf á fimmtudag til að bera þeim
Eysteini Helgasyni, forstjóra Ice-
land Seafood, og Geir Magnús-
syni aðstoðarforstjóra, þá niður-
stöðu stjórnar fyrirtækisins að
þeim væri sagt upp störfum.
Eysteinn neitar
Mál þetta á sér langan aðdrag-
anda eða allt aftur til september í
fyrra. Þá hafði Guðjón samband
við Eystein og vildi að hann ræki
Geir en gaf engar skýringar á því
hversvegna hann vildi að Geir
yrði látinn fjúka.
Geir Magnússon var fjármála-
stjóri Guðjóns, á meðan Guðjón
var framkvæmdastjóri Iceland
Seafood, og hafði samstarf þeirra
verið með ágætum.
Eysteinn neitaði að reka Geir
en þá stillti Guðjón Eysteini upp
við vegg og hótaði að reka hann.
Guðjón hefur ekki umboð til að
reka Eystein, heldur verður
stjórn fyrirtækisins að samþykkja
brottvikningu. Guðjón var hins-
vegar í minnihluta í stjórn fyrir-
tækisins.
Flétta
í verslunardeild
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar Sambandsins, stóð með Guðj-
óni en Erlendur Einarsson, fyrr-
verandi forstjóri SíS, Gísli Jónat-
ansson, kaupfélagsstjóri á Fá-
skrúðsfirði, og Marteinn Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Fisk-
iðju Sauðárkróks, mynduðu
blökk gegn þeim Guðjóni og Sig-
urði.
Þá gerðist það að Ólafur Frið-
riksson, kaupfélagsstjóri á
Sauðárkróki, var ráðinn af Guð-
jóni sem yfirmaður verslunar-
deildar Sambandsins, öllum að
óvörum, því reiknað hafði verið
með því að Axel Gíslason fengi
það starf.
Fiskiðja Sauðárkróks heyrir
undir kaupfélagið á staðnum og‘
er Marteinn því undirmaður
Ólafs, sem nýverið hefur hlotið
vegtyllu af Guðjóni. Enda snýst
Marteini hugur og styður nú
Guðjón. Þegar Guðjón hefur
þannig tryggt sér meirihluta í
stjórn Icelandic Seafood kallar
hann saman stjómarfund sl. mið-
vikudag þar sem stjórn samþykk-
ir með þremur atkvæðum gegn
tveimur að segja bæði Eysteini og
Geir upp störfum. Daginn eftir
flugu þeir Guðjón og Sigurður
svo vestur um haf.
Guðjón hefur borið fyrir sig
samskiptaörðugleika og háttsett-
ur embættismaður í Sambandinu
sagði að hér væri um að ræða
stjórnunarágreining, sem snéri
bæði inn á við og út á við.
Fjárreiður Guðjóns
Sigurður Markússon, fram- Ein hlið á þessu máli er að í
^OPAjv
/iii °-
Prammi til sölu
Kauptilboð óskast í prammann „Svart“ ásamt
tveimur Harbormaster vélum.
Pramminn „Svartur11 er af gerðinni Uniflot og
samanstendur af eftirtöldum einingum:
1. 6 stk. grunneiningar (basic units)
Lengd 5,3 m, breidd 2,4 m, hæð 1,2 m.
2. 3 stk. skáeiningar (Ramp units)
Lengd 3,7 m, breidd 2,4 m, hæð 0-1,2 m.
3. 2 stk. endaeiningar (bow and stern units)
Lengd 1,8 m, breidd 2,4 m, hæð 0-1,2 m.
Vélarnar eru af gerðinni Harbormaster 5 hö með
gírum, stýringu, skrúfum og festingum fyrir
prammann.
Ofanareindur búnaður er í notkun hjá fiskeldis-
stöð ÍSNO hf. í Vestmannaeyjum og verðurtilbú-
inn til afhendingar þar eða í Reykjavík 1. apríl
1988.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ara-
son hjá Vegagerð ríkisins í síma (91) 21000.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu Innkaupa-
stofnunar ríkisins fyrir kl. 11.00 f.h. miðvikudag-
inn 9. mars nk. þar sem þau verða opnuð í viður-
vist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
uppsögnunum fyrir vestan virðist
hinsvegar enginn geta sagt um,
en samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er þessi rannsókn enn í
gangi og Geir Magnússon var
fjármálastjóri Guðjóns á sínum
tíma og veit því manna best um
persónulegar fjárreiður Guðj-
óns.
Dallasfamilían
Mönnum gengur sem sagt illa
að finna ástæðu fyrir því að Guðj-
óni virðist svo mikið í mun að
reka þá Eystein og Geir.
„Nema Guðjón sjái ofsjónum
yfir árangri Eysteins fyrir vest-
an,“ sagði einn heimildarmanna
Þjóðviljans.
Þegar Eysteinn tók við starfi
sem forstjóri Iceland Seafood hóf
hann strax uppstokkun og endur-
skoðun á verðlagningu á þeim
afurðum sem fyrirtækið selur.
Þrátt fyrir hráefnisskort á síðasta
ári kom rekstur fyrirtækisins
mjög vel út og var hagnaðurinn
mun meiri en í tíð Guðjóns.
Æðsta stjórn Sambandsins
virðist vera hálfgerð „Dallasfam-
ilía“ einsog einn viðmælenda
Þjóðviljans sagði í gær en annar
sagði að J.R. og aðrar Dallasper-
sónur bliknuðu í samanburði við
það sem væri að gerast innan
Sambandsins. Ljóst er að lítið er
um kærleika milli gömlu jaxlanna
Vals Arnþórssonar og Erlends
Einarssonar annars og Guðjóns
B. Ólafssonar hinsvegar.
Stjórn Sambandsins hefur ráð-
gert að koma saman seint í mars
en skoðanir voru skiptar milli
stjórnarmanna sem Þjóðviljinn
ræddi við um það hvort flýta bæri
fundinum í ljósi síðustu atburða.
Eysteinn mun koma til lands-
ins í dag og skýra sitt mál eftir
helgi en Guðjón er væntanlegur á
sunnudag.
Guðjón B. Ólafsson heilsar Herði Zóphaníassyni á stjórnarfundi Sambandsins
sl. sumar þegar Útvegsbankamálið var í brennideplinum. Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður SÍS, með álitsgerð lögfræðings á borðinu.
janúar sl. hafði Valur Arnþórs- ekki síst að ná til ára Guðjóns
son, formaður stjórnar Sam- vestanhafs. Geir hafði samband
bandsins, samband við Geir við Guðjón og greindi honum frá
Geirsson, endurskoðanda Sam- ósk Vals og Guðjón varð fjúk-
bandsins, og fór fram á að Geir andi illur og bannaði Geir að fara
rannsakaði persónulegar fjár- vestur um haf.
reiður Guðjóns og á sú rannsókn Hvort þessi rannsókn tengist
vörum í gjafr
m* mI 1 *> t
Jón Loftsson hf. _______________
Hringbraut 121 Sími 10600
Gjafa- og búsáhaldadeild, 2. hæð