Þjóðviljinn - 27.02.1988, Qupperneq 16
Nýjungar
Ginseng (panax ginseng C.A.
Meyer) af hæsta gæöaflokki
frá Kóreu. Ginseng er m.a.
notaö til aö styrkja mót-
stöðuafl líkamans gegn
streitu og sjúkdómum.
Jt/ÍTÓfíÓ
„Sífellt fleiri rannsóknir á efn-
um til varnar sjúkdómum
benda til þess aö nokkur
næringarefni dragi úr tíöni
krabbameins í þekjuvef lík-
amans. Meöal þeirra eru A, C
og E vítamín, /3-karótín (for-
veri A vítamíns) og selen".
Hennekens C.H., M.J. Stampfer & W. Willett:
Channing Laboratory, Department of
Medicine, Harvard Medical School and
Brigham and Women's Hospital, and the
Department of Epidemiology, Harvard
School of Public Health, Boston, MA
Cancer Detection and Prevention 1984 7,147.
Hollar Omega-3 fitusýrur
fyrir hjarta og æöakerfi. Ekk-
ert annaö lýsisþykkni á ís-
landi er auöugra af omega-3
fitusýrum, þ.e. 50% innihald
af EPA og DHA. Hylkin inni-
halda ekki A- og D-vítamín.
Jtfk TÓRÓ HF
Síöumúla 32, I08 Reykjavík. a 686964
Sparisjóösvextir
og yfirdráttur
á téKKareiKnirgum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
VMSÍ/VSÍ
Uppá óvissa framtíð
Björn Grétar Sveinsswon, Höfn: Hafði ekki umboð til að skrifa undir
Við Sigurður Ingvarsson frá
Eskifírði töldum okkur ein-
faldiega ekki hafa umboð félag-
anna til að skrifa uppá þetta sam-
komulag, sagði Björn Grétar
Sveinsson, formaður verkalýðs-
félagsins Jökuls á Höfn í Horna-
fírði.
Björn sagði að Austfirðingar
hefðu gengið inní þessar kjara-
viðræður við hlið annarra félaga
sinna í Verkamannasambandinu
í þeirri trú að betri árangur næðist
varðandi starfsaldurshækkanir
fiskverkafólki til handa.
- Það er algjör fjarstæða að
þessi samningur færi fiskverka-
fólki eitthvað umfram aðra.
Sjálfsagt eiga menn þar við vilja-
yfirlýsingar um endurskoðun á
bónuskerfinu. Þar eru menn
hreinlega að spila uppá óvissa
framtíð.
- Að svo stöddu vil ég ekki
ræða frekar efnisatriði samnings-
ins. Samningurinn verður borinn
upp í félögunum hér á Austur-
landi og það verður að koma í ljós
hver spyr að leikslokum, sagði
Björn.
-rk
Avísun á
kjaraskerðingu
Jón Kjartansson, Vestmannaeyjum: Ekki hægt að
skrifa undir samning um 4% kaupmáttarrýrnun hjá
fiskverkafólki. Hagsmunir stangast áinnan VMSÍ
P gersáróánægðurmeðútkom- samþykkt að deildaskipta sam-
C una úr þessu samkomuiagi.
Hagfræðingur Alþýðusambands-
ins reiknar dæmið þannig að
samningurinn þýði í reynd 4%
kjaraskerðingu á samningstím-
abilinu fyrir fiskverkafólk, þegar
miðað er við meðal kaupmátt síð-
asta árs, sagði Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja, en hann var í
hópi þeirra sem neitaðu að skrifa
undir samning VMSÍ og atvinnu-
rekenda í fyrrinótt.
bandinu. - Tíminn verður að
leiða í ljós hvort það dugir til svo
sambandinu verði haldið saman.
Því miður virðast hagsmunir
stangast á innan VMSÍ og fisk-
verkafólk hefur orðið að láta í
minni pokann, sagði Jón. -rk
Gunnar Friðriksson, formaður VSÍ, og Guðmundur J. Guðmundsson skrifa
undir nýjan Garðastrætissamning árla í gærmorgun.
Kjaraskerðing óumflýjanleg
Þórarinn V. Þórarinsson, VSÍ: Ljóstað kaupmáttur rýrnar á árinu. Svigrúmtil
launahœkkana ekki meira
- Við vorum þarna vitanlega í
þeirri góðu trú að við værum að
gera samninga sem þýddu ein-
hverja viðbót verkafólki tii
handa. Það eru fleiri atriði en
þetta eina sem ég nefndi, sem ég
er ósáttur við í þessum samningi,
sagði Jón.
Jón sagði það hafa verið í hæsta
máta ósmekklegt ef hann hefði
farið að samþykkja samninginn
vitandi vits að stallsystur hans í
Snót væru honum andvígar. -
Slíkt kom ekki til greina, sagði
Jón.
Jón sagði að það dyldist vart
nokkrum manni að VMSÍ væri
klofið og hefði lengi verið. Á
þingi sambandsins fyrr í vetur var
essir samningar fela engan
veginn í sér þá hækkun lág-
markslauna sem nauðsynlegt
hefði verið að knýja fram, sagði
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins við
Þjóðviljann í gær um nýgerða
kjarasamninga VMSÍ og VSI.
„Launamunurinn í landinu
mun því miður einnig halda
áfram að vaxa,“ sagði Ólafur. „í
stefnu Alþýðubandalagsins um
nýjan lífskjarasáttmála var hins
vegar kveðið á um að lágmarks-
launin yrðu að ná 45 til 50 þúsund
krónum fyrir dagvinnu, og veita
ætti fullar verðtryggingar á
launin. Þær upphæðir sem samið
var um í Garðastrætinu eru hins
vegar mun lægri og verðtrygging-
arnar mjög veikar.
að er ekkert sem getur komið í
veg fyrir að kaupmáttur rýrni
á árinu. Við stöndum einfaldlega
frammi fyrir slíkum samdrætti og
þessi samningur fær því ekki
breytt, sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, hjá Vinnuveitendasam-
bandinu, er hann var spurður um
kjarasamning atvinnurekenda og
Verkamannasambandsins.
Þórarinn sagði að aftur á móti
væri samningnum við Verka-
mannasambandið ætlað að færa
þeim hópum, sem engra launa-
hækkana og launaskriðs hafa not-
ið, nokkra bót og tryggja um leið
Alþýðubandalagið mun því
áfram halda fram kröfum sínum
um 45 til 50 þúsund króna lág-
markslaun og um að gerður verði
sérstakur lífskjarasáttmáli sem
feli í sér tryggingu fyrir slíkum
lágmarkslaunum, jafnhliða því
að launamisréttið í landinu
minnka og tekið verði mið af nýju
lífskjaramati þar sem lögð yrði
rík áhersla á styttingu vinnutím-
ans og félagsleg réttindi.
Reynslan af kjarasamningum nú
og undanfarin ár sýnir að það er
brýnt að leita nýrra leiða til að
tryggja aukið réttlæti í launamál-
um. Þær aðferðir sem beitt hefur
verið duga greinilega skammt.
Lögbinding lágmarkslauna og
ákvæði um leyfilegan launamun í
landinu eru því meðal þeirra at-
að kaupmáttur þeirra sem lægst
launin hefðu minnkaði ekki að
sama skapi og annarra sem hærri
laun hefðu.
- Okkar ásetningur er að
standa mjög fast gegn hækkunum
til hærra launaðra hópa, sagði
Þórarinn, og benti á að svigrúm
fyrir frekari launhækkanir væri
einfaldlega ekki fyrir hendi.
Þórarinn sagðist helst ekki
vilja meta hvaða hækkanir samn-
ingurinn í heild sinni færði fé-
lögum í Verkamannasamband-
inu. - Það er ljóst að samningur-
inn færir sumum hópum meira en
riða sem brýnt er að taka á dag-
skrá þegar samningaleiðin skilar
ekki meiri árangri en raun ber
vitni.
Ólafur Ragnar, sem nú er í
fundaferð framkvæmdastjórnar
og þingflokks Alþýðubandalags-
ins á Suðurlandi, sagðist hafa
heimsótt fjölmarga vinnustaði á
Selfossi, „og alls staðar þar sem
við höfum komið ríkja mikil von-
brigði með niðurstöður þessara
samninga. Tónninn er alls staðar
sá sami. Fólkið veit að það lifir
enginn af 33 til 35 þúsund krón-
um á mánuði. Hin réttláta reiði
sem við höfum skynjað á vinnu-
stöðunum á undanförnum vikum
er áfram fyrir hendi þrátt fyrir
þessa nýju samninga.
öðrum. Ef við tökum fiskverka-
fólk sérstaklega, þá lætur nærri
að hækkanir til þess nemi um 18-
19% þegar allt er meðtalið.
-rk
Skásti
kosturinn
Sigurður T. Sigurðsson,
Hlíf: Taldimiggera
réttast í að skrifa undir
- Á þessu stigi málsins höfðum
við um tvennt að velja: annað
hvort að skrifa undir eða byrja
uppá nýtt. Ég er ekki í nokkrum
vafa um það að við verðum ekki
fyrir eins mikilli kjaraskerðingu
og ef málin hefðu verið látin af-
skiptalaus, sagði Sigurður T. Sig-
urðsson, formaður verkamann-
afélagsins Hlífar í Hafnarfírði.
Sigurður sagði að hann væri í
mörgu sáróánægður með samn-
inginn. - Ég skrifaði undir með
þessum venjulega fyrirvara um
samþykki heima í héraði og það
er enginn sem getur sagt til um
það hvort samningurinn verður
samþykktur af félaginu eða ekki,
sagði Sigurður.
Aðspurður um hvort Verka-
mannasambandið gengi frá leik
klofið, sagðist Sigurður ekki telja
að svo væri. - Mér fannst mun
alvarlegra ástand uppi innan
sambandsins í haust. Talsmenn
fiskverkafólks sem skrifuðu ekki
undir samninginn eru einfaldlega
að undirstrika sérstöðu sína með
þessum hætti. Það er ekkert
óeðlilegt, sagði Sigurður. -rk
Þurfum nýjar leiðir
Ólafur Ragnar Grímsson: Langtfrá stefnu Alþýðubandalagsins um
lágmarkslaun og minni launamun. Réttlát reiði áfram á vinnustöðum