Þjóðviljinn - 04.03.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 4. mars 1988 52. tölublað 53. örgangur
VMSÍ
Samningurinn
margfelldur
Mikil orrahríð var gcrð að samn-
ingi Verkamannasambandsins í
nokkrum verkalýðsfélögum í gœr-
kvöldi.
Mestum tíðindum sætir að tvítaka
þurfti leynilega atkvæðagreiðslu í
Hlíf í Hafnarfirði. Fyrst var samning-
urinn felldur á jöfnu, 32 með og 32 á
móti, en tillaga var gerð um aðra at-
kvæðagreiðslu og var þá samningur-
inn samþykktur með eins atkvæðam-
un, 33 með - 32 á móti. Einnig var
samningnum veitt brautargengi hjá
Verkalýðs- og sjómannafélagi Miðn-
eshrepps, en þar sögðu 30 já og
nei.
Eining í Eyjafirði kolfelldi samn-'
inginn. Aðeins 109 vildu samþykkja
en 348 fella.
Sömu sögu er að segja frá Selfossi,
Hellu og Grundarfirði. Hjá Þór á Sel-
fossi guldu fjórir samningnum sam-
þykki en 70 voru á móti. Hjá Rangæ-
ingi á Hellu voru 26 á móti og tveir
með og hjá Stjörunni t Grundarfirði
gátu úrslit vart verið afdráttarlausari,
37 greiddu á móti og aðeins einn með.
Verkakvennafélagið Frantsókn í
Reykjavík, felldi santninginn með
nokkrum mun atkvæða, 134 voru á
móti og 113 með. -rk
Borgarstjórn
gengu
út!
Einsdœmi íborgarstjórn. Borgar-
fulltrúar þriggjaflokka gengu af
fundi eftir að Sjálfstœðismenn
ákváðu að byrja á ráðhúsinu áður
enfjallað verður um athugasemdir
borgarbúa
á einstæði atburður varð á tillögu um að auglýsing og kynn-
O fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur að fímm fulltrúar Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista gengu af fundi í mót-
mælaskyni við afgreiðslu ráð-
hússmálsins þar sem samþykkt
var að hefja framkvæmdir áður
en borgarfulltrúar fá tækifæri til
að fjalla endanlega um bygging-
una.
Á fundinum í gærkvöldi var
samþykkt að ganga til samninga
við verktakafyrirtækið ístak hf.
um byggingu ráðhúss í Tjörninni
að viðhöfðu nafnakalli með 9 at-
kvæðum Sjálfstæðismanna gegn
6 atkvæðum hinna borgarstjórn-
arflokkanna. Upphaf fram-
kvæmda er fyrirhugað í lok þessa
mánaðar. Þegar úrslit málsins
lágu fyrir gengu fimm fulltrúanna
af fundinum.
í bókun sem borgarfulltrúarnir
fimm lögðu fram vegna sam-
þykktar meirihlutans segir að nú
hafi alvarlegir atburðir átt sér
stað í borgarstjórninni. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafi staðið
að því að skerða réttarstöðu
Reykvíkinga með því að vísa frá
ing á skipulagi ráðhúslóðar skuli
gerð með lögformlegum hætti.
Þar með hafi Reykvíkingar verið
sviptir þeim rétti til kynningar og
þeirra áhrifa á skipulag sem þeir
eiga lögum samkvæmt.
Niðurstaða kynningarinnar og
endanleg afstaða borgarstjórnar
um ráðhúsmálið liggur ekki fyrir
fyrren í fyrsta lagi 5. maí, og segir
í bókuninni að með því að ganga
nú til samninga við ístak hf. og
hefja framkvæmdir í þessum
mánuði sé meirihluti borgar-
stjórnar að ómerkja kynninguna
og senda borgarbúum þau ótví-
ræðu skilaboð að fulltrúar hans
muni hafa skoðanir og athuga-
semdir Reykavíkinga að engu.
Kynningin sé í raun skrípaleikur.
„Þau vinnubrögð og sú vald-
níðsla sem hér hefur átt sér stað
er með öllu óþolandi og ekki
hægt að sitja undir henni. Við
munum því ganga af fundi til að
undirstrika mótmæli okkar sem
og fjölmargra annarra Reykvík-
inga við því sem gerst hefur hér í
dag,“ segir í bókun fimmmenn-
inganna. -grh
Borgarfulltrúarnar Kristín Á. Ólafsdóttir Bjarni P. Magnússon, Guðrún
Ágústsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Sigurjón Pétursson á leið út
úr húsi borgarstjórnar í Skúlatúni um níuleytið í gærkvöldi. (Mynd: Sig)
Skák
Enn sigrar Jón
Jón L. Árnason er gersamlega
óstöðvandi á Reykjavíkurskák-
mótinu og í gær vann hann sína
sjöttu skák í röð. Að þessu sinni
varð Daninn Carsten Hoi að lúta í
lægra haldi.
Af öðrum úrslitum má nefna
að Margeir Pétursson lagði Helga
Ólafsson að velli og Browne sig-
raði sovéska stórmeistarann Pol-
ugajevskij.
Að loknum átta umferðum er
staðan sú að Jón L. er langefstur
með sjö og hálfan vinning. Langt
að baki honum grillir í þá Margeir
Pétursson og ungverska stór-
meistarann Andras Adorjan en
þeir hafa fimm og hálfan vinning
hvor.
Frá Spáni er það að frétta að
Jóhann Hjartarson gerði í gær
jafntefli við Búlgarann Georgiev.
Sjá bls.5 og 7.
Biðin í Húsnæðisstofnun
Tólfþúsund um áramót
Búið að ráðstafa öllufé Byggingarsjóðs ríkisins í ár nema til Fram-
kvœmdalána. SigurðurE. Lánsloforð send út í nœstu viku
Um 12000 manns munu verða á
biðlista um húsnæðislán um
næstu áramót hjá Húsnæðisstofn-
un. Þetta kemur fram í minni-
hlutaáliti þeirra Svavars Gests-
sonar og Júlíusar Sólnes um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum og lánsf-
jármálum, sem fjárhag- og við-
skiptanefnd efri deiidar Alþingis
fjallaði um.
Þeir Sigurður E. Guðmunds-
son og Hilmar Þórisson komu á
fund nefndarinnar sem fulltrúar
Húsnæðisstofnunar, en einsog
fram hefur komíð á að skera nið-
ur framlög til byggingarsjóðanna
um 100 miljónir króna í viðbót
við 500 miljón króna frystingu
ríkisstjórnarinnar á fjármagni
stofnunarinnar.
Húsnæðisstofnun hefur þegar
sent út lánsloforð til þeirra sem
munu fá úthlutað úr Byggingar-
sjóð ríkisins í ár, utan að enn er
óráðstafað úr Framkvæmda-
sjóði, sem sveitarfélögin hafa
einkum nýtt sér til bygginga
húsnæðis fyrir aldraða.
í minnihlutaálitinu kemur
fram að 54 af 76 lífeyrissjóðum
hafa skrifað undir skuldabréfa-
kaup fyrir árið 1989 og 33 fyrir
árið 1990. Sigurður E. Guð-
mundsson sagði í samtali við
Þjóðviljann að í þessari viku yrði
rætt við þá lífeyrissjóði sem ekki
hafa gengið frá undirskrift og
bjóst hann við að í næstu viku
yrðu fyrstu lánsloforðin í ár send
út. Reiknað er með að ár líði frá
útsendingu lánsloforðs til útborg-
unar fyrri hluta lánsins.
-Sáf
Sjá um efnahagsráð-
stafanirnar síðu 2 og
leiðara um félags-
málaráðherra síðu 4