Þjóðviljinn - 05.03.1988, Síða 1

Þjóðviljinn - 05.03.1988, Síða 1
ö Húsnœðiskerfið Svik upp á 1,1 miljarð Ríkisstjórnin hefur svikið lof- orð sem gefin voru aðilum vinnumarkaðarins við undir- ritun jólaföstusamninganna. Svikin nema 1,1 miljarði vegnaframlaga í byggingar- sjóðina. Niðurskurðurinn nú bitnar á lánum til bygginga íbúða fyrir aldraða Vanefndir ríkisstjórnarinnar vegna húsnæðiskerfisins nema eftir 100 miljón króna niður- skurðinn nú um 1,1 miljarði króna miðað við það samkomu- lag sem gert var við aðila vinnu- markaðarins á sínum tíma. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ mótmælti harðlega áformuð- um niðurskurði nú á fundi fjárhags— og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis í gær. Vanefndir ríkissjóðs við bygg- ingarsjóðina námu um hálfum miljarði króna áður en ákveðið var að frysta hálfan miljarð við afgreiðslu fjárlaga. Ofan á það bætast svo 100 miljónir nú. Kristín Halldórsdóttir sagði á Alþingi í gær að það hefði komið fram hjá fulltrúum Húsnæðis- stofnunar að stofnunin hefði svig- rúm til að mæta niðurskurðinum þannig að hann bitnaði ekki á þeim lánsloforðum sem þegar hafa verið gefin. Hinsvegar virð- ist nokkuð ljóst að niðurskurður- inn mun bitna á framkvæmdalán- um til sveitarfélaga vegna bygg- inga íbúða aldraðra. -Sáf Samningarnir Þriðjungur samþykkur Af þeim 16 verkalýðsfélögum sem þegar hafa fjallað um og af- greitt samninga VMSÍ og VSÍ hafa 2/3 eða 64% þeirra sem mætt hafa á fundina greitt atkvæði gegn þeim. Samningarnir hafa þegar verið felldir í 11 félögum og víðast með miklum mun at- kvæða. Um helgina verða fundir í þeim verkalýðsfélögum sem enn eiga eftir að taka afstöðu til samning- ana. Þar á meðal eru flest félag- anna á Austurlandi, Verka- lýðsfélag Akraness og Verka- lýðsfélag Sauðárkróks, svo að einhver séu nefnd og er fastlega búist við að þeir verði felldir í flestum þeirra. Sjá Innsýn bls. 5 ~rk r Ovissa ríkir nú innan Verka- mannasambandsins hvernig samningaviðræðum þeirra fjöl- mörgu félaga sem fellt hafa samn- ingana verði hagað. 1 viðtölum Þjóðviljans við formenn nokk- urra félaga í gær kom fram að menn væru þegar byrjaðir að ræða óformlega um framhaldið. Einkum eru nefnt að félögin hafi með sér samstarf undir forystu félaga sem hafa aðallega fisk- verkafólki á að skipa. Að auki hefur sá möguleiki verið nefndur að félögin reyni hvert um sig að semja heima í héraði, eða á vettvangi svæða- sambandanna. Flestir viðmælendur blaðsins töldu að vart kæmi til mála að samningaviðræður væru á vegum VMSÍ eða Alþýðusambandsins. Þórir Daníelssson, fram- kvæmdastjóri VMSÍ, taldi að enn væri of margt óljóst áður en menn færu að spá í næstu skref. - Mér sýnist að það hljóti að vera ansi önugt að samningaviðræður þess- ara félaga fari fram á vettvangi VMSÍ, sagði Þórir. Framkvæmdastjórn VMSÍ mun koma saman til fundar strax eftir helgi og er viðbúið að þar verði afráðið að bjóða for- mönnum þeirra félaga sem fellt hafa samningana til fundar. Enn eitt félagið felldi samning- ana í gær. Það var Verkalýðs- og sjómannafélag Stöðvarfjarðar og féllu atkvæði þannig að 12 voru með en 26 á móti. Þrír skiluðu auðu. Þar með eru félögin sem hafa fellt orðin 11 talsins, en að- eins fimm hafa staðfest samning- ana. Verkfall verkakvennafélagsins Snótar í Vestmannaeyjum hófst á miðnætti, eftir að slitnað hafði uppúr samningaviðræðum félags- ins við atvinnurekendur í gær. Mjög mikið ber á milli deiluaðila. Eftir að ljóst hefur orðið að í flestum félaga VMSÍ er lítil hrifn- ing með kjarasamningana og meirihluti félaga hefur fellt þá, er komið bakslag í samningaviðræð- ur Landssambands iðnverkafólks og verslunarmanna við atvinnu- rekendur. - Það hefur sín áhrif á gang viðræðna að samningarnir hafa verið felldir þetta víða. Það má segja að það sé komið bakslag í allar viðræður, sagði Björn Þór- hallsson, formaður Landssam- bands verslunarmanna, í samtali við Þjóðviljann í gær. -rk Nemendur í Flensborgarskóla í Hafnarfirði enduðu vakningadaga í skólan- haldið uppí Mosfellssveit þar sem hátíðinni var haldið áfram við varðeld, um með miklu karnivali í gær. Gengið var um götur bæjarins í skrautlegum glensi og gríni. Mynd - E.ÓI. búningum en margir höfou klætt yfir sig plasti í „vor“úðanum. Síðan var Skipulag ráðhússins Vísar ummælum Davíðs á bug Borgarstjóri: Jónatan erprófessor írefsirétti. Hefur ekkert vitá skipulagsmálum. Jónatan Þórmundsson: Borgarstjóri hefur ekkikomið með nein efnisleg rök á móti mínum Eg tek nú satt að segja ekki mikið mark á þessum ummæl- um borgarstjóra um vanhæfni mína vegna þess að ég sé prófess- or i refsirétti og hafi þessvegna ekkert vit á skipulagsmálum. Enda hefur borgarstjóri ekki komið með nein efnisleg rök gegn skoðunum mínum og vísa ég þess- um ummælum hans að sjálfsögðu á bug, sagði Jónatan Þórmunds- son, prófessor við Þjóðviljann. A borgarstjórnarfundi í fyrra- kvöld þegar rætt var um fyrirhug- aða byggingu ráðhúss í Tjörninni vísuðu andstæðingar ráðhús- byggingarinnarma. til álitsgerðar Jónatans sem hann hafði samið fyrir félagsmálaráðherra. í henni lagði prófessorinn til við ráðherra að hann samþykkti deiliskipulag miðbæjarins með fyrirvara um ráðhúsreitinn þar til lögmæt kynning hafi farið fram og borg- arbúum gert tækifæri á að koma með sínar athugasemdir varðandi bygginguna og staðsetningu hennar. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði þá fullum fetum að Jónatan Þórmundsson hefði ekkert vit á skipuiagsmálum þar sem hann væri prófessor í refsirétti við Há- skóla íslands og að auki væri hann yfirlýstur andstæðingur ráð- hússins í Tjörninni og því ekki mark takandi á hans ráðlegging- um til ráðherra! „Þessi ummæli míns gamla nemanda eru þess eðlis að maður brosir að þeim frekar en hitt að ég taki þau alvarlega, og upplýsa mun meira um viðhorf borgar- stjóra til málsins heldur en um vanhæfni mína,“ sagði Jónatan Þórmundsson. -grh Vestmannaeyjar Kallamir salta í gríð og erg Ahrifa verkfalls Snótar farið að gœta. Aukin gámaútflutningur. Fisk- markaðurinn í sókn ^jj egna verkfalls Snótarkvcnna í Eyjum sem kom til fram- kvæmda í nótt keppast fisk- vinnslustöðvarnar við að koma fisknum í gáma og kallarnir salta stórþorsk og ufsa í gríð og erg. Að sögn Björgvins Arnalds- sonar starfsmanns hjá Fiskmark- aði Vestmannaeyja er áhrifa verkfallsins þegar farið að gæta og ma. afturkallaði einn trollbát- ur í gær fyrirhugaða sölu á mark- aðnum og setti aflann í staðinn í gáma. Þeir fara til meginlands Evrópu og til Bretlands. Björg- vin sagði verðið á karfanum vera á uppleið í Þýskalandi en aftur á móti væri verðið á ufsanum á nið- urleið. -grh VMSI Næstu skref óráðin Formenn nokkurra félaga hafa reifað möguleika á samfloti undir forystufiskverkafólks. Bakslag komið ísamningaviðrœðuriðnverka- fólks og verslunarmanna. Verkfall Snótar hafið. Slitnað uppúr samningaviðrœðum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.