Þjóðviljinn - 05.03.1988, Qupperneq 2
FRETTIR
—SPURNINGIN—
Hver er meginástæðan
fyrir því að samningarnir
eru kolfelldir um allt
land?
Edda Jónsdóttir,
verkakona:
Það veit nú hver einasti maöur í
landinu af hverju þessir samning-
ar voru felldir. Grunnkaupið er of
lágt!
Agústa Vigfúsdóttir,
verkakona:
Það vara búið að taka þessar
hækkanir af okkur áður en við
greiddum atkvæði um þessa
samninga.
Birna Guðjónsdóttir,
verkakona:
Við höfum bara alltof lág laun.
Það lifir enginn af þessum smá-
augum.
Einar Björnsson,
verkamaður:
Nú þetta eru aungvir samningar,
enda sé ég ekki fram á að við
getum náð fram rétti okkar í
bráðina. Við höfum engan til að
berjast fyrir okkur. Verkalýðsfor-
ystan er ekki í neinum tengslum
við okkur sem vinnum.
Hjördís Egilsdóttir,
verkakona:
Útaf alltof lágu kaupi, það er
ástæðan.
Borgarstarfsmenn
Félagið í uppnámi
Guðmundur V. Óskarsson: Eðlilegt að hópar sem stofna sitt eigið
félag geti gert tilkall til hluta afeignum gamla félagsins. Haraldur
Hannesson, formaður: Andfélagsleg sjónarmið. Meirihlutinn erþessu
gjörsamlega andvígur
Meða! þeirra eigna starfsmannafélagsins sem bitist er um, eru orlofshús þess í
Munaðarnesi og víðar.
Mý samningsréttarlög opin-
berra starfsmanna gera það
nú kleift að sérmenntaðir faghóp-
ar og starfsmenn ýmissa stofnana
geta stofnað sín eigin stéttarfélög.
Við sem stöndum að þessu
meirihlutaáliti álítum að starfs-
mannafélögin þurfi að aðlaga sig
að þessu, með því að breyta félag-
slögunum á þann veg að einstakir
hópar sem stofni eigin félög, geti
gert tilkall til sanngjarns hluta af
eignum gamla félagsins. Þetta er
sanngirniskrafa, sagði Guð-
mundur Vignir Óskarsson,
stjórnarliði í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar.
Guðmundur á sæti í þriggja
manna nefnd sem skyldi leggja
fyrir aðalfund félagsins sem hald-
inn er í dag, nauðsynlegar
breytingartillögur til þess að
starfshópar innnan félagsins, sem
mögulega stofna eigin stéttarfé-
lög, geti gert tilkall til hluta af
sjóðum Starfsmannafélagsins.
Nefndin klofnaði í afstöðu
sinni til eignatilfærslunnar og er
viðbúið að mönnum verði heitt í
hamsi á aðalfundinum í dag.
Meirihluti stjórnar Starfsmann-
afélagsins hefur lýst sig algerlega
andvígan öllum breytingartil-
lögum sem geri einstaka hópum
kleift að gera tilkall í eignir fé-
lagsins, en fyrir liggur að meina-
tæknar gangi úr Starfsmannafé-
laginu og stofni sitt eigið félag.
Haraldur Hannesson, formað-
ur Starfsmannafélagsins, sagði í
samtali við blaðið í gær, að hann
byggist ekki við að fundurinn
samþykkti tillögurþar að lútandi.
- Það er ekki spurning um það
að meirihluti félagsmanna er
þessu algerlega andvígur. Þessi
sjónarmið eru andfélagsleg. Ég
veit ekki hvort á að flokka þessar
hugmyndir undir sjálfsbjargar-
viðleitni eða eitthvað annað,
sagði Haraldur.
I minnhihlutaáliti eins nefnd-
armanna, Óskars Magnússonar,
lögfræðings, er bent á að kröfur
um tilkall einstakra hópa til eigna
félagsins, fái vart staðist.
Eignarrétturinn sé félagslegur og
einstaklingar eða hópur manna
geti ekki gert tilkall til þeirra
öðruvísi en sem félagsmenn.
Guðmundur sagði að hann
teldi að þarna væri verið að takast
á um grundvallaratriði. Málið
snérist einfaldlega um það að þeir
sem hugsanlega sitja eftir í gamla
félaginu, sitji ekki jafnframt uppi
með allar eignir félagsins, meðan
hinir brottgengnu þurfi að hefja
félagsstarf á núlli á nýjum vett-
vangi. -rk
SÍS-deilan
Vildi fá
Maður vikunnar
Ekkert að afsaka
Útvarpsráð hafnar kröfu Lögreglufélags Reykjavíkur um afsökunar-
beiðni vegna „Manns vikunnar“. Hrafn Gunnlaugsson: Baldurhall-
aði hvergi réttu máli
Afundi Útvarpsráðs í gær var
tekið fyrir bréf Gylfa Thorlac-
iusar, lögmanns Lögreglufélags
Reykjavíkur. Kveikjan að bréfi
Gylfa er umfjöllun Sjónvarpsins
um síðasta „Mann vikunnar“,
Svein Jónsson frá Eskifirði og
skipti hans við lögregluna.
Gylfi krefst þess að Útvarpsráð
veiti þeim áminningu sem sé
ábyrgur fyrir gerð þáttarins, og
að jafnframt verði beðist afsök-
Menningar- og friðarsamtök
kvenna, Samtök kvenna á
vinnumarkaði, Samtök um
Kvennalista og konur í Alþýðu-
bandalaginu standa fyrir baráttu-
fundi á Hallveigarstöðum n.k.
þriðjudagskvöld 8. mars, á al-
þjóðlegum baráttudegi kvenna.
Yfirskrift fundarins er „Konur
- nú er komið nóg!“ Ávörp flytja
unar í dagskrá Sjónvarpsins á því
frumhlaupi að sýna þátt þar sem
svo vægðarlaust sé vegið að æru
heillar starfstéttar. Að sögn Bri-
etar Héðinsdóttur sem á sæti í Út-
varpsráði sá enginn ráðsliða á-
stæðu til að verða við þessari
kröfu. Hins vegar hafi verið sam-
þykkt með meirihluta atkvæða að
veita umsjónarmanninum,
Baldri Hermannssyni, áminn-
ingu fyrir innganginn að þætti-
num, en hann mætti skilja á þann
þær Margrét Björnsdóttir verka-
kona, Lilja Eyþórsdóttir banka-
maður og Laufey Jakobsdóttir
amma. Bríet Héðinsdóttir leikari
annast upplestur og Kuregej Al-
exandra syngur við undirleik
Matta. Fundarstjóri verður Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarf-
ulltrúi.
-•g-
veg að látið væri að því liggja að
lögreglumenn hér á Iandi viðhafi
svipaða harðneskju og tíðkist í
hernaði.
Gylfi segir þáttinn allan ræt-
inn, og að með ólíkindum sé að
ríkisfjölmiðill skuli byggja þátt-
agerðina á einhliða upplýsingum
og slúðursögum.
Baldur Hermannsson skilaði
einnig álitsgerð inn á fund Út-
varpsráðs og andmælir hann ás-
ökunum Gylfa lið fyrir lið. Hann
telur bréf Gylfa fela í sér grófan
atvinnuróg og áskilur sér sér allan
rétt til að sækja hann til saka á
öðrum vettvangi.
Þá segir Hrafn Gunnlaugsson,
dagskrárstjóri, að þátturinn sé
gerður að sinni ósk og með sinni
vitund. Segir Hrafn að í umfjöll-
un Baldurs sé hvergi hallað réttu
máli, enda ekki tilgangurinn að
kveða upp neinn dóm.
Þá segir í innleggi Hrafns að
honum hefði þótt stórmannlegra
hjá félaginu að víta þá menn sem
hafi komið óorði á alla stéttina í
stað þess að senda frá sér bréf
sem Ieiði ósjálfrátt hugann að því
hvort félagið sé að verja afglöp
tveggja svartra sauða.
helming
Eysteinn Helgason:
Kann að vera að þessi
litla þúfa hafi velt
þessu þunga hlassi
Deilur þeirra Guðjóns B. Ól-
afssonar forstjóra SÍS og Eysteins
Helgasonar um laun þess síðar-
nefnda urðu til þess að Erlendur
Einarsson fyrrum forstjóri SÍS
óskaði eftir gögnum úr bókhaldi
fyrirtækisins yfir laun Guðjóns er
hann gegndi forstjórastarfinu
ytra.
Þetta kemur m.a. fram í ítar-
legri yfirlýsingu sem Eysteinn
sendi fjölmiðlum í gær. Hann
segist hafa óskað eftir hækkun á
launum um næstsíðustu áramót
en Guðjón þvertekið fyrir það.
Aðspurður hafi hann tjáð öðrum
stjórnarmönnum í Iceland Sea-
food að hann væri fyllilega sáttur
við helming þeirra launa sem
forverinn hafði haft. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum voru
mánaðarlaun Guðjóns um 1.1
miljón kr. íslenskar.
í framhaldi af þessum orðum
hans óskaði Erlendur Einarsson
eftir því að fá send gögn úr bók-
haldi fyrirtækisins varðandi
launagreiðslur til Guðjóns og
einnig bandarískir endurskoð-
endur fyrirtækisins. - Ég taldi
mig ekki í nokkurri aðstöðu til að
neita viðkomandi aðilum um að
verða við þessum tilmælum, segir
Eysteinn. _jg_
8. mars
Konur nú er komið nóg!
Baráttufundur á Hallveigarstöðum á alþjóð-
legum baráttudegi kvenna
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. mars 1988