Þjóðviljinn - 05.03.1988, Page 15
Sovétríkin
Blóðbað í
Azerbajan
Þrjátíu og einn maður var veg-
inn í þjóðernisóeirðum í borginni
Sumgait í sovétlýðveldinu Azer-
baijan um síðustu helgi.
Tass fréttastofan sovéska
greindi frá þessu í gær. Þetta er
fyrsta fréttin sem berst frá so-
véskum valdhöfum um mannfall í
átökum Armena og Azerbaja á
sunnudaginn var. Sumgait liggur
við strendur Kaspíhafs, skammt
norðan höfuðborgarinnar Bakú.
í fréttinni segir meðal annars:
„Einsog þegar hefur verið skýrt
frá átti óþverralýður upptökin að
óeirðum í Sumgait þann 28da fe-
brúar. Glæpamenn höfðu ofbeldi
í frammi og rændu og rupluðu.
Þeir myrtu 31 mann af ýmsu
þjóðerni, þar á meðal gamal-
menni og konur.“
Tass greindi frá því að her og
lögregla hefði lægt öldur í borg-
inni og haft hendur í hári höfuð-
paura glæpaskrílsins. Yrði réttað
í málum þeirra í samræmi við so-
vésk hegningarlög.
Um tildrög átakanna segir
Tass: „Þau hófust þegar ístöðu-
lausum og vanþroskuðum ein-
staklingum barst til eyrna kvittur
um ólgu í fjallahéraðinu
Nagorno-Karabakh og Armen-
íu.“ Reuter/-ks.
ERLENDAR FRETTIR
Palestína
Burt með fréttamenn
Tveir Palestínumenn skotnir til bana. Uppreisnin heldur áframþótt „orsakavaldinum ‘
hinumerlendafréttamanni, sébannað aðferðast til vesturbakkans
Israelskir hermenn skutu í gær
tvo palestínska unglinga til
bana og særðu fjölmarga skotsár-
um. Fyrr um daginn hafði her-
stjórnin meinað erlendum frétta-
mönnum aðgang að vesturbakka
Jórdanár.
Talsmaður ísraelsku herstjórn-
arinnar staðhæfði í gær að til
mikilla óeirða hefði komið í
þorpinu Arrabar, steinsnar frá
Jenín, og hefðu unglingar ógnað
lífi og limum dáta með því að
kasta grjóti, flöskum og spýtum í
átt til þeirra. í örvæntingu sinni
hefðu hermennirnir skotið úr vél-
byssum á mótmælendur, drepið
einn og sært annan illa.
Palestínskir heimildamenn
greindu ennfremur frá falli Mo-
hammeds Ahmeds Salahs, 18 ára
gamals pilts, í bænum Al-
Khader, sunnan Betlehemsborg-
ar. Hafði fjöldi Palestínumanna
fylkt liði og gert hróp að dátunum
sem undu því illa og svöruðu á
þann eina hátt sem þeim er
laginn, með byssuskothríð. Auk
þess að drepa Salah særðu þeir 15
manns skotsárum. Nú er ljóst að
81 Palestínumaður hið minnsta
hefur fallið fyrir hendi ísraels-
manna á herteknu svæðunum frá
því uppreisnin hófst þann 9da
desember í fyrra. Að minnsta
kosti 1000 menn hafa verið særðir
skotsárum eða barnir til óbóta.
Þegar fréttaritari Reuters
hugðist halda til Al-Khader í gær
til þess að afla upplýsinga um
átökin þar var honum meinað að
ferðast inná vesturbakkann.
Kona nokkur, málpípa ísraels-
hers, skýrði honum frá því að öllu
fjölmiðlafólki væri bannað að
halda til vissra svæða á vestur-
bakkanum sökum þess að ljós-
myndavélar æstu Palestínumenn
upp og þá væri fjandinn laus!!
En svo undarlega brá við að
fjarvera blaðamanna varð síst til
þess að friða palestínska upp-
reisnarmenn. Auk ofangreindra
atburða á vesturbakkanum kom
til snarpra átaka á Gazasvæðinu.
Tveir Palestínumenn voru særðir
skotsárum í Burej flóttamanna-
búðunum. Einnig var ókyrrt í
Mughazi flóttamannabúðunum
og Gazaborg að sögn sjónar-
votta.
Reuter/-ks.
Samkvæmt kenningu ísraelsmanna mundar piltur þessi teygjubyssu sína að-
eins vegna nærveru Ijósmyndarans.
Nikaragva
Kontraliðar fjárvana
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings vill hvorki heyra Kontraliða nésjá.
Brátt hefjast beinar viðrœður stjórnvalda og uppreisnarmanna í
Nikaragva
Ráðamenn í Managva, höfuð-
borg Nikaragva, fögnuðu því í
gær að fulltrúadeild Bandaríkja-
þings skyldi fella tillögur demó-
krata um að veita Kontraliðum fé
til kaupa á matvælum, lyfjum og
fatnaði. Sögðu þeir niðurstöðuna
vera lóð á vogarskál friðar í Mið-
Ameríku.
Það mun hafa komið leið-
togum Demókrataflokksins í
fulltrúadeildinni gersamlega í
opna skjöldu í fyrradag þegar til-
laga þeirra var felld, 216 voru á
móti en 200 með. Einhverra hluta
vegna töldu þeir sig þurfa að
verða Kontraliðunum úti um
hjálpargögn önnur en vopn að
andvirði 30 miljónir dala eftir að
hafa fellt beiðni Reagans um
stuðning án skilyrða.
Háttsettur embættismaður í
utanríkisráðuneytinu í Managva,
Alejandro Bendana að nafni, las
yfirlýsingu stjórnar sinnar af
þessu tilefni í gær. Nú væri „lag
fyrir ríkisstjórn Ronalds Reagans
að binda enda á hverskyns aðstoð
við málaliðasveitirnar.“
Hann las ennfremur að mál
væri komið að Reagan féllist á að
ræða við Daníel Ortega forseta
um öryggismál í Mið-Ameríku og
bætt samskipti Bandaríkjanna og
Nikaragva. í yfirlýsingunni er
skorað á ráðamenn í Washington
að stuðla að því að beinar vopna-
hlésviðræður Kontraforingja og
fulltrúa Sandinistastjórnarinnar
verði árangursríkar. Ef allt fer að
óskum munu þær fara fram í
suðurhluta Nikaragva, steinsnar
frá landamærunum að Costa
Rica, dagana 9.-11. þessa mánað-
ar. Stjórnin hefur farið þess á leit
við Oskar Arias, forseta Costa
Rica, að hann heimili sendisveit
málaliðanna för um land sitt.
Það var Ortega sem átti frum-
kvæði að viðræðum í Nikaragva
án milligöngu Miguels Obandos
Y Bravos kardínála. Forsetinn
rak guðsmanninn í miðvikudag-
inn og skipaði bróður sinn,
Humberto, fyrirliða viðræðu-
hóps stjómvalda.
Erlendir sendimenn í Managva
staðhæfa að brottrekstur kar-
dínálans hafa orsakast af tillögu-
flutningi hans en í honum þótti
hann draga taum Kontraliða.
„Sandinistunum líkaði ekki þró-
un viðræðnanna undir fundar-
stjórn klerks," sagði einn þeirra
við fréttamann Reuters í gær.
Embættismaður í Managva sem
ekki vildi láta nafns síns getið tók
í sama streng: „Kárdínálinn var í
raun aðalsamningamaður
Kontraliðanna. En við kipptum
mottunni undan fótum hans.“
Reuter/-ks.
Bangladesh
Ershad er vinsæll
Stjórnarandstöðuleiðtogar og erlendir frétta-
menn sammála um að „þingkjörið“ ífyrradag
hafi verið skrípaleikur
Að sögn yfirkjörstjórnar Bang-
ladesh, í höfuðborginni
Dakka, vann Jatijaflokkur Hoss-
ains Mohammads Ershaids sér-
lega glæstan sigur í þingkjörinu
sem fram fór þarlendis í fyrra-
dag. Leiðtogar flokka stjórnar-
andstöðunnar, sem virtu kosn-
ingarnar vettugi, stóðu hinsvegar
á því fastar en fótunum að ráða-
menn hefðu haft ósmá brögð í
tafli og sóru að koilsteypa Ershad
eins fljótt og auðið væri.
Talsmenn kjörstjórnarinnar
gerðu grein fyrir skiptingu þing-
sæta milli flokka þegar úrslit lágu
fyrir um 219 af 300. Er skemmst
frá því að segja að Jatijaflokkur-
inn hafði hreppt 194. Það er því
með ólíkindum hve mikilla vin-
sælda Ershad nýtur nú sé það haft
í huga að frá því í haust hefur
gengið á með óeirðum og verk-
föllum í Bangladesh.
En einsog getið er að ofan hafa
leiðtogar stjórnarandstöðunnar
sitthvað út á allt þetta að setja.
Gefum foringja Awamibandal-
agsins, frú Hasínu, orðið: „Þetta
voru kosningar án kjósenda og
úrslitin voru ákveðin á forseta-
skrifstofunni.“ Hún ítrekaði
þannásetningfylkingar21 stjórn-
arandstöðuflokks að láta ekki
deigan síga í baráttuherferðinni
gegn Ershad. Yrði efnt til mót-
mælaaðgerða og vinnustöðvana
uns forsetinn hundskaðist frá
völdum. Frú Begum Khaleda
Zia, leiðtogi Þjóðernisflokksins,
var hjartanlega sammála Hasínu.
Hún kvað kosningarnar hafa ver-
ið hreinan skrípaleik sem lítil-
lækkaði Bangladesh í augum um-
heimssins.
Erlendir sendimenn og frétta-
menn í Bangladesh er á einu máli
um réttmæti orða frú Zia. Hið
svonefnda „þingkjör" hefði
heppnast hið besta ef undan er
dregin sú staðreynd að þorri kjós-
enda skrópaði. Lögreglan stað-
hæfir að 13 menn hafi látið lífið í
átökum öndverðra pólitískra
fylkinga í fyrradag.
Reuter/-ks.
Loks tap
hjá Timman
Þar kom að því að Jan Timman
tapaði skák á mótinu í Linarcs á
Spáni. Það var Bretinn Murray
Chandler sem tókst að marka á
honum, sá hinn sami og lagði Jó-
hann Hjartarson fyrr á mótinu.
Jóhann tapaði fyrir Ljubojevic
og er nú þriðji lægstur á mótinu.
Má segja að Júgóslavinn hafi hér
komið fram hefndum fyrir tapið á
Áskorendamótinu sællar minn-
ingar, en þá lagði Jóhann hann
með svörtu í snarpri skák og þar
með var heimsmeistaradraumur
Ljubojevics búinn í það skiptið.
Öðrum skákum lauk ýmist
með jafntefli eða þá að þær fóru í
bið. Timman er langefstur á mót-
inu þrátt fyrir tapið í gær, og hef-
ur 7 vinninga. Ljubojevic,
Chandler, Jusupov og Nunn eru
með 5 vinninga, en Nunn á bið-
skák að auki. Jóhann er í 10. sæti
með 3,5 vinninga. HS
Indland
Fjöldamorð í Punjab
Hryðjuverkamenn myrtu bœði hindúa ogsikha. Gandhi leysirœðstu
presta úr haldi
Hryðjuverkamenn úr röðum
sikha myrtu 34 menn í þorp-
inu Kahri-Sahri í Punjabfylki í
fyrrinótt. Fjöldamorðin voru
framin fáeinum klukkustundum
áður en Rajiv Gandhi forsætis-
ráðherra lét fimm æðstu presta
sikha lausa úr haldi í þeirri von að
það myndi draga úr fylgi við öfga-
menn og kljúfa fylkingu aðskiln-
aðarsinna í Punjab.
Átta hryðjuverkamenn hið
minnsta réðust inní þorpið rétt
eftir miðnætti og hófu vélbyss-
uskothríð á stóran hóp fólks sem
sat í sakleysi sínu og fylgdist með
flutningi helgileiks. Að sögn lög-
regluyfirvalda linntu þeir ekki
látunum fyrr en þeir urðu uppi-
skroppa með skotfæri en þá lágu
tugir manna í valnum. Ekki virð-
ast þeir meiri þjóðernissinnar en
svo að þeir beindu skothríðinni
ekki síður að sikhum en hindú-
um. 25 hinna látnu voru úr síðar-
nefnda hópnum en 9 báru vefjar-
hött um höfuð sér. Að minnsta
kosti 40 særðust, þar af sex lífs-
hættulega.
Þetta er blóðugasta ofbeldis-
verk sem framið hefur verið í
Punjab það sem af er þessu ári.
Alls hafa 312 menn verið vegnir í
fylkinu frá áramótum. í fyrra
féllu þar rúmlega 1,200 manns
fyrir hendi hryðjuverkamanna
eða stjórnarliða en 640 í hitti-
fyrra.
Samtök hindúa í Punjab hafa
hvatt trúbræður sína til að leggja
niður vinnu í dag í mótmælaskyni
við múgmorðin í Kahri-Sahri.
Lögreglusveitir eru á varðbergi í
Punjab, nágrannafylkjum þess
og höfuðborginni Nýju-Delhi.
Ottast ráðamenn hefndaræði
hindúa.
Skömmu eftir að ódæðisverkin
voru framin lét Gandhi leysa
fimm æðstu presta sikha úr haldi
og fleiri trúbræður þeirra. Gerir
hann sér vonir um að þessar til-
slakanir muni draga úr fylgi sikha
við aðskilnaðaðarsinna í Punjab
sem vilja segja sig úr lögum við
Indland og stofna ríkið Khalist-
an. Fimmmenningarnir voru
skipaðir æðstu prestar fyrir tveim
árum af aðskilnaðarsinnum sem
halda til í Gullna hofinu í Amrits-
ar, helgidómi sikha. Ekki höfðu
þeir notið upphefðarinnar nema
skamma stund þegar þeir voru
teknir höndum og settir í dýflissu.
Reuter/-ks.
Laugardagur 5. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
i