Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 1
Þýskaland
Birgir Mikaelsson var í fínu formi gegn Val en á hér í höggi við Þorvald Geirsson.
Karfa
LetthjaKR
Unnu öruggan siguryfir Val á sunnudaginn 64-79 og er Valur
þar með úr leik því þeir töpuðu fyrri leiknum líka
Það var fyrst og fremst barátta
sem færði Vesturbæingum sigur.
Þeir léku af krafti allan tímann en
Valsmenn áttu góða kafla en það
var ekki nóg.
KR-ingar komust strax yfir í
byrjun og héldu forystunni út
leikinn. Þeir voru frískari og
héldu hraðanum uppi. Staðan
varð fljótlega 4-10 en þá tók Jó-
hannes Kristbjörnsson sig til og
gerði átta stig í röð fyrir KR og
þar með voru þeir stungnir af.
Valur með Tómas Holton í
broddi fylkingar minnkuðu mun-
inn úr 11-24 niður í 17-24 en KR-
ingar gáfust aldrei upp og héldu
góðri forystu, komust á tímabili í
23-37 undir lok fyrri hálfleiks en
Valsmenn gátu minnkað muninn
rétt fyrir leikhlé í 29-39.
Síðari hálfleik byrjaði KR af
miklum krafti og með góðu spili
ásamt því að ráða allvel við
hraðann komust þeir í 31-58.
Valsmenn gáfust ekki upp,
breyttu vörninni úr svæðisvörn
yfir í maður á mann og byrjuðu
að saxa á forskotið en sigurinn
virtist í öruggri höfn. KR-ingar
börðust enn vel og hleyptu þeim
ekki of nærri sér á stigatöflunni.
Það voru aðallega ungu mennirn-
ir í Val, sem komu inná í seinni
hluta hálfleiksins er náðu að
minnka muninn úr 46-67 niður í
62-72. En munurinn var of mikill
og undir lokin gerðu Vesturbæ-
ingarnir 5 stig í röð þannig að úr-
slitin ráðin 64-79.
Lið Vals náði ekki nægilega vel
saman. Þeir áttu góða kafla en
það var ekki nóg gegn frískum
KR-ingum. Einar Ólafsson var
snöggur og sama má segja um
Tómas Holton. f síðari hálfleik
komu Ragnar Þór Jónsson og
Bárður Eyþórsson inná og stóðu
sig vel. Annars var liðið ágætt en
enginn stóð upp úr. KR-liðið var
baráttuglatt í meira lagi. Þeir spil-
uðu á fullu allan tímann en virtust
þreytast þegar Valsmenn höfðu
leikið maður á mann vörn um
tíma. Jóhannes Kristbjörnsson
stjórnaði eins og herforingi og
átti stórleik. Guðni Guðnason og
Ástþór Ingason áttu einnig góðan
leik og Birgir Michaelsen einnig.
Þetta var stórskemmtilegur
leikur á að horfa og munur að sjá
svona vel leikna leiki ef miðað er
við hve körfuboltaleikirnir hafa
margir hverjir verið lélegir í vet-
ur.
íslendingamir mailca-
glaðir í handboltanum
Dormagen-Dusseldorf 17-
16
Páll átti ágætan leik og var
markahæstur í liði sínu með 6
mörk en gamla kempan Vukoje
gerði 9 mörk af 17 með sínu liði.
Lemko-Nurnberg 21-21
Sigurður Sveinsson átti ágætis
leik og var markahæstur með 8
mörk.
Groswaldstadt-Wallau
Massenheim 22-20
Hofweier-Essen 15-15
Alfreð var víst besti maður
vallarins og gerði 6 mörk en Ess-
en var yfir í hálfleik 6-9.
Milbertshofen-Gummers-
bach 15-17
Gamla hetjan Wunderlich
gerði flest mörk Milbertshofen,6
og Nitzel gerði jafnmörg fyrir
Gummersbach en Kristján náði
að skora 2.
Karate
Jónína í 2. sæti
Góður árangur á opnu hollensku móti
Karatemenn gerðu góða ferð
til Haag í Hollandi um helgina.
Það voru Jónína Ólsen og Árni
Einarsson sem kepptu og lenti
Jónína í 2. sæti í Kata, sem er
fyrirfram ákveðnar æfingar og í 4.
sæti, sem er frjáls bardagi. Arni
náði 4.-5. sæti í Kata en var
snemma úr í Kumite.
Þetta verður að teljast góður
árangur hjá karate fólki okkar
því mótið er eitt af sterkustu
opnu karatemótunum en þangað
koma flestir til að prófa sig fyrir
Evrópumótið í karate. Jónína
vann sinn síðast bardaga í Ku-
mite, áður en hún var slegin út,
6-0, sem er hæsta skor en hún
hafði líka ástæðu til að fagna á
unglingameistaramóti íslands hjá
unglingum um daginn, því þeir
krakkar sem hún þjálfar náðu 5
gullverðlaunum og svipað af
silfri.
„Við erum mjög ánægðir og
fætta er með besta árangri sem
slendingar hafa náð ennþá,“
sagði Stefán Alfreðsson varafor-
maður Karatesambandsins.
Knattspyrna
Áhorfendur í verkfall
Nú nýverið skeði óvenjulegt
atvik í portúgölsku knattspyrn-
unni. Áhangendur Fiorentina
mættu á áhorfendapallana án
allra sinna lúðra, flugelda og
fána. Ekki nóg með það, heldur
steinþögðu þeir allan tímann.
Með því voru þeir að mótmæla
slæmu gengi liðsins að undan-
förnu en það hafði ekki unnið
leiki um tíma. Eftir leikinn gerðu
þeir aðsúg að einum helsta
eiganda liðsins, kölluðu hann
Hlíðarendl 6. mars
Bikarkeppnin
Valur-KR 64-79 (29-39)
Stig Vals: Tómas Holton 14, BjörnZo-
ega 10, Leifur Gústafsson 9, Svali
Björgvinsson 8, EinarÓlafsson 7, Þor-
valdur Geirsson 6, Ragnar Þór Jóns-
son 6, Bárður Eyþórsson 4.
Sfig KR: Jóhannes Kristbjörnsson 19,
Guðni Guðnason 16, Birgir Michael-
sen 14, Ástþór Ingason 12, Símon Ól-
afsson 8, Jón Sigurðsson 8, Matthías
Einarsson 2.
Dómarar: Sigurður Valur Halldórsson
og Sigurður Valgeirsson voru rétt
sæmilegir, enda erfiður leikur að
dæma.
Maður leiksins: Jóhannes Kríst-
björnsson KR.
-ste
öllum illum nöfnum og hræktu á
bílinn hans. Einn af leikmönnum
Fiorentina, Argentínumaðurinn
Ramon Dias slapp ekki heldur
því áhangendur liðsins náðu hon-
um þar sem hann var að reyna að
sleppa á bíl sínum.
En það er merkilegt að þjálfar-
inn, Svíinn Sven Goran Eriksson,
fær að sleppa. Áhangendur liðs-
ins hafa ekkert út á hann að setja.
Hann náði góðum árangri með
Roma en hefur ekki náð Fiorent-
ina upp úr lægðinni sem liðið er
statt í. „Það er öðruvísi að vera
héma,“ segir Erikson „Á hverj-
um sunnudegi hefst lítið stríð hér
í Portúgal. Fólkið upplifir fót-
boltann, en stundum er það of
mikið, of brjálað".
í kvöld
Karfa
Digranes kl.21.00
UBK-UMFNa (bikarkeppnin)
Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson
Þriðjudagur 8. mars 1988 iÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9