Þjóðviljinn - 11.03.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 11. mars 1988 58. tólublað 53. árgangur
Grindavík
Samningamir gilda samt
VSÍhafnaði samningum, en tókst ekki að beygja Grindvíkinga. Benóný Benediktsson, Verkalýðsfélagi Grindavíkur:
Efast ekki um aðþeirstandi við sitt. Björn Grétar Sveinsson, Höfn: Grindvíkingar sprettu upp á Garðastrætisliðinu
fndar VSÍ við verkalýðsfé-
Atvinnurekendur í Grindavík
ætla að greiða verkafólki eftir
samningnum sem þeir gerðu við
Verkalýðsfélag Grindavíkur,
þrátt fyrir að Vinnuveitenda-
sambandið hafi vísað samkomu-
laginu á bug. En samkvæmt hús-
reglum VSÍ öðlast samningar
ekki gildi nema að fenginni stað-
festingu framkvæmdastjórnar
sambandsins. Samningar Verka-
lýðsfélags Grindavíkur eru því
enn lausir gagnvart VSÍ þó
heimamenn líti svo á að samning-
urinn standi.
Að sögn Gunnars Tómas-
sonar, fiskverkanda í Grindavík,
kom það atvinnurekendum í
opna skjöldu að framkvæmda-
stjórn VSÍ skyldi ekki fást til að
staðfesta samninginn.
Gunnar sagði að verkafólk í
Grindavík, fengi þau laun sem
þegar væri búið að semja um.
- Um annað er ekki að ræða.
Benóný Benediktsson, for-
maður Verkalýðsfélags Grinda-
víkur, sagði í samtali við Pjóðvilj-
ann í gær, að hann hefði enga
ástæðu til að halda annað en at-
vinnurekendur stæðu við samn-
inginn.
Innan veraklýðshreyfingarinn-
ar hefur Grindavíkursamningur-
inn vakið athygli. Björn Grétar
Sveinsson, formaður Jökuls á
Höfn, sagðist óska Grindvíking-
um til hamingju með samning-
inn.
- Samningurinn fullnægir ekki
kröfum okkar, en með samningn-
um hefur Grindvíkingum þó tek-
ist að spretta uppá Garðastrætis-
liðinu.
Það ér með endemum að at-
vinnurekendur sem vilja semja,
fái ekki að semja við sitt fólk, eins
og þeim sýnist best, sagði Björn
Grétar og benti á að fram-
kvæmdastjórn VSÍ, hefði sýnt al-
menningi á grímulausan hátt
undir hverslags ok atvinnurek-
endur þyrftu að beygja sig.
Hrafnkell A. Jónsson formað-
ur Árvakurs á Eskifirði, tók í
svipaðan streng. - Það má deila
um ágæti þessa samnings. Hann
hefurþó tvo augljósa kosti. Ann-
ars vegar sýnist mér að ekki hafi
verið samið um kjaraskerðingu,
sem er all nokkur áfangi. Hins
vegar er samningurinn viss sigur
að því leyti að ágreiningur í
röðum atvinnurekenda er kom-
inn uppá yfirborðið, sagði
Hrafnkell.
Stjórn Sambands fiskvinnslu-
stöðva ákvað í gær að fisk-
vinnslan myndi skipa sérstakan
samningshóp innan samninga-
Gunnar Tómasson, sagði að
jafnframt hefði verið ákveðið að
skipa sérstaka bónusnefnd, til
viðræðna um breytingar á bónus-
fyrirkomulagi í saltfiskvinnslu.
Sigrúm væri í þessari grein fisk-
vinnslunnar til aukinna bónus-
greiðslna, en saltfiskverkafólk
hefur lakari bónuskjör en annað
fiskverkafólk.
Ríkissáttasemjari ræðir í dag
við Alþýðusamband Austurlands
og atvinnurekendur í dag á Egils-
stöðum og hann verður á Norður-
landi á laugardag, en samninga-
fundir hefjast í karphúsinu á
mánudag.
-rk
ísafjörður
Flúið í olíuna
Það nær auðvitað engri átt þeg-
ar kyndingarkostnaður í nýj-
um húsum er í 10 þúsund krónum ■
og tölur heyrast allt upp í 20 þús-
und á mánuði, sagði Haraldur L.
Félagslegt húsnæði
Kerfiðí
upplausn
400 fatlaðir eru á biðlista eftir
húsnæði. 200 fatlaðir búa við ó-
fullnægjandi húsnæði. í Reykja-
vík vantar 900 íbúðir fyrir aldr-
aða. Á landinu öllu vantar 2-3000
íbúðir fyrir aldraða. 1980-1986
voru byggðar 1.221 íbúð í verka-
mannabústaðakerfinu, þar af 75
leiguíbúðir.
Þetta er brot af lýsingu á hús-
næðiskerfi í upplausn, sem fram
kom á blaðamannafúndi með
átta almannasamtökum, þremur
verkalýðsleiðtogum og einum
þingmanni, í gær þar sem kynnt
var yfirlýsing þessara aðila til
stjórnvalda.
í yfirlýsingunni er m.a. skorað
á stjórnvöld að hætta niðurskurði
fjárveitinga til húsnæðismála
-Sáf
Sjá bls. 3
Haraldsson, bæjarstjóri á ísafirði
við Þjóðviljann í gær, en vestra
verður olíán sífellt vinsælli ork-
ugjafi vegna raforkuverðsins.
- Iðnaðarráðherra heldur
væntanlega fund í Bolungarvík
um helgina og þar verða þessi mál
rædd og hann krafinn skýringa á
þessu háa orkuverði og spurður
hvað stjórnvöld hafi á prjónun-
um til að minnka þennan kostn-
að, sagði Haraldur. jj "
Bæjarstjórnin lýsti nýlega yfir
áhyggjum sínum af háu orku-
verði í bænum þar sem innlendir
orkugjafar séu orðnir mun dýrari
en innfluttir, olían, en á sínum
tíma var fólk hvatt til að notast
við innlenda orku frekar en inn-
flutta.
Þá var skorað á iðnaðarráð-
herra og þingmenn kjördæmisins
að leita allra lausna til lækkunar á
orkuverðinu, sem sé orðinn mik-
ill baggi á íbúunum.
Vegna þessa fjölgar þeim sí-
fellt vestra sem notast við olju til
kyndingar í stað fjarvarma-
veitunnar. Fyrir skömmu var
byrjað að hita skrifstofur og
verslun EG. í Bolungarvík með
olíu og er talið að með því sparist
allt að helmingur húshitunar-
kostnaðar. Á ísafirði var nýlega
hafin olíukynding í einu fjölbýlis-
húsi í bænum þar sem íbúunum
ofbauð hitareikningurinn frá
Orkubúinu.
-grh
Frambjóðendur Röskvu tiíbúnir í slaginn. (Mynd: E.ÓI.)
Stúdentaráð
Spennan nálgast hámarit
Harður slagurmilliRöskvuogVökuíHáskólanum
Kosningarnar til Stúdenta- og
Iláskólaráðs verða á þriðju-
daginn en spennan vegna þeirra
hefur verið að aukast dag frá degi
og er að nálgast hámark núna.
í dag verða kaffistofufundir í
nokkrum kjördeildum þar sem
frambjóðendurnir láta móðan
mása og svara kjarnyrtum fyrir-
spurnum áheyrenda en í gær voru
einmitt nokkrir slíkir fundir þar
sem góður hiti komst í umræð-
urnar. í íþróttahúsi Hagaskóla
varð svo taumlaus fögnuður þeg-
ar harðsnúið liðn kvenna úr
Röskvu lét Vökumönnum eftir
kaðalinn í æsispennandi reiptopi,
því eins og allir vita þá vægir sá
sem vitið hefur meira.
Nánar um kosningarnar og
Röskvu inni í blaðinu.
Sjá bls. 9-10
Hvað heldurðu?
Sigurliðin í sveitina
Lokaspretturinn hafinn í spurningakeppni Sjónvarpsins
Viku síðar fást Árnesingar við
ísfirðinga og síðan kljást Barð-
strendingar við Kjalnesinga. Sig-
urliðin þrjú komast í síðari und-
anúrslit ásamt því liði sem nú tap-
ar með minnstum mun.
Úrslitin sjálf verða að líkindum
send út 17. apríl, og sagði Ómar
Ragnarsson sigurlaunin enn
Sigurliðin í fyrri undanúrslit-
um spurningakeppninnar
„Hvað heldurðu“ í Sjónvarpinu
fá í verðlaun vikudvöl hjá Ferða-
þjónustu bænda á Melstað í Mið-
firði, en undanúrslitin hefjast á
sunnudagskvöld með keppni
Þingeyinga og Reykvíkinga á
sunnudagskvöld.
óráðin þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann í gær, en bjóst við þeim
veglegum, vonandi sumarlanda-
ferð eða ámóta . Þá er ókunnugt
um lokaherfang hagyrðinga sem
undanfarið hafa haft uppi ýmsar
klögur í bundnu máli yfir hlut-
skipti sínu.
-tt