Þjóðviljinn - 11.03.1988, Blaðsíða 2
Sigurjón Halldórsson nemi:
Ég held það sé mikils virði eins
og samstarf allra landa yfirleitt.
Menningararfleifð okkar gerir
það af verkum að tengsl við hin
Norðurlöndin eru okkur
mikilvægari en tengsl við önnur
lönd.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
guðfræðinemi:
Mér finnst við íslendingar oft
leggja of mikla áherslu á Norður-
landasamstarfið. Við megum t.d.
ekki gleyma samstarfi við þjóðir
Evrópu í heild.
Sigriður Þorgrímsdóttir
sagnfræðinemi:
Samstarfið hlýtur að skipta miklu
máli. Mér finnst það hinsvegar
ganga of stirðlega, ég hefði viljað
sjá Tele-X verða að veruleika.
Palli P. er minn maður.
Jón T. Sveinsson nemi:
Ég tel að það sé mjög gagnlegt
og okkur í hag að halda því
áfram. Við eigum samieið með
hinum Norðurlöndunum og það
væri okkur til góðs að það mundi
styrkjast.
Matthías Geir Pálsson laga-
nemi:
Við getum auðvitað lært heil-
mikið af hinum Norðurlöndunum
en hinsvegar verðum við að
gæta þess að það gangi ekki út í
öfgar og við yerðum að átta okkur
á sérstöðu íslands.
—SPURNINGIN—
Hvers virði telur þú að
samstarf Norðurland-
anna sé fyrir íslendinga?
___________________________FRÉTTIR__________________________
Sjómenn
Eiga sama rétt og aðrir
Sjómannasambandið: Gert ráð fyrir 15% almennum launahœkkunum á árinu. Á sama tíma er
launaþróun sjómanna fryst. Tekjubreytingar sjómanna sísthærri en annarra á liðnum misserum
Idrögum að verðlags- og þjóð-
hagsspá fyrir 1988 er gert ráð
fyrir að laun hækki almennt um
15% á árinu og sjómenn gera
auðvitað þá kröfu að halda í við
launaþróun annarra hópa í
þjóðfélaginu. Með ákvörðun
Verðlagsráðs sjávarútvegsins á
dögunum að fiskverð skuli vera
óbreytt er komið í veg fyrir það og
því una sjómenn að sjálfsögðu
ekki“, sagði Hólmgeir Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambands íslands við Þjóðvilj-
ann.
Verðkönnun Verðlagsráðs
leiðir í Ijós að verðmunurinn
á varahlutum er rosalegur og
okkar svar við honum er að gefa
út verðvísi þar sem hægt er að
finna upplýsingar um hagstæð-
asta verð, sagði Jónas Bjarnason
framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda, er hann
var inntur eftir viðbrögðum FÍB
við verðkönnuninni.
Jónas sagðist vona að þeir sem
Leiðrétting
Lækkun!
Leiðinleg prentvilla smaug inní
viðhorfsgrein Kristbjörns Árnasonar
ásíðu 5 í Þjóðviljanum í gær. Þar segir
rétt fyrir neðan mynd af höfundi:
„Pað hefur að vísu komið fyrir að
stjórnvöld hafa hækkað laun verka-
fólks skyndilega", og ekki að furða
þótt lesendur hafi rekið í rogastans.
Hér á að standa lœkkað í stað hækk-
að, - enda er síðan vísað til kjararáns-
ins í maí ’83. Við biðjumst forláts.
Að sögn Hólmgeirs eru þær yf-
irlýsingar sem komið hafa fram í
fjölmiðlum að undanförnu um að
sjómenn hafi fengið miklar
launahækkanir umfram aðra
launþegahópa helber ósannindi.
Þessu hefur verið haldið fram
vegna hins háa fiskverðs á fisk-
mörkuðum og frjálsa fiskverðsins
sem var við lýði í skamman tíma á
síðasta ári.
Samkvæmt útreikningum sem
Sjómannasambandið hefur gert á
tekjubreytingum hjá sjómönnum
á botnfiskveiðum á síðasta ári
eru með dýrustu vörurnar átti sig
og taki til greina tollalækkunina
og geri ráð fyrir niðurfellingu
vörugjaldsins á þær vörur sem
eftir voru. Innflytjendur verða að
selja sínar vörur á raunverulegu
verði en ekki með óeðlilegum
álögum
- Okkar svar er að gefa út
verðvísi þar sem teknir verða
fyrir 10 varahlutir og stöðugt birt-
ar upplýsingar um verð á þeim í
sem flestum verslunum, segir
Jónas. Verðvísirinn kemur út á
1-2 mánaða fresti og verður
dreift til allra félagsmanna og á
helstu staði þar sem hans er þörf,
svo sem í verslanir og á viðgerða-
verkstæði. Það sem á að koma
fram í verðvísinum er verð á var-
ahlutum, stærð lagers og upplýs-
ingar um það hvar FÍB telur hag-
stæðast að versla.
- Við notum sænskan verðvísi
sem fyrirmynd og erum þessa
dagana að snúa honum og laga
hann að íslenskum aðstæðum,
kemur fram að hlutur sjómanna í
fiskverði á árunum 1986 og 87
hækkaði um 27,7% milli áranna
ef miðað er við að allir mánuðir
ársins vegi jafnt. En ef miðað er
við aflasamsetninguna 1986 mæl-
ist hækkunin aðeins 26%. Afla-
aukningin á milli áranna er talin
vera um 8% og er þá tekju-
aukning sjómanna um 36-38% ef
ekki er reiknað með fjölgun í
sjómannastéttinni frá árinu áður.
Þá má geta þess að fiskverðs-
hækkunin um áramótin 1986/87
var talin um 8%, en vegna
því vægi bifreiðategunda er allt
annað þar en hér, segir Jónas. -
Og menn verða að huga að vara-
hlutaverði áður en þeir kaupa
bfla. í ódýrustu bflana fær maður
ódýrustu varahlutina.
Yflrnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið að
rækjuverð hækki um tvær krón-
ur frá 7. mars sl. þar til annað
verður ákveðið. Samkomulag var
í yfirnefndinni um verðákvörð-
unina en því er hægt að segja upp
með viku fyrirvara.
Að sögn Kristins H. Gunnars-
sonar, starfsmanns rækjusjó-
breytinga á frádrætti vegna
þyngdar hækkaði þorskverð til
togarasjómanna lítið sem ekkert.
Á sama tímabili hækkaði greitt
meðaltímakaup verkafólks ná-
lægt 36% milli áranna 1986 og
1987 og greitt meðaltímakaup
iðnaðarmanna hækkaði nálægt
50% á sama tíma, samkvæmt
fréttabréfi Kjararannsóknar-
nefndar.
„Þessar tölur sýna svo ekki
verði um villst að sjómenn hafa
síst fengið meira í sinn hlut en
aðrir launþegar í landinu. Auk
þess má benda á að á þessu ári er
fyrirséð að tekjur sjómanna
koma til með að dragast saman
vegna samdráttar í botnfiskafla",
sagði Hólmgeir Jónsson.
-grh
VMSÍ
Stuðningi
heitið
Pórir Daníelsson:
Aftökum ekki að koma
inní samningaviðræður á
síðari stigum málsins
Framkvæmdastjórn VMSÍ hef-
ur heitið þeim félögum sem felldu
samningana á dögunum aðstoð ef
þurfa þykir.
Aftur á móti telur
framkvæmdastjórnin sig ekki til-
búna til að fara fyrir viðræðum
þessara félaga eins og sakir
standa. Það er því full djúpt í
árinni tekið að segja framkvæmd-
astjórnína hafa aftekið að leiða
viðræðurnar, eins og gert var í
Þjóðviljanum í gær.
- Framkvæmdastjórnin ákvað
að koma ekki að sinni inní samn-
ingaviðræðurnar, hvað sem síðar
kann að verða, sagði Þórir í gær.
VMSÍ mun „fylgjast mjög
grannt með framvindu mála og er
reiðubúið til aðstoðar við félög
eða svæðasambönd eftir því sem
óskað er eftir eða þurfa þykir“,
segir í ályktun framkvæmda-
stjórnarinnar.
manna við ísafjarðardjúp eru
sjómenn nokkuð ánægðir með
þessa verðhækkun. Vertíðin hef-
ur gengið alveg ljómandi það sem
af er og bendir allt til þess að svo
verði einnig á næstu árum, sam-
kvæmt stofnmælingum sérfræð-
inga frá Hafrannsóknarstofnun
sem nýlega voru við rannsóknir í
Djúpinu. -grh
Júlíus Elliðason heldur hér á Lucas kveikjuloki í Honda Civic Sedan. Lokinn kostar í Blossa 163 kr., en 695 kr. í Honda
umboðinu. Munurinn er 532 kr! (Mynd: Sig. Mar)
Varahlutir -
Verðvísir frá FIB
Jónas Bjarnason: Verðmunurinn er rosalegur. Okkar svar er að veita
aðhald með útgáfu verðvísis
Rœkja
Hækkar um túkall
Rækjusjómenn: Ánægðir með
verðákvörðunina
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1988