Þjóðviljinn - 11.03.1988, Side 9
UM HELGINA
AÐALFUNDUR
Verzlunarbanka íslands hf.
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
26. mars 1988 og hefst kl. 14.00
Dagskrá:
1.
Aðalfúndarstörf skv. 33. grein
samþykktar bankans.
2.
Tillaga bankaráðs um útgáfú
jöfnunarhlutabréfa.
3.
Tillaga bankaráðs um aukningu hlutafjár
félagsins um kr. 100.000.000,-
4»
Önnur mál löglega fram borin.
Reykjavík, 7. mars 1988.
Bankaráð
VERZLUNARBANKA ÍSLANDS HF
WRZUJNfiRBflNKINN
Orðsending
til launafólks
frá félagsmálaráðuneytinu
Athygli launafólks er hér með vakin á því að
yfirstandandi orlofsár, þ.e. tímabilið frá 1. maí
1987 til 30. apríl 1988, er síðasta árið sem
Póstgíróstofan annast innheimtu orlofsfjár, en ný
orlofslög taka gildi 1. maí nk.
Af framangreindum ástæðum er launafólk ein-
dregið hvatt til þess að ganga úr skugga um að
launagreiðandi hafi staðið skil á gjaldföllnu or-
lofsfé vegna vinnu á tímabilinu frá 1. maí 1987.
Póstgíróstofan sendir launafólki reikningsyfirlit er
sýnir móttekið orloffé þess vegna og frá hvaða
launagreiðanda. Með samanburði við launa-
seðla sína getur launafólk gengið úr skugga um
hvort launagreiðandi hafi staðið skil á gjaldföllnu
orlofsfé svo sem lög og reglugerð um orlof
standa til.
Sé misbrestur talinn á skilvísri greiðslu orlofsfjár
ber að tilkynna það til hlutaðeigandi póststöðvar
og leggja fram launaseðla og reikningsyfirlit.
8. mars 1988
Félagsmálaráðuneytið
UM HELGINA
MYNDLISTIN
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, eropiðsunnudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og laugar-
daga á milli kl. 13:30 og 16:00.
Bókasafn Kópavogs, Fann-
borg 3-5.1 dag er síðasti dagur
sýningar Belindu Hughes, í
Liststofu bókasafnsins. Belinda
sýnirgrafík, vatnslitamyndirog
myndir unnar með blandaðri
tækni. Bókasafnið er opið kl.
9:00-21:00ídag.
Gallerí Borg, Pósthússtræti 9.
Helgi Gíslason sýnir teikningar
og höggmyndir. Sýningin er
opin virka daga kl. 10:00-
18:00, og kl. 14:00-18:00 um
helgar. Henni lýkur 22. mars.
Grafíkgalleríið Austurstræti 10,
kynning á leirlist eftir Bryndísi
Jónsdóttur og grafík eftir Sig-
rúnu Eldjárn. Galleríið er opið á
opnunartíma verslana.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4
A. Guðbergur Agðunsson opn-
ar sýningu nýrra og eldri verka í
dag. Sýningin er opin virka
dagakl. 12:00-18:00, kl. 14:00-
18:00 um helgar, og stendur til
27. mars.
Gallerí List, Skipholti 50 b.
Brasilíska listakonan Neide
Molinari opnar sýningu olíumál-
verka, á morgun kl. 14:00. Sýn-
ingin er opin virka daga kl.
10:00-18:00, kl. 14:00-18:00
um helgarog Iýkur20. mars.
Gallerí Svart á hvítu, Laufás-
vegi 17 (fyrirofan Listasafnið).
Ranka(Ragnheiður
Hrafnkelsdóttir) opnar sýningu
á morgun kl. 14:00. Á sýning-
unnisem stendurtil27. mars,
eru verk unnin með blandaðri
tækni á pappír, málverk og
skúlptúr. Galleríið eropið kl.
12:00-18:00, alla daga nema
mánudaga.
Glugginn, Glerárgötu 34, Ak-
ureyri.Ámorgunkl. 14:00opn-
ar sýning á verkum sem Glugg-
inn hefur í umboðssölu, en
þannig vill Glugginn vekja at-
hygli á því að auk þess að vera
sýningarsalur er galleríið einnig
með umboðssölu. Sýningin
stendur til 20. mars og er opin
kl. 14:00-18:00 alla daga nema
mánudaga.
íslenska Óperan, hefur verk
eftir Jóhannes Geir Jónsson og
Jón E.Guðmundsson til sýnis
og sölu til fjáröf lunar fyrir starf-
semi Óperunnar. Sýningin er
opin kl. 15:00-18:00 allavirka
daga, auk þess að vera opin
gestum Óperunnar þau kvöld
sem sýningar fara fram.
Kjarvalsstaðir, vestursalur: Á
morgun kl. 14:00 opnar Sigurð-
ur örlygsson sýningu 7 risa-
stórra verka unninna með akríl
og olíulitum veturinn 1987-88.
Sýningin er opin daglega kl.
14:00-22:00, og stendurtil 28.
mars.
Austursalur: Áeyjunum (Saar-
illa), farandsýning 10 norrænna
textillistakvenna opnar á morg-
unkl. 14:00. Sýningin stendur
til 28. mars og er opin daglega
kl. 14:00-22:00.
Listasafn Einars Jónssonar, er
opið laugardaga og sunnudaga
kl. 13:30-16:00. Höggmynda-
garðurinneropinnalladagakl.
11:00-17:00.
Listasafn ASÍ, Grensásvegi
16.1 kvöld kl. 20:00 opnar sýn-
ing íminningu Margrétar Jóns-
dóttur, ekkju Þórbergs Þórðar-
sonar. Sýningin er hugsuð sem
hinsti þakklætisvottur Lista-
safnsins til Margrétar, vegna
glæsilegrar listaverkagjafar
hennar til safnsins sumarið
1973. Við opnun sýningarinnar
verður lesið úr verkum meistara
Þórbergs, en umsjón með upp-
lestrinum hefur Jón Hjartarson
leikari: Sýningin eropin laugar-
dag og sunnudag kl. 14:00-
20:00, og mánudag kl. 16:00-
20:00.
Listasafn íslands, Fríkirkju-
vegi 7. Aldarspegill, sýning ís-
lenskrar myndlistar í eigu
safnsins. Listasafniðeropið
alla virka daga nema mánu-
daga kl. 11:30-16:30, og kl.
11:30-18:00 um helgar. Kynn-
ing á mynd mánaðarins alla
þriðjudagakl. 13:30-13:45.
Leiðsögn um sýninguna sunnu-
dag kl. 13:30. Kaffistofan er
opin á sama tíma og safnið, og
aðgangurerókeypis.
Norræna húsið. Kjailari: Far-
andsýningin Hið græna gull
Norðurlanda. Þar er rakið i
myndum og máli hvernig
brugðist hefur verið við eyðingu
skóganna og vörn snúið í sókn.
Auk þess eru sýndir ýmsir mun-
ir úr tré, meðal annars gripir
fengnir að láni úr Þjóðminja-
safni íslands. Sýningin er opin
daglega kl. 14:00-19:00, og
stendurtil 13. mars.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18. Sýn-
ingáverkum Ragnheiðar Jóns-
dóttur Ream. 19 verk unnin í
olíu, collage, gouche og túsk á
árunum 1962-1975, eru til sýnis
og sölu. Sýningin er opin virka
daga kl. 10:00-18:00, og kl.
14:00-18:00 um helgar, henni
lýkur 16. mars.
Nýlistasafnið v/Vatnsstíg. Ein-
ar Garibaldi opnar sýningu á
rúmlegatuttugu málverkum og
öðru eins af teikningum, kl.
21:00 í kvöld. Sýningin er opin
virkadagakl. 16:00-22:00, kl.
14:00-22:00 um helgar og
srendurtil 27. mars.
Safnahúsið, Sauðárkróki. Á
morgunopnarTolli(Þorlákur
Kristinsson), sýningu 25 olíu-
málverka frá undanförnum
þremurárum. Sýningin eropin
á morgun kl. 16:00-21:00,
sunnudag kl. 14:00-21:00.
Slúnkaríki, Isafirði. Sigríður
Ásgeirsdóttir sýnir verk unnin í
gler og tré á undanförnum
tveimur árum. Sýningin stendur
til 27. mars og er opin frá
fimmtudegi til sunnudags kl.
16:00-18:00.
Þjóðminjasafnið, forsalur.
Gallabuxur og gott betur, far-
andsýning um sögu og þróun
gallabuxna. Höfundursýning-
arinnarerlngaWintzell, þjóð-
háttafræðingurog safnvörður
við Nordiska museet í Stokk-
hólmi, og er bók hennar, Galla-
buxur og gallabuxnamenning til
sýnis og sölu á sýningunni sem
bekkur Leiklistarskóla íslands sýnir barnaleikritið Með álfum og
■ tröllum eftir StafTan Vestberg í Lindarbæ um helgina.
er opin á opnunartfma safnsins
og stendur til 20. mars.
LEIKLISTIN
Alþýðuleikhúsið, Hlaðvarp-
anum. Einskonar Alaskaog
Kveðjuskál, aukasýning á
laugardagskvöldi kl. 20:30.
Ás-leikhúsið. Síðustu sýning-
ar á Farðu ekki, á Galdraloftinu,
á morgun kl. 16:00 og sunnu-
dagkl. 16:00.
Egg-leikhúsið. Á sama stað,
hádegisleikhús á veitingahús-
inu Mandaríninn við T ryggva-
götu. Allra síðasta sýning á
morgun kl. 12:00.
Fjölbrautarskólinn Akranesi
frumsýnir Silfurtunglið í kvöld kl.
20:30.
Fjölbrautarskólinn í
Breiðholti, Smámyndir, í kvöld
og annað kvöld.
Frú Emilía, Laugavegi 55B.
Kontrabassinn á morgun kl.
16:00, sunnudag kl. 21:00,
mánudagkl. 21:00.
íslenska óperan. Don Gio-
vanni, í kvöld og annað kvöld
kl.20:00.
Barnasöngleikurinn Búum til
óperu/ Litli sótarinn, sunnudag
kl. 16:00.
Leikfélag Akureyrar, Horftaf
brúnni, í kvöld kl. 20:30, annað
kvöld kl. 20:30.
Leikfélag Reykjavíkur. Dagur
vonar, í Iðnó í kvöld kl. 20:00.
Djöflaeyjan, ískemmunni f
kvöldkl. 20:00.
Síldin er komin, í skemmunni
annað kvöld kl. 20:00.
Leikfélag Seyðisfjarðar,
frumsýnir í dag barnaleikritið
Stóri klunnalegi blórinn með
uppsnúnu uggana. Næstu sýn-
|D' ■ <sr
Í I § I
ingar á morgun og á sunnudag-
inn.
Leiklistarskóli íslands, nem-
endur 3. bekkjar sýna barna-
leikritið Með álfum og tröllum, í
Lindarbæídagkl. 14:00, á
morgunkl. 14:00og sunnudag
kl. 14:00.
Sögusvuntan, brúðuleikhús f
kjallaranum Fríkirkjuvegi 11,
sýnir Smjörbitasögu á sunnu-
daginnkl. 15:00.
Unglingaleikhúsið Kópa-
vogi, Vaxtarverkir, Félags-
heimili Kópavogs á sunnudag-
innkl. 16:00.
Þjóðleikhúsið. Bílaverkstæði
Badda, litla sviðinu á morgun
og sunnudag kl. 16:00.
Vesalingarnir, í kvöld, annað
kvöld og sunnudagskvöld kl.
20:00.
TONLISTIN
Duus-hús, jasstónleikar Heita
pottsins Kl. 21:30, kvöld með
Möller bræðrum. Jón og Karl
Möller leika á píanó ásamt
hrynsveit.
Evrópa, Borgartúni 32. Söng-
leikurinn Jesus Christ Super-
star, á miðnætti í í kvöld og ann-
aðkvöld.
Kammersveit Reykjavíkur
heldur síðustu tónleika vetrar-
ins í Listasafni íslands á mánu-
dagskvöldið kl. 20:30. Blásara-
kvintettReykjavíkurleikurverk-
inSummermusic, opus31 eftir
Samuel Barber, og Tíu þætti
fyrir blásarakvintett eftir György
Ligeti. Þriðjaverkiðáefnisskrá
tónleikanna er Kvintett, opus 39
eftir Sergej Prokofief. Flytjend-
ureru Kristján Þ. Stephensen
óbóleikari, Óskar Ingólfsson
klarinettuleikari, Laufey Sigurð-
ardóttir fiðluleikari, Helga Þór-
arinsdóttir lágfiðluleikari og Ric-
hard Korn kontrabassaleikari.
Lækjartungl, Lækjargötu 2.
Annað kvöld verður opið kl.
22:00-03:00, hljómsveitin
Centaur og söngkonan Sigga
Beinteins leika rokk og ról í
klukkustund.
Á sunnudagskvöldið er opið kl.
22:00-01:00, Rokkabillyband
Reykjavíkur, Ásmundur
Magnússon söngur, Björn Vil-
hjálmsson bassi, Tómas Tóm-
asson gítar og Sigfús Óttarsson
trommur. Auk þess flytja Bobby
Harrison, Rúnar Júlíusson,
Micky Duff og Sigurður Sig-
urðsson, lög af plötunni Solid
Silver.
HITT OG ÞETTA
MÍR. Sunnudag kl. 16:00, kvik-
myndasýning í bíósalnum við
Vatnsstíg 10. Ballettmyndin
Spartakus, mynd gerð 1975
eftir ballett sem Júrí Gregoro-
vitsj samdi við tónlist Arams
Katshatúrjans. I myndinni
koma fram margir af fremstu
dönsurum Bolshoj-leikhússins í
Moskvu. Aðgangurerókeypis
ríiTlSP í'v'
teSöSéS? \ 0 % ifcV.
*> Um. í. i
7«
'&W&j cs
>r
*/inh!
og öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
FÍ. Dagsferðir sunnudaginn 13.
mars: 1) Kl. 13:00, skíðagöngu-
ferð í Bláfjöllum. Ekið að þjón-
ustumiðstöðinni og gengið í 2-3
klukkustundir. Verð 600 kr.
2) Kl. 13:00, Hafnarskeið-Ölf-
usárósar. Ekiðtil Þorlákshafnar
og síðan gengið um Hafnar-
skeið og Hraunskeið að Ölfus-
árósum. Verð 800 kr. - Brottför
frá umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar viö bíl,
frítt fyrir börn I fylgd með full-
orðnum.
Hana nú. Vikuleg laugar-
dagsganga Frístundahópsins í
Kópavogi verðurá morgun,
laugardaginn 12. mars. Lagt af
staðfráDigranesvegi 12,
kl. 10:00. Samvera, súrefni,
hreyfing og nýlagað molakaffi.
Allirvelkomnir.
Útivist. Sunnudagsferð 13.
mars kl. 13:00. Botnsdalur í
vetrarbúningi - Glymur. Gengið
með gljúfrum Botnsár að Glym,
hæsta fossi landsins og áfram á
Viðhamrafjall. Létt ganga.
Árshátíð í Skíðaskálanum á
lauaardagskvöldið, rútuferðfrá
BSlkl. 18:30. Miðaráskrifstof-
unniGrófinni 1.
Félag eldri borgara efnir til
skemmtiferðartil Selfoss á
sunnudaginn. Brottförfrá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 13:00.
Ferðakynning í Goðheimum,
Sigtúni 3, sunnudag kl. 14:00-
18:00. Dansaðfrákl.20:00 til
23:30.
Breyttur
opnunartími á
bensínstöðvum
á höfuðboigar-
svæðinu
Mánudaginn 7. mars 1988 tekur gildi breyttur opnunartími á bensínstoðvum í
Reykjavflc, Seltjamamesi, Mosfellssveit, Kópavogi, Garðahæ ogHafiiarfirði.
Ástæða íyrir breyttum opnunartíma er nýgerður samningur vinnuveitenda við
Verkamannafélagið Dagsbrún og Verkamannafélagið Hlíf, er varðar bensínaf-
greiðslumenn. Samningurinn felur í sér styttingu á opnunartíma bensínstöðv-
anna, þannig að fiamvegis verður lokað ld. 20.00 í stað 21.15 áður.
Sölutími bensmstöðva á áðumefitdum svæðum verðurskv. samningiþessunv
Virka daga allt árið:
Opnað kl. 07.30, lokað kl. 20.00
Sunnudaga í júní, júlí, ágúst og september:
Opnað kl. 09.00, lokað kl. 20.00
Aðra sunnudaga:
Opnað kl. 10.00, lokað kl. 20.00
Aðrir helgidagar:
Opnunartími auglýstur sérstaklega
Viðskiptavinum otíufélaganna er vinsamlegast bent á, að sjálfssalar
eru opnireftirkL 20.00.
Skeljungur h.f.
eikfélag Seyðisfjarðar frumsýnir barnaleikritið Stóri klunnalegi blórinn með uppsnúnu uggana eftir
i Börgc Hansen.
Milljónir á hverjum laugardegi. Upplýsingasimi: 685111