Þjóðviljinn - 11.03.1988, Síða 10
Kosningar í Háskólanum
Sameining til vinstri
Röskva etur kappi við Vöku ífyrsta sinn á þriðjudaginn
Þriðjudaginn 15. mars verða almennar kosning-
ar í Háskóla íslands. Stúdentar velja sér sína sér-
legu fulltrúa í Stúdenta- og Háskólaráð. 15 verða
kjörnir; 13 í Stúdentaráð og 2 í Háskólaráð. Há-
skólaráðsfulltrúarnir sitja einnig í Stúdentaráði.
í Stúdentaráði sitja 30 stúdentar og er staðan þar
í dag á þann veg að Vaka, féiag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hefur 13, Félag vinstri manna 13 og Fé-
laa umbótasinna 4.
I síðustu kosningum unnu Vökumenn á en mál-
amiðlun tókst ekki milli þeirra og Umba sem kom-
ust í oddaaðstöðu. Meirihlutasamstarf náðist þá
með Umbum og vinstri mönnum, sem nú hefur leitt
af sér nýtt félag; Röskvu.
Lánamálin ber hæst og í kjölfar þeirra húsnæðis-
mál. 90 íbúðir eru í byggingu við Hjónagarða og
þurfa stúdentar að ná inn 40 miljónum króna vegna
þeirra en fram að þessu hefur þeim ekki þótt nóg
komið frá hinu opinbera. Dagvistunarmál koma
mjög við sögu og taka frambjóðendurnir misjafn-
lega á fjöldatakmörkunum miklu.
Það er ekki beinlínis hægt að segja að allir stúd-
entartaki afstöðu með eða á móti hinum andstæðu
fylkingum. Þátttaka í kosningum til Stúdenta- og
Háskólaráðs hefur ekki verið nema um 40% að
meðaltali sem er heldur slakt. Það virðist ekki mikill
áhugi meðal stúdenta á að reyna að bæta sinn hag
með málefnalegu samstarfi um sín hagsmunamál.
Eða er þetta kannski ekkert einsdæmi meðal stú-
denta?
Samt heldur baráttan áfram og við skulum kynn-
ast hinu nýja afli innan Háskólans. Röskva -
samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands - er til
umfjöllunar hér á síðunni. Skoðum stöðuna.
-tt
Nýtt
- Mér finnst gaman að fylgj-
ast með framboðslista
Röskvu verða til, sagði
Ómar Geirsson, formaður
Stúdentaráðs, því hver nýr
maður virðist færa næringu
að hinum ört vaxandi meiði
Röskvu og stuðla að blóm-
legri málefnabaráttu.
Ómar er einn fjögurra fulltrúa
umbótasinna í meirihlutasam-
starfi Félags vinstri manna og Fé-
lags umbótasinna innan Stúd-
entaráðs. Hann sagði samstarf
vetrarins hafa fært öllum heim
sanninn um að sameining þessara
tveggja félaga væri óumflýjanleg
staðreynd því raunverulegur á-
greiningur um málefni væri ekki
til milli félaganna.
- Samstarf með þessum
tveimur hópum styrkir stöðu fé-
lagshyggjunnar jafnt innan Há-
skólans sem utan. Félagshyggju-
öflin starfa mun betur að sínum
málum ef þau eru sameinuð en
ekki sundruð.
Ég segi það satt að ég hefði
viljað sjá þetta samstarf verða að
veruleika fyrir 4-5 árum, þá væru
málefni stúdenta; Iánamálin,
húsnæðismálin og öll hin málin
örugglega á talsvert mannlegra
plani. Það er annars merkileg til-
finning að líta til baka og sjá að
gamli tíminn var of uppfullur af
persónulegri togstreitu,
hagsmunabaráttan hefði mátt
eiga meira pláss í hugum okkar
allra. En þetta verður allt mun
betra með tilkomu Röskvu, sagði
Ómar að lokum. - Það veit ég!
Ómar Geirsson:
Hefði viljaðfá
þetta samstarf
miklufyrr
Menntastefnu
- Heildarstefna í mennta-
málum er nokkuð sem mér
f innst að ætti að koma frá
Háskólaráði en ekki f lokk-
akrifstofunum úti í bæ,
sagði Sigrún Óskarsdóttir,
frambjóðandi Röskvu til
Háskólaráðs. En um leið
verð ég því miður að viður-
kenna að það vantar til-
finnanlega afmarkaða
stefnu í menntamálum
þjóðarinnar.
Sigrún er ein þeirra sem hve
ötulast hafa starfað að stofnun
hins nýja félags og því má búast
við stórhuga breytingatillögum
frá hennar hendi, en aðspurð
sagðist hún einmitt hafa marga
málaflokka til að vinna að á næst-
unni. Meðal annars vildi hún
nefna aðgengi og aðstöðu fatl-
aðra til að stunda nám við Há-
skólann. - Það er öllum aðilum
hollast að fatlaðir geti óhindrað
stundað nám við Háskólann, það
er beinlínis þjóðhagslega hag-
kvæmt! Einnig kvaðst hún vilja
fylgja því eftir að fólk sem náð
hefur 26 ára aldri en hefur ekld
stúdentspróf geti hafið nám ef
það æskir þess.
- Eitt stærsta málið sem Há-
skólaráð tekur fyrir núna eru hin-
ar ómannúðlegu fjöldatakma|-k-
anir sem í gildi eru. Ég lít svo áað
þetta sé eitt þeirra mála sém
kosningin nú stendur um. Við,
fulltrúar félagshyggjunnar, ætt-
um að berjast að fullu og öllu
fyrir opnum Háskóla. Það verður
að fara að koma upp á yfirborðið,
sagði Sigrún, - að fjöldatakmark-
anirnar leysa einfaldlega ekki
vanda Háskólans!
takk!
Sigrún
Óskarsdóttir:
Berjumstfyrir
opnum háskóla
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1988