Þjóðviljinn - 17.03.1988, Síða 3
FRÉTTIR
Lambhagi
Rekin fyrirvaralaust
Erlend kona rekinfrá gróðrarstöðinni Lambhagafyrir að
neita að vinna eftirvinnu og að hengja upp merki Samstöðu.
Jafnframt hótað að verða gerð brottræk úr landinu
Gila Carters hefur verið rekin
frá gróðrarstöðinni Lamb-
haga fyrir þær sakir einar að
neita að vinna yfirvinnu og hafa
hangandi á sínum vcggjum orðið
Solidarity eða Samstaða. Auk
þess að reka hana hótaði atvinnu-
rekandinn að sjá til þess að hún
yrði gerð brottræk frá landinu.
Giía byrjaði að vinna hjá Haf-
berg Þórissyni í gróðrarstöðinni
Lambhaga í október á síðasta ári
en Hafberg stóð ekki við þá
skyldu sína sem atvinnurekandi
að tilkynna útlendingaeftirlitinu
um ráðninguna og að útvega Gilu
atvinnuleyfi. Gila var rekin frá
gróðrarstöðinni í lok síðustu viku
en áður hafði hún komist að
samkomulagi við Hafberg um
mánaðar uppsagnarfrest. Þegar
Hafberg skipaði henni að hypja
sig minnti hún hann á uppsagn-
arfrestinn en hann skellti skolla-
eyrum við því.
Gila hafði samband við Þjóð-
viljann vegna þessa máls því hún
sá ekki fram á að geta staðið ein í
því stappi sem framundan er
gagnvart sínum fyrrum vinnu-
veitanda.
Hafberg sagði við Þjóðviljann
að Gila ætti við samskiptaörðug-
leika að etja en það hefði fyllt
mælinn þegar hún hengdi úrdrátt
úr kjarasamningum Félags garð-
yrkjumanna upp á vegg við hlið
Samstöðumerkisins. Sagðist
hann hafa beðið hana í vinsemd
að taka þetta niður því ef hún
gerði það ekki yrði hún að fara.
Útlendingaeftirlitið segir að
Gila hafi atvinnuleyfi en ekki hjá
Lambhaga og því séu bæði ábyrg
fyrir að hafa ekki skilað inn
skýrslu tii eftirlitsins. Um síðustu
mánaðamót mun Hafberg hins- fyrir Gilu en enn er ekki búið að
vegar hafa sótt um atvinnuleyfi afgreiða það. -tt
Gila Carters heldur hér á borðanum sem atvinnurekandi hennar,
Hafberg Þórisson, gat ekki þolað. (Mynd E.ÓI.)
Kennarar
Fullyrðingar stangast á
Jón Baldvin Hannibalsson: Grunnskólakennarar innan KÍ
með 58þúsund króna meðal dagvinnulaun. Svanhildur Kaa-
ber: Við höfum 55 þúsund króna meðal dagvinnulaun
Samninganefnd fjármálaráðu-
neytisins heldur fast við sinn
keyp í samningaviðræðum kenn-
ara og hins opinbera. Samninga-
nefndin býður 13,5% kauphækk-
un til handa kennurum en heldur
því fram að kennarar krefjist
rúmlega 65% launahækkunar.
Jórt Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra sagði á fundi
með biaðamönnum í gær að
þensla síðustu ára gerði það æ
erfiðara fyrir hið opinbera að hei-
mila launahækkanir umfram það
sem komið hefur fram í samning-
um VSÍ og VMSÍ. - Fólkið í
landinu verður að skilja það að
svigrúmið til að auka þensluna
með almennum launahækkunum
er afar takmarkað, sagði Jón
Baldvin.
Fjármálaráðuneytið hefur
tekið saman yfirlit yfir launa-
greiðslur þess til starfsmanna
nkisins frá 1986 og tekið meðaltal
árslauna og framreiknað þau
með hliðsjón af meðallaunum í
desember 1987 og kemur þar
meðal annars fram að samkvæmt
útreikningum ráðuneytisins eru
grunnskólakennarar í KÍ með
meðal dagvinnulaun 58 þúsund
krónur og tæplega 75 þúsund
króna meðal heildarlaun áætlað.
Kennarasambandið lýsir því
hinsvegar yfir að þetta séu rang-
færslur þar eð tekið sé með inn í
útreikningana laun stjórnenda og
sér launaðra starfsmanna skól-
anna. Meðallaun kennara í
grunnskólum sem eru í KÍ eru 55
þúsund í dagvinnu og 69 þúsund í
heildina ef reiknað er með þeirri
óhóflegu yfirvinnu sem kennarar
verða að vinna.
Svanhildur Kaaber formaður
KÍ sagði í gær að tillögur Kennar-
asambandsins væru byggðar á
vinnu starfskjaranefndar og í
ljósi þess ætti ekki að vera svo
mikill ágreiningur milli samn-
Jf|0/ af iðgjöldum vegna
/0 bifreiðatrygginga
renna í ríkissjóð vegna tvískött-
unar. í fyrsta lagi er lagður 25%
söluskattur ofan á iðgjöldin og
síðan greiða tryggingafélögin
25% söluskatt af allri verkstæðis-
þjónustu, en talið er að 70% af
tjónagreiðslum tryggingafélag-
anna fari í að greiða munatjón.
ingsaðila því starfskjaranefnd
hafi verið skipuð fulltrúum
menntamálaráðuneytisins og
fjármálaráðuneytisins auk full-
trúa frá KÍ. - Starfskjaranefnd
varð einhuga um sína afgreiðslu
og því farsakennt ef ályktanir
hennar verða hundsaðar, sagði
Svanhildur.
Svanhildur sagði enn fremur
að ef kennarar gengju að tilboði
ríkisins nú þýddi það kjararýrnun
langt umfram það sem VSÍ/
VMSÍ samningurinn bar með sér
og því ómögulegt fyrir kennara
að ganga að slíku tilboði.
Þessar upplýsingar er að finna í
greinargerð með þingsályktun-
artillögu frá Skúla Alexand-
erssyni og Svavari Gestssyni þar
sem lagt er til að ríkisstjórnin
undirbúi ráðstafanir til þess að
draga úr kostnaði við bifreiða-
tryggingar. Meðal þess sem lagt
er til er að tvísköttunin verði afn-
umin. _Sáf
-tt
Bifreiðatryggingar
Rfldð feer 40%
Fimmtudagur 17. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Yfirvinnubann prentara
Félag bókagerðarmanna ákvað á félagsfundi í gær að boða yfirvinn-
ubann frá og með laugardeginum 26. mars, hafi samningar um kaup og
kjör ekki tekist fyrir þann tíma. Samþykkt var einróma á fundinum að
Trúnaðarmannaráð félagsins boði yfirvinnubannið.
Vegið að alvarlegri listsköpun
Bandalag íslenskra listamanna hefur ákveðið að styðja mótmæli við
fyrirhugaðri breytingu á tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs, en sú
breyting gengur út á að allar gerðir tónlistar komi jafnt til greina við
veitingu verðlaunanna. „Þetta er enn eitt dæmið um að vegið sé að
alvarlegri listsköpun á okkar dögum og er sívaxandi ásókn markaðs-
lögmála inn á hin ólíkustu svið þjóðlífsins sérstakt áhyggjuefni,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu frá Bandalagi íslenskra listamanna. Þá er þeim
tilmælum beint til fulltrúa okkar í Norðurlandaráði að gera ekki
breytingar á verðlaunum þess án fyllsta samráðs við listamenn.
800 tonn í gáma
f dag fara 750-800 tonn af gámafiski frá Vestmannaeyjum áleiðis til
Englands. Alls fara 45-46 gámar fullir af fiski, aðallega þorski frá
Eyjum, en hver gámur tekur u.þ.b. 15 tonn. Samkvæmt upplýsingum
frá Eyjum er fiskverð á Englandi eitthvað að rétta úr kútnum frá
verðfallinu sem varð í fyrradag.
Viðskipti við S-Afríku aukast
Útflutningur til Suður-Afríku jókst um 50% á síðasta ári miðað við
árið þar á undan og innflutningur frá S-Afríku var 20,3 miljónir árið
1986 en hafði aukist í 32,9 miljónir á síðasta ári, þar af fluttu íslending-
ar inn ávexti fyrir 29,4 miljónir frá S-Afríku þrátt fyrir tilmæli Alþingis
um að engin viðskipti skuli höfð við landið vegna aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda þar.
Efnahagsaðgerðirnar
duga skammt
Þrátt fyrir nýafstaðnar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar er
fiskvinnslan rekin með 3% halla ef miðað er við þá samninga sem
VMSÍ og VSÍ undirrituðu í Garðastræti í lok febrúar. Frystingin er
hinsvegar rekin með 7% halla miðað við sömu forsendur. A aðalfundi
Vinnumálasambands Samvinnufélaganna í gær kom fram mikil óá-
nægja með ráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Þorsteinn Ólafsson var
endurkjörinn formaður Vinnumálasambandsins.
Grænlenskir nemendur
27 nemendur Lýðháskóla grænlensku verkalýðssamtakanna komu
til íslands í gær. Tilgangur ferðarinnar er að fræðast um ísland og
íslenska atvinnuvegi. Hópurinn mun dvelja í Reykjavík en heimsækja
bæði Akranes ogSuðurland. ASÍ ogMFA hafa skipulagt heimsóknina
og verða ýmsir vinnustaðir m.a. heimsóttir. Á meðan á heimsókninni
stendur heldur grænlenska verkalýðssambandið SIK þing sitt í skólan-
um í Julianehaab.
Stuðningur
við Snót
Stjórn Póstmannafélags ís-
lands hefur lýst yfir eindregnum
stuðningi við kjarabaráttu verka-
kvennafélagsins Snótar í Vest-
mannaeyjum.
Sjómaður lést
Gunnar Þorkell Jónsson, búsettur að Sléttahrauni 28 í Hafnarfirði,
lést við vinnu sína á erlendu farskipi í höfninni í Rotterdam í Hollandi
fyrr í vikunni.
Vinnuslys
alltof tíð
Vinnuslys hér á landi eru mun
tíðari en í nágrannalöndum okk-
ar. Tíundi hver karlmaður og
fertugasta hver kona á höfuð-
borgarsvæðinu leita til Slysa-
deildar Borgarspítalans á ári
vegna vinnuslysa. Þetta kemur
fram í Gjallarhorni, málgagni
fyrir Samvinnutryggingamenn.
Alvarleg slys meðal karla
reyndust árið 1983 algengust
meðal þeirra sem vinna við fisk-
veiðar, ál- og járnblendi, trjá-
vöruiðnað, matvælaiðnað og
vefjariðnað. Slys meðal kvenna
voru tíðust hjá þeim sem vinna
við vefjariðnað, matvælaiðnað
og pappírsiðnað. í nálægum
löndum er slysatíðni meðal karla
allt að helmingi minni en hér.