Þjóðviljinn - 17.03.1988, Síða 6
MINNING
Kristín Jenný Jakobsdóttir
Fœdd 14.4. 1931 - Dáln 7.3. 1988
:/
Við póstmenn á íslandi eigum
nú á bak að sjá einum okkar besta
félaga og forystumanni, sem er
JCristín Jenný Jakobsdóttir, en
hún lést á heimili sínu þann 7.
mars síðastliðinn, eftir hetjulega
baráttu við skæðan sjúkdóm.
Jenný hóf störf á Póststofunni í
Reykjavík árið 1966 og starfaði
þar til dauðadags, fyrst sem póst-
afgreiðslumaður, en síðan sem
fulltrúi.
Jenný lét snemma til sín taka í
félagsmálum póstmanna og voru
fræðslumál þeirra henni einkar
hugleikin og flutti hún erindi og
skrifaði greinar um þau málefni,
einnig sat hún í skólanefnd Póst-
og símaskólans.
Jenný sat í stjórn Póst-
mannafélags íslands samfellt frá
FLÓAMARKAÐURINN
Saab 900
til sölu. Mjög góður bíll. Uppl. í
símum 91 -72896 og 71858 e. kl. 18
í kvöld og næstu kvöld.
Óska eftir að kaupa
litasjónvarp og hluti í „Hearts and
flowers" bollastell. Á sama stað er
til sölu Daihatsu Charade árg. ’80.
Upplýsingar í síma 22026.
Salerni gefins
Salerni með sambyggðum vatns-
kassa fæst gefins. Upplýsingar í
síma 30989.
AEG eldavélahelluborð
með 4 hellum og lausu mælaborði
og klukku á kr. 10.000. Upplýsingar
í síma 50579 eftir kl. 18.00.
Selfoss - Reykjavík
húsnæðisskipti
Óskum eftir góðri 4-5 herbergja
íbúð í Reykjavík í leiguskiptum fyrir
stórt og gott einbýlishús á fallegum
stað á Selfossi. Helst frá mánaða-
mótum maí-júní. Þeir sem hafa
áhuga vinsamlegast sendi inn upp-
lýsingar á augld. Þjóðviljans sem
allra fyrst merkt „Makaskipti Sel-
foss - Reykjavík”.
Til söiu
IKEA skápur með glerhurðum á kr.
4.000, eldhúsljós á kr. 800, English
electric tauþurrkari á kr. 8.000,
kringlótt eldhúsborð á stálfæti
(harðplast viðarlíkisplata), mjög fal-
legt ullargólfteppi, stærð 3 m x3,20
m, ca. 20.000. Upplýsingar í síma
685239 eftir kl. 16.00.
3 hausa Marants 5030
kassettutæki
7 ára, á kr. 6.000. Ný tæki kosta
60-70.000. Vel með farið og lítið
notað. Sími 21784.
Sófaborð
Sófaborð, dökkt 1,30x80 og horn-
borð 70x70. Verð 3.500. Upplýs-
ingar í síma 687164 eftir kl. 14.00.
Píanó til leigu
Gott og fallegt píanó til leigu í um-
saminn tíma. Upplýsingar í sama
622154 á kvöldin.
Til sölu
rússnesk haglabyssa, 12 cal, eins
skota ásamt 60 skotum og fjár-
byssa PAV 70,22 cal, eins skota.
Sími 74624.
Til sölu
vel með farinn svefnstóll, sem nýr,
og skrifborð (vélritunarborð). Upp-
lýsingar í síma 18648.
Vantar vinnustofu
iðnaðarhúsnæði eða jafnvel hús-
næði fyrir utan bæinn, t.d. sumar-
bústað. Flest kemur til greina. Upp-
lýsingar í síma 26754 á kvöldin.
Til sölu 1
Blomberg, tvískiptur ísskápur, hæð
1,85, 11/2 árs gamall, litur dökk-
grænn. Mjög vel með farinn. Nýr
kostar 55.000, selst á 35.000. Upp-
lýsingar í síma 79319.
Til sölu
VW1200 (bjalla), árg. 72. Gangfær
en ekki á skrá. Ýmsir varahlutir
fylgja. Sanngjarnt verð. Upplýs-
ingasími 93-51357 á kvöldin.
Tvær systur
óska eftir 3ja herbergja íbúð frá 1.
júní. Helst í Kópavogi. Upplýsingar í
síma 44274.
Vill einhver eignast
sófaborð, eldhúsborðog kommóðu
fyrir lítið? Upplýsingar í síma
681748 eftir kl. 20.00.
Páfagaukur
fæst gefins. Upplýsingar í síma
53972.
Gamalt gólfteppi
til sölu mjög ódýrt. Upplýsingar í
síma 72377.
Ýmislegt til sölu
Cortina 1600 station árg. 76, skoð-
aður ’88, Lada 1500 árg. 77 og
tveir Austin Mini 1100 árg. 78 sem
seljast til niðurrifs eða uppgerðar.
Sömuleiðis sófasett 3+2+1. Verð
kr. 5.000, Marantz hljómtækjasam-
stæða, gulllínan, Zanussi ísskápur,
sófaborð úr furu, smáborð úr tekki,
hjónarúm án dýna og olíumálverk
eftir Selmu P. Jónsdóttur, myndefni
Eyjafjallajökull. Upplýsingar í síma
45196.
Páfagaukar
Óska eftir Róshöfða dvergpáfa-
gauk (karli). Sími 24193.
Bíll til sölu
Glæsileg Toyota Carina II. árg.
1987 til sölu, ekin aðeins 12500 km,
sjálfskiptur með fótgír, silsalistar,
útvarp og segulband. Bein sala
570-580 þús. Skuldabréf athug-
andi. Uppl. s. 92-13354 og 92-
15488. Björn Víkingur Skúlason.
Vantar þig aukatekjur?
Ef svo er hafðu samband, því við
viljum ráða fólk í áskrifendasöfnun
fyrir ört vaxandi tímarit. Kvöld- og
helgarvinna næstu vikurnar. Nánari
uppl. í síma 621880. Fréttatímaritið
Þjóðlíf.
Atvinna óskast
Stúlka á 19. ári óskar eftir atvinnu.
Ýmislegt kemur til greina. Er vön
afgreiðslustörfum. Góð laun saka
ekki. Tilboð óskast send auglýs-
ingadeild Þjóðviljans merkt: „Dug-
leg 18”.
Handunnar
rússneskar tehettur
og mátrúskur (babúskur) í miklu úr-
vali. Póstkröfuþjónusta. Uppl. í
síma 19239.
Barnagull
Dreymir þig um gamaldags leikföng
úr tré? Hef til sölu dúkkurúm, brúð-
uvagna og leikfangabíla. Póstsend-
ingaþjónusta. Auður Oddgeirs-
dóttir, húsgagnasmiður, sími 99-
4424.
íbúð!
Hjón sem eru fullkomlega reglusöm
og eiga 2 börn vantar 3-4ra herb.
íbúð í vesturbænum strax. Þau geta
lagt fram 100.000 kr. fyrirfram ef
nauðsyn krefur. Vinsamlegast
hringið í síma 21799 eða 14793.
Barmmerki
Tökum að okkur að búa til barm-
merki með stuttum fyrirvara. Uþpl. í
síma 621083 milli kl. 8 og 10 á
kvöldin.
Húsnæði
Óskum eftir að taka á leigu ódýrt
húsnæði nálægt miðbænum fyrir
skrifstofu. Þarf helst að snúa út að
götu. Má þarfnast lagfæringar.
Uppl. í síma 621083 milli kl. 8 og 10
á kvöldin.
Til sölu
hvít körfuhúsgögn, 3 stólar, körfu-
kista, „Klint” ullargólfteppi og gall-
erí plaköt t.d. Georgia Okeefe.
Uppl. á daginn í síma 18048 eftir kl.
18 í síma 11957.
Húsnæði vantar
undir reiðhjólaverkstæði, helst í
alfaraleið. Uppl. í síma 621309 á
kvöldin.
1980, fyrst sem ritari og síðan for-
maður síðasta kjörtímabil.
í formannsstarfinu nutu pers-
ónueiginleikar Jennýjar sín til
fulls, hreinskilni, samviskusemi,
rík réttlætiskennd og síðast, en
ekki síst, framúrskarandi háttvísi
í allri framgöngu sem öfluðu
Ekki kom það mér beint á
óvart er ég heyrði í útvarpinu að
Þórður vinur minn frá Bakka í
Austur-Landeyjum, væri allur.
Ég kom til hans í fyrravetuf í íbúð
hans í Hátúni 10. Var þá mjög af
honum dregið. Hniginn er í va-
linn aldraður maður, þrotinn að
heilsu og kröftum. Er þá ekki
hvfldin kærkomin?
Þórður fæddist að Bakka í
Austur-Landeyjum hinn 31. maí
árið 1906. Ný öld var nýlega haf-
in, vorhugur var í þjóðinni. Var
sem þjóðin væri að vakna af alda-
löngum svefni.
Foreldrar Pórðar bjuggu lengi
að Bakka, en þau voru Loftur
Þórðarson og Kristín Sigurðar-
dóttir, ljósmóðir um langa hríð í
sveit sinni. Þórður ólst upp í stór-
um systkinahópi. Hann fór að
vinna ungur heima við búskapinn
og var foreldrum sínum stoð og
stytta allt til þess tíma að hann
fluttist að Hellu ásamt þeim. Þar
dvöldu gömlu hjónin hjá Þórði og
Birni, sonum sínum, til dauða-
dags. Loftur lést 22. nóvember
1954, en Kristín dó 7. maí 1957.
Hann varð 87 ára, en hún tæplega
83 ára. Skelfing er mannsævin í
raun og veru stutt og starfsárin fá.
Þórður leitaði sér menntunar í
æsku. Gekk hann á Flensborgar-
skólann og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi árið 1924, 18 ára.
Minntist hann oft á skólaveruna
við mig er við störfuðum saman
um skeið. Hann minntist kennar-
anna, ekki síst síra Þorvaldar Jak-
obssonar, Bjarna Bjarnasonar,
síðar skólastjóra á Laugarvatni,
og Sigurðar Guðjónssonar, er oft
var nefndur Siggi lærer, en hann
kenndi dönsku. Einn af bek-
kjarbræðrum Þórðar í Flensborg
var Sigurður Ágústsson í Birting-
aholti, með þeim yngstu, ef ekki
yngstur í þeim hópi.
Ekki átti það fyrir Þórði að
liggja að ganga langskólaveginn,
enda vafalítið illfært þá fyrir
bóndason. Hann fór heim og
vann á búinu.
Eins og kunnugt er hafa margir
stundað kennslu barna, þótt þeir
hafi ekki aflað sér sérmenntunar
til þess starfs, og margir reynst
vel á þeim vettvangi. Sá sem
kenndi mér lengst í bamaskóla
var gagnfræðingur frá Akureyri,
henni vinsemdar og virðingar í
ströngum samningaviðræðum
jafnt og í samskiptum við félaga
okkar á hinum Norðurlöndun-
um.
í hlut Jennýjar kom að stýra
samninganefnd Póstmannafélags
íslands í fyrstu sjálfstæðu samn-
ingunum sem Póstmannafélag fs-
lands gerði við ríkisvaldið skv.
nýju samningsréttarlögunum og
gat sáttasemjari ríkisins þess við
undirritun samningsins að sjald-
an hefði hann kynnst jafn sam-
hentum og glaðværum hópi og
samninganefnd Póstmannafélags
íslands, þrátt fyrir ýmiss konar
mótlæti og vonbrigði, sem alltaf
fylgja harðri samningagerð, en
það var einmitt einn af eðlisþá-
tum Jennýjar að skapa andrúms-
loft léttleika og bjartsýni í kring-
um sig.
Annað stórt verkefni sem
Jenný leysti af hendi í sinni for-
mannstíð var fyrirsvar fyrir ís-
lensku undirbúningsnefndina
fyrir Norræna póstmótið, sem
Sigurjón Jóhannsson. Ekki var
hann talinp neitt slakur kennari,
þótt prófskírteinið frá Kennara-
skólanum vantaði.
Þórður tók að stunda barna-
kennslu í heimasveit sinni er
hann var um fertugt. Stundaði
hann það starf í tvo vetur. Síðar
gerðist hann kennari við barna-
skólann á Hellu sem þá var ný-
stofnaður. Var hann þar skóla-
stjóri þar til réttindamaður í
greininni birtist. Þá var Þórði
mínum vikið til hliðar. Svo var
það haustið 1964 að ég leitaði til
Þórðar að gerast almennur kenn-
ari við barnaskólann í Þykkvabæ
sem ég hafði þá forsjá fyrir. Hann
varð vel við bón minni, held
jafnvel að honum hafi þótt vænt
um traust það er ég bar til hans:
að gerast kennari við skóla í ná-
grenni við heimili sitt. Kennara-
starfið er vandasamt og oft van-
þakkað, en það býður upp á fjöl-
breytni. Engir tveir dagar í
kennslu eru alveg eins. Þórður
var orðinn roskinn þegar þetta
var, en hafði talsvert vinnuþrek,
og meira en búast mátti við.
Hann hafði nefnilega tekið
lungnaberkla og verið höggvinn
til að hægt væri að komast að
meinsemdinni og fjarlægja hana.
Verkið vann hinn þjóðkunni
skurðlæknir Guðmundur Karl
Pétursson. Síðan mátti Þórður
heita vinnufær, þar til nokkrum
árum fyrir dauða sinn.
Hvað má segja um kennslu
Þórðar? Hann var samvisku-
haldið var í fyrsta skipti hér á
landi vorið 1987, en til þess móts
komu á annað hundrað gestir frá
hinum Norðurlöndunum og var
til þess tekið hversu hún skilaði
sínu hlutverki þar með miklum
glæsibrag.
Ég, sem þetta rita, eignaðist
góðan vin og félaga þar sem
Jenný var og bar aldrei skugga á
okkar samstarf í stjórn Póst-
mannafélagsins og allt til hins síð-
asta áttum við löng samtöl í síma
um hin ýmsu úrlausnarverkefni
sem upp koma í stjórn eins stétt-
arfélags og hafði ég mikinn styrk
af hennar skýru dómgreind og
miklu reynslu og sakna ég sann-
arlega vinar í stað. Eftirlifandi
eiginmanni, Gunnari Á. Ing-
varssyni, og fjölskyldu votta ég
innilegustu samúð mína og félaga
minna í Póstmannafélagi íslands
við þeirra mikla missi.
Blessuð sé minning hennar.
Fyrir hönd Póstmannafélags
íslands,
Torfi Þorsteinsson
samur. Fór sínar eigin leiðir.
Lagði áherslu á það í reiknings-
kennslunni að pota hverjum og
einum áfram eftir getu. Töfluna
notaði hann í hófi. Sögur sagði
hann krökkunum oft, enda var
hann vel lesinn. Mesta yndi hans
var bóklestur. Ég held nú að
kennslan hafi aldrei verið honum
neitt kjörfag, en þar var hann
trúr, líkt og við önnur störf sem
hann lagði hönd að. Þórður
stundaði smíðar lengi hjá
Kaupfélaginu Þór á Hellu. Hann
var hagur í höndum. Faðir hans
var smiður góður og átti margt
verkfæra til þeirrar iðju. Smíðar
kenndi Þórður í skólanum í Þyk-
kvabæ, en þar kenndi hann með
mér í tvö skólaár. Hjá okkur
hjónum var hann í fæði og húsn-
æði. Þægilegur maður var Þórður
í viðræðu. Þekkti fjölda fólks og
var minnugur. Orðaforði hans
var nokkuð sérstæður. Lýsingar-
orðið drengilegur var í munni
hans sterkt. Hann var sjálfur
drengur góður, heiðarlegur alveg
fram í fingurgóma. Slíkra manna
er gott að minnast. Heyrst hefur
að þeim fari fækkandi. Er illt, ef
satt reynist.
Þórður var einhleypur maður
fram að fimmtugu. Þá kvæntist
hann konu frá Patreksfirði, Maff-
hildi Jóhannesdóttur að nafni.
Reyndist hún honum mjög hlý og
dugleg eiginkona. Eigi varð þeim
barna auðið. Matthildur var
myndarleg í sjón og alúðleg í
framkomu. Frá Hellu fluttust þau
til Reykjavíkur og eignuðust
notalega íbúð í Hlíðunum. Þar
komum við hjónin til þeirra. Þar
dundaði Þórður við smíðar í litlu
herbergi undir súð og hafði yndi
af. Síðast buggu þau Þórður og
Matthildur í Hátúni 10. Er útsýni
þaðan stórfenglegt. Er þau
bjuggu þarna, andaðist Matthild-
ur. Eftir það bjó Þórður einn í
íbúðinni, sem í raun var orðin of
stór. Fá ár urðu á milli þeirra.
Þórður verður lagður til hinstu
hvfldar við hlið Matthildar í Guf-
uneskirkjugarði. Hvfli hann í
friði, blessaður karlinn. Minning-
in lifir. Þessum fátæklegu kveðju-
orðum fylgir einlæg samúðar-
kveðja frá okkur hjónum til ætt-
ingja hans.
Auðunn Bragi Sveinsson
Þórður Loftsson
Frá Bakka
Fœddur 31.5. 1906-Dáinn 10.3. 1988
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 17. mars 1988