Þjóðviljinn - 17.03.1988, Qupperneq 19
Aðalsteinn Jónsson var harður í horn að taka í vörninni í gærkveldi þegar
Breiðablik vann FH.
Handbolti
Blikar áfram
Unnu örvœntingarfulla Gaflara ígær-
kvöldi með 7 marka mun
komust í 4-0. Þeir héldu þeim
mun þar til staðan var 6-2 en þá
tók við tímabil þegar þeim tókst
ekki að koma boltanum í netið
hjá FH og klúðruðu mörgum fær-
um þannig að FH jafnaði 7-7.
Aftur varð jafnt 8-8 en þá tókst
heimamönnum að gera tvö mörk
rétt fyrir leikhlé. 10-8.
í síðari hálfleik tóku
Hafnfirðingarnir Björn og Hans
úr umferð og gekk það vel því
þeim tókst að jafna 15-15 eftir að
liðin hefðu skipst á að skora. En
þá tók við góður kafli hjá
Breiðabliki. Þeir juku hraðann í
leiknum og allt gekk upp hjá
þeim en FH-ingar komust ekki í
gegn um vörn þeirra en þegar
þeim tókst að komast í gegn varði
Guðmundur í marki Blikanna.
Gaflararnir gerðust örvæntingar-
fullir og réðu ekkert við hraðan í
kjölfarið á því þegar Blikar náðu
að komast í 6 marka forskot 22-
16. Undir lokin voru þeir farnir
að leika sér og Guðmundur
markvörður gerði eitt mark þvert
yfir völlinn. Sigur þeirra var ör-
uggur 28-21.
Breiðablik var einfaldlega
betri aðilinn í leiknum enda var
barátta þeirra og vörn með ein-
dæmum góð. FH virtist vanmeta
þá framanaf en réðu síðan ekkert
við þá undir lokin.
F Dagvistun barna
JL Hafnarfirði
Félagsmálaráð Hafnarfjarðar er að kanna
möguleika á breyttu rekstrarformi á dagvist-
un barna í Hafnarfirði. Yrði slíkur rekstur til
viðbótar þeim sem fyrir er. Af þessu tilefni er
auglýst eftir tillögum þar að lútandi og hugs-
anlegum samstarfsaðilum. Þeir sem áhuga
hafa á málinu eru beðnir um að snúa sér til
undirritaðrar í síma 53444, milli kl. 11 og 12
alia virka daga fram til 1. apríl n.k.
Marta Bergman,
félagsmálastjóri Hafnarfjarðar
í>að var fyrst og fremst ákveðni
og baráttuvilji sem færði
Breiðabliki sigur í gær. Frá fyrstu
mínútu spiluðu þeir af krafti og
vörnin var mjög styrk.
Blikarnir byrjuðu betur og
Digranes 16. mars
Bikarkeppni HSl
UBK-FH 28-21 (10-8)
Mörk UBK: Jón Þórir Jónsson 9, Björn
Jónsson 4, Hans Kristjánsson 4, Andrés
Magnússon 3, Svafar Magnússon 2, Aðal-
steinn Jónsson 2, Ólafur Björnsson 1,
Kristján Halldórsson 1, Þórður Davíðsson
1, Guðmundur Hrafnkelsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 19.
Útaf: Aðalsteinn Jónsson 4 mín, Magnús
Magnússon 2 mín.
Mörk FH: Guðjón Árnason 9, Óskar Ár-
mannsson 4, Pétur Petersen 4, Þorgils Ótt-
ar Mathiesen 3, Héðinn Gilsson 1.
Varin skot: Magnús Magnússon 7, Bergs-
veinn Bergsveinsson 6.
Útaf: Guðjón Árnason 4 mín.
Dómarar: Stefán Arnalds og Ólafur Har-
aldsson voru góðir.
Maður leikslns: Guðmundur Hrafnkels-
son UBK.
- ste
I kvöld
Handbolti
Laugardalshöll
kl.20.00 Fram-Víkingur 8 liða úr-
slit bikarkeppninnar.
T
Auglýsið í Þjóðviljanum
ÍÞRÓTTIR
Evrópa
Úrslit í gærkvöldi
Glasgow Rangers-Steaua Bukarest 2-1
Steaua áfram 3-2
Real Madrid-Bayern Munchen 2-0
Real Madrid áfram 4-3
Barcelona-Bayer Leverkusen 0-1
Leverkusen áfram 1-0
Sporting Lisbon-Atalanta 1-1
Atalanta áfram 3-1
PSV Eindhoven-Bordeaux 0-0
Eindhoven áfram á 1-1 (mark á útivelli)
Werder Bremen-Verona 1-1
Bremen áfram 2-1
Ajax-Young Boys 1 -0
Ajax áfram á 2-0
Anderlecht-Benfica 1-0
Benfica áfram á 2-1 Nánar á morgun.
Getraunir
Tveir með 12
rétla í rísapott
HSI
Bikarkeppnin
Algerir
yfirburðir
Valsmenn kafsigldu Fylkis-
menn strax í byrjun og leiddu í
hálfleik með 18 mörkum gegn 7. í
síðari hálfleik stilltu Valsmenn
upp varamönnum sínum og voru
þeir 10 mínútur í gangi áður en
þeir gengu frá Fylkismönnum
með 21 marks mun 12-33.
Hjá Fylkismönnum var mark-
hæstur Einar Einarsson með 4
mörk og Haukur Magnússon
með 3 mörk. Fyrir Val gerðu flest
mörk Jakob Sigurðsson 8, Þórður
Sigurðsson 7, Júlíus Jónasson 6
og Valdimar Grímsson gerði 5
mörk.
Þetta var alger einstefna og
lítið gaman fyrir áhorfendur að
sjá Val gersamlega rúlla Fylki
upp.
KR sigur
í lokin
Það var ekki fyrr en undir lok
leiksins að KR tókst að gera út
um leikinn þegar þeir léku við
Vestmannaeyinga í Eyjum í gær-
kvöldi og höfðu sigur 19-23.
Leikurinn var mjög jafn og
mjög harður, enda var staðan í
hálfleik 10-10. Þegar nokkrar
mínútur vöru til leiksloka var
staðan 18-19 gestunum í vil og
tóku þeir þá góðan endasprett og
sigruðu nokkuð örugglega 19-23.
Markahæstir í liði heima-
manna var Hörður Pálsson með 5
mörk en Sigurður Friðriksson og
Elís Björn Héðinsson gerðu 4
mörk hver. Af KR-ingum var
markahæstur Stefán Kristjánsson
með 7 mörk, Konráð Olavson
með 6 og Sigurður Sveinsson með
4.
Karfa
Tæpt hjá
Keflavík
Það leit ekki vel út fyrir ÍBK í
gærkvöldi þegar þeir heimsóttu
Blikana í Digranes. í leikhléi var
staðan 30-25 heimamönnum í vil
en þegar síðari hálfleikur var
hálfnaður tókst þeim að jafna 42-
42. Kelfvíkingar sigu síðan yfir
þegar þeir keyrðu upp hraðann
og Blikarnir náðu ekki að halda í
við þá. Það var síðan góð rispa
hjá þeim undir lokin þegar staðan
var 54-55 sem færði þeim sigur þó
naumt væri 57-68.
Breiðablik barðist vel framan-
af bæði í vörn og sókn en tókst
ekki að halda í við gestina undir
lokin. Liðin gerðu mörg mistök
og var leikurinn ekki mikið fyrir
augað þó áhorfendur væru þón-
okkrir. Sigurður Ingimundarson
var stigahæstur Keflvíkinga með
24 stig en Falur Harðarson gerði
18 stig. Jón Kr. Gíslason stóð sig
með prýði og gerði 10 stig. Blikar
voru með jafnt og gott lið þó
Kristján Rafnsson væri að venju
stigahæstur með 13 stig en Sig-
urður Bjarnason stóð sig vel og
gerði 12 stig og Guðbrandur Stef-
ánsson gerði 10.
Dómarar Jón Otti Ólafsson og
Árni Sigurlaugsson voru nokkuð
góðir enda hefur Jón Otti yfirleitt
góð tök á leikjum sem hann dæm-
ir. Breiðablik hefur átt góða leiki
að undanförnu, barist vel og
reynt að hafa gaman af þessu.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Það voru aðeins 2 með 12 rétta
á laugardaginn og urðu hvor
þeirra 1.123.935 krónum ríkari
en 42 voru með 11 rétta og fékk
hver 16.387. krónur. Annar
þeirra með 12 var hópurinn BIS
og þetta er í annað skiptið í vetur
sem þeir ná þeim áfanga en í fyrra
skiptið voru 64 aðrir með 12 svo
þeir fengu eitthvað minna þá.
Hinn aðilinn með 12 fékk þá á 64
raða kerfisseðil sem Haukar
seldu en Fylkir seldu BIS hópn-
um.
Tippað á
síðustu stundu
Það hefur sýnt sig hjá íslensk-
um getraunum að salan fer að
mestu fram síðari hluta vikunnar
enda eru margir sem koma á
skrifstofu getrauna í Laugardal á
laugardeginum og tippa yfir kaff-
ibolla. Einnig hefur símaþjónust-
an gengið vel og í síðustu viku
fóru 31.000 raðir í gegnum
símann auk þess sem fer í gegnum
tölvu.
Hópleikurinn
BIS hópurinn bætti sig í þessari
viku en aðrir fylgdu fast á eftir
með því að fá 11 rétta. Það voru
hóparnir Ágúst, JHPH 29,
Trompásinn, Tryggur, Sléttbak-
ur (eru þeir nú ekki búnir að fá
nóg), Sörli og Rökvís.
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
29. leikvika I s ^ ,s |% |
STlSQiCIQccco'^J;
Arsenal-Newcastle..........................111111111
Coventry-Derby.............................1111111x1
Nott.Forest-Man.Utd........................x 2 1 1 1 1 1 2 x
Oxford-Chelsea.............................2 2 x x x 2 1 1 x
QPR-Norwich................................x 1 x 1 1 1 1 1 1
Sheff.Wed.-Portsmouth......................1 1 1 x 1 x 1 1 x
Southampton-Charlton.......................2 11111112
West Ham-Watford............................x 1 x 2 1 x 1 x 1
Wimbledon-Tottenham................................ 1x2122x21
Crystal Palace-Bradford......................2 1 1 2 x 1 1 1 x
Man.City-Swindon.....................................111111112
Shrewsbury-Middlesbro....................... 1 2 2 1 2 1 2 2 x
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Svandís Skúladóttir fulltrúi í Lista- og
menningarnefnd verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11,
laugardaginn 19. mars frá kl. 10-12.
Allir velkomnir
Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spiiakvöld ABK
Haldið verður áfram með hin vinsælu spilakvöld 3 kvöld í viðbót. Spilað
verður mánudagana 25. mars og 11. og 25. april í Þinghóli, Hamraborg 11
og hefst spilamennskan kl. 20.30.
Veitt verða kvöldverðlaun og heildarverðlaun sem eru helgarferð til Akur-
ey ar. Gisting í 2 nætur og morgunverður á Hótel KEA.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur ÆFABR verður haldinn fimmtudaginn 17. mars að Hverfisgötu
105 kl. 20.00.
Venjuleg aðaifundarstörf. Félagar eru hvattir til að mæta. Nýir félagar
velkomnir. - Stjórnin.