Þjóðviljinn - 18.03.1988, Page 4

Þjóðviljinn - 18.03.1988, Page 4
LEIÐARI KLIPPT OG SKORIÐ Allir sammála - engar deilur Húsnæðismálin brenna heitt á stórum hluta þjóðarinnar. Þau 'hafa oftar en einu sinni verið drjúgur þáttur í samningum verka- lýðshreyfingar um kaup og kjör og nægir í því sambandi að minna á að núgildandi húsnæðislánakerfi er skilgetið afkvæmi kjarasamninga. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir settist í stól félagsmálaráð- herra og gerðist æðsti yfirmaður Húsnæðisstofnunar ríkisins, væntu margir þess að upp væri runnin ný og betri tíð. Hún hafði verið óvæginn gagnrýnandi fyrri ráðherra og talið honum til vansa að sinna ekki húsnæðismálunum betur. Hvort sem gagnrýni Jóhönnu var á rökum reist eða ekki, er Ijóst að mikið af henni mætti endurtaka nú óbreytt. Boðuð bylting hefur látið á sér standa. í heilt ár er ekki gefið eitt einasta loforð um húsn- æðisstjórnarlán. Áætlað er að um næstu áramót bíði 12.000 einstaklingar eftir láni. Góður vilji félagsmálaráðherra dugar sem sagt ekki til að koma húsnæðislánakerfinu í viðundandi horf. Aftur og aftur hefur komið í Ijós að andstaða við áform hennar er ekki mest hjá stjórnarandstöðunni á alþingi heldur hjá þingmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins sem eru í stjórnarsam- starfi með Alþýðuflokknum. Það er reyndar ekki alveg frítt við að Jóhanna hafi líka hreppt mótbyr hjá flokkssystkinum sínum. Nú hefur frést að félagsmálaráðherra ætli að gera enn eina tilraun til að koma betri skipan á húsnæðislánakerfið og er óskandi að góð áform hennar verði ekki enn eina ferðina úti á þeim hrjóstrum tómlætis og andúðar sem ríkisstjórnin telur heppilegast umhverfi flestum félagslegum málum. Aðferðir ráðherrans við endurskoðun húsnæðiskerfisins benda þó ekki til að sjálfgefið sé að öllum nýjum hugmyndum verði alls staðar tekið með húrrahrópum. Upplýst hefur verið að um nokkurra vikna skeið hafi nefnd hagfræðinga á vegum félagsmálaráðuneytisins unnið að því að endurskoða lög og reglur um húsnæðiskerfið. Það vekur athygli að ráðherra hefur ekki skipað neinn fulltrúa frá verka- lýðshreyfingunni í nefndina en aftur á móti eru þar fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda og hagfræðingur frá Seðlabankanum. Nefndarmenn geta tæpast talist fulltrúar mismunandi sjónarmiða. Kjartan Jóhannsson alþingismaður, sem leitt hefur starf nefndarinnar, hefur hælt sér af því að nefndin sé búin að fara í gegnum allt húsnæðiskerfið á met- tíma, minna en 5 vikum. Spurning er hvort ekki hefði verið unnt að stytta þann tíma enn frekar ef þess hefði verið betur gætt að allir nefndarmenn hugsuðu nákvæmlega eins. Félagsmálaráðherra boðar að nefndarálitið verði kynnt þing- mönnum og ýmsum hagsmunaaðilum innan skamms og lætur í það skína að alþingi muni fjalla um málið á vetri komanda. Ráðherrann virðist ekki mjög órólegur þótt hrikalega langur biðlisti eftir húsnæðislánum skapi óvissu hjá fjölmörgum fjöl- skyldum í landinu. Gæti ekki núverandi þing sem hægast setið eitthvað fram á vorið, ef það mætti verða til að koma á nýrri og betri skipan á húsnæðislánakerfið?. Oft hefur verið drollað yfir ómerkilegri málum. Fyrirfram skal ekki felldur dómur um tillögur hagfræðing- anna en ekki hefði sakað þótt reynt hefði verið að tryggja þeim brautargengi með því að leita til breiðari hóps við tillögusmíð- ina. Mönnum finnst óskemmtilegt að vera látnir standa frammi fyrir gerðum hlut. 17 konur á þingi Á alþingi hefur verið sett nýtt met. Þar sitja nú 17 konur. Óvenju mikið er um að varamenn hafi verið kallaðir inn á þing og við það hefur konum þar fjölgað. Þetta minnir á hversu fátítt er að konur skipi efstu sæti á framboðslistum, vonarsætin og varamannasætin eru þeirra hlutskipti oftar en ekki. Samt sem áður miðar nokkuð í átt til aukins jafræðis kynj- anna á þessu sviði. Hænufetin eru í rétta átt, en ósköp eru þau stutt! ÓP Steinaldarmað- ur á Stöð 2? áruifi á lífíir iia? w.ti'. -nrit Hd f|l ág; I kvœðri. Iwiíur vsrii'i tötuver Sajníi, þ6 í-finít'iiiTck'j sllitfr.um, þaiis-% iki n\'i nói' koi-iið :i thiv hi'f en Ihð M<irpfuihiLiuSi furíiriGi l.ilvitrianir v*i7sslji:ira StSfSia i!*m W.lfíS kiiLíu vaj; kjöðutii á lilðusl u m hhi ír6ðU:p;a3ltik:H?i ajtlanni; um ftillyrði glyfi. iit'm si.hsa*ii'n3 lÆkifft-ri. jjar «:m á sð/kini Ojt kiiíe U inu þe(f!ir þt’ir iiál ?if flg <;kki SMmd-.ir . I milflntnlngi ef k <ig hlutiríiir sliriðaj 4«in Óttar £ TiJ 19KG: I Mnrkúa ön» Ajh<inw.Mi Fleyg orð Markús Örn Antonsson virðist eiga sér í skúffunni ofurlitla úrklippumöppu sem hann límir í fjölmiðlayf- irlýsingar kollega síns á Stöðinni, Jóns Öttars Ragn- arssonar-. Markús Örn hellir úr þessum skálum í Morgun- blaðinu í gær og eru hin fleygu orð Stöðvarstjórans vissuiega hin fróðlegasta lesning. Markús fylgir text- unum úr hlaði með þeim stfldómi að þeir séu ,rskó>la- bókardæmi umfullyrðingar, glamur og glys sem sérsaum- að erfyrir hvert tœkifœri, þar sem menn láta vaðaásúðum og snúa léttilega við blaðinu þegarþeir hafa verið króaðir afog ekki stendur steinn yfir steini". Betri, stærri, meiri Þetta er óvenju harð- skeytt hjá hinum kurteisa og vel upp alda útvarpsstjóra, en tilvitnuð ummæli kol- legans hafa heldur ekki ein- kennst af hj artans lítillæti: - Sjónvarpinuhefur aldrei tekist að klúðra sam- an mynd eftir íslendinga- sögum eða öðrum íslenskum bókmenntaverkum, - á- horfskönnun sýnir okkur í sókn og mér kæmi ekkert á óvart að þetta væri upphafi að endinum hj á ríkissj ón- varpinu, - Ríkisrisinn hleypur undir pilsfald Stóru Mömmu um leið og á bjátar í samkeppninni, -öfugt við RÚV er það ekki okkar markmið að níða niður keppinautinn, - flestir telja innlenda þætti á Stöð tvö betri en sambærilega þætti í RÚV, - bráðum náum við því takmarki að geta lifað algerlega án auglýsinga, - 1987 náðum við því marki að komast upp fyrir keppinaut okkarí auglýsingatekjum, - gerum alla okkar dagskrá fyrir innan við helming af þeim kostnaði sem hún kost- ar h j á Ríkissj ónvarpinu, - við erum með 60-65% af auglýsingamarkaðnum, - um 100 manns starfa alfarið hjá Stöð 2, á Ríkissjónvarp- inu einu skilst mér að séu um 180 manns, þótt mér sé sagt að launakostnaður þar sam- svari launum á 3. hundrað manns. Ogsvoframvegis. Háþróuð vídeóleiga Markúsi Erni blöskrar og hefur upp kröftugan söng: „Með fádœma kjaftavaðli, ótrúlegri sjálfumgleði og linnulausum blekkingar- flaumi hefur sjónvarpsstjóri Stöðvar2 staðið í þvíað sverta keppinautinn og upp- hefja sjálfan sig og Stöð 2 langt umfram efni“ (og hér kemur stflbragðið sem stundum er kennt við hið kæfandi faðmlag:) „þó að Stöð 2 sé alls góðs makleg og hafi hlotið afbragðsgóðar viðtökur sem tæknilega há- þróuð útfærsla afvídeóleigu með heimsendingaþjón- ustu. “ Og það er enn meira blóð íkúnni: /„ófrægingarher- ferð“ Jóns Óttars og félaga er allt brennt sama marki: „Neikvœði, rangfærslur, hálfsannleikur eða vísvitandi blekkingar í samanburði við íslenska Sjónvarpið. Þarf þessa viðhorfsbrenglun til að ávinna nýju ogframsæknu fyrirtæki viðunandi sess á markaðnum?" í beinni útsendingu Þetta er sumsé að verða mjög hressileg höggorusta hjá stjórunum tveimur og reyndar vel athugandi að báðar stöðvar legðu saman í púkkið og sýndu okkur slagsmálin í beinni útsend- ingu. Raunar læðist að sá grun- ur að sá ofsi sem brýst úr penna útvarpsstjóra í Mogg- agreininni eigi sér fleiri ástæður en glamranda Jóns Óttars. Staðreynd er nefni- lega að Stöðin hefur notið margskonar pólitískrar vel- vildar í samkeppninni með- an Sjónvarpið hefur verið sett í spennitreyju nesja- mennsku og niðurskurðar. Og þetta er þeim mun sárara fyrir Markús Örn vegna þess að óvildarmenn ríkisút- varpsins eru einkum af þeim pólitíska lit sem hann bar sjálfurforðum. Einmitt þessar aðstæður hafa gert það að verkum að Sjónvarpið stendur í miklu meiri samkeppni við Stöð- ina en efni standa í raun og veru til. Því að einsog Mark- ús bendir á með athuga- semdinni um hina háþróuðu vídeóleigu er eðli stöðvanna tveggj a gjörólíkt og kröf- urnartil þeirralíka. En vill Markús ekki líta líka í eigin barm fyrst hann er farinn að tjá sig jafn snöfurmannlega um ljós- vakasamkeppnina í dag- biöðunum? Er það alveg óviðkomandi hans ákvörð- unum og hans stefnumótun að Stöðvarstjórinn hefur olnbogarými til að gera sig jafn breiðan á kostnað Sjón- varpsins og raun ber vitni? Hvaða menn hefur Markús Örn ráðið sér til hægri hand- ar í Sjónvarpinu og hvemig hafa þeir reynst? Hvað veld- ur því að fréttatími Stöðvar- innar fær þann dóm flestra blaðamanna að vera að minnsta kosti ekki síðri en Sjónvarpsins, þrátt fyrir fá- tæklegri tækjabúnað og minni mannskap? Hvað veldur því að heimsending- arbúllan getur yfirhöfuð borið sig saman við sjónvarp allra landsmanna um inn- lenda dagskrárgerð? Er það bara fjárskortur á Lauga- veginum sem veldur því að áhugamenn um til dæmis ís- lensk menningarmál og þjóðmálaumræðu fá meira fyrirsinn snúðáGufu, Rás, Rót, og - oft - Stöð tvö en í Sjónvarpinu? -m þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, MöröurÁrnason, ÓttarProppó. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Ingibjörg Hinriksdóttir (íþr.), Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer Svavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, ólafurGíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson(íþr.), SævarGuðbjörnsson, TómasTómasson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. LJósmyndarar: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlltstelknarar: GarðarSigvaldason, Margrét Magnúsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrifatofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, UnnurÁ- gústsdóttir. Símavarsia: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgrelðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjömsson. Útkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn: Sföumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Pjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 60 kr. Helgarblöð: 70 kr. Áskriftarverð á mánuði: 700 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mars 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.