Þjóðviljinn - 18.03.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 18.03.1988, Síða 11
Ólafur Konráð Sveinsson Fæddur 18. júlí 1920 Dáinn 9. mars 1988 í dag fer fram í Langholts- kirkju minningarathöfn um Ólaf Konráö Sveinsson rafvirkja- meistara, að Nökkvavogi 12 í Reykjavík, en hann verður jarð- settur frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð, laugardaginn 20. þ.m. Ólafur var fæddur að Butru í Fljótshlíð, 18. júlí 1920, sonur Ólafar Halldórsdóttur á Butru og Sveins Böðvarssonar, sem lengi bjó á Uxahrygg á Rangárvöllum. Ólafur ólst upp hjá móður sinni að Butru og þótti snemma liðtækur til allra verka. Um tvítugsaldur flyst Ólafur til Reykjavíkur og lærir rafvirkjun hjá Eiríki Hjartarsyni. Árið 1949 stofnar hann ásamt samstarfsmanni sínum, Hauki Þorsteinssyni, Raftækjavinnu- stofuna Haukur og Ólafur, sem brátt varð öflugt og vinsælt fyrir- tæki í samtaka höndum þessara mætu manna. Sinn stóra vinning hreppir Ólafur, þegar hann 20. október 1945 gengur í hjónaband með Aðalheiði Dóru Magnúsdóttur frá Vestmannaeyjum. Voru þau mjög samhent um alla hluti, eignuðust fjögur mannvænleg börn, en þau eru: Magnús Helgi, kvæntur Guðbjörgu Stefánsdótt- ur, Sigmar Steinar, kvæntur Sig- ríði Hansdóttur, Halldór, kvænt- ur Líneik Jónsdóttur og Ólöf Ragnheiður gift Sigurði Ár- mannssyni. Og nú áttu þau níu barnabörn og eitt barnabarna- barn. Þetta er í fáum orðum lífshlaup Ólafs Sveinssonar og mætti þar mörgu við bæta, því maðurinn var ekki einhamur í hverju sem hann tók sér fyrir hendur og fór þar saman að vera mikilvirkur og vandvirkur, með einstaka verk- þekkingu á hverskonar viðfangs- efnum, þannig að eftir var tekið. Þó var maðurinn hógvær og lítil- látur og vildi hvergi láta á sér bera. En kannski var það þess vegna að hugurinn var alltaf í jafnvægi, ekki þrúgaður af streitu framagosans, að hann átti svo auðvelt með að draga réttar ályktanir, persónuleikinn mótað- ur af reynslu viturs manns. Ólafur var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, en hvergi var hann sælli en austur í Fljótshlíð í sumarbústaðnum, í faðmi fjöl- skyldunnar, þar sem hann var að hlúa að nýjum græðlingum og segja barnabörnunum sínum hvernig lundurinn myndi líta út að nokkrum árum liðnum. Ég, sem þessar línur rita, eins og eflaust fleiri sem ekki breuta essi í óbættri skuld við Ólaf, erum ósáttir við hvað hann hverfur fljótt af sviðinu. En við straum tímans þýðir ekki að deila. Það verður þó styrkur lengi enn að hafa átt svona góða fyrir- mynd. Matthías Kristjánsson ÖRFRÉTTTIR Sundtækni sæskjaldbakna er umfjöllunarefni fyrirlesturs sem dr. John Davenport sjávarlíffræðingur frá Sjávarrannsóknastöð Háskólans í Wales í Menai Bridge heldur á vegum Líffræðistofnunar Háskólans í dag. Fyrirlesturinn er á ensku og verður fluttur í stofu G-6 á Líffræðistofnun HÍ, Grensásvegi 12 kl. 15.15. Öllum er heimill aðgangur. Bandarískur bókamarkaður verður opnaður hjá Eymundsson í Austurstræti árdegis í dag. Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi opnar markaðinn kl. 10.00 en síðan verður viðstöddum boðið uppá kaffi og kleinuhringi. Meirihluti bók- anna á markaðnum, en titlarnir skipta púsundum, hefur ekki verið til sölu í bókaverslunum hér áður, og er verð- ið eins og það gerist hagstæðast í New York. Allar bækurnar em inn- bundnar og flestar myndskreyttar. Pöntunarþjónusta verður fyrir lands- byggðarmenn meðan markaðurinn stendur fram á næsta föstudag. Stærðf ræðikennsla í framhaldsskólum verður til umræðu á ráðstefnu ís- lenska stærðfræðifélagsins og Fó- lags raungreinakennara í framhalds- skólum sem haldin verður í hátíðarsal Verslunarskólans við Ofanleiti á morgun laugardag. Ráðstefnan hefst kl. 10.00 og verður fluttur fjöldi fyrir- lestra bæði af núverandi og fyrrver- andi kennurum. Ráðstefnan eröllum opin. Verkfræðistofnun HÍ hefur borist 250 þús. kr. framlag úr Stofnendasjóði Elli- og hjúkrunar- heimilisins Grundar. Gjöfin er til minningar um verkfræðingana Knud Zimsen og Jón Þorláksson sem báðir gegndu á sínum tíma embætti borg- arstjóra í Reykjavík. Er gjöfin framlag í sérstakan Starfssjóð Verkfræði- stofnunar. Bolvíkingafélagið heldur árshátíð sína í Víkingasal Hót- els Loftleiða á morgun. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30. íþróttir fatlaðra verða til umræðu á fræðslufundi áhugafélags um þessi málefni, sem haldinn verður í nýju húsi aldraðra í félagsmiðstöðinni í Bólstaðahlíð. Hrafn V. Friðriksson læknir fjallar um heilsufar og lífshætti aldraðra og Brynhildur Briem næringarfræðingur um heilsufæði. Fundurinn hefst kl. 14.00. Gallabuxnasýningin í Þjóðminjasafninu hefur verið fram- lengd fram yfir aðra helgi, vegna mikillar aðsóknar. Sýningin hefur staðið yfir frá 20. febrúar og er opin á opnunartíma safnsins á þriðju- dögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 13.30 til 16.00. Leikmannastefna kirkjunnar hin önnur í röðinni verður haldin um helgina í Kirkjuhúsinu við Suðurgötu og í Bústaðakirkju. 18 manns, einn úr hverju prófastsdæmi nema tveir úr Reykjavfk, auk tveggja kirkjuráðs- manna sitja Leikmannastefnuna. Vélsleðamenn verða með árlegt landsmót sitt í Kerl- ingafjöllum um helgina. Þetta er 5. mótið sem haldið er en Landssam- band íslenskra vélsleðamanna var stofnað í Nýjadal á Sprengisandi í apríl 1984. Félagsmenn eru nú orðnir um 550 víðs vegar af landinu. Félag ísl. guilsmiða hélt aðalfund sinn á dögunum. Minnst var tveggja látinna félaga, þeirra Óskars Kjartanssonar og Eyjólfs Árnasonar. Formaður fólags gullsmíða er Alfred W. Gunnarsson. Framkvæmdasjóður íslands Starfskraftur óskast sem fyrst til starfa við bókhalds- og ritarastörf. Verslunarmenntun æskileg. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, 105 Reykajvík. ALÞÝDUBANDALAGK) Alþýðubandalagið Reykjavík Spilakvöld ABR Lokakvöldið í þriggja kvölda spilakeppni verður þriðjudaginn 22. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Mætið stundvíslega. Góð heildarverðlaun og kvöldverðlaun. Allir velkomnir. ABR . Alþýðubandalagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Svandís Skúladóttir fulltrúi í Lista- og menningarnefnd verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 19. mars frá kl. 10-12. Allir velkomnir Stjórnin Alþýðubandalagið Kópavogi Spilakvöld ABK Haldið verður áfram með hin vinsælu spilakvöld 3 kvöld í viðbót. Spilað verður mánudagana 21. mars og 11. og 25. apríl í Þinghóli, Hamraborg 11 og hefst spilamennskan kl. 20.30. Veitt verða kvöldverðlaun og heildarverðlaun sem eru helgarterð til Akur- eyrar. Gisting í 2 nætur og morgunverður á Hótel KEA. Allir velkomnir. Stjórn ABK !fS Auglýsing '|l frá Borgarskipulagi Með vísan til 17. og 18. greinar laga nr. 19/1964 er hér með auglýst landnoktunarbreyting á stað- festu Aðalskipulagi Reykjavíkur. Breytingin er í því fólgin að landnoktun á staðgr.r. 1.286.1 sem markast af Safamýri, Háaleitisbraut og Miklu- braut verður svæði fyrir verslun og þjónustu í stað íbúðarsvæðis. Uppdráttur og greinargerð liggja frammi almenn- ingi til sýnis hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, frá föstudeginum 18. mars til 29. apríl 1988, alla virka daga frá kl. 8.30-16.15. Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar en kl. 16.15, föstudaginn 13. maí 1988. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir breytingunni. Reykjavík, 18. mars 1988. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartúni 3 105 Reykjavík. Blaðburðarfólk ' ress. Ef þú ert morgunh Haföu þá samband við afgreiðslu ÞjoðvíQans, sími 681333 Þaö bætir heilsu og hag að bera út Þjtfövifjann V Notaðu A endurskinsmerki og komdu heil/l heim.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.