Þjóðviljinn - 18.03.1988, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 18.03.1988, Qupperneq 12
-----1 I)AG*------------ Klambratún - Miklatún Laugardagsmorgun einn, ekki alls fyrir löngu, leif ég inn á Kjar- valsstöðum. Þegarég hafði skoðað mig þar um bekki labbaði ég beinustu leið suður á Miklu- braut. Ekki hafði ég lengi gengið þegarég mætti manni einum, miklum vexti og vörpulegum, með myndarlegt alskegg, þótt ekki væri það eins sítt og brús- andi og á sr. Arnóri í Hvammi í Laxárdal. Hann stöðvar mig á göngunni, heilsar án þess að kynna sig né spyrja mig að nafni, enda hefðu slíkar upplýsingar auðvitað engu breyát um gang heimsmálanna. „Veistu hvað þetta tún heitir, þar sem nú stöndum við?“ spyr hann. „Er það ekki nefnt Miklatún," segi ég. „Jú, það er nefnt Miklatún, en það er ekki þess rétta nafn. T únið heitir Klambratún. Ég nefni það aldrei annað og mun ekki gera. Hérvareinusinni sveit og þá hét túnið Klambratún og engum datt í hug að nefna það annað. En þeg- ar búið er að minnka þennan blett og þrengja að honum með þung- lamalegum húsalengjum á alla vegu, svo að hann er ekki orðinn nema svipur hjá sjón, en til stórr- ar prýði samt, þá er hann skírður upp og dugar nú ekkert minna en að nefna hann Mimklatún". „Það er nú svona," segi ég, „ætli þetta nafn þyki ekki virðu- legra, svona inni í miðri höfuð- borg?“ „ Hvað er virðulegt og hvað er ekki virðulegt? Það finnst engum meira vert um þetta tún þó að það hafi verið skírt upp. Ég hugsa að þorri Reykvíkinga hafi jafnvel aldrei stigið hérfæti. Nei, góði þetta er andskotans yfirborðs- mennskan og ekkert annað. Þetta er rétt eins og ef ég, sem heiti nú bara Jón, yrði allt í einu skíröurNapóleon mikli. Sérværi nú hvervirðingin. Örnefnieru hluti af sögunni. Breyting á þeim er sögufölsun. - Viltu kannski annarsínefið?" - mhg í dag er 18. mars, föstudagur í 22. viku vetrar og 78. dagur ársins. Sólin kemur upp í Reykjavík kl. 7.35 en sólsetur er kl. 19.38. - Nýtt tungl kviknar, sjálft páskatunglið. Atburðir Fyrsti landlæknir íslendinga, Bjarni Pálsson, tekur við embætti 1760. - Parísarbúar taka stjórn borgarinnar í sínar hendur 1871. Parísarkommún- an berst hetjulegri baráttu en lýtur í lægra haldi í blóðugum átökum 28. maí. - Árið 1930 var næturvinna við Reykjavíkurhöfn farin að ganga nærri þreki og heilsu ýmissa hafnarverka- manna. Dagsbrún greip til þess ráðs að banna næturvinnu eftir kl. 10 að kvöldi. - Árið 1955 hófst verkfall 14 verkalýðsfélaga með um 8000 fé- lagsmenn. Næstu daga slógust fleiri félög í hópinn. Verkfallið stóð í sex vikur. Meðal þeirra réttarbóta, sem verkfallið færði verkafólki, voru atvinnuleysistryggingarnar, 10% kauphækkun og lenging orlofs í 18 daga. Þjóðviljinn fyrir50árum Kommúnistaflokkurinn boðartil fund- ar um gerðardómslögin í Gamla bíói kl. 6 í kvöld. - Haraldur Guðmunds- son segir sig úr ríkisstjórninni. - Litvi- noff, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, boðar til allsherjar ráðstefnu um yfirgang og ofbeldi Þjóðverja. Þjóðverjum, ítölum og Japönum er þó ekki boðið. - Fimmtíu íhaldsþing- menn í neðri málstofu breska þings- ins, undirforystu Churchills, krefjast þess að Chamberlain gefi fullnægjandi yfirlýsingar um að stjórnin sé þess albúin að tryggja sjálfslæði Tékkóslóvakíu og viðun- andi lausn Spánarmálanna, ella gangi þeir til andstöðu við stjórnina. -mhg UM UTVARP & SJÓNVARP Ungir mælskumenn Útvarp, rás tvö, föstudag kl. 20.00. Útvarp, rás 1, föstudag kl. 11.05 Þátturinn Samhljómur er á dagskrá rásar 1 fimm morgna í viku hverri, kl. 11. — ídagkynnir Bergþóra Jónsdóttir tónlistar- mann vikunnar. Er hann að þessu sinni hinn ungi og efnilegi söngv- ari Berþór Pálsson en hann syng- ur nú um þessar mundir stórt hlutverk í uppfærslu íslensku óp- erunnar á Don Giovanni eftir Mozart. Bergþór mun segja frá söngnámi sínu í Bandaríkjunum og ræða um túlkun og tilfinningar í ljóða- og óperusöng. Og eflaust ber fleira í mál snertandi sam- band Bergþórs við tónlistina. í þættinum mun Bergþór „taka lagið“ auk þess sem flutt verður tónlist sem hann hefur sjálfur val- ið. - Þátturinn verður endurtek- inn að loknum fréttum á mið- nætti, kl. 00.10. - mhg lagaflokkur fyrir bariton og píanó eftir Ragnar Björnsson við ljóð Sveins Jónssonar. Halldór Vil- helmsson og höfundur flytja. - Loks les Knútur R. Magnússon úr nýrri bók sem Jón Gunnarsson skráði eftir frásögn Haralds Ól- afssonar sjómanns. Kynnir er Helga Þ. Stephensen. Bergþór Pálsson Tónlistarmaður vikunnar Og þá er nú komið að úrslita- viðureigninni í mælsku- og rök- ræðukeppni framhaldsskólanna. Hún fer fram í Háskólabíói og verður útvarpað beint á rás 2 kl. 20.00. Sextán lið hófu keppnina en nú standa aðeins tvö lið eftir: Lið Fjölbrautaskóla Garðabæjar og lið Menntaskólans í Reykja- vík. Lið frá þessum sömu skólum háðu úrslitakeppni sín á milli í fyrra og fóru Garðbæingar þá með sigur af hólmi. Hvað gerist nú? - Lið Garðbæinga skipa: Árni Gunnarsson liðsstjóri, Sig- urður Bernhöft, Einar Páll Tam- ini og Sigmar Guðmundsson. Lið MR: Birgir Ármannsson liðs- stjóri, Auðunn Atlason, Daníel Freyr og Orri Hauksson. Kvöldvakan Útvarp, rás 1, föstudag kl. 20.30 Kvöldvakan verður fjölbreytt að venju. Þar er fyrst á blaði þátt- urinn Ljóð og saga, kvæði ort út af íslenskum fornritum, 6. þáttur, „Skarphéðinn í brennunni“ eftir Hannes Hafstein. Gils Guð- mundsson tók saman en lesari er Baldvin Halldórsson. - Þá syng- ur Guðrún Á. Símonar íslensk lög við undirleik Guðrúnar Krist- insdóttur. — Sólveig Pálsdóttir lýkur nú við að lesa úr minning- um Ólínu Jónasdóttur, Laxamýri um aldamótin. — Fluttur verður GARPURINN KALLI OG KOBBI FOLDA 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mars 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.