Þjóðviljinn - 18.03.1988, Page 15
Atli Hilmarsson brýst í gegnum vörn Víkinga í gærkveldi.
Handbolti
Atli frábær
Fram vann Víkinga íHöllinni ígœr-
kvöldi 26-25 og komastþvíáfram íbik-
arnum. Atli skoraði sigurmarkið á síð-
ustu stundu og rauk upp í stúku
IÞROTTIR
Evrópa
Amór með mark
Real Madrid lélegir gegn Bayern Miinchen
Frammarar voru ofsa kátir
þegar Atli hafði skorað loka-
markið utan af velli enda ástæða
til. Þeir voru frískir gegn Víking
og flest gekk upp hjá þeim þó að
bæði liðin gerðu fullt af mistök-
um.
Fram byrjaði vel í gærkvöldi og
komust í 3-1 og 6-4 enda vörnin
góð auk þess að hraðaupphlaupin
tókust að þessu sinni. En eftir
það fóru þeir að dala og gekk illa
að komast í gegnum vörn Hæð-
argarðspiltanna. Birgir Sigurðs-
son tók Sigurð Gunnarsson úr
umferð og við það riðlaðist spilið.
Víkingar aftur á móti fóru að taka
við sér og jöfnuðu 7-7, tóku vörn-
ina vel og komust í 9-14. Fram
vaknaði rétt fyrir leikhlé og náðu
að minnka muninn í 13-15.
Atli og Júlíus byrjuðu síðari
hálfleikinn á því að gera sitthvort
glæsimarkið hvor og jafna leikinn
15-15. Eftir það var mjög jafnt á
liðunum þó að Fram væri betri í
Laugardalshöll 17. mars
Bikarkeppni HSl
Fram-Vfkingur 26-25 (13-15)
Mörk Fram: Atli Hilmarsson 11, Júlíus
Gunnarsson 4 (1 v), Ragnar Hilmarsson 3,
Birgir Sigurösson 3, Egill Jóhannesson 2,
Hermann -Björnsson 2, Hannes Leifsson
1.
Varin skot: Jens G. Einarsson 8 og Guð-
mundur A. Jónsson 1 (1v).
Útaf: Hannes Leifsson 2 min.
Mörk Vfklngs: Bjarki Sigurðsson 7, Árni
Friðleifsson 6, Sigurður Gunnarsson 6
(2v), Karl Þráinsson 2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Hilmar Sigurgislason 1, Sig-
urður Ragnarsson 1.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 8, Sig-
urður Jensson 1.
Útaf: Karl Þráinsson 2 mín, Sigurður
Gunnarsson 2 mín, Ingólfur Steingrimsson
2 mín.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og Guðjón
L. Sigurðsson voru slakir.
Maður leikslns: Atli Hilmarsson Fram.
-ste
vörninni. Birgir tók Sigurð
Gunnarsson enn úr umferð og við
það gekk Víkingi mjög illa að
komast í gegn. Síðan var jafnt 20-
20 og 21-21 en þá komst Fram í 2
marka mun 23-21. Víkingar gáf-
ust ekki upp og náðu að jafna
með góðum mörkum frá Árna
Friðleifssyni og Bjarka í horninu
24- 24. Atli sá um koma Fram í
25- 24 en Árni jafnaði enn þegar
30 sekúndur voru til leiksloka.
Boltinn gekk á milli Frammara
og Víkingar reyndu að brjóta á
þeim en þegar 4 sekúndur voru til
leiksloka fékk Atli boltann úti á
velli og þrumaði í gegnum vörn-
ina og beint í markið utan af velli,
fagnaði ógurlega og hljóp beint
uppí stúku og Framliðið á eftir
25-26.
Hjá Fram var Atli áberandi
bestur og virðist vera að komast í
sitt besta form. Hinir í liðinu voru
mjög jafnir en Birgir tók Sigurð
Gunnarsson alveg úr umferð. Af
Víkingum var Sigurður Gunnars-
son góður þegar hann var ekki í
strangri gæslu Birgis. Liðið var þá
eins og höfuðlaus her og gekk
þeim illa að finna smugur í vörn-
inni.
Það var mikið af mistökum í
leiknum og á tímabili voru bæði
liðin sem eitt, því boltinn gekk á
milli manna óháð í hvoru liðinu
menn voru. Dómararnir höfðu
ekki mikil tök á leiknum og virt-
ust hafa lítinn áhuga á því sem
fram fór sem gerði það að verk-
um að harkan var á tímabili
mikil.
Þar með eru Fram komnir í
undanúrslit bikarkeppninnar
ásamt Val, .Breiðabliki og KR.
Evrópukeppni
meistaraliða
Real Madrid-Bayern Miinchen
2-0
Þetta var leiðinlegur og lélegur
leikur sem einkenndist af stöðug-
um töfum og áminningum. Pusk-
as, Di Stefano, De Sol og fleiri
gamlar stjörnur með Real Ma-
drid á fyrri árum hefðu farið með
veggjum hefðu þeir verið með.
Fyrra mark Real kom á 27. mín-
útu þegar þeir fengu aukaspyrnu
rétt utan vítateigs, Gallego rúll-
aði boltanum til Milan Jankovic
sem skaut í varnarvegginn og af
honum fór boltinn í netið. Seinna
markið kom á 41. mínútu þegar
Michael Gonzales vippaði knett-
inum yfir Pfaff. Mark Hughes átti
hættulegt færi eftir mistök í vörn
Real en skaut yfir. Leo Been-
hakker sagði eftir leikinn að til-
gangurinn helgaði meðalið og
betra væri að vinna í lélegum leik
en tapa í góðum. Leikurinn var
mjög grófur, enda fengu 7 leik-
menn að sjá gula spjaldið.
Anderlect-Benfica 1-0
Þó Belgunum tækist að vinna
þennan leik höfðu Portúgalarnir
unnið 2-0 í fyrri leiknum. Belg-
arnir voru stöðugt í sókn og á 8.
mínútu átti Arnór gott skot að
marki Portúgalanna. Patrick
Vervoort skaut rétt yfir slána af
löngu færi en hættulegasta færi
Benfica kom þegar Diamantino
Miranda skaut í stöng á 21. mín-
útu beint úr aukaspyrnu. Á 37.
mínútu var Arnór aftur í færi en
kollspyrna hans strauka slána.
Það var ekki fyrr en á 64. mínútu
að Anderlecht tókst að skora og
var Arnór enn á ferðinni með
mark beint úr aukaspyrnu.
PSV Eindhoven-Bordeaux 0-0
Það eina sem ógnaði Frökkun-
um var Eric Gerets sem átti skot í
slá á 24. mínútu. Bordeaux sýndi
aldrei þá gæðaknattspyrnu sem
þeir hafa verið þekktir fyrir en
Jean Tigana sat á bekknum vegna
meiðsla á ökkla. Hann kom þó
inná þegar 10 mínútur voru til
leiksloka en náði ekki að drífa
liðið áfram. Hollendingarnir
komu meira inn í leikinn eftir því
sem á leið en tókst ekki að koma
knettinum í netið.
Glasgow Rangers-Steua
Bukarest 2-1
Rúmenarnir settu Skotana
strax í mikinn vanda með því að
skora strax á 3. mínútu. Þeir
þurftu því að gera 4 mörk vegna
markamunarins en Steua vann 2-
0 í Bukarest. Skotar náðu að
jafna á 16. mínútu með marki frá
Richard Gough eftir hornspyrnu
og komast yfir 2-1 þegar þeir
fengu vítaspyrnu eftir að Ian
Durrant var brugðið innan víta-
teigs. Ally McCoist skoraði létti-
lega úr vítinu en þeim tókst ekki
skora meira þrátt fyrir að vera
stöðugt í sókn.
í undanúrslit:
Real Madrid (Spáni), Benfica
(Portúgal), PSV Eindhoven
(Hollandi), Steua Bukarest
(Rúmeníu).
Evrópukeppni
bikarhafa
Ajax-Young Boys 1-0
Peter Larson tókst að skora úr
eina færi leiksins á 39. mínútu en
Svissurunum tókst aldrei að kom-
ast í almennileg færi allan leikinn.
Marseille-Rovaniemen 3-0
Frakkarnir höfðu Finnanna í
hendi sér og úrslitin voru aldrei í
hættu. Mörk Marseille gerðu
Genghini á 18. mínútu, Allofs á
22. mínútu og Papin á þeirri 77.
Dynamo Minsk-Mechelen 1-1
Belginn Eli Ghana gerði fyrsta
mark leiksins á 29. mínútu. So-
vétmönnunum tókst að svara á
59. mínútu en komust síðan ekki í
nein umtalsverð færi.
Sporting Lisbon-Atalanta 1-1
Annarar deildar liðið Atalanta
hélt uppi heiðri Ítalíu með því að
gera jafntefli við stórliðið portúg-
alska. Það var ekki fyrr en á 66.
mínútu að Peter Houtman skall-
aði boltann í net Atalanta. Mario
Jorge kom boltanum í net ítal-
anna augnabliki síðar en var
dæmdur rangstæður. Cantarutti
var síðan á ferðinni 8 mínútum
fyrir leikslok með jöfnunarmark
ítala.
í undanúrslit:
Ajax (Hollandi), Marseille (Fra-
kklandi), Mechelen (Belgíu) og
Atalanta (Ítalíu).
Evrópukeppni
félagsliða
Barcelona-Bayer Leverkusen
0-1
Lánið lék ekki við Barcelona
þegar þeir léku við Þýskarana.
Eftir að hafa gert jafntefli við þá
útivelli töldu flestir að Spánverj-
unum tækist að merja sigur á
heimavelli, en Milton Queiroz
gerði þær vonir að engu með
marki af 30 metra færi á 60. mín-
útu. Bernd Schuster kórónaði
svekkelsi Spánverja þegar hann
misnotaði víti þegar 6 mínútur
voru til leiksloka.
Werder Bremen-Verona 2-1
Bremenbúar virtust á sigurleið
þegar Gunnar Sauer gerði mark
af 30 metra færi á 32. mínútu en
það fór um þá þegar Giuseppe
Volpecina jafnaði með skalla-
marki á 53. mínútu. Það varð síð-
an úti um möguleika ítala þegar
fyrirliði þeirra Antonio Di Genn-
aro fékk að sjá rautt spjald 10
mínútum fyrir leikslok fyrir gróft
brot á Norðmanninum Rune
Bratseth og Bremen komst áfram
í undanúrslit.
Brugge-Panathinaikos 1-0
Belginn Kenneth Brylle
skoraði eina mark leiksins rétt
fyrir hálfleik eftir mistök hjá
Grikkjunum.
Vitkovice-Espanol 0-0
Espanol hélt uppi fána Spánar
og komust áfram í keppninni eftir
að hafa unnið Tékkana í fyrri
leiknum 2-0.
í undanúrslit:
Bayer Leverkusen (V-
Þýskalandi), Werder Bremen
(V-Þýskalandi), Brugge (Belgíu)
og Espanol (Spáni):
hum helgina ■■■
Skíðaganga
Bláfjallagangan verður á laugar-
daginn kl.13.00. Hægt verður að
ganga 20, 10 eða 5 kílómetra og fá
allir þátttakendur viðurkenningarsk-
jal. Veitingar verða í Bláfjallaskálan-
um. Þeir sem ætla að skrá sig verða
að vera búnir að því fyrir kl.11.00 á
laugardaginn í síma 656359 eða
mæta bara á staðinn.
Júdó
Opið mót verður á Akureyri á laug-
ardag og sunnudag.
Glíma
Laugardaginn kl.13.00 hefst í
íþróttahúsi Kennaraháskólans
grunnskólamótið í glímu.
Fimleikar
Á föstudag kl.19.00 hefst í Laugar-
dalshöll íslandsmeistaramótið í fim-
leikum. Þá verður keppt í skylduæf-
ingum hjá piltum og stúlkum.
Laugardag kl.15.00 heldur keppn-
in áfram og er þá keppt í frjálsum
æfingum hjá piltum og stúlkum.
Sunnudag kl.14.00 hefjast síðan
úrslit á áhöldum, sem eru að líkindum
mesta spennan. Áætlaður tími fyrir
verðlaunaafhendingu er síðan kl.
16.30.
Fatlaðir
Föstudag kl. 16.00 hefst í Sundhöll-
inni Islandsmeistaramót fatlaðra í
sundi. Á laugardaginn kl. 16.00 hefst
síðan síðari hluti á sama stað.
Borðtennis
Sunnudag kl.13.00 fer fram
Punktamót KR í KRhúsinu við Kapl-
askjólsveg. Keppt verður í öllum
flokkum karla og kvenna.
Hlaup
Laugardaginn kl. 15.00 hefst við
sundlaugina í Breiðholti Breiðholts-
hlaup ÍR. Karlar 35 ára og eldri og
34-19 hlaupa 17 kílómetra, sem eru 2
hringir en konur og drengir hlaupa 8.5
km. Byrjendur eru velkomir og geta
hlaupið 1 hring. Þátttökuskráningar
og upplýsingar gefur Jóhann Björg-
vinsson frjálsíþróttadeild ÍR í síma
71023.
Badminton
Laugardag og sunnudag fer fram á
Akranesi Ljómamótið í badminton og
er keppt í A-flokki.
Sund
Á sunnudaginn fer fram Unglinga-
mót UMSB í Borgarnesi en það er
lokað mót.
Blak
Laugardagur
Hagaskóli kl.14.00 ka.íS-Þróttur
Hagaskóli kl.15.15 kv.Þróttur-(S
Sunnudagur
Digranes kl. 14.00 ka. HK-KA
Digranes kl.15.30 kv. UBK-Víkingur
Karfa
Föstudagur
Njarðvík kl.20.00 úrv.UMFN-UMFG
Sandgerði kl.20.00 l.d.ka. Reynir-
UMFS
Laugardagur
Seljaskóli kl.14.00 úrv. ÍR-Valur
Egilsstaðir kl. 14.00 Ld.ka. UÍA-HSK
Sunnudagur
Hagaskóli kl.14.00 l.d.kv. KR-ÍR
Hagaskóli kl.20.00 úrv. KR-Haukar
Strandgata kl.20.00 l .d.kv. Haukar-
(R
Handbolti
Um helgina fara fram úrslit í yngri
flokkunum. Leikið verður í 2. flokki
karla og kvenna, 4. flokki karla og
kvenna ásamt 6. flokki karla. Hús-
næði hefur verið tryqgt á eftirtöldum
stöðum: Akureyri, Ásgarði, Hafnar-
firði, Keflavík, Njarðvík, Selfossi,
Vestmannaeyjum og 4 húsum í
Reykjavík.
England
Liverpool
jafnar met Leeds
Gerði jafntefli við Derby 1 -1 og hefur
því leikið 29 leiki án taps íensku
deildarkeppninni
Þaö var Craig Johnston sem
skoraði mark Liverpool á 54.
mínútu þegar þeir gerðu jafntefli
við Derby í fyrrakvöld 1 -1. Derby
náði að jafna fimm mínútum fyrir
leikslok með marki Mike Fors-
yth.
Craig Johnston ætlar að þakka
sérdeilis vel fyrir að hafa fengið
að leysa John Aldridge, sem er
meiddur, af hólmi. Hann hefur
skorað mark í tveimur síðustu
leikjum þeirra.
Það verður því spennandi
leikur þegar þeir leika í deildar-
keppninni gegn Everton á sunnu-
daginn enda á Liverpool góða
möguleika á að næía bæði í
deildarmeistaratitilinn og bikar-
inn en þeir leika gegn Notting-
ham Forest 9. aprfl í bikarnum.
Föstudagur 18. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15