Þjóðviljinn - 19.03.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.03.1988, Blaðsíða 11
I Þú borgar sjálfum þér skattinn þinn ví fé sem þú borgar í skatta er ekki kastað á glæ. Skattpen- ingana þína færð þú til baka, margfaldlega ávaxtaða í formi félags- legrar þjónustu sem þú og allir sam- borgarar þínir njóta góðs af. Skattar eru hluti af tekjuöflunarkerfi ríkis- sjóðs og fyrir þær tekjur byggir hið opinbera upp réttlátt og mannúðlegt velferðarþjóðfélag sem allir geta verið stoltir af. ii ii breytingarnn i I iS' m mm * ú euum b Nfl&raflil / Islendingar eru vinnusöm, harð- dugleg og kröfuhörð þjóð. Fáir geta fullyrt með sterkari rökum en við að hvergi á jörðinni sé betra að búa. Við erum stolt af landi okkar, uppruna og stöðu í samfélagi þjóðanna. Um aldir vorum við kúguð og kaghýdd en höf- um af eigin rammleik byggt upp á liðnum áratugum sjálfstætt fyrir- myndarþjóðfélag þar sem öllum er minna mega sín er tryggt öruggt lífs - viðurværi. Við verðum að halda vörð um þetta grundvallaratriði og bera jafn- harðan í brestina, loka leiðum þeirra sem reyna að svíkjast undan sam- hjálpinni. Það er siðferðileg skylda okkar að tryggja öllum jafnan aðgang að allsnægtarborðinu.Það gerum við meðal annars með sköttunum okkar. Þeim skattkerfisbreytingum sem nú hefur verið komið á er ætlað að tryggja þessa undirstöðu. Þeim er ætlað að stuðla að auknum stöðug- leika og jöfnuði í þjóðfélaginu. Breytingarnar munu treysta fjárhags- legar undirstöður velferðarríkisins, koma á réttlátari tekjuskiptingu,virk- ara skattaeftirliti og uppræta skatt- svik ýmissa forréttindahópa. Upp- skeran verður skilvirkara skattkerfi sem allt heiðarlegt fólk hagnast á. Hærri VELFERÐ FYRIR ÞIG ráðstöfunartekjyr, öruggar; franrtið Breytingarnar birtast m.a. í hærri barnabótum og barnabótaauka, hærri lífeyrisgreiðslum, hærri skatt- frelsismörkum, lægri tollum á nauð- þurftum, lægri vörugjöldum, sterkara söluskattskerfi og minni verðbólgu. Ráðstöfunartekjur heimilanna auk- ast og ríkisvaldið hefur meira fé til að byggja upp öflugt menntakerfi, heil- brigðiskerfi, samgöngukerfi og marg- háttaða menningarstarfsemi og ótal margt fleira sem nýtist öllum þjóðfé- lagsþegnum um ókomin ár. Nýja skattkerfið tryggir að þú færð peningana þína til baka. FJARMALARAÐUNEYTIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.