Þjóðviljinn - 22.03.1988, Blaðsíða 1
Símon Ólafsson og ívar Webster voru duglegir í fráköstunum á sunnudaginn þegar Haukar unnu KR
í stórskemmtilegum leik.
Karfa
Gæða leikur
Haukar unnu KR á sunnudaginn 84-88 ístórskemmtilegum
leik í Hagaskóla
Karfa
KR og Haukar
drógust í
undanúrslit
Búið er að draga í undanúrslit
bikarkeppni KKI. KRingar fá
Hauka í heimsókn í Hagaskóla og
Njarðvíkingar fá ÍR til Njarðvík-
ur í fyrri umferðinni. Báðir
leikirnir verð fimmtudaginn 24.
mars klukkan 20.00.
í síðari leikjunum fara Njarð-
víkingar í Seljaskóla til móts við
ÍR þriðjudaginn 29. mars
kl.20.00 en KRingar halda í
Strandgötuna fimmtudaginn 31.
mars og leika við Hauka klukkan
14.00.
Úrslitaleikurinn verður síðan
laugardaginn 23. apríl kl.14.00 í
Laugardalshöllinni.
Og þetta
lika...
Útlend karfa
Limoges (Frakklandi) unnu Joventut
Badalona (Spani) í úrslitum Evrópu-
bikarkeppninnar í körfubolta 96-89.
Staðan í hálfleik var 43-43 og þegar
venjulegur leiktími var úti var staðan
86-86 en í framlengingunni tókst
Frökkunum að hrista sigurinn framúr
erminni.
Öryggisráðstafanir
FIFA ætlar að gefa út reglugerð þar
sem tilgreindar eru ráðstafanir til
varnar slysum á áhorfendapöllum.
Þeir tóku við sér eftir slysið í Nepal
þegar haglél skall skyndilega á og
áhorfendur hlupu að útgöngudyrum
sem voru lokaðar.
Vopnaleit
Lögreglan í Luton á Englandi gerði
rassíu fyrir skömmu til að leita að
vopnum hjá aðdáendum Luton. Þeir
fundu gnægð vopna svo sem loft-
byssur, hnífa, hornaboltakylfur og
flugelda sem eru farnir að verða ansi
vinsælir meðal skrílsins þegar þeir
ruddust inná heimili unglinga eftir að
hafa fengið vísbendingar frá „neðan-
jarðarheimildum". Einnig fundust
myndir frá Heysel slysinu. Luton hef-
ur bannað aðdáendum annarra liða
að koma á leikvang sinn en knatt-
spyrnuyfirvöld hafa sagt þeim að
annaðhvort leyfi þeir öllum að koma á
leikvanginn í bikarleikjum eða Luton
verði bannað að taka þátt í þeim.
Kínverjar
urðu sigursælir á Swedish Open bad-
mintonmótinu sem haldið var fyrir
skömmu í Malmö. Þeir unnu allafimm
titilana sem í boði voru. Hinsvegar
kom mest á óvart Svíinn Jens Olsson
en hann hafði unnið hvern sigurinn á
fætur öðrum í mótinu þó að hann væri
ekki á lista yfir bestu menn en varð þó
Svíþjóðarmeistari fyrir skömmu.
I
Hagaskóli 20. mars
Úrvalsdeild KKÍ
KR-Haukar 84-88 (48-47)
Stig KR: Símon Ólafsson 21, Birgir Mika-
elsson 19, Jóhannes Kristbjörnsson 18,
Guöni Guðnason 13, Ástþór Ingason 8,
Matthías Einarsson 3, Höröur Arnarson 2.
Stig Hauka: PálmarSigurösson 26, Henn-
ing Henningsson 16, Olafur Rafnsson 12,
Ivar Webster 11, Tryggvi Jónsson 10, Ivar
Ásgrímsson 6, Ingvi Jónsson 4, Ingimar
Jónsson 2, Heimir Kristinsson 1.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og Kristinn
Albertsson voru góöir.
Maður leiksins: Jóhannes Kristbjörnsson
KR.
-ste
Það var ljóst frá byrjun að ekk-
ert yrði gefið eftir og það var ekki
fyrr en á lokamínútunni að úrslit-
in réðust. Þá höfðu liðin skipst á
að vera yfir allan tímann og það
voru mest 9 stiga munur 54-63.
Haukar komust fyrst yfir en
KRingar jöfnuðu 24-24 og eftir
það var algert jafnræði með lið-
unum. Það skildu þau meira en 2
stig og rétt fyrir leikhlé náðu vest-
urbæingarnir að eiga síðasta
skotið þannig að þeir voru yfir í
leikhléi 48-47.
Haukar tóku góða rispu strax í
byrjun síðari hálfleiks þegar þeir
náðu sæmilegu forskoti 54-63 og
voru þar að verki Ólafur Rafns-
son, Tryggvi Jónsson og Pálmar
Sigurðsson. KR tók þá leikhlé og
mættu ákveðnir úr því, því þeim
tókst að jafna og komast yfir á
nokkrum mínútum 70-69. Enn
tóku Haukar rispu og náðu 5 stiga
forystu 74-79 en vesturbæingarn-
ir voru ekki á þeim buxunum að
gefast upp. Jóhannes Kristb-
jörnsson KR átti þá geysilega
góðan kafla og kom liði sínu 82-
81. Það var síðan á lokamínútun-
um að Haukum tókst að skora úr
vítum þegar KRingar brutu
mikið á þeim og ná forystunni 84-
85. Haukar höfðu þá boltann en
KRingar reyndu allt hvað þeir
gátu til að ná honum og spennan
var í hámarki. Vesturbæingarnir
brutu á Göflurunum sem fengu
víti fyrir vikið. Heimir Kristjáns-
son skoraði úr einu en Pálmar
Sigurðsson var öruggari og
skoraði úr tveimur og tryggði liði
sínu þar með sigurinn 84-88.
Hjá KR var Jóhannes Krist-
björnsson yfirburðarmaður en
Birgir Mikaelson, Guðni Guðna-
son og Símon Ólafsson áttu einn-
ig stórgóðan leik bæði í vörn og
sókn enda skoruðu þeir fjórir 71
af 84 stigum liðsins. Ástþór Inga-
son var góður í vörninni. í
Ikvöld
Fótbolti
Gervigras
kl.20.30 Þróttur-Fylkir í Reykjavík-
urmótinu.
Handbolti
Akureyri
kl.20.00 Þór-UBK Ld.ka.
kl.21.15 Þór-IBK 2.d.kv.
Seljaskóii
kl.20.00 ÍR-KA l.d.ka.
kl.21.15 Fylkir-HK 2.d.ka.
Laugardalshöll
kl.20.00 Víkingur-Fram l.d.kv.
kl.21.15 KR-Fram bd.ka.
Seltjarnarnes
kl.20.00 Grótta-Reynir 2.d.ka.
kl.21.15 Grótta-HK 2.d.kv.
Fótbolti
Leikur á
gervigrasinu
íkvöld
Reykjavíkurmótið
að hefjast
Þá fer knattspyrnuvertíðin að
hefjast. f kvöld klukkan 20.30
leika á gervigrasinu Þróttur og
Fylkir en næsta leik eiga Víkingar
og Leiknismenn á fimmtudaginn.
Það verður fróðlegt að sjá liðin
og ekki víst að menn þekki sín lið
strax aftur því gífurlega miklar
mannabreytingar hafa átt sér stað
að undanförnu.
Handbolti
Dregið í
undanúrslit
Dregið var í undanúrslit bikar-
keppninnar í Þórskaffi á laugar-
daginn og var það hvorki meira
né minna en fegurðardrottning
Reykjavíkur Guðný Elísabet Ól-
adóttir sem sá um dráttinn.
Frammarar drógust gegn
Breiðablik og eiga heimaleik en
KRingar fá Val í heimsókn.
Einnig var dregið í undanúrslit í
kvennaflokki. Fram dróst gegn
Stjörnunni og FH fékk Val.
Haukaliðinu áttu allir leikmenn
liðsins góðan dag. Pálmar Sig-
urðsson var að venju góður en
ívar Ásgrímsson, Henning
Henningsson og Tryggvi Jónsson
voru einnig góðir. Ölafur Rafns-
son var ansi mistækur á stundum
en tók á milli góða spretti. ívar
Webster hirti mikið af fráköstum
og það gladdi augað þegar hann
„blokkeraði“ boltann nokkrum
sinnum. Dómarar voru þeir
Gunnar Valgeirsson og Kristinn
Albertsson og dæmdu vel miðað
við hraðann í leiknum og æsing-
inn í leikmönnum.
í úrslitakeppni
Haukur eru líklega sloppnir í úrvals-
keppnina með þessum sigri en þeir eiga
leik viö Breiðablik, sem eru neðstir í
deildinni, næsta sunnudag. KRingar veröa
aö vinna Val sama dag til að eiga mögu-
leika.
Þessi leikur var einn sá skemmtilegasti
sem undirritaöur hefur séð í vetur. Bæöi
liðin mjög góö og mikil barátta allan tím-
ann. Áhortendurnir sem fylltu stúkuna í
Hagaskóla fengu svo sannarlega eitthvaö
fyrir peninginn. Karfan viröist vera aö
komst úr lægö sem hún var í fyrr í vetur.
Umsjón: Stefán Stefánsson
Þriðjudagur 22. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9