Þjóðviljinn - 22.03.1988, Blaðsíða 8
Hugsaðu málið
Ef þú ert í bílahugleiðingum,ættir
þú að lesa þessa auglýsingu
tvisvar. Ræddu við sölumenn
okkar um kosti LADA bílanna og
vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu-
tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum
einnig úrval notaðra LADA bíla.
Beinir símar:
Nýír bílar sími: 31236
Notaðir bílar simi: 84060
Opið laugardaga frá 10-16
ÓBREYTT VERÐÁ MEÐ
AN BIRGÐIR ENDAST
LANPBUNAÐUR__________________
Mikilvægt að ná tökum
á fóðurverkun
Er Gunnar Gunnarsson for-
stöðumaður véladeildar Sam-
bandsins, var inntur eftir
helstu nýjungum í bútækni
barst talið fljótt að fóðurverk-
un. Taldi hann eitt af megin-
markmiðum í hefðbundnum
landbúnaði vera að ná tökum
á að verka úrvalsfóður.
Rúllupökkun ein
merkasta nýjungin
„Við höfum getað stutt við
hefðbundnar greinar landbúnað-
arins, með því að útbúa og kynna
vélar til fóðurframleiðslu," sagði
Gunnar sem telur að þurr-
heysverkun og vothirðing eigi
báðar fullan rétt á sér. Fyrir með-
alstór og minni bú henti hins veg-
ar best að ná fullkomnu valdi á
einni aðferð til að geta mætt
vondum sumrum.
„Á síðustu 10 árum hafa orðið
miklar framfarir í þurrheysverk-
un með tilkomu heydreifikerfa,
sem tryggja jafna fyllingu á heyi í
hlöðum og jafna mótstöðu fyrir
súgþurkunarblásturinn. Á ó-
þurrkatímum ráða menn því bet-
ur við að hirða og verka nær þeim
tíma sem hentar grassprettunni,
en eru ekki eins háðir veðurguð-
unum. Ég hygg að reynslan sýni,
að þeir sem eru vel útbúnir með
laushirðingu heyja, þ.e. hafa
heydreifikerfi og góða súgþurrk-
un, að ekki sé talað um upphitað
loft, hafi besta möguleika á gæð-
afóðri í hámjólka kýr í óþurrka-
tíð, en þar hlýtur að þurfa að gera
mestar kröfur til fóðurgæða."
Er vikið var að öðrum nýjung-
um nefndi Gunnar rúllupökkun
með tilheyrandi rúllupökkunar-
vél, sem ein merkasta nýjung í
bútækni. „Menn hafa miklað
fyrir sér að rúllurnar séu þungar í
meðförum, en varla er auðveld-
ara fyrir bændur að hafa allan
heyforðann í einni flatgryfju eða
turni. Vélavinnu í slíkum
geymslum er dýrt að koma við
nema menn hafi öflugt þriggja
fasa rafmagn, en það hafa fáir
bændur.“
Gunnar sagði að þeir hefðu
látið prófa rúllupökkunarvél á
Hvanneyri tvö síðustu sumur og
einnig hefði hún verið kynnt á Bú
‘87. „Allmargir bændurtóku slík-
ar vélar í þjónustu sína á síðast-
liðnu sumri, með mjög góðum ár-
angri. Reynsla þeirra sýnir að
þessi innpökkunaraðferð skapar
mikið öryggi í geymslu fóðurs og
þó að keppikefli sé að heyið sé
sem þurrast til að ná hæstu fóður-
gildi, þá þola vélarnar bæði að
taka illálagaða og vota bagga.“
Er ekki hætta á skemmdum ef
gat kemur á pokana? „Reynsla
bænda sýnir að hætta á skemmd-
um er lítil, því filman leggst þétt
að bagganum og hún er í 4 lögum.
Jafnvel þótt gat komi af slysni, þá
verður aðeins skemmd á litlu
svæði. Nú bjóðast sífellt aðgengi-
legri tæki til að taka upp bagga
ineð eða án umbúða og auka þau
öryggi í meðferð þeirra. Við
þessa aðferð gildir að sýna um-
hyggju og alúð, eins og við alla
verkun fóðurs."
Er vikið var að kostnaðarhlið-
inni sagði Gunnar að öllum nýj-
um fóðurverkunarstefnum fylgdi
mikill tilkostnaður og vægi bygg-
ingakostnaður þarþyngst. Rúllu-
binditæknin hefði það umfram
aðrar aðferðir, að hana væri hægt
að aðlaga vel að eldra skipulagi
og byggingum sem fyrir væru.
Sífelldar endurbætur
á eldri tækjum
Að sögn Gunnars er sífellt ver-
ið að endurbæta hefðbundinn
tækjabúnað til að bændur gætu
Ólafur Eggertsson, Þorvaldseyri, matar votheyi inná fóðurgang með rafknún-
um vagni.
LANDBÚNAÐUR
-----------—-------------------------—i
Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður véladeildar Sambandsins, fyrir framan málverk af Massey Ferguson dráttarvélum í
íslensku landslagi. giq
stundað fóðuröflun af meira ör-
yggi og með minni tilkostnaði.
Tiltók hann sláttutæki, heyþyrlur
og múgavélar, að ógleymdum
dráttarvélunum. Sagði hann að
frá Massey Ferguson væru komn-
ar nýjar vélar, svokölluð 300 gerð
og mjög fullkomin vél nr. 3000,
sem hann taldi mörgum árum á
undan keppinautunum. „Vönd-
uð dráttarvél með langtíma nota-
gildi og hámarks endursöluverð
er mikilvæg á þessum síðustu tím-
um í bútækniþróun," sagði
Gunnar, sem taldi nauðsynlegt
að kynna þessar nýju gerðir vel
fyrir bændum.
Mikil samkeppni á
búvélamarkaðnum
Er talið barst að mikilli sam-
keppni milli fyrirtækja á búvéla-
markaðnum taldi Gunnar það
stóra spurningu hvað bændur
fengju út úr allri þeirri fjölbreytni
er þeim byðist. „Skapar hún ekki
fleiri vandamál en hún leysir?"
Gunnar sagði að ef litið væri á
sölutölur þá kæmi í ljós að rót-
gróin fyrirtæki sæju um þorra
þessara viðskipta. „T.d. erum við
með þriðjung markaðarins, hvort
sem litið er á magn eða verðmæti
og hið gamalgróna fyrirtæki
Glópus hefur 1/4. Ekkert annað
fyrirtæki er með stærri hlut en 7-
8% á þessum markaði, en alls eru
9 fyrirtæki að keppa á búvéla-
markaðnum hér.“
mj
DRÁTTARVÉLAR
VERÐ FRÁ KR:
395.000.00
HF HAMAR Landbúnaðardeild flytur inn dráttarvélar frá KLÖCH-
NER HUMBOLD DEUTZ, TRAC TECHNIK og TORPEDO. í
gegnum árin hefur DEUTZ dráttarvélin aflað sér sess hér á landi
sem ein glæsilegasta og öflugasta dráttarvélin á markaðnum. Nú
nýlega sameinuðust KHD og DAIMLER BENZ um stofnun
fyrirtækis TRAC TECHNIK og eiga KHD 60% í þessu nýja
fyrirtæki sem framleiðir IN—TRAC og MB—TRAC dráttarvélar.
TORPEDO dráttarvélin kom hingað til lands í fyrsta sinn 1987 og
hefur reynst framúrskarandi vel. Hún hefur reynst vera sterk, lipur
og öflug í notkun og verðið frábært.
Rétt er að minnast aðeins á þau greiðslukjör sem HF HAMAR
býður upp á, en þar er um marga möguleika að ræða, eða allt frá
staðgreiðslu til þess að lána allt kaupverð til allt að 5 ára.
Lánastefnan er sú að kaupandi geri sér grein fyrir greiðslugetu
sinni og sfðan reynum við að komast eins nálægt henni og kostur
er.
DEUTZ FAHR
N—TRAC
MB—TRAC
TORPEDO
FRÁBÆR VERÐ
FRÁBÆR KJÖR
• HEYÞYRLUR
• Vinnslubr. 3-7 metrar
• Lyftu- eða dragtengdar
• Vökvalyft í flutningsstöðu
• Einstaklega lipur í notkun
VERÐ FRÁ KR. 69.000.-
• MÚGAVÉLAR
• Frábær rakstur
• Jafnir vöndlalausir múgar
• Rakar frá skurðbökkum
• Einnar og tveggja stjörnu
VERÐ FRÁ KR. 69.000.-
NIEMEYER
HEUMA HEYVINNUVÉLAR. 30 ÁR Á ÍSLANDI
VESTUR-ÞÝSKAR HÁGÆÐAVÉLAR
• SLAtTUVÉLAR
• Vinnslubr. 1,7-2,7 m
• Með og án knosara
• Með og án vökvalyftu
• Fram og aftan tengdar
VERÐ FRÁ KR. 89.000,-
★ ÁBURÐAR-
MBtw/ljþzXS0
HF HAMARi
Grandagarði 11 • Sími 91 22123
Frábær greiðslukjör til allt
að fjögurra ára. Af hverju
að kaupa það næstbesta ef
til er berta og ódýrara.
DREIFARAR
• Jöfn og þétt dreifing
• Hæð frá jörðu 88 cm.
• 12 metra dreifibreidd
• Ryðfrí dreifiplata
VERÐ FRÁ KR. 38.000.-