Þjóðviljinn - 25.03.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 25.03.1988, Qupperneq 1
; wBStttœB&r JusBUKm Föstudagur 25. rh m ' BKÖc* 'fj BHH m Bfti mars 1988 70. tölublað 53. árgangur Sambandið Hásetar með aðeins 9000á mánuði Pólskir hásetar á fœreysku skipi á vegum Sambandsinsfá 9000 krónur á mánuði. Ekkertgreittfyriryfirvinnu. Brotá alþjóðlegumtöxtum. Össur Skarphéðinsson: Þingiðgangi í málið Skip undir færeyskum fána hafa að undanförnu siglt á vegum Skipadeildar Sambandsins um strandir landsins. Um borð í þessum skipum eru meðal annars pólskir háset- ar og bera þeir um 9000 krónur úr býtum fyrir mánaðar vinnu, þar með talin öll aukavinna og helgarvinna. Petta kemur fram í grein sem Össur Skarphéðinsson skrifar í Pjóðviljann í dag. „Þetta eru svokallaðir smala- bátar, sem sjá um að safna saman fiski á smærri höfnum og koma í fraktskip í stærri höfnum," sagði Óskar Einarsson, sem sér um ráðningu skipshafna hjá Skipa- deildinni. í áhöfn Helenu, sem Össur fjallar um í grein sinni, eru fjórir pólskir hásetar og hafa þeir í laun 800 dollara á mánuði, eða 30 þús- und íslenskar krónur, sem er töluvert undir lágmarkstöxtum Alþjóðasambands flutninga- verkamanna. Samkvæmt upplýs- ingum frá Sjómannafélagi Reykjavíkur er líklegt að þessir hásetar vinni um 300 stundir á mánuði og fyrir aukavinnu sína fá þeir ekki krónu aukalega, þannig að reikna má með að þeir séu því hlunnfarnir um 41.000 krónur á mánuði, sé miðað við meðaltal af taxta Alþjóðasambands flutning- averkamanna. Pólverjarnir eru tvískattaðir. Til færeysku landsstjórnarinnar borga þeir 40% af tekjum sínum og 20% til pólsku ríkisstjórnar- innar, þá fær vinnumiðlunarskrif- stofa í Lundúnum 5% af tekjum þeirra þannig að um 9000 krónur eru eftir í launaumslaginu. Óskar staðfesti þessar tölur og sagði að daglega rigndi inn á skrifboð til sín tilboðum erlendis frá um vinnuafl á þessum kjörum, en hann sagðist ekki hafa fyrir því að svara slíkum til- boðum þar sem nóg úrval væri af hæfum íslenskum sjómönnum. Óskar tók fram að Sambandið réði engu um mannskap né kjör um borð í þessurn leiguskipum. situr í atvinnumálanefnd Reykja- víkur, segir í grein sinni að ís- lensku skipafélögin beri alla Hinsvegar sagðist hann þeirrar skoðunar að réttast væri að ís- lenskt skip með íslenskri áhöfn væri í þessum siglingum. Össur Skarphéðinsson, sem ábyrgð á þessum smánarkjörum, og að bletturinn verði ekki þveg- inn af íslendingum nema Alþingi gangi í málið með lagasetningu. Sjá bls. 5 BnHHHBKZHHHM Samningarnir Þolinmæði starfsmanna sem vinna í kerskálanum hjá Álverinu í Straumsvík er senn á þrotum vegna mikillar mengunar sem stafar af gölluðum forskautum. Þeir vinna með grímur fyrir andlitinu og fylgja þeim mikiL óþægindi, ma. köfnunartilfinning. Álverið Ekki vinnandi vegna mengunar Gölluðforskaut valda geysilegri mengun íkerskálanum. Kerin opin og alltfullt afryki og hita. Verið svo með smáhléum ítœpt ár. Þolinmœði starfsmanna á þrotum Verslunarmannafélag Reykja- víkur felldi samningana með 214 atkvæðum á móti 96. Auðir og ógildir seðlar voru 11. f Alþýðuhúsinu á Akureyri lokuðu samninganefndamenn að sér í gærkvöldi, til að þvarga um launaliði nýrra samninga og starfsaldurshækkanir. Lokatörn- in er því hafin í samningaviðræð- unum. Þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi var allt útlit fyrir að látið yrði til þrautar reyna á samningsviljann. Samkomulag um vinnutíma- fyrirkomulag tókst undir kvöld- matarleytið í gær, eftir að hafa vafist fyrir mönnum mun lengur en ráð var fyrir gert í upphafi. Iðja, félag verksmiðjufólks, samþykkti í gær kjarasamning Landssambands iðnverkafólks. Sjá bls. 3 f tæpt ár með smáhléum hafa verið í notkun gölluð forskaut í kerskálanum í Álverinu í Straumsvík sem hefur gert það að verkum að ekki er orðið vinnandi öllu lengur í kerskálanum. Kerin eru opin og allt fullt af ryki og mikill hiti. Berist ekki ný og ógölluð for- skaut um mánaðamótin apríl-maí nk., eins og stjórn Álversins hef- ur lofað, er þolinmæði starfs- manna á þrotum. Þeir hafa unnið með andlitsgrímur sem veldur miklum óþægindum; þeir svitna mikið og finna jafnvel fyrir köfn- unartilfinningu. Þessi óbærilega vinnuaðstaða hefur leitt til þess að framleiðslu- geta fyrirtækisins hefur minnkað og yfirvinna hefur aukist. Á sama tíma hefur álverð rokið upp úr öllu valdi og fást nú 1400 pund fyrir tonnið. Sjá bls. 3 Nær 400 árslaun í banka- stjórana Heildartap ríkissjóðs vegna gjaldþrots Útvegsbankans er mun meira samkvæmt niðurstöð- um lokaskilanefndar en áður hafði verið áætlað. Munar þar allt að í hálfum miljarði. Upphaflega var talið að tap ríkisins yrði 1,2 miljarðar en nú er sýnt að það verður ekki undir 1,6 miljörðum. Skuldbindingar vegna líf- eyrisgreiðslna til fyrrum banka- stjóra, aðalbankastjóra og ekkna þeirra, samtals 14 manns, kosta ríkissjóð 222 miljónir. Það eru hátt í fjögurhundruð árslaun verkafólks. Sjá bls. 2 Steingrímur Frekar í Túnis Tilbúinn í viðrœður við fulltrúa PLO - Ráðherra sagði að hann hefði ekkert á móti því að hitta fulltrúa og framkvæmdastjórn PLO að máli, en hvenær það gæti orðið og hvar yrði að ákvarðast nánar. Eflaust væri betra að slík- ur fundur ætti sér stað í Túnis fremur en í Reykjavík, a.m.k. í fyrsta sinn. Svo segir í ítarlegri endursögn frá fundi Steingríms Hermanns- sonar og dr. Makalofs, upplýs- ingafulltrúa PLO, í Stokkhólmi í fyrradag, sem Þórður Einarsson sendiherra í Stokkhólmi skráði og utanríkisráðuneytið sendi frá sér í gær. Þessi endursögn sendiherrans staðfestir að mestu leyti innihald þess fréttaskeytis sem dr. Maka- lof sendi íslenskum fjölmiðlum um fund þeirra Steingríms í Stokkhólmi. Sjá bls. 3 I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.