Þjóðviljinn - 25.03.1988, Síða 10
— í DAGf
Engarumræður
íheita pottinum
Hin nýja stefna meirihluta Sjálf-
stæðismanna í íþrótta- og tómstund-
aráðí borgarinnar er í þann veginn að
drepa niður alla þjóðmálaumræðu í
heita pottinum þar sem menn hafa
hingað til rifist eins og kettir út af stór-
um sem smáum málum. Ástæðan er
sú að formaður ráðsins, Júlíus Haf-
stein, hefur gefið út þá yfirlýsingu að
sundstaðir borgarinnar séu griða-
staður fyrir fólk frá skarkala um-
hverfsins og það eigi að fá að njóta
þar kyrrðar og friðar frá allri pólitískri
umræðu eða öðru sem ske kynni að
valda óbreyttum sundlaugargestum
ónæði.
í morgun eins og alla aðra daga fór
ég glaðbeittur og hress í sundlaugina
mína og eins og venjulega byrjaði ég
daginn, eftir að hafa farið í sturtu og
þrifið mig hátt og lágt, að fara í heita
pottinn minn áður en ég synti mína
500 metra í lauginni. En aldrei þessu
vant sátu fastagestirnir þegjandi og
heldur skömmustulegir í pottinum og
hvorki datt né draup af þeim. Ég hélt í
fyrstunni að einhver nákominn hefði
látist um nóttina svo daprir voru þeir á
svipinn. Til að komast að hinu sanna í
málinu færði ég mig að einum kunn-
ingja mínum í pottinum og spurði
hann afhverju menn sætu svona
hljóðir og nánast sorgmæddir á svip-
inn. I stað þess að brýna raustina
eins og þessi kunningi minn er vanur
að gera þegar hann er spurður að
einhverju, þá sneri hann að mér ofur-
hægt og nánast hvislaði upp í eyrað á
mér: „ Það er bannað, samkvæmt til-
skipun frá íþrótta- og tómstundaráði
að ræða pólitísk mál hér í sund-
lauginni því það gæti valdið einhverj-
um ónæði. Ef þvíer ekki hlýtt megum
eiga von á því að vera reknir uppúr og
settir í bann,“ sagði þessi kunningi
minn og ef vel var að gáð mátti greina
táriaugunum.
Ég hélt í fyrstunni að maðurinn
væri að gera grín að mér og reyna að
hafa mig að fífli, svo ég brýndi raust-
ina ofurlítið og hélt smá tölu um
heilvítis svindlið í þjóðfélaginu, eins
og svo oft áður. Þegar ég var rétt að
komast á skrið og farinn að æsast
ofurlítið, varskyndilega þrifið í mig af
hvítklæddum manni sem benti mér á
þá staðreynd að svona umræða væri
bönnuð í pottinum eftirleiðis. En það
er erfitt að kenna gömlum hundi að
sitja, og til gera langa sögu stutta þá
lyktaði þessari sundlaugarferð minni
með því að ég verð um stundarsakir
að notast við baðkarið heima þar sem
ég er talinn óæskilegur gestur í sund-
stöðum borgarinnar.
-grh
í dag er
25. mars, föstudagur í 23. viku
vetrar, 85. dagurársins. Fjóröi
daguríeinmánuöi. Boöunardag-
ur Maríu, - Maríumessa á föstu.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
7.10ensólseturkl. 19.59. Tungl
hálft og vaxandi. Þjóöhátíðardag-
urGrikklands.
Atburðir
Danmörk gengur í Nató 1949.
Nóvudeilunni lýkur meö sigri
verkamanna 1933.
Þjóðviljinnfyrir
50árum
LaunadeilanáSiglufirði. Eftirósk
ríkisverksmiðjustjórnarinnar
sneri sáttasemjari sértil verka-
lýðsfélagsins „Þróttur", þegar
verksmiðjustjórn sleit samninga-
umleitunum, og óskaöi eftir að fé-
lagiö sendi einn mann suður, og
útnefndi Erlend Þorsteinsson, al-
þingismann, til samningaumleit-
anameðfullnaðarumboöi. Fél-
agsstjórnin lagði til að sendir
yrðu tveir menn héðan og til-
nefna einnig Sigfús Sigurhjartar-
son. Nokkrir hægri menn höfðu í
hótunum, ef félagið kysi ekki Er-
lend til samninganna. Á félags-
fundi í gærkvöldi var samþykkt
að senda alla samninganefn-
dina, Gunnar Jóhannss., Kristján
á Eyri og Jón Jónsson til Rvíkur
ef sáttasemjari greiddi ferða-
kostnað þeirra og kaup, að öðr-
aum kosti færu samningaumleit-
anirfram héráSiglufirði.
. Fréttaritari
GARPURINN
Sjón
sögu
ríkari
Sjónvarpið, föstudag kl. 22.25
Kvikmyndir vetrarins í sjón-
varpi allra landsmanna hafa fæst-
ar verið til að hrópa húrra fyrir,
og þessvegna er myndin í kvöld
óvænt ánægja. Sjón er sögu ríkari
(Stranger than Paradise) var gerð
í Bandaríkjunum 1984 af
leikstjóranum Jim Jarmusch og
var það fyrsta sem kvikmyndaá-
hugamenn fréttu af þeim manni.
Hún er búin til af Iitlum efnum
utanvið miðstöðvar
skemmtiiðnaðarins, en hefur síð-
an farið um öll lönd og orðið
„kúlt“-mynd einsog sagt er á
vondu máli; orðið gríðarvinsæl í
afmörkuðum hópum ungs fólks
og filmuinnvígðra. Myndin var
sýnd hér á listahátíð ‘85 og síðar í
litlum sal í Laugarásbíói, fékk
ekki mikla aðsókn í byrjun en
spurðist vel út og gekk mánuðum
saman. Næsta mynd Jarmusch,
Down by Law, var svo sýnd á
síðustu hátíð við mikla aðsókn.
Sjón er sögu ríkari er svarthvít,
og fellur helst í flokk flakkmynda
(,,road-movies“); jaðartöffarar í
New York fá í heimsókn frænku
frá Ungverjalandi og vita ekki
betur hvað þeir eiga af henni að
gera en sér, - eftir ýmislegt rugl í
stórborginm er ákveðið að halda
á slóðir ættingja í Cleveland og
síðan á sólarstrendur í Flórída, -
gallinn er sá einn að það er miður
vetur og paradís auglýsingabæk-
UM ÚTVARP & SJONVARP
Keisari norðursins
Stöð 2 kl.22. 45
Með eitt aðalhlutverkanna í kvik-
myndinni Keisari noðursins fer
Lee Marvin, en leikstjóri er Ro-
bert Aldrich. Mynd þessi fjallar
um umrenninga sem ferðast með
lestum. Aðalsöguhetjan stendur
sig vel í að gera járnbrautarvörð-
um gramt í geði og fær fyrir
bragðið titilinn Keisari norður-
sins. Mynd þessi er ekki við hæfi
barna.
mynd:
Lee Marvin leikur slagsmála-
hund í kvikmyndinni Keisari
norðursins.
New York-töffarar komnir með ungversku frænkuna! sólarleysiö á Flórídaströnd, - úr Sjón er sögu ríkari.
linganna víðs fjarri.
Ætli hinir djúpvitru mundu
ekki komast að því að umfjöllun-
arefnið sé tilgangslítil viðleitni
mannskepnunnar til að fylla útí
tómið, eða um það hve djúpt er á
uppfylling draumanna; - mestu
skiptir að hér hefur lukkast að
búa til mynd sem maður festist
við, hlýja án væmni og fulla af
lunknum húmor. Klippingin er
c/árb'F»rmi1f‘or no tplnir pioinlepa
mið af ljósmyndaalbúminu, og
sennilega er myndin svarthvít af
ráðnum hug frekar en blankheit-
um. Fær þrjár stjörnur í hand-
bókinni og bestu meðmæli frá
þeim sem séð hafa. -m
KALLI OG KOBBI
Ekki láta hana taka mig upp!
Leggðu það ekki á mig að fara
upp að töflu í rifnum buxum!
Einhvern annan! Láttu hana taka
einhvern annan upp svo ég geri mig
ekki að fífli fyrir framan allan bekkinn!
o
O
o
FOLDA
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. mars 1988