Þjóðviljinn - 12.04.1988, Síða 1
/ ÍÞRÓTTIR
Valur lagði Njarðvíkinga að velli í Hlíðarenda á laugardag-
inn 88-78 og þarf því 3. leik
Tómas og Helgi berjast um boltann undirkörfunni á laugardaginn. Það
verður líklega hörkuslagur á miðvikudaginn þegar liðin mætast í Njarð-
vík til að spila um réttinn til úrslita.
Það var algert jafnræði með
liðunum framan af, en þegar ísak
Tómasson lenti í villuvandræðum
seint í síðari hálfleik fór að halla á
Njarðvíkinga. í síðari hálfleik átti
síðan Tómas Holton stórleik og
Valur vann örugglega.
Njarðvík byrjaði betur og var
vörnin einstaklega sterk. Vals-
vörnin var aftur á móti hriplek á
stundum og fékk Helgi Rafnsson
boltann hvað eftir annað frír
undir körfunni en það var ekki
fyrr en Þorvaldur Geirsson kom
inná hjá Val að þeim tókst að
stoppa Helga af. Njarðvíkingar
áttu hins vegar í vandræðum með
að hitta ofan í körfuna. Jafnt var
á flestum tölum og var munurinn
mest 5 stig Njarðvík í vil. Þegar 2
mínútur voru til leikhlés og stað-
an 35-35 fékk ísak Tómasson sína
4. villu og fór útaf. Við það riðl-
aðist sókn Suðurnesjamanna og
Valur náði yfirhöndinni 43-38 en
Sturlu Örlygssyni tókst að
minnka muninn rétt fyrir leikhlé í
43-41.
Njarðvíkingar mættu mjög á-
kveðnir til síðari hálfleiks, en
Valur tók fljótlega að svara í
sömu mynt. Tómas Holton tók
heldur betur við sér en andstæð-
ingarnir létu mótlætið fara heldur
í skapið á sér þegar Valur náði að
komast í 9 stiga forskot 63-54.
Njarðvíkingar brugðu þá á það
ráð að setja ísak inná en Valur
náði enn að breikka bilið í 67-54.
Úrslitin voru eftir það nokkuð ör-
ugg, Valsmenn börðust af fullum
krafti en Njarðvíkingar létu það
fara í skapið á sér sem kom niður
á spilinu. ísak fékk sína 5. villu og
Valur komst í 15 stiga forskot 84-
69 en fóru þá að slaka á svo að
Njarðvíkingar minnkuðu muninn
stöðugt þar til leikurinn var úti
88-78.
Valsmenn voru mjög sprækir.
Tómas nokkuð góður í fyrri hálf-
leik en átti mjög góðan leik í þeim
síðari. Leifur var duglegur undir
körfunni sem og annars staðar.
Þorvaldur tók Helga úr umferð
sem hafði verið mjög hættulegur
undir körfu Vals. Svali var einnig
í góðu formi ásamt Birni og
Torfa. Hjá Njarðvíkingum var
Teitur mjög góður og átti góðar
sendingar inná Helga sem var
góður undir körfunni þar til Þor-
valdur Valsmaður kom til, en þá
sást minna til hans. Valur var
sæmilegur en með afbrigðum
skotglaður og hittnin ekki í sam-
ræmi við það. ísak var lykilmað-
urinn í spilinu og þegar hans naut
ekki við vantaði greinilega góðan
stjórnanda úti á velli. Sturla og
Hreiðar voru sæmilegir en minna
sást til Árna og Friðriks. Dómar-
ar voru Sigurður Valgeirsson og
Ómar Scheving og dæmdu nokk-
uð vel.
Þriðji leikur
Þar sem Keflvíkingar unnu
Valsmenn í Keflavík kemur til 3.
leiks milli liðanna. Sá leikur verð-
ur í Keflavík annað kvöld, mið-
vikudagskvöld, klukkan 20.00.
Valur Ingimundarson:
„Við voru slappir. Það er alveg á
hreinu að við verðum að mæta
með öðru hugarfari í næsta leik.“
Torfi Magnússon:
„Vörnin small saman og sóknin
var betri en í síðasta leik. Við
höfum ágæta möguleika í síðari
leiknum, ég held að líkurnar séu
50-50. Þar sem okkur hefur ekki
gengið sem best gegn ÍBK vona
ég að við fáum Haukana í úrslit ef
við náum þangað.“
Hlíðarendi 9. apríl
Úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar
Valur-UMFN 88-78 (43-41)
Stig Vals: Tómas Holton 26, Svali Björg-
vinsson 12, LeifurGústafsson 12, Þorvald-
ur Geirsson 12, Einar Ólafsson 10, Torfi
Magnússon 7, Björn Zoega 7, Jóhann
Bjarnason 2.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 24,
Helgi Rafnsson 18, Teitur Örlygsson 13,
Sturla Örlygsson 10, Isak Tómasson 5,
Hreiðar Hreiðarsson 4, Friðrik Rúnarsson
2, Árni Lárusson 2.
Dómarar: Sigurður Valgeirsson og Ómar
Scheving voru nokkuð góðir.
-ste
I kvöld
Karfa
Keflavík kl.20.00
ÍBK og Haukar í úrslitakeppni úrvals-
deildarinnar og þar sem þetta er 3.
leikur liðanna fer það lið sem vinnur I
úrslit.
Fótbolti
Gervigras kl.20.30
KR-Fram í Reykjavíkurmótinu.
Karfa
Tómas með stórleik
Fótbolti
Fylkir og ÍR efstir
Tveir leikir voru í Reykjavík-
urmótinu um helgina. Fylkir sigr-
aði Leikni 4-0 og gerði Baldur
Bjarnason 2 en Sigurður
Sveinbjörnsson og Ólafur
Magnússon 1 hvor. IR vann Ár-
mann á sunnudaginn 3-1 með
mörkum Einars Olafssonar og
Braga Björnssonar en Arnar
Laufdal gerði mark Ármenninga.
Sigurliðin nældu sér þar með í
kærkomin aukastig sem nægði
þeim í efstu sætin í hvoru riðli.
Staðan í A riðli
Fylkir...........2 110 5-14
Þróttur..........3 1 1 15-2 4
Valur............2 2 0 0 2-0 4
Víkingur.........2 0 1 1 1-2 1
Leiknir..........3 0 1 2 1-91
Staðan í B riðli
ÍR...............2 10 14-33
KR...............1 1 0 0 2-0 2
Fram............. 1 1 0 0 2-1 2
Ármann...........2 0 0 2 1-5 0
Þýskaland
Essen
Kristján að
Essen, lið Alfreðs Gíslasonar,
steinlá fyrir spænsku meisturun-
um 12-19 en það kom ekki að sök
því þeir unnu fyrri leikinn með 15
marka mun, 22-7. Alfreð var
markahæstur ásamt Fraatz með 3
mörk hvor. Grosswaldstadt vann
einnig sinn leik í undanúrslitun-
um þegar þeir lögðu Banik Kar-
vina að velli með 16 mörkum
gegn 21 en þeir unnu einnig fyrri
leikinn. Það verða því Essen og
Grosswaldstadt sem leika til úr-
slita í Evrópukeppninni.
Gummersbach-Dormagen
15-11
Kristján er nú loksins búinn að
ná sér á strik eftir frekar slaka
leiki undanfarið. Hann var mark-
ahæstur með 6 mörk.
í úrslit
ná sér á strik
Kiel-Lemko 28-18
Siggi Sveins og félagar áttu
aldrei möguleika gegn Kiel og var
staðan í hálfleik 14-8. Siggi var
þó markahæstur með 6 mörk,
þar af 3 víti.
Göppingen-Hofweier 28-
21
Það var að venju gamla kemp-
an Klempel sem var markahæst-
ur með 9 mörk.
Milbertshofen-Wallau
Massenheim 25-20 (10-8)
Dusseldorf-Dortmund 21-
19 (11-12)
Páll var ekki með vegna
meiðsla í öxlinni.
Líklega verða markverðirnir í aðalhlutverkum þegar liðin leika saman á miðvikudaginn enda eru þeir
aðalmarkverðir landsliðsins.
Vegleg verðlaun
Hann er ekki af verri endanum leikur bikarkeppni HSÍ fer fram. og eins og kunnugt er eru það
bónusinn sem sigurvegarinn á Leikurinn verður í Laugardals- ValsararogBlikarsemleiðasam-
miðvikudaginn fær þegar úrslita- höllinni og hefst klukkan 20.45 an hesta sína.
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefáns son
Þriðjudagur 12. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9