Þjóðviljinn - 13.04.1988, Síða 6
MINNING
Guðmundur Valgeirsson
Fœddur 12. janúar 1928 - Dáinn 1. apríl 1988
Guðmundur Valgeirsson
verkamaður lést á föstudaginn
langa og var bálför hans sl. föstu-
dag. Guðmundur var fæddur á
Hellissandi, sonur Sigríðar Gísla-
dóttur og Valgeirs Benedikts-
sonar. Guðmundur ólst upp með
móður sinni og yngri systur,
Fjólu, fyrstu æviárin á Sandi í
mikilli örbirgð.
Þegar hann var tíu ára fluttu
þau suður til Reykjavíkur þar
sem móðir hans var fyrirvinna
heimilisins. Um nokkra hríð
bjuggu þau á Nýlendugötu, í lítilli
íbúð á móti annarri fjölskyldu.
Til þess var tekið hve samvistir
þessara fjölskyldna voru snurðu-
lausar, en á fjórða áratugnum
mátti fátækt fólk búa þröngt í
Reykjavík. Guðmundur Valg-
eirsson varð bekkjarbróðir föður
míns Guðmundar Óskarssonar,
sem einnig var ættaður frá Sandi,
eftir að hann flutti suður til
Reykjavíkur. Frá þeim degi er
þeir hittust fyrst bundust þeir vin-
áttuböndum sem aldrei rofnuðu
meðan báðir lifðu.
Móðir Guðmundar missti
snemma heilsuna, og honum var
svo mikið í mun að standa fyrir
heimilinu, að hann mátti varla
ljúka lögbundinni skólagöngu,
og fór að vinna barn að aldri fyrir
fjölskyldunni. Guðmundi þótti
ákaflega vænt um systur sína og
móður. Þau urðu fyrir því áfalli
að Fjóla dó eftir barnsfæðingu
aðeins 24 ára að aldri. Barnið,
Fjólar Ólafsson, sem ekki naut
heldur fullrar heilsu, var tekið í
fóstur af föðurbróður sínum,
Sveinbirni Péturssyni og Helgu
konu hans.
Guðmundur virti og dáði þá
fjölskyldu, sem gekk Fjólari í for-
eldra stað og taldi sig standa í
ævarandi þakkarskuld við hana.
Guðmundur hélt heimili, lengi í
Norðurmýri og síðar á Sogavegi,
með móður sinni um áratuga
skeið. Hún og Fjólar létust með
fárra ára millibili eftir 1980. Guð-
mundur vinur hans lést 1970 rúm-
lega fertugur, og þegar margir
honum svo nákomnir höfðu yfir-
gefið þessa veröld, flestir fyrir
aldur fram, var eins og hann væri
hálfur allur. í minningargrein
sem Guðmundur Valgeirsson
skrifaði um vin sinn, vitnaði hann
í Stein Steinarr: „Hvort er ég
heldur hann sem eftir lifir/ eða
hinn sem dó?“
Guðmundur Valgeirsson var
fæddur með líkamslýti, hann var
holgóma, og leið önn fyrir það í
bernsku. Hann var fljúgandi
greindur maður og vandaði
tungutak sitt, en fötlun hans
hamlaði því að margir nytu þess,
því hann var ekki margmáll í fjöl-
menni, hann forðaðist fjölmenni.
Guðmundur vann lengi í Sæn-
ska frystihúsinu og í frystihúsinu
á Kirkjusandi þar sem hann var
verkstjóri. Síðustu árin vann
hann við sútun hjá Sláturfélagi
Suðurlands. Hann var einlægur
sósíalisti framan af árum og
gegndi á sínum tíma trúnaðar-
störfum fyrir stéttarfélag sitt,
verkamannafélagið Dagsbrún.
Árum saman var Guðmundur
daglegur förunautur fjölskyldu
minnar og þeir nafnar og vinir
sátu löngum á hljóðskrafi um
pólitík og lífstilvist fram eftir
kvöldum. Fyrir þessum mönnum
var hátíð þegar út kom bók eftir
Halldór Laxness og þeir undu sér
við ljóðalestur til hvíldar frá am-
stri dagsins.
Guðmundur var dulur maður,
og allt að því einfari síðustu árin.
Það fór ekki mikið fyrir Guðm-
undi Valgeirssyni, en þeim sem
kynntust honum duldist ekki, að
þar fór fjöllesinn maður og víð-
fróður. Hann sá alla tíð eftir að
geta ekki menntað sig í skólum,
en á hinn bóginn aflaði hann sér
sjálfsmenntunar sem geislaði af
honum á góðum stundum. Skóli
lífsins var honum líka nógu drjúg-
ur - og harður. Hann tileinkaði
sér ákveðna tegund kaldhæðni í
fasi, sem þó var aldrei þykkari
brynja en svo, að vinir hans og
ættingjar nutu alúðar hans og
hlýju. Hann var einn þeirra
manna, sem fólk fékk á tilfinn-
inguna að væri skáld, þótt fáir
vissu til þess að hann skrifaði. En
samt orti hann.
Einhvern veginn kaus Guð-
mundur Valgeirsson verkamaður
sér einsemdina umfram heimsins
prjál og tildur, en hann var snyrti-
menni og Ijúfmenni í viðkynn-
ingu. Guðmundur Valgeirsson
andaðist á heimili sínu á föstu-
daginn langa, nýorðinn sextugur.
Fjölskyldur Sveinbjarnar Péturs-
sonar og Línu Jónsdóttur sýndu
honum mikla ræktarsemi sem
þökkuð er að leiðarlokum.
Hljóður maður og sérstæður hef-
ur horfið sjónum okkar. Fjöl-
skylda mín kveður sinn góða og
eftirminnilega vin.
Oskar Guðmundsson.
Asgeir Benediktsson
Fœddur 4. febrúar 1933 - Dáinn 24. mars 1988
Kveðja frá Kiwanisklúbbnum
Ölver
Með þessum fátæklegu orðum
er ekki meiningin að rekja ævi og
störf Ásgeirs Benediktssonar,
heldur að þakka góðum félaga
samstarfið í Kiwanisklúbbnum
Ölver í Þorlákshöfn.
Þegar farið var að ræða stofnun
klúbbs í Þorlákshöfn, var Ásgeir
ásamt fjölskyldu sinni nýlega
fluttur til Þorlákshafnar. Þótt
hann hefði ekki búið hér lengi,
var það eðlilegur hlutur að hann
væri einn af þeim sem stóðu að
stofnun Ölvers, þar sem hann
hafði mikinn áhuga á félagsstörf-
um og vildi hafa áhrif á mannlífið
í kringum sig og breyta því til
betri vegar. Ásgeir heitinn varð
því einn af stofnendum Ölvers og
starfaði í klúbbnum til dauða-
dags.
Hann setti oft svip á fundi
klúbbsins með ræðum sínum um
hin ýmsu málefni sem þar voru
rædd, því ekkert mál var svo
ómerkilegt að hann hefði ekki
skoðun á því, og skoðunum sín-
um hélt Ásgeir alltaf fram af ein-
urð og festu, en blandaði mál sitt
oft kímni sem honum lá svo létt á
tungu og vakti hlátur og létti lund
okkar félaganna. Og ekki má
gleyma þeim stundum þegar
ástæða þótti til að taka fram
harmónikuna, var þá Ásgeir
hrókur alls fagnaðar.
Um störf Ásgeirs fyrir Kiwan-
ishreyfinguna þarf ekki að fjöl-
yrða, þau voru mörg, og þeir sem
þekktu Ásgeir Benediktsson vita
að hann tók aldrei að sér starf,
nema vinna það vel.
Við kveðjum góðan félaga
með söknuði og þakklæti fyrir
samstarfið. Eiginkonu og öðrum
aðstandendum viljum við votta
samúð okkar og hluttekningu,
þótt erfitt sé að orða þær tilfinn-
ingar sem við vildum koma á
framfæri.
Því:
Félagar í Kiwanisklúbbnum Ölver
Við erum svo fátæk af orðunum oft
sem yl mœttu veita og birtu
en minningu munum við halda á loft,
um manninn sem allir virtu.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður hald-
inn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, á morgun
fimmtudaginn 14. apríl 1988 og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram til-
laga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða
afhentir á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf
VIÐHORF
—i
Nú á Þyrnirós að vakna
Framhald af bls. 5
„...Sú tilraun, sem gerð var í
desember með sólstöðusamning-
unum til að hækka lægstu launin
umfram önnur laun er einnig
þessa dagana sem óðast að renna
út í sandinn. En hvaða ráð hafa
þá konurnar?...“
Svona hugsun getur ekki
skotið upp kollinum nema hjá
þeim, sem eru algerlega staðnað-
ir í einhverju kerfi eða lögmáli,
sem líkast til má ekki breyta. En
svarið við þessu er einfalt og
sannarlega orðið tímabært: Setja
þarf lög um skiptingu þjóðar-
tekna. Það á ekki að siga þeim
lægst launuðu út í að hækka
launin hjá þeim, sem hafa yfrið
nóg fyrir. Fleira mætti tína til í
ummælum ritstjórans, en ég
geymi það.
Islenskur verkalýður! Nú er
komið að ykkur að spyrna við fót-
um. Það er Ijóst, að sú jafnaðar-
stefna sem rekin hefur verið og
leiða átti verkafólk til réttlátara
þjóðfélags hefur brugðist. Hinir
gömlu flokkar gleymdu fólkinu,
sem skapar verðmætin handa
þjóðarbúinu, gleymdu því í mál-
æði um mistök annarra áratuga
aftur í tímann eða við að afla sér
fylgis á einhverjum kennisetning-
um hagspekinga um „ábyrga
þjóðarsátt“ eða eitthvað á þeim
nótum, svo kotkarlar og fiskkell-
ingar létu sér ekki til hugar koma
nokkrar efasemdir um ágæti
slíkrar sáttar.
En nú er mótefni fundið gegn
þessari villu. Ekki er ég þó tals-
maður þess, að kvenþjóðin eigi
að róa eingöngu á annað borð
þjóðarskútunnar. Því fer fjarri.
Slíkur róður yrði með tfð og tíma
„kellingaróður" og þykir góðum
sjómönnum hann slakur. Nú hafa
konurnar unnið slíkt þjóðþrifa-
verk, og með því skipað sér á
bekk með helstu brautryðjend-
um sögunnar, að þær mega ekki
lokast inni í einhverjum fíla-
beinsturni í framhaldinu.
Nú er augljóst að hverju stefna
ber fyrir raunverulega sósíalista.
Fyrir næstu kosningar verða þeir
að vera búnir að stofna sterk
samtök, sem bjóði fram um allt
land. Skiptir ekki máli hvar í
flokki þeir standa í dag. Þessi
nýju samtök eiga að taka hönd-
um saman og láta á ný hljóma í
orði og verki: FRELSI, JAFN-
RÉTTI, BRÆÐRALAG. Það
yrði sú eina og sanna þjóðarsátt,
sem enginn þarf að bera kinnroða
fyrir.
(Ritað í byrjun einmánaðar)
Guðjón Sveinsson er rithöfundur,
Hann býr á Breiðdalsvík.
6 SÍÐA — PJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. apríl 1988