Þjóðviljinn - 13.04.1988, Blaðsíða 9
Fóstbræðraheimilið bakatil. Þarna kemur gæsluvöllur með tíð og tíma, eða alltént er ýjað að þvi í
hverfaskipulaginu. Hverfið byggðist fyrir löngu - sjáið bara hávaxin trén - og má af því marka ómælt
langlundargeð íbúanna gagnvart þessu „opna leiksvæði." Mynd: Sig.
Hálfköruð höfuðborg
Reykjavík er rjóð og fin, eins
og stendur í skemmtilegri, leir-
borinni vísu sem þeir klömbruðu
saman Halldór og Þórbergur
meðan þeir voru að klofa yfir
gaddavírsgirðingu í Vatnsmýr-
inni í eina tíð, og það er aldrei
nema satt: Alltént er forsetahliðin
í góðu lagi eins og kynningar-
bæklingarnir sanna, en það orð
varð til á árdögum lýðveldisins er
nýkjörinn forseti fór í yfirreið um
landið. í tilefni þess flikkuðu
bændur margir hverjir upp á út-
litið á bæjum sínum, en ýmsum
þótti nóg að gert er sá parturinn
sem sneri að þjóðvegi var orðinn
fínn. Þetta var kallað að mála
forsetahliðina.
Borgaryfirvöld eru löngu búin
að mála forsetahliðina, en að
öðru leyti er yfirbragð borgarinn-
ar afskaplega hálfkarað. Svo
mjög reyndar að þetta er eitt af
hennar sterkustu einkennum, og
þarf ekkert gests auga til. Nýtt
aðalskipulag fyrir Reykjavík var
samþykkt í fyrra, og jafnhliða því
nýtt skipulagsstig, svokallað
hverfaskipulag. Eitt af megin-
markmiðum þess er að auka
tengsl almennings og borgaryfir-
valda. Borgin gefur á næstu miss-
erum út breytingakort fyrir hvert
hverfi - það fyrsta er reyndar ný-
komið út og sícal hér með vísað til
viðtals við höfundana í blaðinu í
dag - með áherslu á hvar
breytinga sé að vænta.
Helsti skavankinn á annars
þörfu framtaki sýnist vera sá að
það vantar konkret fram-
kvæmda- og fjármögnunaráætl-
un. Hvernig til tekst ræðst því
ekki síst af því að íbúarnir í hverf-
unum sjálfum séu vakandi fyrir
framkvæmdinni og haldi borgar-
yfirvöldum við efnið. Ekki van-
þörf á því ef tekið er mið af ráð-
hússofstopa meirihlutans í borg-
arstjórn, og má raunar segja að
þær tiltektir allar varpi ömur-
legum skugga á það sem þó á vel
að gera í umhverfismálum og
hverfaskipulagið ber með sér.
Myndirnar hér á síðunni voru
allar teknar í borgarhluta 4 í síð-
ustu viku, en í hverfaskipulaginu
gengur hann undir vinnuheitinu
Norðurbær. Gamalt og gróið
hverfi, en víða umhverfismála-
pottur brotinn þrátt fyrir það.
HS
Davíð Örn á impróvíseruðum róló milli Rauðalækjar og Bugðulækjar.
Jafnvel í grónum hverfum eru mýmörg dæmi um svæði sem hafa
gleymst, jafnvel svo áratugum skiptir fer að verða óhætt að segja.
Frágangur þessa svæðis er á dagskrá hverfaskipulagsins. Mynd: Sig.
Við Sundlaugaveginn. Það er meiningin að flikka upp á þessa ræmu í
sumar, allt frá Laugarásvegi að Laugalæk, og þá verður búið með
flagið atarna með sínum hjólförum og drullupollum. Mynd: Sig.
j BORG OG BYGGÐIR
Umsjón: Hjörleifur Sveinbjörnsson
Áskirkja. Samkvæmt hverfaskipulaginu
er gert ráð fyrir stígagerð og trjáplöntun
á þessum stað. Vonandi að þau tré
verði færri en fleiri; staðurinn er fallegur
eins og hann er. Aftur á móti er sjálfsagt
að liðka fyrir slysalausu vappi með þar
til gerðum stígum. Mynd: Sig.
Miðvikudagur 13. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9