Þjóðviljinn - 13.04.1988, Side 10
Hverfas,
Húsnæði Umhverfi
íbúar
Skipulagspúslið. Hverfaskipulagfjallarfyrstog fremst um húsnæöi, þjónustu, umhverfi, umferðog íbúa, en
í spjallinu hér á opnunni er einkum drepið á umhverfisþáttinn.
Að móta sitt eigið uml
í byrjun apríl í fyrra samþykkti
borgarstjórn nýtt aðalskipulag
fyrir Reykjavík, og gildir það til
ársins 2004. Jafnframt var ákveð-
ið að ráðast í gerð hverfaskipu-
lags. Fyrsti afraksturinn af því
starfí lá fyrir því sem næst réttu
ári seinna, er borgarstjóri og
starfsfólk borgarskipulags
hleyptu nýju hverfaskipulagi
fyrir einn borgarhlutann, þann
fjórða af níu, af stokkunum á
fundi með fréttamönnum í lok
mars sl., en hann tekur til Laug-
arness, Lækja, Teiga, Klepps-
holts, Laugaráss, Sunda, Heima
og Voga.
Hverfaskipulagið er nýtt skip-
ulagsstig, mitt á milli aðalskipu-
lags og deiliskipulags. Það kveð-
ur nánar á um skipulagsþætti
hvers borgarhluta en gert er í að-
alskipulagi, og er áhersla lögð á
hvar breytinga sé að vænta eða
hvar þeirra sé þörf. Hverfaskipu-
lagið setur ekki skipulagsskil-
mála hvað varðar einstakar bygg-
ingar eða breytingar á húsnæði,
heldur eru sett fram leiðbeinandi
markmið. Eða með orðum Da-
víðs Oddssonar, borgarstjóra, á
kynningarfundinum: í hverfa-
skipulagi felst ekki skuldbinding,
heldur vísbending um hvað sé á
döfinni og hvað borgin telji sér
skylt að gera í ákveðnu hverfi og
á tilteknu árabili.
Við gerð hverfaskipulags var
borginni skipt í níu hverfi eða
borgarhluta og þeim gefin eftir-
farandi vinnuheiti:
1. Gamli bærinn
2. Vesturbær
3. Austurbær
4. Norðurbær
5. Suðurbær
6. Breiðholt
7. Árbær og Selás
8. Grafarvogur
9. Borgarholt
Drög að fyrirliggjandi hverfa-
skipulagi fyrir borgarhluta 4 voru
unnin á Borgarskipulagi Reykja-
víkur í náinni samvinnu við um-
ferðardeild Borgarverkfræðings
ásamt öðrum aðilum sem fara
með skipulagsmál. Drögin voru
síðan kynnt á fjölmennum fundi í
safnaðarheimili Langholtssóknar
í október í fyrra. A fundinum
komu að vonum fram fjölmargar
athugasemdir og ábendingar frá
íbúum hverfisins, og voru þær
hafðar til hliðsjónar við loka-
vinnslu skipulagsins, en hver-
faskipulag fyrir borgarhluta 4 var
síðan samþykkt í borgarráði í
desember.
Eintak af hverfaskipulaginu
hefur nú borist inn á öll heimili í
Við gerð hverfaskipulagsins hefur Reykjavík verið skipt í svokallaða borgarhluta, níu að tölu, en að vonum eru fyrirliggjandi verkefni á hverjum stað mj
heiti þessara borgarhluta eru einungis vinnuheiti.
borgarhlutanum að öllu forfalla-
lausu, en það er á formi cinblöð-
ungs. Birgir H. Sigurðsson,
skipulagsfræðingur, hefur stýrt
hverfaskipulagsvinnunni ásamt
Málfríði Kristiansen, arkítekt.
Við tókum þau tali í síðustu viku
og forvitnuðumst fyrst um hvað-
an hugmyndin að slíkum einblöð-
ungi væri ættuð.
Að ná til fólks
Upphaflega hugmyndin, að út-
búa einblöðung þar sem kort og
greinargerð eru saman á blaði,
mun vera bresk, gott ef ekki
skosk, en okkar útfærsla er einnig
undir nokkrum áhrifum af því
sem gert hefur verið í Skandina-
víu á þessu sviði; aðalatriðið er að
ná til fólks með þessar upplýsing-
ar, og því höfum við lagt áherslu á
að framsetningin sé sem aðgengi-
legust. Þetta sýnist okkur hafa
tekist, eða það vonum við svo
sannarlega. Að minnsta kosti er
óhætt að segja að við höfum heyrt
mikið frá íbúum hverfisins eftir
að einblöðungnum með hverfa-
skipulaginu var dreift; símhring-
ingar og fyrirspurnir.
Með allri virðingu fyrir nýja að-
alskipulaginu fyrir Reykjavík sem
eflaust er hið mœtasta plagg, þá er
það eins og hver annar pési ísam-
anburði við það aðalskipulag sem
áður var í gildi...
Tími þessara stóru, ítarlegu að-
alskipulaga er liðinn. Satt að
segja hefur það gengið afskap-
lega illa að fá fók til að setja sig
inn í aðalskipulagsvinnuna, og
þetta gildir jafnt um Reykjavík
og margar borgir erlendis; í ýms-
um stórborgum eru menn nánast
hættir að reyna að kynna slíkt að-
alskipulag fyrir fólki, en reyna
frekar að ná til félagasamtaka,
hagsmunaaðila og svo framvegis.
Þegar að því kom að gamla að-
alskipulagið frá 1962 skyldi end-
urskoðað, varð sú hugmynd ofan
á að hafa það mun einfaldara að
allri gerð en hið gamla, og jafn-
framt yrði nýju skipulagsstigi,
hverfaskipulagi, skotið inn á milli
aðalskipulags og deiliskipulags.
Aðalskipulagið sýnir eins og
kunnugt er þróun byggðar sam-
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagur 13. apríM988