Þjóðviljinn - 13.04.1988, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 13.04.1988, Qupperneq 17
ERLENDAR FRETTIR 1 Palestína 42 limlestir í gær og 3 skotnir til bana ífyrradag. Sendiherra Bandaríkjastjórnar íJórsölum gagnrýnir ráðamennfyrir hörku í skiptum við uppreisnarmenn Flugránið Frá Kýpur til Alsír 12 gíslar voru látnir lausir í gœrkvöldi í skiptum fyrir eldsneyti Boeing 747 þotan frá Kuwaít sem verið hefur á valdi flugræn- ingja í tíu daga hélt frá Larnaca flugvelli áleiðis til Alsír klukkan 22.17 í gærkveldi að íslenskum tíma. Um borð voru 32 gíslar og 8 hermdar verkamenn. Vélin hafði verið á flugvellin- um á Larnaca frá því henni var flogið frá íran til Kýpur á föstu- daginn. Fyrr í gærkveldi hafði náðst samkomulag við ræningj- ana fyrir milligöngu félaga PLO um að þeir létu tólf gísla lausa gegn því að eldsneyti yrði sett á geyma flugvélarinnar. Ennfrem- ur hafði emímum í Kúwaít tekist að fá alsírska ráðamenn til þess að fallast á að vélin lenti innan vébanda ríkis síns. Hermdarverkamennirnir myrtu tvo gísla sinna í Larnaca, 25 ára gamlan öryggisvörð á laugardaginn og tvítugan bruna- vörð í fyrradag. Báðir voru frá Kuwaít. Ennfremur höfðu þeir lagt hendur á aðra gísla. Það er kunnara en frá þurfi að segja að flugræningjarnir krefjast þess að 17 félagar sínir sem gista dýflissur Kuwaítemírs verði látn- ir lausir. Þeir voru fundnir sekir um að hafa skipulagt sprengju- herferð sem varð sex mönnum að fjörtjóni árið 1983. Reuter/-ks. Skák Sovétmenn í þrem efstu sœtunum á heimsbikar- mótinu í Brussel Anatólí Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, er í feiknastuði á heimsbikarmótinu í skák sem nú fer fram í Briissel. í fyrradag lagði hann Júgóslavann Lubomir Ljubojevic að velli með svðrtu mönnunum og í gærkvöldi sigraði hann Englendinginn Jon- athan Speelman. Aðrir keppendur eru fremur brokkgengir ef Alexander Belj- avskij, landi Karpovs, er undan- skilinn en hann vann Tal í fyrra- dag en gerði jafntefli við Portisch hinn ungverska í gærkvöldi. Kortschnoi átti frí í gær en skák Hollendingsins Jans Timmans og Tals var frestað af orsökum sem oss eru ókunnar. Seirawan sigr- aði heimamanninn Winants en öllum öðrum viðureignum lauk með því að keppendur féllust á að skipta sigrinum, og tapinu, á milli sín. Að loknum tíu umferðum er staða efstu manna þessi: 1. Karp- ov með 7 vinninga úr 10 skákum. 2. Beljavskij með 6 úr 9. 3. Salov (einnig frá Sovétríkjunum) 6 úr 10. 4. Portisch 5,5 úr 9. 5.-7. Lju- bojevic, Nunn og Speelman með 5 úr 9. Reuter/-ks. ísraelskir hermenn slösuðu að minnsta kosti 42 Palestínumenn í gær fyrir þær sakir að mótmæla nauðungarflutningum 8 félaga sinna til Líbanons. Andófið fór fram í heimabæjum útlaganna á Gazasvæðinu í gær. Læknar og hjúkrunarlið sjúkrahúsanna Shifa og Ahli i Gazaborg kváðu mótmælendurna ýmist ciga um sárt að binda af völdum gúmmí- kúlna, barsmíða ellegar gas- eitrunar. Tvítugur Palestínumað- ur hefði verið særður skotsárum í Jabalja flóttamannabúðunum. Hermenn hindruðu för manna inní og útúr þrennum búðum Pal- estínumanna á Gaza ef ske kynni að í harðbakka slægi. Á vesturbakkanum sögðust ís- raelsmenn hafa sært tvo Palest- ínumenn skotsárum eftir að hóp- ur þeirra „setti upp vegartálma og grýtti hermenn með þeim af- leiðingum að liðforingi meiddist lftiilega," einsog talsmaður her- yfirvalda komst að orði. Fjórir af níu bæjarráðs- mönnum Rafah á Gazasvæðinu sögðu af sér í gær. Þeir voru á sínum tíma skipaðir í þessar þegnskyldustöður af ísraelskum ráðamönnum. Hinir óþekktu leiðtogar uppreisnar Palestínu- manna á herteknu svæðunum höfðu sett sig í samband við þessa landa sína og skipað þeim að víkja úr ráðinu. Er það talið stafa af fyrrnefndri brottvikningu átta félaga þeirra úr landi. í Jórsölum gerðist það í gær að sendiherra Bandaríkjanna, Tóm- as nokkur Pickering, setti ofaní við ísraelska ráðamenn. Kvað hann allt of mikilli og óþarfri hörku beitt gegn palestínsku andófsfólki á herteknu spildun- um. Ennfremur næði það ekki nokkurri átt að handteknir mótmælendur skyldu ekki njóta nokkurs réttaröryggis. Aðalritari Sameinuðu þjóð- anna, Javier Perez de Cuellar, sagðist í gær harma brottrekstur áttmenninganna palestínsku úr landi og skoraði á Shamir og fé- laga að endurskoða ákvörðun sína. Hann gagnrýndi ísraels- stjórn ennfremur fyrir að hafa lagt 14 hús í Beítaþorpi í rúst og sagði slík skemmdarverk aðeins auka spennu og líkur á átökum. ísraelska herstjórnin greindi frá því í gær að dátar sínir hefðu skotið 3 Palestínumenn til bana í ísraelskur kylfuberi gætir eins þeirra óteljandi Palestínumanna sem handteknir hafa verið frá því í desember í fyrra. fyrrakvöld. Að þeim meðtöldum hafa nú 140 Palestínumenn fallið frá því uppreisnin hófst fyrir fjór- um mánuðum. Um 4 þúsund hafa verið teknir höndum. Þeir eiga ömurlega ævi í ísraelskum fanga- búðum og njóta engrar laga- verndar. Ekki verður tölu komið á alla þá Palestínumenn sem ísra- elsmenn hafa limlest á þessum tíma. Reuter/-ks. Hollywood þar sem keisarans hallir skína Síðasti keisari Bernardos Bertoluccis hreppti níu óskara. Douglas og Cher unnu mestu leikafrekin í ár Síðasti keisarinn, sköpunar- verk ítalska kvikmyndameist- arans Bernardos Bertoluccis, kom sá og sigraði á uppskeruhá- tíð Hollywoodbæjar í fyrrakvöld. Ekki sjaldnar en níu sinnum var ,Jteisarinn“ kvaddur upp á svið til þess að veita viðtöku loga- gylltri eftirmynd Óskars sjálfs. Hann var kjörinn kvikmynda bestur og Bertolucci leikstjóra fremstur. Það kvað vera mjög sjaldgæft að evrópsk kvikmynd slái svo rækilega í gegn í draumaf- abrikkunni vestra. „Mér líður einsog ég hafi feng- ið of stóran lyfjaskammt, hringið á sjúkrabfl,“ sagði hinn kampa- káti en ringlaði og glaði í bragði Bertolucci eftir ósköpin í fyrra- kvöld. Alkunna er að verðlauna- filman fjallar um síðasta keisara Kína, Pu nokkum Jí, sem öðlað- ist ekki hamingju né innri frið fyrr en hann fékk stöðu garð- yrkjumanns í Peking eftir bylt- ingu alþýðunnar. Fyrrum poppstjarna, Cher að nafni, var kjörinn leikkvenna fremst að þessu sinni fyrir afrek sín í „Fullu tungli". Michael Douglas fékk gullstyttu fyrir karl- leik í aðalhlutverki. Hann lék fégráðugan verðbréfabraskara í „Wall Street". Fyrir aukakven- leik fékk Ólympía Dukakis, frænka Michaels, styttu en Sean Connery, James Bond á eftir- launum, var bestur aukakarla. Danska kvikmyndin „Veisla Ba- bettes" varð fyrir valinu sem besta myndin með framandi tungutaki. Cher sagðist þakka förðun- armeistaranaum og hárgreiðslu- dömunni öðrum fremur þessa upphefð en Douglas þakkaði Kirk föður sínum og leikstjóran- um Oliver Stone. „Margir höfðu enga trú á því að ég gæti leikið. “ En „keisarinrí* var og er á allra vörum. Það er ár og dagur síðan ein kvikmynd hreppir svona margar gullstyttur. „Ben Hur“ fékk 11 árið 1959, „West side story" fékk 10 árið 1961 og „Gigi“ fékk 9 árið 1958 einsog „Síðasti keisarinn" nú, réttum þrjátíu árum síðar. f viðtali við ítalska útvarpsstöð í gær sagði Bertolucci að Holly- woodliðið hefði nú loks lært að meta kvikmyndir sem framleidd- ar væru utan vébanda amerísks kvikmyndaiðnaðar. Sjálfur hefði hann til skamms tíma álitið Óskar einhverja dularfulla persónu sem ekki kæmi sér nokkurn skapaðan hlut við. Nafn Bertoluccis var ýmist lofað eða lastað þegar sýningar hófust á „Síðasta Tango í París“ árið 1972. Þar léku sem kunnugt er Marlon Brando og María Schneider afkastamikla elskend- ur í París. Sú mynd var um langt árabil bönnuð á Ítalíu, fósturjörð höfundar. Um fimmtán ára skeið héldust nær óslitnar skúrir á hö- fundarbraut Bertoluccis uns hann gerði „Síðasta keisarann". P.S. Reuter fjallar ávallt um peningahlið sérhvers hlutar og verður farið að óskum hans hér. Gerð „Síðasta keisarans" kostaði 23 miljónir bandarískra dala. Hann hefur á þessari stundu aflað höfundum sínum 100 miljóna dala í Evrópu einni. 15 dalamilj- ónir ættu að öllu óbreyttu að bætast við af völdum óskarsverð- launa. Reuter/-ks. Bernardo Bertolucci hér á árum áður. Áður en Hollywwod virti hann viðlits. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Suður-Afríka Alan Paton latinn Var ætíð andsnúinn kynþáttamisrétti en trúði á mátt sannfœringarinnar í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni Suðurafríski rithöfundurinn og stjórnmálamaðurinn Alan Paton lést í gær á heimili sínu, 85 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Hann var frægastur fyrir skáldsögu sína, „Grát ástkæra fósturmold,“ sem bar hróður hans um heim ailan og vakti athygli manna á ömurlegu hlutskipti þeldökkra í föðurlandi höfundar. „Hann fékk hægt and- lát og var ánægður að fá að deyja á sínu eigin heimili,“ sagði Ann Paton, ekkja rithöfundarins, við fréttamenn í gær. Paton varði lunganum úr ævi- starfi sínu í baráttuna gegn að- skilnaðarstefnu hvíta minnihlut- ans sem hann sagði brjóta í bága við kristna trú sína. Hann var einn af stofnfélögum „Frjáls- lynda flokksins" og lengst af leið- togi hans. Ríkisstjórn „Þjóðar- flokksins“ stóð stuggur af hinum frjálslyndu andstæðingum sínum og lagði blátt bann við starfsemi Alan Paton. flokks þeirra árið 1968. Sama ár var Paton sviptur vegabréfi sínu og fékk hann það ekki á ný fyrr en þrem árum síðar. „Grát ástkæra fósturmold" er saga prests af Zulu ættum. Sonur hans er tekinn höndum og gefið að sök að hafa myrt hvítan mann. í lok bókarinnar eru söguhetj- unni lögð þessi orð í munn: „Eitt er það sem ég óttast öðru fremur; þegar þeir uppgötva ástina og kærleikann einn góðan veðurdag verðum við farnir að hata.“ Paton trúði ætíð á mátt skyn- seminnar. Hann sá ekki aðra leið færa út úr ógöngum föðurlands- ins en þá að telja hvítum vald- höfum hughvarf og leiða þeim fyrir sjónir að gjörðir þeirra væru ekki guði þóknanlegar. Hann var andsnúinn valdbeitingu. Leið- togar Afríska þjóðarráðsins eru sem kunnugt er á öndverðum meiði og atburðir undanfarinna ára og áratuga hafa margsinnis staðfest að þeir hafa rétt fyrir sér, því miður. Reuter /-ks.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.