Þjóðviljinn - 14.04.1988, Page 1
Fimmtudagur 14. apríl 1988 84. tölublað 53. árgangur
Sjá bls. 3
Valsmenn fögnuðu í gær tvöföld-
um sigri meistaratitli í handbolta
þegar þeir unnu Breiðablik nokk-
uð auðveldlega, 25-15, í úrslita-
leik bikarkeppni HSÍ. Valur varð
einnig bikarmeistari í kvenna-
handboltanum, en Valsstúlkur
unnu Stjörnuna 25-20. Mynd
E.ÓI.__________________________
Sjá bls. 15
Sjá bls.13.
Sjá bls. 5
Alþýðubandalagið
Stytbi
vhnutíma
Þingsályktunartillaga um
raunverulega styttingu
vinnutímans
„Vinnuþrældómurinn er eitt
alvarlegasta þjóðfélagsvandamál
á íslandi. Hér á landi vinnur fólk
50 stundir að jafnaði á viku með-
an nágrannamir krefjast 35
stunda vinnuviku,“ segir m.a. í
greinargerð með þingsályktun-
artillögu sem þingmenn Alþýðu-
bandalagsins hafa lagt fram.
Tillagan er í samræmi við meg-
inatriði stjómmálaályktunar síð-
asta landsfundar Alþýðubanda-
lagsins, um að vinnutíminn yrði
styttur.
Ríkisstjórn
nr.40
í gær hlýddi Francesco Cos-
siga, forseti Ítalíu, á 32 ráðherra
ríkisstjórnar Ciriacos de Mita
sverja embættiseiða. Hinn nýi
forsætisráðherra er sextugur lög-
fræðingur og hefur verið formað-
ur Kristilega demókrataflokksins
í sex ár.
VR/Vestmannaeyjar
Samningamir felldir
VerslunarmannafélagReykjavíkurboðar allsherjarverkfallfrá22. apríl. Verkfallií
stórmörkuðum aflýst. Vinnuveitendasambandið með hótanir. Magnús L. Sveinsson: Fólk
sáróánœgt meðþessa lágu kauptaxta. Verkalýðsfélögin íEyjum felldu Akurevrarsamningana.
Vilja semja við heimamenn
Félagar í Verslunarmannafé-
lagi Reykjavíkur felldu í gær í
annað sinn á stuttum tíma ný-
gerða kjarasamninga við vinnu-
veitendur. Um 27% félagsmanna
tóku þátt í ailsherjaratkvæða-
greiðslu og greiddu 1456 atkvæði
gegn samningunum en 1201 með.
Á fundi í trúnaðarmannaráði fé-
lagsins strax að lokinni talningu í
gærkvöldi var samþykkt að aflýsa
boðuðu verkfalli í stórmörkuðum
á höfuðborgarsvæðinu sem taka
átti gildi í dag en boða þess í stað
til allsherjarverkfalls frá og með
föstudeginum 22. april.
Vinnuveitendasambandið
sendi VR bréf í gær þar sem boð-
að verkfall í stórmörkuðum var
lýst ólöglegt. Magnús L. Sveins-
son formaður VR segir bréfið
tómt rugl. Verkfallinu hafi verið
aflýst þar sem mjótt var á munun-
um í atkvæðagreiðslunni og vilji
sé fyrir því að allir standi saman
ef til verkfalls kemur. Meginá-
stæðan fyrir úrslitum kosning-
anna sé sú að verslunarfólk sé
sáróánægt með þau lágu laun sem
því er boðið uppá.
Verkalýðsfélögin í Vest-
mannaeyjum felldu einnig í gær í
sameiginlegri atkvæðagreiðslu
Akureyrarsamningana. 150 voru
á móti en 105 með á fjölmennum
fundi í Alþýðuhúsinu. Elsa Valg-
eirsdóttir varaformaður Snótar
segir að verkafólk í Eyjum sé sár-
óánægt með afstöðu atvinnurek-
enda í bænum sem í engu hafi
svarað kröfum verkalýðsfélag-
anna.
Trúnaðarmannaráð Verslunarmannafélags Reykja-
víkur á fundi sínum í gær þegar samþykkt var að boða
til allsherjarverkfalls frá 22. apríl nk. og í bakvarða-
sveitinnieru baráttuglaðarSnótarkonur. Mynd-E.ÓI.