Þjóðviljinn - 19.04.1988, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.04.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 19. apríl 1988 88. tölublað 53 árgangur Verslunarfólk Hörð áfök framundan * Arangurslausar viðrœðurígœr. MagnúsL. Sveinsson: Verkfall óumflýjanlegt. VíÖtœk áhrif og röskun á atvinnulífi um allt land. Fólk byrjaÖ aÖ hamstra matvörur kvöldi þar sem sumardagurinn fyrsti er á fimmtudag. M mun innanlandsflug leggjast niður þegar á föstudag og utanlands- flug Flugleiða á mánudag. Óvíst er hvort verkfallið hefur áhrif á flug Arnarflugs en flugfélagið er ekki félagi í Vinnuveitendasam- bandinu. Óvíst er hvort dagblöðin koma út eftir fimmtudaginn, en útgef- endur sem og fleiri aðilar, hafa þegar óskað eftir undanþágu frá verkfalli við verkfallsstjórnir verslunarmanna. Ennþá hefur ekki verið boðað- ur nýr samningafundur í vinnu- deilunni og óvíst hvort hann verður haldinn fyrr en á miðviku- dag. Er trú margra að komi til verkfalls geti það hugsanlega staðið út þennan mánuð ef ekki lengur. Sjá bls. 2 Síðasti möguleiki til að geramatarinnkaup fyrir verkfall verslunar- fólkserámorgun, mið- vikudag oggærvar þegarfarið að beraá áhamstriáýmsum matvörum. Eftir að slitnaði upp úr við- ræðum samninganefnda verslun- armanna og VSÍ í gær, er talið víst að til verkfalls verslunar- og skrifstofufólks komi víða um land á föstudag. Verkfallið mun þegar hafa víðtæk áhrif og fyrirtæki og stofnanir eru þegar farin að búa sig undir lokun eða verulega röskun á starfsemi. f gær var þegar farið að bera á hamstri á matvörum í verslunum í höfuðborginni en verslanir verða lokaðar frá og með miðvikudags- Israel Ofbeldið fordæmt Félagið Island-Palestína vill knýja á um friðsamlega lausn Palestínumálsins. SteingrímurHermannsson: Tek undirfordœmingu á ofbeldisaðgerðum Israelsmanna Meðlag Námsmenn höfðu betur Námsmenn hafa unnið sigur í meðlagsmálinu svokallaða. Rík- isstjórnarfulltrúarnir í LÍN hafa þvermóðskast við að telja meðlag sem tekjur og fellt hverja til- löguna á fætur annarri frá náms- mönnum um leiðréttingu. Fulltrúar námsmanna gengu þann 6. aprfl sl. á fund ráðherra og tilkynntu að ef ekki fengist viðunandi lausn myndu náms- mannahreyfingarnar styðja ein- staklinga í málsókn. Ráðherra kallaði þá fulltrúa ríkisins hjá LÍN á sinn fund og hafa þeir nú lagt fram tillögu um leiðréttingu. Sjá bls. 3 Dagvistarmál Ekki staðið við áætlun Við gerð kjarasamninga haust- ið 1980 gengust stjórnvöld inn á að beita sér fyrir því að fullnægt yrði þörf fyrir dagvistarþjónustu barna á næstu 10 árum. í stuttu máli sagt þá hefur áætlun þessi verið svikin. Framlög ríkisins til dagvistarmála hafa farið lækk- andi. Um þessi mál fjallar Hjörleifur Guttormsson í fróðlegri grein. Sjá bls. 6-7 íslensk og bandarísk stjórn- völd eru hvött til að stuðla að friðsamlegri lausn Palestínumáls- ins og að setja áframhaldandi stjórnmálasambandi við fsraels- stjórn ákveðin skilyrði. Áskorun félagsins fsland-Palestína er kjarnyrt og krefjandi. Steingrím- ur Hermannsson utanríkisráð- herra segist taka undir fordæm- ingu á ofbeldisverkum fsraels- manna en að íslenska ríkisstjórn- in styðji samt sem áður tilveru fsraelsríkis. Sjá bls. 3 Alþingi Bjórinn er að koma Þjóðaratkvœðifellt naumlega í hörkuatkvæðgreiðslu á al- þingi í gær var samþykkt í neðri deild sú breyting á áfengislöggjö- finni að hér megi brugga og selja áfengan bjór. Málið fer nú til efri deildar en þar- er talinn meirihluti fyrir bjórnum. Sjá bls. 5 Mótmælastáða félagsins Ísland-Palestína fyrir framan bandaríska sendiráðið. Bandaríkjamenn eru hvattir til að beita sér fyrir frjálsum kosningum á herteknu svæðunum. Mynd. Sig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.