Þjóðviljinn - 21.04.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 21. apríl 1988 90. tölublað 53. órgangur
Fiskvinnslufyrirtæki um allt
land berjast nú í bökkum. Verð-
fall á sjávarafurðum á erlendum
mörkuðum, fastgengis- og vaxta-
stefna stjórnvalda samfara kostn-
aðarhækkunum innanlands gera
rekstur fyrirtækjanna afar erfið-
an. Forráðamenn vinnslunnar
telja að fella þurfi gengi krónunn-
ar í það minnsta um 10%, eins og
staðan er í dag.
Eitt stærsta fiskvinnslufyrir-
tæki landsins, Grandi hf. í
Reykjavík, hefur ákveðið að
segja upp 50 starfsmönnum og
taka uppsagnirnar gildi frá og
með 1. ágúst n.k. Ástæðan er, að
sögn forstjóra fyrirtækisins, fyrir-
sjáanlegur taprekstur. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
má búast við svipuðum aðgerð-
um hjá fiskvinnslufyrirtækjum
um land allt á næstu vikum.
Trúnaðarmaður starfsmanna í
Granda segir þessar aðgerðir
vera heldur kaldar sumarkveðjur
til starfsmanna sem eru hálf lam-
aðir vegna þessa. Mikið óöryggi
er meðal þeirra og óvissa um
hverjir fá reisupassann, en það
verður ekki vitað fyrr en eftir
helgina.
Verkfall
Verkfall á miðnœtti. Atvinnurekendurfá heimild til verkbanns.
Deilaníhnút
Ef ekkert verður gert til að bæta rekstrargrundvöll fiskvinnslunnar frá því sem nú er má gera ráð fyrir því að þessar svuntur standi óhreyfðar
Sjá bls. 3 um ókomna framtíð. Mynd: E.K.
Gamanleikur
ítalskur
lygari í
Þjóðleikhúsinu
í kvöld verður Lygarinn eftir
Goldoni frumsýndur í Þjóðleikhús-
inu, undir stjóm ítalska leikstjórans
Giovanni Pampiglione. Leikurinn
gerist í Feneyjum og segir frá erkil-
ygaranum og flagaranum Lelio og
fleira fólki.
Goldoni er frægur fyrir að hafa
blásið nýju lífi í ítalska gamanleikinn
og er stundum kallaður hinn ítalski
Moliere.
Sjá bls. 6 og 7
Mikil harka virðist vera
hlaupin í deilurnar og hefur fram-
kvæmdastjórn VSÍ fengið heim-
ild til boðunar verkbanns. Ríkis-
sáttasemjari hefur boðað dei-
luaðila á sinn fund kl. 15 í dag en
almennt er búist við að sá fundur
beri engan árangur. Sáttasemjari
mun ekki bera fram sáttatillögu á
fundinum.
Almenningur virðist
sannfærður um að verkfallið
dragist á langinn, eftir inn-
kaupum undanfarinna daga að
dæma. Yfirlýsingar deiluaðila
hafa heldur ekki gefið tilefni til
bjartsýni. Verslunarmenn standa
fast á kröfum um 42 þúsund
króna lágmarkslaun en atvinnu-
rekendur syngja verðbólgusöng-
inn og gefa ekkert eftir.
Sjá bls. 2
Eyðni
Tölfræði-
blekkingin
burt!
RichardH. Rectorer
eyðnisjúklingur. Hann er
að deyja
Rector segir nú vera pólitíska
nauðsyn á samræmdum aðgerð-
um heimsins alls í baráttunni við
eyðni. Hann var fyrst greindur
árið 1982 og hefur starfað frá
1985 með Rauða krossinum að
uppfræðslu um raunveruleik
sjúkdómsins. Tilfinningar ein-
staklinganna á bak við tölurnar.
Sjá bls. 5
Öll verslun og skrifstofustarf-
semi á höfuðborgarsvæðinu og
víðar mun lamast á miðnætti.
Engin lausn er í sjónmáli á deilu
verslunarmanna og atvinnurek-
enda og litlar vonir eru bundnar
við fund sáttasemjara með deilu-
aðilum í dag. Innanlandsflug
leggst meira og minna af á morg-
un og sama er að segja um rútuf-
erðir BSÍ.
Verkfalls-
stjórn
verslunar-
mannaíupp-
hafi fundarí
gaer; tilbúin í
langt stríð og
hvergi
smeyk.
Mynd: Sig.
Verslunin lamast
Fiskvinnslan
Hriktir í undirstöðum
Stórfelldur taprekstur hjáfiskvinnslunni. Ástœðan: Verðfallá erlendum mörkuðum, fastgengis-og
vaxtastefna stjórnvalda. 50 manns sagt upp hjá Granda. Fiskvinnslan kallará gengisfellingu.
Kaldar sumarkveðjur til verkafólks