Þjóðviljinn - 26.04.1988, Síða 1
/ ÍÞRÓTTIR
Verðlaunahafarnir á lokahófi KKl. Frá vinstri: Eyjólfur Sverrisson Tindastól besti lcikmaður
l.deildar, Tómas Holton Val með besta vítanýtingu og í NIKE liðinu, Jón Kr. Gíslason ÍBK í NIKE liðinu,
Guðmundur Bragason ÍR í NIKE liðinu, Magnús Guðfínnsson ÍBK besti nýliðinn í úrvalsdeildinni, Guðni
Guðnason KR í NIKE liðinu, Kristinn Albertsson besti dómarinn, Símon Ólafsson KR prúðasti leikmaður-
inn, Karl Guðlaugsson ÍR með flestar þriggja stiga körfur og Jón Bender efnilegasti dómarinn. Neðri röð frá
vinstri: Marta Guðmundsdóttir UMFG í NIKE liðinu, Herdís Gunnarsdóttir Haukum í NIKE liðinu, Björg
Hafsteinsdóttir ÍBK með flestar þriggja stiga körfur og í NIKE liðinu, Pálmar Sigurðsson Haukum besti
þjálfarinn og í NIKE liðinu, Valur Ingimundarson besti leikmaðurinn í úrvalsdeildinni, stigahæstur og í
NIKE liðinu, Anna María Sveinsdóttir ÍBK besti leikmaður í kvennaflokki, stigahæst í kvennaflokki, með
besta vítanýtingu og í NIKE liðinu og Sólveig Pálsdóttir Haukum í NIKE liðinu, en það lið mætti kalla
körfuboltalið ársins.
Fótbolti
Fram og KR í úrslit
Undanúrslit á Reykjavíkur-
mótinu voru um helgina á gervi-
grasinu.
Á föstudag lögðu KR ingar
Valsmenn að velli með 1-0 sigri
og kom markið í framlengingu
eftir að staðan var jöfn að lokn-
um venjulegum leiktíma. Það var
Sæbjörn Guðmundsson sem
skoraði markið.
Á laugardaginn léku hins vegar
Fram og Víkingar og var sá leikur
markasúpa. Arnljótur Davíðsson
gerði fyrsta mark Fram í fyrri
hálfleik en Atli Einarsson jafnaði
skömmu síðar. Þannig var staðan
að loknum venjulegum leiktíma
og kom því til framlengingar.
Ekkert mark var skorað í fram-
lengingunni og var þá vítaspyrn-
ukeppni. Þar náðu Frammarar að
gera 4 mörk og voru þar að verki
Steinn Guðjónsson, Pétur Arn-
þórsson, Arnljótur Davíðsson og
Guðmundur Steinsson en Vík-
ingar náðu aðeins að skora úr
tveimur spyrnum og gerðu Jó-
hann Þorvarðarson og Jón Odds-
son þau mörk. Leiknum lauk því
með sigri Fram 5-3.
Karfa
ÍBK-stúlkumar
tvöfalda
Unnu Hauka í úrslitaleik á
laugardaginn 76-60
Pýskaland
íslendingamir
markahæstir
Fótbolti
Þór vann
Tictac-mót
Á Akureyri fór fram um síð-
ustu helgi svokallað Tictac mót í
knattspyrnu og áttust þar við
norðanliðin. Fyrstu leikirnir voru
frekar daprir, mikið um lang-
spyrnur og minna um spil en
undir lokin var þó komið sæmi-
legt lag á leikina.
Urslit
Þór-Leiftur...............2-2
KA-Völsungur..............0-0
KA-Leiftur................2-1
Þór-Völsungur............ 1-0
Leiftur-Völsungur.........0-3
Leiftur vann leikinn 2-1 en þar
sem einn leikmanna Leifturs
hafði fengið rautt spjald fyrr í
mótinu en lék samt með, var
leikurinn dæmdur tapaður fyrir
Leiftur.
Þór-KA..................2-0
Milbertshofen-Essen
24-23 (12-10)
Alfreð var eins og svo oft áður
markahæstur með 6 mörk en
Fraatz var næstur með 5.
Gummersbach-
Grosswaldstadt 23-18
Kristján var langmarkahæstur
með 9 mörk og ef marka má stór-
blaðið Kicker var hann einnig
langbestur á vellinum. Gum-
mersbach er nú komið með aðra
höndina á titilinn.
Göppingen-Dortmund
20-19
Þar voru gamlar skyttur í aðal-
hlutverkum, Klempel með 8
mörk og Kovacs með önnur 8.
Dortmund eru svo að segja
fallnir.
Lemko-Dormagen 19-17
Siggi var markahæstur með 6
mörk. Lemko heldur sig nú um
miðja deild sem telst ágætis ár-
angur en næsta keppnistímabil
fara margir af máttarstólpunum
frá liðinu svo að það lítur ekki vel
út.
Kiel-Hofweier 27-24
Það var aldrei spurning hvor
myndi vinna því yfirburðir Kiel
voru algerir þrátt fyrir að mörkin
yrðu ekki fleiri.
Niirnberg-Schwabing
18-14
Þetta voru mikilvæg stig fyrir
Nurnberg því þeir komast nú úr
mestu fallhættunni en Schwabing
eru fallnir.
Dusseldorf-Wallaum
Massenheim 21-19
Palli var ekki með nú og
spilar ekki meir með liðinu
vegna meiðsla sem hann
hlaut.
Handbolti
Handboltaskóli
Miðvikudaginn 25.maí hefst
handboltaskóli Geirs Hallsteins-
sonar og Viðars Símonarsonar og
stendur til þriðjudagsins 31.maí.
Kennsla fer fram í íþróttahúsinu
Strandgötu og á skólamölinni við
Lækjarskóla en heimavistin er í
Flensborgarskóla.
Námskeiðið verður með svip-
uðum hætti og sl. ár, opið öllum á
aldrinum 8 til 16 ára. Þátttöku-
gjald miðað við fullt fæði, heima-
vist og kennslugjald er kr. 9000.
Kennslugjald er kr. 5.500 og
hádegismatur ásamt kennslu-
gjaldi er kr. 6.700. Ef tveir eða
fleiri koma úr sömu fjölskyldunni
er kr. 1.000 afsláttur á hvern.
Krakkar utan af landi verða að
koma sér sjálf á staðinn en hafa
ber í huga möguleika á stvrkjum
frá íþróttafélögum og ÍSÍ til að
standa straum af flugfargjöldum.
Námskeiðið verður sett mið-
vikudaginn 25. maí kl.13.00 og í
lok námskeiðsins fá allir þátttak-
endur viðurkenningarskjöl og
ýmis verðlaun verða veitt.
Hámarksfjöldi þátttakenda er
60 og þurfa þátttökutilkynningar
að berast á póstgíróreikning
nr.50950-7 í pósthúsi Hafnar-
fjarðar fyrir 1. maí. Nánari upp-
lýsingar hjá Geir í síma 91-50900
eða Viðari síma 91-656218.
Eftir leik Gummersbach við
Grosswaldstadt tilkynnti forseti
þeirra fyrrnefndu að félagið hefði
keypt tvær skyttur. Áhorfendur
fögnuðu mikið en síðan runnu á
þá tvær grímur þegar þeir áttuðu
sig á því að þetta þýddi að Krist-
ján yrði látinn fara. Leikmenn
voru ekki ánægðir því þeir vilja
hafa Kristján en ástæðan fyrir
þessum uppskiptum er að öllum
líkindum sú að Kristján myndi
missa af 5 fyrstu leikjunum í
deildinni næsta tímabil vegna Ól-
ympíuleikana og liðið hefur ekki
efni á því.
Kristján var sjálfur ekki
ánægður því hann vill vera áfram
hjá félaginu og hafði beðið fram á
síðustu stundu með að athuga fé-
lagsskipti en hann er nú í við-
ræðum við spánska liðið Tecca en
línur skýrast í því dæmi í næstu
viku.
Körfuboltastúlkurnar héldu
uppi heiðri Keflavíkur þegar þær
unnu Hauka léttilega í úrslita-
leiknum í Laugardalshöllinni.
Þar með hafa þær bæði unnið ís-
landsmeistaratitilinn og Bikar-
meistaratitilinn í ár.
England
Tekið á
fólunum
Á næsta keppnistímabili í Eng-
landi verður tekið mun harðar á
brotum en nú er. Leikmaður sem
sendur er af leikvelli fyrir grófan
leik eða alvarlegt brot fær þriggja
leikja bann í stað tveggja eins og
nú er. Einnig getur lið misst allt
að 3 stig á keppnistímabilinu ef
liðsmenn þess verða uppvísir að
ítrekuðum brotum að sögn ritara
enska knattspyrnusambandsins
Graham Kelly og ritara félags at-
vinnuknattspyrnumanna Gordon
Taylor.
Keflavík byrjaði leikinn af
krafti og komust 12-0 áður en
Haukarnir náðu að svara fyrir
sig. Þær tóku við sér þegar leið á
leikinn þó þær gætu aldrei komist
nálægt að jafna og var staðan í
leikhléi 41-25.
Keflvíkingar komust í 47-25
strax í síðari hálfleik og fóru þá að
slaka á, settu varaliðið inná því
sigurinn var öruggur. Hauka-
stúlkurnar náðu samt að minnka
muninn undir lokin en stórsigur
var staðreynd 76-60.
Leikurinn var á köflum
skemmtilegur á að horfa og 9
þriggja stiga körfur voru gerðar í
leiknum. Björg Hafsteinsdóttir
var best í liði Keflavíkur og var
stigahæst með 25 stig en í Hauka-
liðinu var stigahæst Herdís
Gunnarsdóttir með 15.
I kvöld
Gervigras kl.20.30
Þróttur-Armann í Reykjavíkur-
mótinu.
Njarðvíkingar fagna innilega að leikslokum á laugardaginn þegar þeir
höfðu unnið KR eftir spennandi lokamínútur 103-104 í úrslitaleik bikar-
keppni Körfuboltasambandsins. Það voru nokkrar sárabætur fyrir að
hafa misst íslandsmeistaratitilinn yfir til Hauka fyrir skömmu.
Sjá nánar um leikinn á bls.10
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefáns son
Þriðjudagur 26. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9