Þjóðviljinn - 30.04.1988, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 30.04.1988, Blaðsíða 4
LEIÐARI VR VERKFALL Fyrsti maí Fyrsti maí er á morgun. Þeir fjórir mánuöir sem liönir eru af árinu hafa ööru fremur einkennst af stööugum átökum um kaup og kjör í samfélaginu, átökum þar sem hver hópur launamanna hefur tekiö viö af öðrum í baráttunni og hefur aö breyttu breytanda haft uppi sömu kröfur: mannsæmandi laun, jafnrétti til lífsgæða, samfé- lag sem mótast af hagsmunum og þörfum þeirra sem eiga sér þá eign dýrasta sem felst í eigin vinnuafli. Tilviljun ræður svo því aö einmitt á morgun, fyrsta maí, veröur Ijóst hvernig fer um síöustu lotu þessara átaka, verkfall verslunarmanna, sem hefur veriö miklu harðara og einbeittara en menn óraöi fyrir. Þá kemur í Ijós hvort miölunartillaga sátta- semjara veröur samþykkt eöa felld í félögunum. Utlitiö er reyndar þannig áður en atkvæðagreiöslan er öll aö ekki þurfi aö spyrja um sjálf úrslitin heldur hvort sú kjörsókn næst sem sett er aö lagaskilyrði fyrir því aö launamenn geti fellt tillöguna. Hin allströngu skilyröi um kjörsókn gera vald sáttasemjara töluvert gagnvart launamönnum, og ættu því aö auka á varúö og aðgæslu hjá sáttasemjara þegar miðlunartillaga er undirbú- in. Sú sem nú er verið aö greiöa atkvæöi um viröist byggö fyrst og fremst á forsendum atvinnurekenda, - fyrir utan nánast tæknilega galla sem VSÍ-menn fengust ekki til aö leiðrétta. Tillagan verður ekki til að auka virðingu sáttasemjara, og er raunar á skjön viö orðstír hans í vinnudeilum hingaötil. Sáttasemjara getur hinsvegar veriö þaö huggun harmi gegn aö veröi tillaga hans felld má finna því fleiri ástæöur en hans handvömm. Verkfall verslunarmanna hefur nefnilega veriö einstætt um margt, og nú síðustu daga og dægur hafa oröið þau tíðindi stór aö miöstjórnartaumar VSÍ-forystunnar eru aö slakna, - margir smærri atvinnurekendur innan sambandsins og utan hafa samiö viö verslunarmannafélögin, og munar auövitaö mest um annað flugfélaganna, Arnarflug. Þetta er stórsigur fyrir verslunarmenn. Ekki aðeins vegna þess aö þessir sérsamningar sýna aö verkfallsaðgeröir þeirra hafa verið vel skipulagöar og þróttmiklar í krafti öflugri sam- stööu en spáö var fyrirfram, - heldur líka vegna þess aö sérsamningarnir styöja beinlínis rök verslunarmanna fyrir meginkröfum sínum - og annarra verkalýösfélaga - um lág- markslaun við skattleysismörkin. í rauninni eru það forsvarsmenn örfárra fyrirtækja í verslun og þjónustu sem bera ábyrgö á verkfallinu, - þeirra sem ekki vilja borga þessi lágmarkslaun. Yfirgnæfandi meirihluti fyrir- tækja í þessari atvinnugrein er reiðubúinn aö greiöa þessi laun, enda gera mjög mörg þeirra þaö þegar. Ýmislegt bendir því til aö verslunarmenn hafi engu aö tapa með því aö fella miðlunartillögu sáttasemjara, og fari svo er enn meiri ástæöa fyrir alla launamenn aö sýna stuðning sinn í verki fyrsta maí. Líklegt er aö verkfall verslunarmanna verði mönnum efst í huga á morgun. Þaö er þó rétt aö gleyma því ekki aö víðar eru launamenn í kjarabaráttu. Úti í Eyjum stendur verkafólk vaktina meö fágætu þolgæði, og kennarar eiga í erfiðum viðræöum viö fjandsamlegt ríkisvald. Hugur okkar á fyrsta maí er meö þeim sem standa í eldlín- unni. En á baráttudegi verkalýðsins í ár hljóta menn einnig aö gaumgæfa þær áherslubreytingar sem nú eru að verða í kjara- baráttunni, þær nýju leiðir sem fólkiö á vinnustöðunum hefur veriö að marka, bæöi um baráttuaðferðir og í skipulagsmálum. Á hvorutveggja sviðinu hafa hin formlegu samtök verið stirö- busaleg, og raunar oft ekki Ijóst hvaða hugmynd forystumenn þeirra hafa um eigið hlutverk eöa vilja umbjóöenda sína. En þaö er um forystumenn aö segja aö þeir eiga aö vera til fyrir liösmennina en ekki öfugt. Þjóðviljinn hvetur lesendur sína til aö taka þátt í göngum morgundagsins og fundum, sýna stuðning sinn við félagana í kjaraslagnum og leggja liö hugsjónum dagsins um réttlátt samfélag frjálsra manna. í Reykjavík er gengið frá Hlemmtorgi klukkan tvö. -m Böðvar Pétursson á kjörstað í Verzlunarskólanum í gær. Hann vill deildaskipta félaginu og að samningsgerðin fari fram á vegum sérsviðanna, en þau yrðu; skrifstofufólk, afgreiðslu- fólk og starfsfólk í ferðaþjónustu. Mynd Sig. Baráttan þjappar saman Vandi verkalýðsfélaganna mikill. Verkfallið þjapparfé- lögum í VR saman - Ætli við verðum ekki í verkfallsvörslu á 1. maí, ég væri ekki hissa á því, segir Böðvar Pétursson. Hann hefur verið í stjórn VR um áratugaskeið og er nú verkfallsvörður hjá VR og í kjörstjórn félagsins. Böðvar var félagi í VR áður en félagið varð að launþegafélagi 1955 og hefur tekið þátt í fimm verkföllum með félaginu. Hann vill breyta 1. maí-hátíðahöldunum og gera þau að meiri vettvangi verkalýðsbaráttu en nú er. Hann vill meira líf; fjölbreytilegri fígúrur, meiri söng, meiri hluttekningu verkalýðs- félganna í bænum og fleira gott. - Vandi verkalýðsfélaganna er mikill, segir Böðvar, og almennt eiga fjölmenn fé'lög erfiðara með að halda góðum tengslum við sína félagsmenn. Sem betur fer hefur barátta síðustu daga þjappað félögum í VR mikið saman og samskipti milli forystu og almennra félaga verið góð. Þegar til lengri tíma er litið þá vil ég að félaginu verði deildaskipt þannig að skrifstofufólk verði sér, afgreiðslufólk sér og starfsfólk í ferðaþjónustu sér. Ég held það skapi grundvöll fyrir betri tengslum innan félagsins. - Vöxturinn í þjónustugreinunum hefur orðið til þess að vægi VR eykst í raun dag frá degi og við erum að verða að mun sterkari málsvara launafólks en verið hefur svo við verðum að standa okkur núna, það er ekkert sem heitir, segir Böðvar. -tt Ragnheiður Sigurðar- dóttir, lyfjatæknirsegir miðlunartillöguna ekki standa undir nafni þar sem hún taki ekki undir sjónarmið beggja deiluaðila. Helgi Baldvinsson, starfsmaður hjá Sam- vinnutryggingum er afar óhress með miðl- unartillöguna og segir hana vera móðgandi í garð skrifstofufólks. Miðlunartillagan Almem óánægja Mikil kjörsókn víðast hvar á landinu. Úrslit verða kunn íkvöld. Helgi Baldvinsson: Tillagan er móðgun við skrifstofufólk. Ragn- heiður Sigurðardóttir: Tillagan stendur ekki undir nafni Helgi sagðist ekki hafa starfað á verkfalls- vakt þjá VR en hann sagðist vel skilja sjón- armið afgreiðslufólksins sem væri á lágum launum og vildi fá hækkun. En hann lagði jafnframt áherslu á það að skrifstofufólkið ætti ekki lengur samleið með því og sagði að tími væri kominn á að skifta VR upp í deildir eftir störfum félagsmanna. Aðspurður hvort verkfallið hefði komið við budduna sagði Helgi svo vera og bætti því viö að það hefði engin efni á því að vera í verkfalli nú á tímum og sagði að fólk væri búið að fá leið á verkföllum; allavega væri hann búinn að fá nóg. Ragnheiður Sigurðardóttir, starfar sem lyfjatæknir hjá Laugarnesapóteki og hefur staðið verkfallsvaktir með félögum sínum í VR. Hún sagðist vera afar óánægð með miðl- unartillöguna sem hún sagði ekki standa undir nafni þar sem slík tillaga ætti að taka mið af sjónarmiðum beggja deiluaðila. Hún sagði að þrátt fyrir að hún væri lyfja- tæknir hefði hún stutt við bakið á félögum sínum sem hún sagði vera skyldu sína sem félagsmann í VR. Því það væri borðliggjandi fyrir félagið og lífsnauðsynlegt að félagar þess störfuðu saman í verkfalli, ef einhver árangur ætti að nást. Hún sagðist vera sárust yfir því hve margir félagar VR hefðu brugðist í verkfallinu. Nóg væri að etja kappi við vinn- uveitendur þó ekki þyrfti að slást við eigin félaga sem stæðu í verkfallsbrotum. -grh þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltstjórar:Árni Bergmann, MörðurÁrnason, ÓttarProppé. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, MagnfríðurJúlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, Ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson (íþr.).Sævar Guðbjörnsson, Tómas Tómasson, Þorfinnur ómarsson (íþr.). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitsteiknarar: Garðar Sigvaldason, Margrét Magnúsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýslngastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, Unnur Ágústsdóttir. Símavarsla: HannaÓlafsdóttir, Sigríöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, HrefnaMagnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprenthf. Verð í lausasölu: 60 kr. Helgarblöð:70 kr. Áskriftarverð á mánuði: 700 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. apríl 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.