Þjóðviljinn - 30.04.1988, Síða 6

Þjóðviljinn - 30.04.1988, Síða 6
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Guðlaugur Svavar Alþýðubandalagið Ólafsfirði 1. maí samkoma Alþýðubandalagið Ólafsfirði verður með 1. maí samkomu í Tjarnarborg á sunnudaginn kl. 15.00. Ræðumaður: Svavar Gestsson alþingismaður Uþþlestur: Guðlaugur Arason rlthöfundur Söngur: Kristján Hjaltason Kaffiveitingar allir velkomnir. Veiðifélag Elliðavatns Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliða- vatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörg, unglingar (12-16 ára) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið afhent veiðileyfi án greiðslu. Veiðifélag Elliðavatns Útboð W'S/Æ W Eyrarbakkavegur frá Hraun- skeiði að Þorlákshafnarvegi w Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum I ofangreint ~ verk. Lengd vegarkafla 4,5 km, fylling og burðarlag 70.000 m3 og sprengingar 1.600 m3. Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 1988. Útboðsgögn varða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borg- artúni 5, 105 Reykjavík og Breiðumýri 2, 800 Selfossi frá og með mánudeginum 2. maí 1988. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 16. maí 1988. Vegamálastjóri Tilkynning til vörsluaðila opinberra sjóða Hér með er skorað á alla vörsluaðila opin- berra sjóða, sem enn hafa eigi sent ársupp- gjör til ársloka 1987, að gera það nú þegar. Ríkisendurskoðun 29. apríl 1988 Eiginmaður minn Ragnar Á. Sigurðsson sparisjóðsstjóri lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þann 29. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Lundberg Amnesty International Áskorun Verkamenn, bændur og verka- lýðsleiðtogar eru meðal þúsunda samviskufanga og fórnarlamba pyndinga og líflátsdóma um ger- valla heimsbyggðina. Margir hafa verið fangelsaðir og þeim misþyrmt vegna þess eins, að þeir neyttu mannréttinda sinna með friðsamlegum hætti, þeirra á meðai grundvallarréttinda verkalýðsfélaga. í löndum með sundurleitustu stjórnkerfi í sundurleitustu pört- um heimsins þjást þúsundir fórn- arlamba vegna grimmilegrar, ómanneskjulegrar og niðurlægj- andi meðferðar. Mörg þessara fórnarlamba hafa hvorki hvorki verið dregin fyrir rétt né dæmd og geta átt fyrir höndum löng ár innilokunar án þess að vita frá einum degi til annars, hvort þau verða látin laus - eða leidd fyrir aftökusveit. Enn önnur fórnar- lömb þjást vegna þess að þau vita með vissu, hvenær þau eiga að deyja. Þau hafa verið dæmd til lífláts og ríkisvaldið hefur til- kynnt þeim bæði dánardægur og líflátsaðferðina. Margir pólitískir fangar eru hámenntaðir; aðrir eru forustu- menn í stjórnmálum sem lent hafa upp á kant við ríkjandi valdamenn. En langstærsti hlutinn eru venjulegir karlar og konur sem eiga fáa eða enga vini í öðrum löndum, er tekið gætu málstað þeira. Bjargfastar sannfæringar þeirra, trúnaður þeirra við hugsjónir verkalýðs- hreyfingarinnar og sú óheppni að vera á röngum stað á röngum tíma, allt getur þetta leitt til þess að þau verði að horfast í augu viðhandtöku, pyndingar, og jafnvel „hvarf“ og dauða. Amnesty International var komið á fót árið 1961 í því skyni að koma í veg fyrir, að þetta fólk verði „gleymd" fórnarlömb. Frá öndverðu hafa samtökin leitað eftir náinni samvinnu við aðra að- ila, sem voru að starfi á sviði mannréttinda og verkalýðsrétt- inda löngu áður en þau voru stofnuð. Amnesty International lítur á það sem höfuðhlutverk sitt að safna réttum upplýsingum og láta félaga sína um heim allan koma þeim rétta boðleið til yfir- valda og hvetja aðra til að nota upplýsingarnar í sama skyni. í krafti liðsstyrks síns og áhrifa- valds grípur Amnesty Internatio- nal til sérstakra aðgerða og sendir áskoranir; en veigamikið atriði er að fá jafnvel enn stærri stuðnings- hópa til að vinna með eigin að- ferðum í þágu þessara fórnar- lamba. Einungis með því að kveðja til fjöldahreyfingar og koma til leiðar víðtækum aðgerð- um getum við gert okkur vonir um að fá verndað þá einstaklinga sem eru hjálparþurfi. Þar eð samstaða hefur jafnan verið veigamikill þáttur í viðleitni verkalýðshreyfingarinnar, hefur Amnesty Inernational frá upp- hafi átt vísa velviljaða eftirtekt verkalýðsleiðtoga, þegar greint hefur verið frá fangelsuðum verkamönnum um heim allan, sem þörfnuðust hjálpar þeirra. Amnesty International skorar á félagi sína og verkalýðsfélög um heim allan að láta þessi tilteknu mál til sín taka, einkanlega í til- efni alþjóðadags verkamanna 1. maí 1988. Askoranir sendar stjórnvöldum munu bæði hjálpa þeim einstaklingum sem í hlut eiga og minna ráðamenn á, að enginn er gleymdur. Með hliðsjón af því, að í ár eru liðin 40 ár síðan Mannréttinda- yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna tók gildi, vill Amnesty Internat- ional leggja sérstaka áherslu á að verkalýðshreyfingar um heim all- an taki undir þá alþjóðlegu áskorun, að ríkisstjórnir sjái sóma sinn í að standa við þau lof- orð, sem voru svo auðveldlega gefin, en svo oftlega virt að vett- ugi. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Kópavogi Morgunkaffi ABK Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi og Pétur Már Ólafsson fulltrúi í tóm- stundaráði verða með heitt á könnunni í Þinghól, Hamraborg 11, laugar- daginn 30. apríl klukkan 10-12. Allir velkomnir Stjórnin Alþýðubandalagið Skagafirði Opið hús í Villa Nova Alþýðubandalagið í Skagafirði verður með opið hús í Villa Nova þann 1. maí frá kl. 15-19. Ragnar Arnalds alþingismaður ræðir stjórnmálaviðhorfin. Kaffiveitingar, allir velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið Kjósarsýslu Felagsheimili vígt 1. maí Félagsheimili Alþýðubandalagsins i Kjósarsýslu verður formlega vígt sunn- udaginn 1. maí kl. 17.00 Hið nýja félagsheimili er að Urðarholti 4, 3ju hæð Mosfellsbæ. Gengið inn frá Þverholti. Allir félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að láta sjá sig og fagna þessum áfanga í sögu félagsins. Stjórnin Vlðar Blma Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Baráttusamkoma 1. maí AlþýðuPandalagið í Hafnarfirði heldur baráttusamkomu í Skálanum Strandgötu 41, á baráttudegi verkafólks sunnudaginn 1. maí frá kl. 15-17. Ræða dagsins: Birna Þórðardóttir félagi í VR. Upplestur: Viðar Eggertsson leikari. Kaffiveitingar. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið Reykjavík Aðalfundur 2. deildar Aðalfundur í 2. deild ABR verður haldinn mánudaginn 2. maí kl. 20.30 að Skarphéðinsgötu 20, 2. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin PP 0 Margrét Hörður Sigurjón Alþýðubandalagið Reykjavík 1. maí-kaffi ABR Alþýðubandalagið í Reykjavík verður að venju með opið hús að Hverfisgötu 105 1. maí. Húsið opnar kl. 14.30. Ávörp flytja: Margrét Björnsdóttir ritari Sóknar, Hörður Oddfríðarson í samninganefnd VR. Sigurjón Pétursson form. framkvst. AB. Jasstríó Tómasar Einarssonar leikur. Félagið fjölmennið og munið að taka með ykkur kökur. Stjórnin Alþýðubandalagið Reykjavík Aðalfundur 3. deildar Aðalfundur 3. delldar ABR verður haldinn miðvikudaginn 4. maí kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Árni Bergmann AB Keflavík og Njarðvík Ólafur Ragnar Fundur 1. maí 1. maí-fundur verður haldinn á Víkinni, húsi verkalýðsfélaganna við Hafn- argötu 80 sunnudaginn 1. maí kl. 20.30 Aðalræða kvöldsins: Árni Bergmann ritstjóri Þjóðviljans. Upplestur: Jón Stefánsson les úr nýrri bók sinni. Erindi: Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins: Launa- stefna Alþýðubandalagsins. Kaffiveitingar. Félagar hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.