Þjóðviljinn - 30.04.1988, Qupperneq 7
Jesse L. Byock
flytur erindi
um þjóðveldið,
völd og vinfengi
á aðalfundi
Sögufélagsins
í dag
Þjóðveldisöld
Jesse L. Byock. - Mynd Sig. Mar.
„Vinfengi skipti höfuðmáli"
L/
MEDIEVAL
ICELAND
Society, Sagas,
and
Power
J
.. — —i
JESSE L. BYOCK
Titil-
síðaó-
útgef-
innar
bókar
próf-
essors
Byo-
cks.
Gullöld íslensks þjóöernis.
Löngum var því slegið föstu
aö þá hafi hetjurnar riöið um
héruð gg gætt sóma síns og
réttar. íslendingasögurnar
greindu frá hamrömmu stór-
menni sem iöulega veitti betur
í glímunni við ofurefli því stofn-
inn varstyrkur. Menntrúðu
hverju orði sem í þeim stóð.
„Sagnfesta". Þvínæst varð
„bókfesta" lausnarorðið. ís-
lendingasögurværu umfram
alltskáldskapur, sköpunar-
verk hámenntaðra snillinga.
Ungir bókmenntafræðingar
gefa þær út með nútímastaf-
setningu. Sérhver íslendingur
á því kost á því að lesa þær
sértil skemmtunar. Aukið
or'ðaforða sinn í leiðinni og
munekkiafveita.
Nú ríkir „nýsagnfestan". Þótt
þorri manna kæri sig kollóttan
um sannfræði íslendingasagna á
það vitaskuld ekki við um sögu-
spekinga, eða svonefnda mið-
aldafræðinga. Pegar Jón Jóhann-
esson hafði nýlokið ritun fyrsta
bindis „íslendingasögu" sinnar
innti Jónas Kristjánsson hann
eftir afstöðu sinni til íslendinga-
sagna; hvort þær væru bara skáld-
skapur í hans augum. Svarið kom
að bragði: „Nei, alls ekki, en ég
veit bara ekki hvað ég á að gera
við þær.“
Það veit hinsvegar Bandaríkja-
maðurinn Jesse Byock. Byock er
kominn hingað alla leið frá Los
Angeles en þar gegnir hann próf-
essorsstöðu í forníslensku og
miðaldafræðum við Kaliforníu-
háskóla. Hann er gestur Sögufél-
agsins og flytur erindi á aðalfundi
þess í dag sem hefst stundvíslega
klukkan 2 í Duushúsi við Fisc-
hersund.
Byock leitar sannleikans í fs-
lendingasögum og telur þær
koma sagnfræðingum að góðum
notum við rannsókn á þjóðveld-
inu. Hann segir að gjalda beri
varhuga við „staðreyndum"
þeirra en kanna þeim mun betur
þjóðfélagsgerðina og siðferðileg
gildi í skiptum manna. Byock
nýtir vel þekkingu sína á mann-
fræði og lögfræði ekki síður en
sagnfræði og munnmælafræði.
Jesse Byock er höfundur
tveggja bóka. „Feud in the Ice-
landic sagas“ vakti verðskuldaða
athygli á höfundi sínum árið
1982. í þeirri bók bendir Byock á
að íslendingasögurnar fjalli um
það hvernig menn settu niður ill-
deilur og ágreining sín á milli.
Helga Þorlákssyni farast svo orð
um þetta verk: „Samkvæmt nið-
urstöðum Byocks var fylgt
ákveðnum reglum eða kerfi sem
var miðað við að tryggja festu í
þjóðfélaginu og afstýra ofbeldi.
Byock lýsir ýtarlega, í bók sinni
Feud og annars staðar, hvaða að-
ferðum var beitt í þessu skyni.“
Önnur bók Byocks „Medieval
Iceland; Society, Sagas and Pow-
er“ kemur út seinna á þessu ári.
„Það er stórt orð Hákot.“
Engu að síður hleypti blaðamað-
ur í sig kjarki í gær og gekk tii
fundar við Jesse Byock í þeim
húsakynnum. Hann talar ágæta
íslensku og mun flytja erindi sitt,
„Þjóðveldið, völd og vinfengi," á
móðurmáli gestgjafa sinna. Titill
erindisins vakti forvitni:
„Ég mun leitast við að sýna
fram á það hvernig auður safnað-
ist á hendur æ færri goða og höfð-
ingja sem nýttu sér hann í valda-
baráttu. En það eitt að eiga
gnægð af löndum og lausum
aurum tryggði engum völd. Til
þess að fá þau í hendur þurfti at-
fylgi annarra og það öðluðust
menn fyrir vinfengi. Vináttu með
pólitískum skuldbindingum og
kvöðum. Samanber fósbræðra-
lagið.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að hér var ekkert fram-
kvæmdavald á þjóðveldisöld.
Engir barónar, prinsar, jarlar eóa
kóngar til þess að hafa yfirum-
sjón með því að hver og einn
stæði við skuldbindingar sínar.
Pví voru pólitísk bandalög manna
afar mikilvæg hygðust þeir ná
einhverjum völdum.
Þorri iandnámsmanna kom frá
Noregi þar sem vensl og ættbönd
skiptu sköpumíþjóðfélaginu. Og
þetta tvennt var vissulega þungt á
vogarskálum valdabaráttunnar
hér líka en skipti ekki líkt því
jafnmiklu máli og í „gamla
\andinu.“
Hvernig var háttað sambandi
goðans við bóndann? Hver bauð
bóndanum vernd og hvaða hags-
munir voru í húfi? Hið athyglis-
verða er að hvorki frændsemi né
vensl manna fremur en hin opin-
beru pólitísku bandalög tryggja
þeim frið og verja þá ágangi ann-
arra.
Þessu hlutverki gegndi vin-
fengið. Það úir og grúir af dæm-
um um þetta í íslendingasögun-
um. Það er merkilegt að fram að
þessu hafa bæði lærðir og leikir
gefið þessu sáralítinn gaum.“ -ks,
Mætum á útifundinn á Lækjartorgi 1. maí.
Gangan leggur af stað frá Hlemmi kl. 14.00.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík
f^i.
„/ •
' V /
'Ai
\~
r/'
✓ _
CORREXcSe
Plöntuhlífar
úr laufléttu en níösterku tvöföldu plastefni.
/\
jíj
,C/N
ý.
%
>L\
'C
'-I
\'
r/
/\/
\/»
v** •
-»/i
/>/
»
D^v
(v.
\i/
— /
.1-
/ -
— /
'i-
>,i\
_ /^
Auðvelt að laga til og
setja yfir ungar trjá-
plöntur.
Hlifir gegn veðri, vindum
og beit.
Hleypir sólarljosi i
gegnum sig.
Hjálpar til að halda raka á
plöntunni.
Margfaldar vaxtarhraða
plöntunnar og verndar
tréð gegn þvi að
kræklast.
Innbyggðar festingar fyrir
hæl.
Engir virar umlykja
plöntuna, svo að engin
hætta er á að tréð
skaðist.
1.20 m hæö er afgreidd af
lager. Aðrar stærðir eru
sérpantaðar.
\v
s '
a
— \
\ / -
.,\/
&
/-I
\"/.
/’K'
m
&
/y,
íiK3
/^i
X
.\'
/'Lv'
S/ /
»-
• /\
/\*J
\ /
Nj /
[\z
T/\
K*"/
*
-I\’,
50 stk. vega aðeins 9 kg.
fwmu
Vélakaup hf. Kársnesbraut 100 Kópavogi Slmi 641045 J
---------------■ » » —ff'"----------— ~
Heildsala — smásala
/ \ /
C i
\ /
víC
O/,
/i!
vV4
JÚ