Þjóðviljinn - 30.04.1988, Síða 11
Almenna auglýsingastJSÍA
I
Barátta okkar allra
1. maí ávarp Samtaka kvenna á vinnumarkaði
Kjarasamningarnir sem gengið
hafa einsog draugur yfir alla
verkaiýðshreyfinguna nú í vetur
voru búnir til á Vesturgötunni og
fluttir vestur á ísafjörð í fæðing-
arbæ fjármálaráðherra. Frá ísa-
firði lá leiðin í Dagsbrún þarsem
samningarnir voru afgreiddir
með mjög vafasömum hætti.
Eftir þessi herfræðilegu útspil
var samningsréttur í raun tekinn
af öðrum félögum Alþýðusam-
bandsins. Þrátt fyrir það að
samningarnir hafi verið felldir í
flestum félögum og jafnvel tvisv-
ar í sumum þá skulu þeir samt í
gegn hvað sem það kostar.
Verkalýðshreyfingin hefur
sýnt með þessum kjarasamning-
um að hún er alls ófær að standa í
baráttu fyrir hagsmunum félaga
sinna.
Síðustu mánuðir hafa einnig
sýnt hvílíkt bíl er orðið á milli
félaga og forystu. Þjóðarsáttir
síðustu ára hafa gert forystuna
værukæra og um leið leyft at-
vinnurekendum og ríkisvaldi að
valsa að vild með launakjör.
Geðþáttaákvarðanir sem sundra
launafólki eru orðnar ríkjandi.
Víða á vinnustöðum er bannað
að ræða laun. og launaseðlar
jafnvel merktir sem trúnaðarmál.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði heita því á launafólk að
standa saman innan verkalýðs-
hreyfingarinnar og skilja að án
samstöðu og samtakamáttar næst
ekkert fram, annars verða upp-
reisnir einstakra félaga andvana
fæddar.
Launafólk, við verðum að gera
okkur grein fyrir því að barátta
sérhvers verkalýðsfélags er bar-
átta okkar allra.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði benda líka á að verkalýðsbar-
átta er alþjóðabarátta og styðja
því heilshugar þá mannréttinda-
baráttu sem nú er háð í S-Afríku
og skorta á íslensk stjórnvöld að
samþykkja viðskiptabann á S-
Afríku.
Barátta verkalýðsfélaga er líka
barátta heildarsamtaka. f undan-
gengnum átökum hefur lítið sem
ekkert heyrst frá Alþýðusam-
bandi fslands, enda hafa félag-
arnir ekki treyst heildarsamtöku-
num eftir reynslu síðustu ára.
Því er tími hreinsunardeildar-
innar kominn.
Við þurfum verkalýðsfélög
sem nýtast okkur í baráttu fyrir
bættum kjörum og öðrum félags-
legum réttindamálum.
Við þurfum heildarsamtök
sem nýtast okkur til samræming-
ar og samstöðu í baráttu.
Við höfum ekkert að gera við
steinrunnar stofnanir eða ferð-
aklúbba.
Við þurfum hreyfingu lifandi
fólks sem skiptir sér daglega af
öllum málum.
Sérhver launakona, sérhver
launamaður ber ábyrgð á kjörum
sínum. Þess vegna segjum við nei
við ómögulegum kjarasamning-
um. Við neitum að bera ábyrgð á
því að geta ekki framfleytt okkur.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði styðja heilshugar þau félög
sem enn standa í baráttu.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði telja forkastanlegt að laun séu
undir skattleysismörkum, þó 42
þúsund kr. á mánuði dugi
skammt ti! að framfleyta fjöl-
skyldu.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði krefjast þess að sett verði 3
skattþrep, stóreignaskattur
aukinn og skattafrádráttur at-
vinnurekenda aflagður, enda á-
standið slæmt þegar fyrrverandi
framkvæmdastjóri atvinnurek-
enda lýsir áhuggjum vegna sívax-
andi skattbyrði launafólks.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði krefjast nægra og góðra dag-
vistarstofnana - strax.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði krefjast 9 mánaða fæðingar-
orlofs. Samtök kvenna á vinnum-
arkaði fordæma ummæli for-
manns atvinnurekenda er hann
taldi lífeyrissjóðina ekki eign
verkalýðsfélaganna, heldur sjóði
sem hans nótar gætu sölsað undir
sig. Samtök kvenna á vinnumark-
aði fordæma sífelldarárásir á fisk-
vinnslufólk, nú síðast af borgar-
stjómaríhaldinu þegar 50 manns
var sagt upp í Granda.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði átelja stöðugan flutning á
fjármagni frá landsbyggðinni til
dekurdrengja Reykjavíkur.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
átelja stöðugan flutning á fjár-
magni frá landsbyggðinni til dek-
urdrengja Reykjavíkur. Samtök
kvenna á vinnumarkaði skora á
verkalýðshreyfinguna að standa
vörð um öll þau réttindamál sem
áunnist hafa, ekki síst um samn-
ingsrétt verkalýðsfélaga sem hef-
ur verið ráðist á hvað eftir annað
að undanförnu af hálfu ríkis-
valdsins með Félagsdómi og af
hálfu atvinnurekenda með ósk-
um um breytingu á vinnulöggjöf
og síaukinni notkun á sáttasemj-
ara.
Duglaus verkalýðshreyfing
nær engu fram umfram það sem
ríkisvald og atvinnurekendur
hafa ákveðið sín á milli. Valdið er
hinsvegar í höndum fólksins, tak-
ist að virkja það - þar stendur
ekki á okkur.
Samtök kvenna á vinnumark-
aði skora á launafólk að rísa upp
og taka sín réttmætu völd.
Á BESTA STAB í BÆNUM
j Aðeins mínútugangur i
' helstu banka, verslanir,
kvikmyndahús, sundiaug,
leikhús, pósthús o.fl.
' - / Vistleg og björt gisti-
jfy herbergi, vel búin húsgögnum.
HHjg/ Sér snyrting, sturta,
HF sjónvarp, útvarp og sími.
Wj Veitingasalurinn Lindin er
WQK opinn allan daginn. Glæsilegur
matseóill i hádeginu og á kvöldin
og girnilegar tertur siödegis.
—I Veislu-, funda-
og ráöstefnusalur fyrir allt að
100 manna fermingaveislur, erfis-
/ drykkjur, afmælisveislur, fundakaffi
/ o.s.frv. Salurinn er vel búinn tækjum
I s.s. myndvörpum, skuggmynda-
véium, töflum, Ijósritunarvél, telexi,
ræðupúlti, hátalarakerfi, pianói o.m.fl.
HÖTEL
UMV
RAUÐARÁRSTlG 18-SlMI 623350
Grísku kvikmynda-
vikunni er að Ijúka
Nú eru síðustu forvöð að sjá
nokkrar þeirra ágætu kvikmynda
sem hingað er stefnt á gríska
kvikmyndaviku. Slíkar uppá-
komur eru afar vel þegnar hér í
annars feiknalega einhæfu kvik-
myndaframboði og er ekki á kot
vísað þar sem Grikkir eru með
sitt magnaða og þverstæðufulla
þjóðlíf, sem þeirra ræmumeistar-
ar hafa margoft sýnt að þeir
kunna prýðisvel með að fara.
Njóta þeir þess líka Grikkir, að
hafa lengur en flestar aðrar þjóð-
ir fengist við að tjá mikla harma
og lífsins gamanmál í leikrænu
formi.
Ein myndanna sem sýnd er í
dag er Kaupverð ástarinnar undir
leikstjórn Tonia Marketaki.
Sögusviðið er eyjan Korfú um
aldamót, það segir frá ást sem er
svikin fyrir peninga - borgara-
legur kærasti þorir ekki að giftast
elskunni sinni vegna þess að hún
fær engan heimanmund, og öfug-
uggaháttur þjóðfélagsins er svo
mikill að stúlkan er sek gjörð og
eiginlega útlæg úr samfélaginu -
fyrir það eitt að vera svikin. Kon-
an unga reynist þó eiga styrk til
að sigrast á þeim vítahring sem
reynt er að hneppa hana í.
Myndin er úr Kaupverði ástar-
innar, I timi tis agapis..
Nýjar bækur
78unda prentun
Passíu-
Ljóðmyndir
Sverris Páls
Pú og heima nefnist ljóðabók eftir
Sverri Pál Erlendsson sem út er kom-
in hjá Umsjón á Akureyri. Allstór
ljóðabók, 123 síður og hefur Þorvald:
ur Þorsteinsson gert í hana myndir. í
kynningu segir á þá leið að þetta séu
„orð í myndum - myndir í orðum. Og
viðfangsefnið þú - heima og
heiman... Ljóðmyndir sem Sverrir
Páll hefur fært í orð og hagrætt handa
þér“.
„Hagræðíngin" er mjög í anda hins
opna ljóðs sem stefnir að einfaldri og
aðgengilegri tjáningu eins og segir í
þessu kvæði hér:
Þó ég fari
langt langt í buriu
sjáí hundruð
þúsundir
miljónir manna
borg eftir borg
land eftir land
sé ég bara
þig
þegar ég loka
augunum mínum.
Penelópa
Aðalheiðar
Gumundsdóttur
ára Reykvíkingur sem stundar nú ís-
lenskunám í Háskólanum.
f formála lætur Aðalheiður þess
getið að ljóðin séu ort á unglingsárun-
um (17-19 ára) og hafi þeim upphaf-
lega ekki verið ætlað að komast á
bók. „Þó ákvað ég nú að leyfa þeim
að horfa framan í einhverja aðra en
mig sjálfa og vona að þeir sem lesa
þau vilji og reyni að skilja þau, því að
ljóð eru alltaf einhverskonar skilaboð
milli manna.“ í kveri þessu fer all-
mikið fyrir rími blendnum unglingar-
aunum - þar eru og tilvistarmál af-
greidd m.a. með þessum hætti hér:
Um tilvist mína
sorgir og gleði
veit ég þó
að leitin að eldinum
skiptir sköpum
sálmanna
Marsbók bókaklúbbs Almenna
bókafélagsins var Passíusálmar
Hallgríms Péturssonar. Útlit hannaði
Guðjón Ingi Hauksson en stuðst er
við útgáfu Helga Skúla Kjartanssonar
frá 1977. í formála þeirrar útgáfu
segir Helgi Skúli m.a.:
„Passíusálmarnir... standa við hlið
hinna bestu fornrita, eddukvæða úr
heiðnunt sið og íslendingasagna frá
kaþólskum tíma; eiga það sammerkt
með þeirn að halda gildi sínu þótt
tímar og viðhorf breytist, að geyma
einkennishugsanir sinnar aldar svo
djúpt hugsaðar og svo fagurlega
greyptar í dýran málm tungunnar, að
hverjum manni er sálubót og andleg
hressing að rekja þá stigu sem gest-
ur.“
........... ............ .........
Ðreyttur opnunartími
í sumar
Frá 1. maí til 1. september verður skrifstofa
Rauða kross íslands að Rauðarárstíg 18 opin frá
kl. 08.00 til kl. 16.00.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Penelópa heitir fyrsta Ijóðabók Aðal-
heiðar Guðmundsdóttur sem er 23ja
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 30. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
BLÝLAUST BENSÍN
0RÐSENDING
TIL EIGENDA
T0Y0TABIFREIÐA
Eftirfarandi tafla er gerð Toyotaeigendum til hagræðis. Hún sýnir hvaða
ráðstafanir þarf að gera við tilkomu blýlauss bensíns.
LÁGMARKS KVEIKJU- MÁ EKKI
OKTANÞÖRF STILLING NOTA
MEÐ BLÝ- NAUÐSYN- BLÝLAUST
TEGUND ÁRG. VÉL BLÝI LAUST LEG BENSÍN
Starlet 1000 KP60 78-85 2K 89 90
Starlet 1200 KP 62 78-82 3K 89 90
Corolla 1200 KE 20 71-77 3K 89 90
Corolla 1200 KE 30 75-81 3K 89 90
Corolla 1300 KE 50 76-79 3K 89 90
Corolla 1300 KE 70 79- 4K 89 90
Corolla 1300 AL20 83-85 2A 89 90
Corolla1300AE80 83-85 2A 89 90
Corolla 1300 EE 80 85-87 2E 90 90
Corolla 1300 EE 90 88- 2E 90 90
Corolla 1600 TE51 76-79 2T 90 90
Corolla 1600 TE 71 80-83 2T 90 90
Corolla1600 TE71 80-83 2T-B 98 96 X
Corolla 1600 TE 71 80-83 2T-G 98 96 X
Corolla 1600 AE 82 83- 4A 97 95 X
Corolla 1600 GTAE86 83-87 4A-GE 98 96 X
Corolla 1600 GT AE 82 85-87 4A-GE 98 96 X
Corolla 1600 GTiAE 96 88- 4A-GE 98 96 X
Corolla 1600 GTiAE 92 88- 4A-GE 98 96 X
Tercel 1300 AL11 79-82 2A 89 90
Tercel 1300 AL 20 82-83 2A 89 90
Tercel 1500 4WD AL 25 82-84 3A 89 90
Tercel 1500 4WD AL 25 84- 3A 97 95 X
Carina 1600TA40 77-81 2T 90 90
Carina 1600 AT151 84- 4A 97 95 X
Celica 2000 RA40 77-79 18R 97 X
Celica 1600 AT160 86- 4A-GE 98 96 X
Celica 2000 ST 162 86- 3S-GE 98 96 X
Supra2,8 MA61 82- 5M-GE 98 96 X
Cressida RX 30 76-78 18R 97 X
Cressida RX 60 80-85 1G-E 97 X
Cressida RX 60 80-85 21-R 97 X
Camry 1800 SV10 82-86 1S 98 96 X
Camry 2000 SV 11 82-86 2S-E 98 96 X
Camry 1800 SV 20 87- 1S 98 96 X
Camry 2000 SV 20 87- 3S-FE 98 96 X
Camry 2000 SV 25 87- 3S-FE 98 96 X
Crown MS112 79-83 5M-E 98 96 X
Crown MS 132 83-86 5M-GE 98 96 X
MR2GTAW11 85- 4A-GE 98 96 X
LiteAce KM 20 84- 4K 89 90
LiteAce KM 36 86- 5K 89 90
HiAce RH 20 77-82 12R 90 X
HiAce RH 11 77-82 12R 90 X
HiAce RH 11 82- 12R 90 X
HiAce YH 50 83- 2Y 90 91
HiAce 2000 YH 51 84- 3Y 90 91
HiLux RN 25 78-83 12R 90 X
HiLux RN 40 78-83 12R 90 X
HiLux RN 36 79-83 18R 90 X
HiLux YN 56 83-84 2Y 90 91
HiLux YN 56 84- 4Y 90 91
Land Cruiser FJ 45 77-84 2F 91 91
Land Cruiser FJ 55 77-84 2F 91 91
Land Cruiser RJ 70 85- 22R 90 X
Til að geta lesið töfluna rétt er nauðsynlegt að vita hvaða vél er í bílnum.
Það má sjá á ventlalokinu og í skráningarskírteininu. Þeir sem notað hafa 98
oktana bensín hingað til og hyggjast halda því áfram þurfa engar ráðstafanir
að gera. Hins vegar biðjum við þá sem notað hafa 98 oktana bensín og vilja
skipta yfir í blýlaust að lesa athugasemdirnar vel. Þetta á einnig við um þá sem
notað hafa 93 oktana bensín þar sem það mun eftirleiðis ekki verða á
markaðnum.
Allar frekari upplýsingar verða fúslega veittar á Toyota verkstæðunum og
hjá umboðsmönnum um land allt.
i TOYOTA
I & /:/
Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi, Sími 91-44144
AUK/SlA K109-60