Þjóðviljinn - 30.04.1988, Qupperneq 12
Þau skipa
íslensku
dómnefnd-
ina
Islenska dómnefndin í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva hefur verið valin. Hátt á
þriðja hundrað manns gaf kost á
sér til setu í nefndinni.
Samkvæmt reglum EBU skulu
fjórir þátttakendur vera á aldrin-
um 15 til 25 ára, fjórir 26 til 35
ára, fjórir 36 til 45 ára og fjórir 46
til 60 og eldri. Einnig á að vera
jöfn skipting á mijli kynja úr sem
flestum starfsstéttum og sem víð-
ast af landinu, Dómnefndina
skipa 16 manns sem greiða at-
kvæði fyrir íslands hönd. Markús
Örn Antonsson, útvarpsstjóri er
formaður nefndarinnar og Guð-
rún Skúladóttir ritari.
Með tilliti til þessara reglna
hafa eftirtaldir verið valdir til að
sitja í dómnefndinni:
Árni Gunnarsson ferskfisk-
matsmaður, Vestmannaeyjum,
Ásgeir Guðnason nemi, Reykja-
vtk, Davíð Sveinsson skrifstofu-
maður, Stykkishólmi, Elín Þóra
Stefánsdóttir vitavörður, Galtar-
vita, Ellý Þórðardóttir matráðs-
kona, Reykjavík, Erla Björk
Jónasdóttir fiðlusmiður, Mos-
fellsbæ, Guðrún Kristmannsdótt-
ir fiskvinnslukona, Brekkholti,
Stokkseyri, Hólmfríður Jóns-
dóttir nemi og netagerðarm.,
Neskaupstað, Jónas Engilberts-
son strætisvagnastjóri, Reykja-
vík, Jónína Bachmann bréfberi,
Hafnarfirði, Kjartan Þór Kjart-
ansson sjómaður, Suðureyri,
Ólafur Egilsson, bóndi Hunda-
stapa, Mýrasýslu, Sigrún Krist-
jánsdóttir nemi í MA, Kópa-
skeri, Sigurður Fanndal kaup-
maður, Siglufirði, Sigurður Æg-
isson prestur, Djúpavogi, og Þór-
dís Garðarsdóttir, húsmóðir og
starfsm. á ellih. Garði.
Beathoven-dúettinn þeir Stefán Hilmarsson og Sverrir Stormsker stendur vonandi uppréttur á sviðinu í Konungulegu sýningarhöllini í
Dyflinni í kvöld, þrátt fyrir veikindi og aðra óáran. SÖngVa.keppnÍn
Sókrates hefur
orðið í kvöld
Þá er nú komið enn eitt laugar-
dagskvöld mcð söngvakeppni.
Fyrst var það Gleðibankinn scm
varð að þjóðarsorg, þá Hægt og
hljótt, sem komst ekki hærra en
Gleðibankinn Nú er stólað á lagið
Sókrates, um það náðist þjóðar-
sátt. Nú er bara að vona að spá-
dómar veðbanka í útlöndum sem
hafa spáð laginu einu af neðstu
sætunum rætist ekki
Þrátt fyrir dökkar spár og að
íslenska sendinendin hafi annað
hvort legið í rúminu eða í ...von-
um við að Beathoven félagarnir
standi nú uppréttir á sviðinu í
Konunglegu sýningarhöllinni í
Dyflinni í kvöld. Flestir eru nú
sammála um að ekki komi til
greina að við vinnum að þessu
sinni, sem betur fer hugsar vafa-
laust Markús Örn, því hvað verð-
ur þá um þessa litlu innlendu
dagskrágerð. Ef við eigum eftir
að þurfa að standa fyrir annarri,
eins uppákomu og nú er í gangi á
eyjunni grænu...
Hvað sem öllum spádómum
líður vonum við að okkar liði
gangi nú alit í haginn þarna í Dy-
flinni með lagið sitt, því þetta
mun vera í síðasta skipti sem við
tökum þátt í þessarri keppni.
Eða, er ekki Stöð 2 búinn að
sækja um aðild að Evrovision?
sg
Atkvæðaseðill fjölskyldunnar
Við birtum hértöflu yfir alla keppendurna ísöngvakeppninni og pláss fyrir fimm spádóma um væntanlega röð. Nú er spurningin hver
hefur bestu spádómshæfileikana.
LAND LAG FLYTJANDI Spá 1 Spá 2 Spá 3 Spá 4 Spá 5 Röð
1. ísland Sókrates Beathoven
2. Svíbióð Stad i lius Tommv Kðrberq
3. Finnland Nauravat silma Muistetaan Boulevard
4. Bretland Go Scott FrtzerakJ
5. Tyrkland Sufi (Hev-va Hev) Marznar-Fuat-Ozkan
6. Spánn La chica que you quero La Decsada
7. Holland Shangri-La Gerard Joling
8. ísrael Yardena Anazy Ben Adam
9. Sviss Ne partes psa sans mol Céline Dion
10. írland Take him home Jump the Gun
11. Þýskaland Lied fur einen freund Maxi og Chris Garden
12. Austurríki Lisa Mona Lisa Wilfried Scheutz
13. Danmörk Ka‘du se hva'jeg sa‘ Kristen og Sören
14. Grikkland Clown Alrodit Frida & kór
15. Noregur For var jord Karoline Kruger
16. Belgía Laisser Briller le Soleil Reymond
17. Luxemborg Croire Lara Fabian
18. Ítalía Ti scrivo Luca Barbarossa
19. Frakkland Chandeur de chame Gerard Lenorman
20. Portúgal Voitarei Dora
21. Júgóslavía Mangup Silver Wings
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. apríl 1988