Þjóðviljinn - 30.04.1988, Blaðsíða 17
ERLENDAR FRÉTTIR
Pólland
Verkföll
15þúsund verkamenn Lenín iðjuversins við Kraká hafa hald
ið að sér höndum ífimm daga. Igœr bœttust 9þúsund
verkamenn í
Einsog kunnugt er hefur helm-
ingur starfsmanna Lenín iðju-
versins við Kraká verið í verkfalli
frá því á þriðjudag. Rúmlega 6
þúsund verkamenn lögðu niður
vinnu í annarri pólskri risaverk-
smiðju í gær og gera framámenn
Samstöðu því skóna að mun fleiri
feti í fótspor þeirra áður en langt
um líður.
Heimildamenn í bænum Stal-
owa Wola, sem liggur um 125
kflómetrum sunnan Varsjár,
segja félaga Samstöðu vera í for-
ystu fyrir verkfallsmönnum þar.
Þeir hafi tekið þrjár deildir iðju-
versins herskildi, þar á meðal
verkfærageymsluna og skrifstof-
ubygginguna.
Lenín iðjuverið við hið forna
höfuðból „Sléttumannalands“,
Kraká, er hið stærsta sinnar teg-
undar í landinu. Verkamenn þar
krefjast kauphækkanna þegar í
stað.
Þetta eru mestu vinnudeilur í
Póllandi frá því í desember árið
1981 en þá reif herinn völdin í
sínar hendur til þess að auðvelda
Bochniu og Stalowa
höfuðpaur sínum, Wojciech Jar-
uzelski, að ganga á milli bols og
höfuðs á frjálsu verkalýðshreyf-
ingunni.
Embættismenn og andófs-
menn í Kraká kváðu hafa sagt
fréttamönnum að 3 þúsund
verkamenn dótturfyrirtækis Len-
íns í Bochnia hefðu bæst í hóp
verkfallsmanna í gær. í aðaliðju-
verinu munu um 15 þúsund af 32
þúsund verkamönnum ekki hafa
neitt fyrir stafni. Þeir krefjast
aukins fjár fyrir vinnu sína og
endurráðningar rekinna Sam-
stöðufélaga.
Iðjuverið í Stalowa Wola er
rekið í náinni samvinnu við
pólska herinn. Þetta veldur vita-
skuld enn meiri taugaveiklun en
ella á æðstu stöðum. Hin opin-
bera fréttastofa pólska ríkisins,
PAP, greindi frá því í gær að
verkamenn yrðu reknir ef þeir
sneru ekki tafarlaust til starfa.
í gær voru birtar glefsur úr við-
tali við Lech Walesa í vesturþýsk-
um dagblöðum. Fer hann hörð-
um orðum um það sem hann
Wola í hópinn
nefnir „gjaldþrot kommúnis-
mans“ í Póllandi og segir núver-
andi ráðamenn hafa gert landið
að „betlara Evrópu.“
Hann kveður landsmenn vera
verr setta nú en í kreppunni sem
leiddi til stofnunar Samstöðu árið
1980. Walesa staðhæfir að ólga
eigi eftir að aukast mjög á pólsk-
um vinnumarkaði.
„Við kærum okkur ekkert um
að fara í verkföll. Enginn seður
hungur sitt með því að leggja nið-
ur vinnu. En vegna gjörða ríkis-
stjórnarinnar eigum við einskis
annars úrkosta í baráttunni fyrir
rétti okkar.“
Hann hæðist að rökum þeim
sem ráðamenn færðu fyrir því að
leggja bann við starfi frjálsu
verkalýðsfélaganna fyrir sjö
árum og bætir síðan við: „í átta ár
hefur ríkisstjórnin haft frjálsar
hendur um endurnýjun efna-
hagsmálanna. Og hver er staðan
nú? Efnahagsástandið er verra en
í upphafi áratugarins og skuldirn-
ar hafa aukist."
Reuter/-ks.
Frönsku kosningarnar
Bitur kurteisi, aukin harka
Chirac talinn hafa haft eilítið betur ísjónvarpseinvíginu við Mitter-
rand. Aukin harka fœrist íkosningabaráttuna, hvorsakar annan um
undanlátssemi við hryðjuverkamenn
Jacques Chirac er talinn hafa
staðið sig eilítið betur en Fra-
n^ois Mitterrand í sjónvarps-
einvígi frambjóðendanna tveggja
í fyrrakvöld, - þegar forseti og
forsætisráðherra Frakklands
deildu í fyrsta sinn é opinberum
vettvangi um landsins gagn og
nauðsynjar.
Þrátt fyrir þennan úrskurð fag-
manna í stjórnmálum, leiklist og
auglýsingamennsku bentu hrað-
kannanir eftir einvígið til að
Mitterrand héldi forskoti sínu á
Chirac í forsetakosningunum
næstu helgi, en ljóst er að sigur
hans er engan veginn öruggur.
Viðræður frambjóðendanna í
beinni sjónvarpsútsendingu
þóttu einkennast af ískaldri og
biturri kurteisi, og segja frétta-
skýrendur að hér hafi berlega
komið í ljós sú spenna sem hlaðist
hefur upp í tveggja ára pólitískri
nauðungarsambúð forsetans og
forsætisráðherrans.
Frambjóðendurnir sökuðu
hvor annan um undanslátt við
hermdarverkamenn og kenndu
hvor öðrum um átökin í Nýju
Kaledóníu. Mitterrand, sem
Chirac sakar um samúð með her-
skáum samtökum innfæddra á
eyjunni, sagði Chirac á sínum
tíma hafa sleppt úr haldi írönsk-
um hryðjuverkamanni til að fá
lausa tvo franska gísla í Lfbanon,
en Chirac neitaði þessum ásök-
unum. Þessi deila þykir einstæð
þarsem þeir félagar hafa hingað-
til látið vera að deila um viðkvæm
ríkismálefni, og sýnir með öðru
að í síðari umferð forsetakosn-
inganna er hlaupin slík harka að
ekki getur gróið saman aftur.
Mitterrand þótti óstyrkari á
taugum í upphafi einvígisins en
sótti í sig veðrið þegar á leið,
Chirac hinsvegar öruggur allan
tímann, þótt á honum dyndu
ýmsar pústrur Chiracs. Haft er á
orði að Chirac hafi reynt að stilla
málum þannig að hann væri svo-
sem að útskýra stöðuna einsog
sonur fyrir öldruðum föður, en
Mitterrand lét hvergi undan síga.
Mitterrand ávarpaði Chirac
ævinlega sem forsætisráðherra
meðan Chirac sleppti forsetatitli,
og skýrði það í útsendingunni því
að nú væru þeir ekki lengur for-
seti og forsætisráðherra heldur
tveir frambjóðendur jafnvígir
fyrir dómstól þjóðarinnar.
Mitterrand svaraði kalt: „Eins og
þér viljið, monsieur premier
ministre."
Meðfram kosningaballettinum
voru dregnar upp pólitískar
landamæralínur. Chirac hyggst
halda á lofti efnahagsstjórn sinni
síðustu tvö ár, og leggur áherslu á
óheftari kapítalisma í stíl Reag-
ans og Thatchers, meðal annars
með sölu fleiri ríkisfyrirtækja, og
hann leggur einnig mikla áherslu
á lög og reglu. Mitterrand talar
margt um félagslegt réttlæti og
sameinað Frakkland, og varar
Chirac við öllu samkrulli með Le
Pen.
Sá heldur mikinn fund 1. maí
og er búist við að hann lýsi þar
stuðningi við Chirac þótt Chirac
hafi forðast alla opinbera samn-
inga við hægriöfgamanninn. Ekki
er talið þarmeð tryggt að allt fylgi
Le Pens nýtist Chirac, enda
margir kjósendur Le Pens á skjön
við hefðbundinn stuðningshóp
hægrifylkingarinnar.
kynditæki
(olía og/eða kol)
Fjarlægja þarf katla o.fl. úr varakyndistöö Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur við Barónsstíg. Um
er að ræða 2 stóra stéypu járnkatla og 1 millistóran
frá Ideal Standard með tilheyrandi búnaði. Katl-
arnir voru upphaflega kolakynntir, en eru í dag
með olíubrennara.
Katlarnir með tilheyrandi búnaði verða eign þess
sem verkið hlýtur.
Hægt er að fá að skoða tækin og skal þá haft
samband við Björn Eiðsson í síma 91-22400.
Þeir sem hafa áhuga skulu leggja inn nafn,
heimilisfang og síma til Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
fyrir 16. maí nk. I framhaldi af því verður stofnað til
lokaðs útboðs.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftirtilboðum í að
helluleggja eldri gangstéttir víðsvegar í Reykja-
vík. Áætlað heildarflatarmál u.þ.b. 6000 m2.
Einnig felur verkið í sér hleðslu á grásteinskanti,
áætlað magn u.þ.b. 1000 m, og hellulögn og
jarðvinnu við Þrastargötu u.þ.b. 230 m2.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag-
inn 11. maí kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
____ Fríkirkjuvegi 3 - Sírni 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkur, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í undirstöður og
frágang lóðar við skiljustöð Nesjavallavirkjunar.
Verkið felst meðal annars í að steypa undirstöður
og gólfplötu skiljustöðvarhúss og lokahúss,
uppsteypu á stoðveggjum, fetum og uppsetningu
pípuundirstaða fyrir safnæðar.
Vettvangsskoðun verður á Nesjavöllum 10. maí
kl. 14.00.
skrifstofu vorri, að
gegn kr. 15.000,-
Utboðsgögnin eru afhent á
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
24. maí kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - sTmi 25800
Rffl
**< _
t|r utboð
Innkaupstofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík og Hitaveitu Reykjavík-
ur, óskar eftir tilboðum í Gatnagerð, lagningu
holræsa, Vatns- og hitaveitulagna. Um er að
ræða Bústaðaveg frá Öskjuhlíð norður undir
Miklatorg ásamt Litluhlíð, Flugvallarvegi og teng-
ingum við Vatnsmýrarveg.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Frík-
irkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
17. maí kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
AugWs'0'
pjóbvttýanum
'SímÍ681333
Laugardagur 30. apríl 1988 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 17