Þjóðviljinn - 05.05.1988, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 05.05.1988, Qupperneq 4
LEIÐARI KLIPPT OG SKORIÐ Þroskasaga ráðherra Jón Baldvin Hanníbalsson hefur gengist mjög upp í starfi sínu sem ráðherra. Það virðist síður en svo há honum að hann situr í ríkisstjórn sem hefur að leiðarljósi forstokkaðar kenning- ar frjálshyggjunnar, ríkisstjórn sem tekur á efnahagsmálum á sams konar hátt eða viðhefur sams konar aðgerðarleysi á því sviði og ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins er sat hér að völdum fram að síðustu kosningum. Kosningarnar síð- astavor, þarsem sú ríkisstjórn missti þingmeirihlutasinn, hafa í raun sáralitlu breytt að þessu leyti. Kratarnir komu.Framsókn og íhaldi til hjálpar og áfram er haldið sömu braut og fyrr. Jón Baldvin Hanníbalssom hamast nú í þinginu við að gera að lögum frumvarp sitt og ríkisstjórnarinnar um virðisauka- skatt. Hann telur að hér sé um að ræða rökrétt framhald af matarskattinum, sem jók stórlega hörkuna í kjarabaráttu launafólks þótt hann sé af forsvarsmönnum krata talin grund- vallarforsenda allrar velferðar. Það er nefnilega ekki svo að Jón Baldvin renni sér af atorkusemi í skítverkin bara vegna þess að eitthvað verði það að kosta að sitja í ráðherrastólnum, að París sé einnar messu virði. Nei, hann trúir á það sem hann er að gera. Um það ber ekki efast. Þótt unnt sé að benda á að Jón Baldvin hafi verið andsnúinn ýmsum þeim málum, sem hann berst núna fyrir af fullri hörku, þá segir það lítið til um heilindi ráðherrans. Aftur á móti getur það verið fræðandi fyrir þá, sem hafa áhuga á mannlegri náttúru og sálarlífi, að sjá hvað menn eru fljótir að skipta um skoðun eftir að þeir eru sestir í ráðherrastól. Sumir hafa verið að skamma Jón Baldvin fyrir að hafa allt aðra skoðun á virðis- aukaskatti nú en hann hafði fyrir rúmu ári. Hafa sumir jafnvel látið að því liggja að ráðherrann hljóti þá að hafa talað þvert um hug sér úr því að hann gerir það ekki núna. En þessi skoðun byggir á misskilningi og vanmati á þeim hæfileika mannskepn- unnar að skipta um skoðun með skjótum og gagngerum hætti. í desember 1986 mælti þáverandi fjármálaráðherra en nú- verandi forsætisráðherra, Þorsteinn Pálsson, fyrir frumvarpi þáverandi ríkisstjórnar um virðisaukaskatt. Það frumvarp, sem ekki fékk afgreiðslu á þingi, var í grundvallaratriðum alveg eins og frumvarpið sem Jón Baldvin er að berjast við að koma í gegnum þingið núna. En Jón Baldvin Hanníbalsson var þá ekki kominn í ríkisstjórn og hann var á móti virðisaukafrumvarpi Þorsteins Pálssonar m.a. vegna þess að hann taldi að álagn- ingarprósenta væri þar allt of há. Þá sagði Jón Baldvin sam- kvæmt prentuðum texta í Alþingistíðindum: „Við erum ekki til viðræðu um að taka upp virðisaukaskatt sem er svona hrikalega hár. Og við vefengjum röksemdir fjármálaráðuneytisins fyrir því að nauðsynlegt sé að halda virðisaukaskattinum í 20-21% til þess að halda óbreyttum tekjum.“ í dag, einu og hálfu ári síðar, berst Jón Baldvin um á hæli og hnakka við að fá samþykkt sem lög að upp verði tekinn 22% virðisaukaskattur. En menn skulu ekki kippa sér upp við að þarna rekur sig eitt „á annars horn, eins og graðpening hendir vorn“. Það var reyndar í þessari sömu ræðu að Jón Baldvin lét orð falla um söluskatt á þessa leið: „En einmitt vegna þess hve undanþágusviðið er vítt, hefur skattprósentan sjálf farið sí- hækkandi og er nú 25%“. Þetta einföldunarsjónarmið Jóns Baldvins, var einmitt notað sem einn af hornsteinunum undir röksemdafærslu fyrir álagn- ingu matarskatts. Það var talið óþolandi að hafa of margar undanþágur frá söluskatti. Um að gera að einfalda kerfið og lækka frekar álagninguna. Fyrir tæpu ári tók við embætti nýr fjármálaráðherra, Jón Baldvin Hanníbalsson. Hann barðist fyrir því að fækka undan- þágum frá söluskatti, matarskatturinn varð nærri því að hans einkakrossferð fyrir fegurra og betra skattakerfi. Enginn veit af hverju honum láðist að lækka álagningarprósentuna. Hún er enn 25%. Kannski hefur Jóni Baldvin Hanníbalssyni aukist skynsemi og víðsýni við að setjast í ráðherrastól. Kannski er eitthvað allt annað á ferðinni. ÓP Valur Arnþórsson borgarstjóri í Reykjavíkog Davíðpddsson kaupfélagsstjóri hjá KEA. Fyrirgefið...Valur Arnþórsson stjórnarformaður SÍS og Davíð Arnþórsson stjórnarandstæð- ingur. Fyrirgefið... Guðjón B. í kosningum Einsog Þjóðviljinn sagði frá í fyrradag urðu þau stór- tíðindi um síðustu helgi að boðið var fram gegn for- stjóra SÍS í stjórn Samvinn- utrygginga, og fékk forstjór- inn 13 atkvæði og mótfram- bjóðandinn, kaupfélags- stjóri á Egilsstöðum, 8 at- kvæði. í stofnunum einsog fram- kvæmdastjórn Samvinnu- trygginga er ekki kosið milli manna nema menn hafi brotið allar samkomulags- brýr aðbakisér - þarna ríkir venjulega „kirkjulegt and- rúmsloft" einsog haft var eftir viðmælanda í Þjóðvilja- fréttinni. Kosningar eru því í sjálfu sér frétt frá slíku app- arati, hvað þá þegar það er forstjóri SÍS sem er í fram- boði, - og stj ómarformaður SÍS styður mótframbjóð- anda forstjórans og heimild- ir herma að fyrrverandi for- stjóri rói einnig gegn vali eft- irmannssíns. Valur argur Stjórnarformaður SÍS, sem nú er einnig stjórnarfor- maður Samvinnutrygginga, er þó aldeilis ekki sáttur við frásagnir af gangi mála á fundinum. „Þessi frétt íÞjóðviljan- um, sem hefur verið Iesin fyrír mig, er að verulegu leyti heilaspuni. Kenningin um að þarna hafi opinberast einhver sérstakur ágreining- ur eða samblástur gegn Guðjóni B. Ólafssyni er röng,“ segir Valur í samtali við Mogga í gær. Framboði kaupfélags- stjórans að austan hafi alls- ekki verið stefnt gegn Guðj- óni, heldur beri að líta á það sem þátt í átaki til aukins jafnvægis í byggð landsins. Valur hafi nefnilega verið eini landsbyggðarmaðurinn í fyrri stjórn, en á þessum fundi hafi orðið á honum sú eðlisbreyting þegar hann var kosinn stjórnarformaður að nú sé hann fulltrúi samvinn- uhreyfingarinnar allrar, - og þarmeð sumsé ekki lands- byggðarinnar. Venjuleg kosning Valur segir í Moggafrétt- inni að „þetta væri einsog hver önnur kosning í fyrir- tæki. Það væri sífellt verið að kjósa milli manna og hann sæi ekki að þarna væri um að ræða neitt stórmál frekar en aðrar kosningar." Annað mál væri hinsvegar „í hvaða tilgangi einhverjir sem þarna voru standa á bak við fréttir“ einsog í Þjóðvilj- anum. Við þetta er eiginlega engu að bæta. í SIS ereinsog menn sjá samlyndi svo mikið að fleiri vilja vera saman en pláss er fyrir og þarf því að velja og hafna. Þar sem stjómarformaður SÍS er orðinn stjórnarfor- maður Samvinnutrygginga telur hann sig fulltrúa SÍS alls í Samvinnutryggingum og þurfi því ekki fleiri full- trúa SÍS þar inni. Enda em þeir stjórnarformaðurinn og forstjórinn alltaf að hittast hvort eð er. Um þetta eru svo hafðar kosningar, eigin- lega að gamni sín, svona svipaðar að mikilvægi og þegar bekkjardeild í skóla kýs sér umsjónarmann. Hin réttláta reiði En það eru fleiri argir þessa daga en Valur í KE A. Félagsmálaráðherra kvað í fyrradag upp þann úrskurð að svokallað graftarleyfi væri lögum samkvæmt ekki til og yrði borgarstjórn Reykjavíkur því að sam- þykkja venjulegt byggingar- leyfí til að halda áfram óvinsælum framkvæmdum við monthúsiðíTjörninni. Hefði raunar verið réttast að skipa Davíð og félögum að moka aftur upp öllum óþverranum áður en bygg- ingarleyfið verði tekið fyrir, - fy rir utan að sú hugsun læðist að saklausum al- menningi hvort höfðingjar þurfí ekki að sæta neinni ábyrgð fyrir lögbrot sín. Borgarstjórinn í Reykja- vík hefur hingaðtil reynt að snúa af sér andstæðinga í ráðhúsmálinu með hroka og kjafthætti, einusinni þurfti hann líka að beita tvöföld- um pólitískum Nelson á fé- lagsmálaráðherra. Nú hefur Davíð skipt um aðferð og tekið upp hina réttlátu reiði. Og ásteyting- arsteinninn er ekki lengur undanvillingar úr Sjálfstæð- isflokknum sem hafa svikist í bandalag með komma- pakkinu gegn almennum framförum; - þetta lið reyndist hafa of mikinn stuðning almennings. Og Davíð hefur lækkað flugið: Nú er það garmurinn Ketill sem fær eyrnafíkjuna, ríkis- stjórnin sem allir eru á móti. „Súfjandsam- legasta“ Úrskurður ráðherra um ráðhússmálið sýnir nefni- lega að rikisstjórnin er á móti sveitarfélögunum í landinu. „í orði er látið í veðri vaka að það eigi að efla og auka sjálfsákvörðun- arrétt sveitarfélaga, en á borði er allt gert til að skerða þennan rétt sem mest,“ segir Davíð hneykslaður í Morgunblað- inu, málgagni meirihluta borgarstjórnar í gær. „Margar ríkisstjórnir hafa verið slæmar í þessu tilliti, en þessi sú versta, sú fjand- samlegasta gagnvart sveitarfélögum í áratugi. “ Hér talar sannfærður stj órnarandstæðingur, - og raunar hafa sveitarstjórnar- menn fulla ástæðu til að taka undir orð Davíðs. En stjórn- arandstaða Davíðs Odds- sonar er á öðru reist en hags- munum sveitarfélaganna. Davíð er fúll yfir því að vinir hans, Þorsteinn og Friðrik og Birgir, skyldu ekki hafa getað snúið Jó- hönnu félagsmálaráðherra niður núna einsog í fyrra skiptið, - og orð Davíðs um ríkisstjórnina er ekki að skilja öðruvísi en hótunar- bréf til formanns Sjálfstæð- isflokksins. -m þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Bergmann, MöröurÁrnason, Óttar Proppé. Fróttastjóri: Lúövík Geirsson. Blaöamenn: Guömundur Rúnar Heiöarsson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, SigurÖur Á. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson (íþr.), Sævar Guðbjömsson.TómasTómasson, Þorfinnurómarsson(íþr.). , Handrita- og prófarkaleatur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: EinarÓlason, SiguröurMarHalldórsson. Útlitsteiknarar: GarðarSigvaldason, Margrét Magnúsdóttir. Framkvæmdastjórl:HallurPállJónsson. Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, Unnur Ágústsdóttir. Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Ðjörn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Sfðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausasölu: 60 kr. Helgarblöð:70 kr. Áskrlftarverð á mánuði: 700 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. maí 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.