Þjóðviljinn - 05.05.1988, Page 6
FRETTIR
Alþingi
Virðisaukaskattinum
þrýst í gegn með látum
Stjórnarandstaðan sameinuð íandstöðu viðfrumvarpið. Óánœgja hjá stjórnarliðinu. Undirbúningur
ónógur. Ákvörðunum í veigamiklum atriðum frestað. Völdin íhendurfámennrar nefndar
„Með lögfestingu virðisauka-
skatts er gert ráð fyrri því að fra-
mlengja hinn illræmda matar-
skatt sem lagður var á af núver-
andi ríkisstjórn og hefur í för með
sér 6000 miljóna króna skatt-
heimtu af almenningi í landinu.“
Þannig segir í nefndaráliti
minnihluta fjárhags- og við-
skiptanefndar um frumvarpið
um virðisaukaskatt. Minnihlut-
ann skipa Svavar Gestsson og Jú-
líus Sólnes. Guðrún Agnarsdóttir
var áheyrnarfulltrúi í nefndinni
og er sammála minnihlutanum.
Valdamikil nefnd
í gær var stefnt að því að ljúka
afgreiðslu á frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar um virðisaukaskatt
í efri deild alþingis þannig að
neðri deild geti fengið málið til
afgreiðslu. Þetta er eitt þeirra
mála sem ríkisstjórnin leggur of-
uráherslu á að lokið verði fyrir
þinglausnir. Ljóst er að sú
skoðun, sem farið hefur fram á
frumvarpinu í efri deild, hefur
leitt til þeirrar niðurstöðu að
margt þurfi þar athugunar við.
Vilja stjórnarþingmenn að sér-
stök nefnd fulltrúa stjórnar-
flokka og embættismanna taki tii
umfjöllunar þau áhorfsmál sem
upp kunna að koma. Þing-
mönnum stjórnarandstöðunnar
þykir hér illa um hnúta búið og
telja að víðtækt umboð þessarar
nefndar sé til marks um að virðis-
aukaskatturinn sé illa undirbú-
inn.
Nefndin á m.a. að fjalla um
mat á skattprósentu virðis-
aukaskattsins (í frumvarpinu er
hún 22%). Hún á að setja reglur
um mjög viðkvæm mál eins og
endurgreiðslu af vinnu við bygg-
ingar og endurbætur ibúðarhús-
næðis, reglur um skattskil af hrá-
efni til fiskvinnslu, reglur um
virðisaukaskatt af menningar- og
listastarfsemi, svo að eitthvað sé
nefnt, og „önnur atriði sem upp
kunna að koma“.
Flatur skattur
Mikið er deilt á það fyrirkomu-
lag að leggja skuli virðisauka-
skatt á nánast allar vörur og þjón-
ustu og að engu skipti hvort um er
að ræða nauðsynjavarning eða
lúxus. Fjármálaráðherra hefur
lýst því yfir að vegna virðis-
aukaskattsins hafi verið nauðsyn-
legt að afnema undanþágur á
söluskatti og m.a. þess vegna hafi
matarskatturinn illræmdi verið
lagður á.
í nefndaráliti stjórnarandstöð-
unnar segir:
„Þessu mótmælir minnihlutinn
og bendir á að í aðildarríkjum
OECD er oftar um fleiri en eina
prósentu að ræða og þar er matur
sums staðar undanþeginn að
fullu, meira að segja í Bretlandi."
Alþýðusamband íslands hefur
lagt áherslu á andstöðu sína við
það að einungis skuli vera um
eina skattprósentu að ræða og að
hún taki til allrar vöru og þjón-
ustu.
Framteljendum fjölgar
Við það að inheimtur verður
virðisaukaskattur verður um
verulega fjölgun skriffinnsku-
starfa að ræða, t.d. er talið að
skattheimtumönnum fjölgi um
allt 40. En auk þess mun framtelj-
endum fjölga geysimikið. Álitið
er að fjölgunin skiptist þannig á
starfsgreinar:
Atvinnugrein
Minnihlutinn telur reyndar að
fjölgun framteljenda verði mun
meiri en þetta.
Hœkkun verðlags
Hagfræðingar munu margir
hverjir vera þeirrar skoðunar að
upptaka virðisaukaskatts hækki
verðlag. í umræðum á alþingi
hefur m.a. verið vitnað til tíma-
ritsgreinar eftir Björn Matthías-
son hagfræðing um þau mál.
Stjónarandstaðan vitnar til
danskra athugana sem sýna að
þetta form skattheimtu leggst
þyngst á bammargar fjölskyldur
og þá sem hafa þunga framfærslu-
byrði.
Þá er taiið að virðisaukaskatt-
urinn hækki verð á íbúðarhús-
næði. Þetta er viðurkennt í
greinargerð ráðherra með frum-
varpinu. Virðisaukaskattur
leggst á vinnu iðnaðarmanna á
byggingarstað en hún hefur verið
undanþegin söluskatti. Talið er
að hækkun byggingarkostnaðar
muni nema 5-7%. Fjögurra milj-
ón króna íbúð hækkar því um 200
- 280 þúsund krónur. Húsbyggj-
endur munu leggja til tekjuauka
til ríkissjóðs upp á hundruð milj-
óna króna.
Þrátt fyrri harða gagnrýni
stjórnarandstöðunnar og þrátt
fyrir þá staðreynd að fjölmargir
stjórnarþingmenn eru sár-
óánægðir, er gert ráð fyrir að al-
þingi afgreiði lög um virðis-
aukaskatt nú á næstu dögum.
Ríkisstjórnin frestar í raun ák-
varðanatöku í flestum ág-
reiningsmálum með því að vísa
þeim til úrlausnar sérstakrar
nefndar. í reynd er um valdaafsal
alþingis að ræða.
Ber er hver aft baki nema
sér bróftur eigi. Egill Jónsson
studdi ekki áberandi fast við
bakið á formanni sínum Þorsteini
Pálssyni í gær. Þegar kýla átti
virðisaukann í gegnum efri deild
hélt Egill uppi málþófi um fram-
leiðslu og sölu á búvörum og vildi
ekki að því máli yrði vísað til ríkis-
stjórnarinnar nema tillaga þar að
lútandi kæmi frá sjálfum forsæt-
isráðherra og skyldu fylgja með
nokkrar tryggingar um einhvern
framgang þar á bæ. Með þessu
atti Egill formanni sínum út í orða-
skak við krata. Menn skildu þó
sáttir að kalla, en ósköp hlýtur að
vera leiðinlegt að þurfa að standa
í svona stríði. Nóg er nú samt.
Fjölgun
framteljenda
Lanbúnaður......................................5.000
Fiskveiðar..................................... 1.450
Fiskiðnaður..................................... 600
Byggingar.......................................3.000
Samgöngur.......................................1.500
Annað...........................................2.500
Samtals 14.050
FLÓAMARKAÐURINN
Myndavél óskast
Ég er 9 ára og óska eftir ódýrri,
notaðri myndavél í góðu lagi. Uppl. í
síma 17482.
íbúft óskast
Tveggja herbergja íbúð óskast til
leigu. Erum tvö fullorðin í heimili.
Sími 32101.
í sumarbústaðinn
Hráolíuofn (Husquarna) til sölu
ódýrt. Sími 32101.
Borðstofuborð úr tekki
og 3 stólarfæst gefins. Uppl. í síma
79548.
Ibúð óskast
Vegna ríkisstjórnar Þorsteins Páls-
sonar vantar okkur lítið, íbúðarhæft
húsnæði á Vatnsendahæð, sumar-
bústaður kæmi vel til greina. Erum
á götunni. Uppl. í síma 45530.
Skjalaskápur óskast
Sigurlaug, sími 13695 eða 17513.
Gangstéttarhellur
Notaðar, óbrotnar gangstóttarhell-
ur óskast. Sími 54327.
Strákahjól
Til sölu svart og rautt vel útlítandi
16“ Winther hjól. Verð samkomu-
lagsatriði. Sími 37865.
Sófasett og
þvottavél
Óska eftir sófasetti og þvottavél
mjög ódýrt eða gefins. Sími 92-
27329.
Gyllingaletur
Gyllingaletur, vel með farið óskast.
Uppl. í síma 21471.
VHS
Mig vantar VHS videotæki, ódýrt.
Davíð, sími 14942.
3ja hausa Marants
kassettutæki
til sölu á kr. 6000. Ný tæki kosta
60-70 þús. kr. Vel með farið og lítið
notað. Til greina kemur að taka
tónjafnara eða útvarp upp í. Uppl. í
síma 21784.
Flat 127, árg. ‘79
til sölu. Verð kr. 8.000.-. Uppl í síma
641464.
Trabant
árg. ‘86 til sölu. Ekinn 30000 km,
skoðaður ‘88. Mjög gott eintak.
Uppl. í síma 11973 og 45530.
Pappírsskurðarhnífur
til sölu. Skurðarlengd 62 cm. Traust
og gott tæki, upplagt fyrir bókbind-
ara. Hagstætt verð. Uppl. í síma
41739.
Gullfallegur bíll
tll sölu
BMW 316 árg. ‘83 (nýja týpan), ek-
inn 77000 km, litað gler, dökkgrár
metallic. Skipti á ódýrari eða fæst
með góðum staðgreiðsluafslætti.
Sími 79319.
fbúð
Ungt par sem á von á barni vantar
tilfinnanlega íbúð. Eru algert reglu-
fólk á vín og tóbak, þriin og sóma-
kær. Þið sem e.t.v. hafið húsnæði
aflögu vinsamlega hafið samband í
síma 681333 næstu daga.
Til sölu
borðstofuborð og 4 stólar, antik-
skápur og antikkommóða, barna-
bi'lstóll. Sími 687759.
Til sölu
5 sæta hornsófi frá Pétri Snæland,
áklæði frekar lúið. Verð ca.
10.000.-. Uppl. í síma 44315.
Til sölu
nýr, ónotaður rúskinnsjakki og
Mazda 323 ‘78, góður bíll. Einnig
Olympia rafmagnsritvél og sv/hv
sjónvarp. Uppl. í síma 21387.
Kettlingar
fást gefins. Sími 83694.
Relðhjólaverkstæðl
til sölu
Gott verkstæði sem hefur verið
starfrækt í rúm 2 ár er til sölu. Það
sem á að selja er nafn, verkfæri og
lager. Húsnæði fylgir ekki. Fæst á
skuldabréfi, sanngjarnt verð. Uppl. í
síma 621309.
Til sölu ódýrt
stór sólarlampi á hjólastatívi á kr.
8.000.-, hvítur baðvaskur m /
blöndunartækjum á kr. 2.000, WC
skol hvítt m/blöndunartæki á kr.
2.000. Uppl.ísíma611711 e. kl. 17.
Ford Escort ‘83
til sölu. Ekinn 64 þús. km,
gullsanseraður, í góðu lagi og lítur
vel út. Skipti á nýlegum bíl koma til
greina, milligjöf staðgreidd. Uppl. í
síma 681310 kl. 9 til 17.
Mazda 818
árg. ‘78 til sölu. Ekinn aðeins 50
þús. km, vélin í toppstandi en bíllinn
er illa farinn af ryði öðrum megin og
þarfnast uppbyggingar. Upl. í síma
76932.
Til sölu
Amerískur ísskápur (General Elect-
ric). Mjög vel með farinn, selst
ódýrt. Uppl. í síma 14577 milli kl.
14-18.
Lítlll gasísskápur óskast
Óska eftir ísskáp sem gengur fyrir
gasi. Uppl. í síma 44430.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu íbúð í
Reykjavík frá 1. júní. Uppl. í síma
623605, Anna Hildur og Gísli Þór.
Tvíburakerra óskast
helst ódýrt. Sími 16404.
Óska eftir
Hansa-hillum, skrifborði (f. barn) og
harmonikuhurð. Uppl. í síma
667387.
Selfoss - Reykjavík
húsnæðlssklpii
Óskum eftir góði 4-5 herbergja íbúð
í Reykjavík í leiguskiptum fyrir stórt
og gott einbýlishús á fallegum stað
á Selfossi. Tilboð sendist auglýs-
ingadeild Þjóðviljans.
Ódýrt-ódýrt
Það er raunverulega ódýrt að
versla hja okkur. Mikið úrval af alls-
konar vörum. Flóamarkaður Sam-
bands dýraverndunarfélaga ís-
lands, Hafnarstræti 17, kjallara.
Opið mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 14-18.
Til sölu
handunnar rússneskar tehettur og
matrúskur (babúskur) í miklu úrvali.
Róstkröfuþjónusta. Upplýsingar
gefur Selma í síma 19239.
Kaupið kaffið
sem berst gegn Apartheid. Tanz-
aníukaffi frá Ideele Import. Upplýs-
ingar í síma 621083.
Sólarlandaferð
Happdrættisvinningur fyrir 50.000
kr. hjá Útsýn til sölu á 40.000.
Gengur uppí allar sólarlandaferðir
Útsýnar. Upplýsingar í síma 44430.
Gasísskápur óskast
Óska eftir ísskáp sem gengur fyrir
gasi. Upplýsingar í síma 44430.
Trabanteigendur athugið
5 sumardekk á felgum til sölu ódýrt.
Upplýsingar í síma 18648.
Húsgögn óskast
Undirbúningshópur um stofnun
samtaka um S-Afríku óskar eftir að-^
fá gefins skrifstofuhúsgögn' og
önnur húsgögn sem að gagni mega
koma. Vinsamlegást hringið í síma
74135, Kristinn eða Krístín.
Til sölu Honda 1100
mótorhjól. Uplýsingar í síma 11988
til kl. 17.
Húsnæði óskast
Par, kennari og garðyrkjumaður,
óska eftir 3-4 herbergja íbúð sem
allra tyrst. Reglusemi og góðri um-
gengni heitið svo og skilvísum
greiðslum. Meðmæli auðfengin.
Upplýsingar í síma 688601 á kvöld-
in.
Vantar þig aukatekjur?
Ef svo er hafðu samband, því við
viljum ráða fólk í áskrifendasöfnun
tyrir ört vaxandi tímarit. Kvöld- og
helgarvinna næstu vikurnar. Nánari
uppl. í síma 621880. Fréttatímaritið
Þjóðlíf.
Tll sölu
Svefnbekkur, borð og 2 stólar. Sími
84922.
íbúð tll leigu í París
Lítil íbúð á besta stað í miðborg Par-
ísar er til leigu frá 1. júní til 1. sept.
Verð 2.500 frankar á mánuði. Nán-
ari uppl. gefur Ása í síma 30589 á
kvöldin.
Ýmislegt tll sölu
Góður svefnsófi með skúffum, 3
bastgardínur og myndlykill. Einnig
Toyota Cressida árg. ‘78. Fallegur
bíll. Verð kr. 160.000. Uppl. eftir kl.
17 í síma 688204.
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 5. maí 1988