Þjóðviljinn - 05.05.1988, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 05.05.1988, Qupperneq 6
FRETTIR Alþingi Virðisaukaskattinum þrýst í gegn með látum Stjórnarandstaðan sameinuð íandstöðu viðfrumvarpið. Óánœgja hjá stjórnarliðinu. Undirbúningur ónógur. Ákvörðunum í veigamiklum atriðum frestað. Völdin íhendurfámennrar nefndar „Með lögfestingu virðisauka- skatts er gert ráð fyrri því að fra- mlengja hinn illræmda matar- skatt sem lagður var á af núver- andi ríkisstjórn og hefur í för með sér 6000 miljóna króna skatt- heimtu af almenningi í landinu.“ Þannig segir í nefndaráliti minnihluta fjárhags- og við- skiptanefndar um frumvarpið um virðisaukaskatt. Minnihlut- ann skipa Svavar Gestsson og Jú- líus Sólnes. Guðrún Agnarsdóttir var áheyrnarfulltrúi í nefndinni og er sammála minnihlutanum. Valdamikil nefnd í gær var stefnt að því að ljúka afgreiðslu á frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um virðisaukaskatt í efri deild alþingis þannig að neðri deild geti fengið málið til afgreiðslu. Þetta er eitt þeirra mála sem ríkisstjórnin leggur of- uráherslu á að lokið verði fyrir þinglausnir. Ljóst er að sú skoðun, sem farið hefur fram á frumvarpinu í efri deild, hefur leitt til þeirrar niðurstöðu að margt þurfi þar athugunar við. Vilja stjórnarþingmenn að sér- stök nefnd fulltrúa stjórnar- flokka og embættismanna taki tii umfjöllunar þau áhorfsmál sem upp kunna að koma. Þing- mönnum stjórnarandstöðunnar þykir hér illa um hnúta búið og telja að víðtækt umboð þessarar nefndar sé til marks um að virðis- aukaskatturinn sé illa undirbú- inn. Nefndin á m.a. að fjalla um mat á skattprósentu virðis- aukaskattsins (í frumvarpinu er hún 22%). Hún á að setja reglur um mjög viðkvæm mál eins og endurgreiðslu af vinnu við bygg- ingar og endurbætur ibúðarhús- næðis, reglur um skattskil af hrá- efni til fiskvinnslu, reglur um virðisaukaskatt af menningar- og listastarfsemi, svo að eitthvað sé nefnt, og „önnur atriði sem upp kunna að koma“. Flatur skattur Mikið er deilt á það fyrirkomu- lag að leggja skuli virðisauka- skatt á nánast allar vörur og þjón- ustu og að engu skipti hvort um er að ræða nauðsynjavarning eða lúxus. Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir að vegna virðis- aukaskattsins hafi verið nauðsyn- legt að afnema undanþágur á söluskatti og m.a. þess vegna hafi matarskatturinn illræmdi verið lagður á. í nefndaráliti stjórnarandstöð- unnar segir: „Þessu mótmælir minnihlutinn og bendir á að í aðildarríkjum OECD er oftar um fleiri en eina prósentu að ræða og þar er matur sums staðar undanþeginn að fullu, meira að segja í Bretlandi." Alþýðusamband íslands hefur lagt áherslu á andstöðu sína við það að einungis skuli vera um eina skattprósentu að ræða og að hún taki til allrar vöru og þjón- ustu. Framteljendum fjölgar Við það að inheimtur verður virðisaukaskattur verður um verulega fjölgun skriffinnsku- starfa að ræða, t.d. er talið að skattheimtumönnum fjölgi um allt 40. En auk þess mun framtelj- endum fjölga geysimikið. Álitið er að fjölgunin skiptist þannig á starfsgreinar: Atvinnugrein Minnihlutinn telur reyndar að fjölgun framteljenda verði mun meiri en þetta. Hœkkun verðlags Hagfræðingar munu margir hverjir vera þeirrar skoðunar að upptaka virðisaukaskatts hækki verðlag. í umræðum á alþingi hefur m.a. verið vitnað til tíma- ritsgreinar eftir Björn Matthías- son hagfræðing um þau mál. Stjónarandstaðan vitnar til danskra athugana sem sýna að þetta form skattheimtu leggst þyngst á bammargar fjölskyldur og þá sem hafa þunga framfærslu- byrði. Þá er taiið að virðisaukaskatt- urinn hækki verð á íbúðarhús- næði. Þetta er viðurkennt í greinargerð ráðherra með frum- varpinu. Virðisaukaskattur leggst á vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað en hún hefur verið undanþegin söluskatti. Talið er að hækkun byggingarkostnaðar muni nema 5-7%. Fjögurra milj- ón króna íbúð hækkar því um 200 - 280 þúsund krónur. Húsbyggj- endur munu leggja til tekjuauka til ríkissjóðs upp á hundruð milj- óna króna. Þrátt fyrri harða gagnrýni stjórnarandstöðunnar og þrátt fyrir þá staðreynd að fjölmargir stjórnarþingmenn eru sár- óánægðir, er gert ráð fyrir að al- þingi afgreiði lög um virðis- aukaskatt nú á næstu dögum. Ríkisstjórnin frestar í raun ák- varðanatöku í flestum ág- reiningsmálum með því að vísa þeim til úrlausnar sérstakrar nefndar. í reynd er um valdaafsal alþingis að ræða. Ber er hver aft baki nema sér bróftur eigi. Egill Jónsson studdi ekki áberandi fast við bakið á formanni sínum Þorsteini Pálssyni í gær. Þegar kýla átti virðisaukann í gegnum efri deild hélt Egill uppi málþófi um fram- leiðslu og sölu á búvörum og vildi ekki að því máli yrði vísað til ríkis- stjórnarinnar nema tillaga þar að lútandi kæmi frá sjálfum forsæt- isráðherra og skyldu fylgja með nokkrar tryggingar um einhvern framgang þar á bæ. Með þessu atti Egill formanni sínum út í orða- skak við krata. Menn skildu þó sáttir að kalla, en ósköp hlýtur að vera leiðinlegt að þurfa að standa í svona stríði. Nóg er nú samt. Fjölgun framteljenda Lanbúnaður......................................5.000 Fiskveiðar..................................... 1.450 Fiskiðnaður..................................... 600 Byggingar.......................................3.000 Samgöngur.......................................1.500 Annað...........................................2.500 Samtals 14.050 FLÓAMARKAÐURINN Myndavél óskast Ég er 9 ára og óska eftir ódýrri, notaðri myndavél í góðu lagi. Uppl. í síma 17482. íbúft óskast Tveggja herbergja íbúð óskast til leigu. Erum tvö fullorðin í heimili. Sími 32101. í sumarbústaðinn Hráolíuofn (Husquarna) til sölu ódýrt. Sími 32101. Borðstofuborð úr tekki og 3 stólarfæst gefins. Uppl. í síma 79548. Ibúð óskast Vegna ríkisstjórnar Þorsteins Páls- sonar vantar okkur lítið, íbúðarhæft húsnæði á Vatnsendahæð, sumar- bústaður kæmi vel til greina. Erum á götunni. Uppl. í síma 45530. Skjalaskápur óskast Sigurlaug, sími 13695 eða 17513. Gangstéttarhellur Notaðar, óbrotnar gangstóttarhell- ur óskast. Sími 54327. Strákahjól Til sölu svart og rautt vel útlítandi 16“ Winther hjól. Verð samkomu- lagsatriði. Sími 37865. Sófasett og þvottavél Óska eftir sófasetti og þvottavél mjög ódýrt eða gefins. Sími 92- 27329. Gyllingaletur Gyllingaletur, vel með farið óskast. Uppl. í síma 21471. VHS Mig vantar VHS videotæki, ódýrt. Davíð, sími 14942. 3ja hausa Marants kassettutæki til sölu á kr. 6000. Ný tæki kosta 60-70 þús. kr. Vel með farið og lítið notað. Til greina kemur að taka tónjafnara eða útvarp upp í. Uppl. í síma 21784. Flat 127, árg. ‘79 til sölu. Verð kr. 8.000.-. Uppl í síma 641464. Trabant árg. ‘86 til sölu. Ekinn 30000 km, skoðaður ‘88. Mjög gott eintak. Uppl. í síma 11973 og 45530. Pappírsskurðarhnífur til sölu. Skurðarlengd 62 cm. Traust og gott tæki, upplagt fyrir bókbind- ara. Hagstætt verð. Uppl. í síma 41739. Gullfallegur bíll tll sölu BMW 316 árg. ‘83 (nýja týpan), ek- inn 77000 km, litað gler, dökkgrár metallic. Skipti á ódýrari eða fæst með góðum staðgreiðsluafslætti. Sími 79319. fbúð Ungt par sem á von á barni vantar tilfinnanlega íbúð. Eru algert reglu- fólk á vín og tóbak, þriin og sóma- kær. Þið sem e.t.v. hafið húsnæði aflögu vinsamlega hafið samband í síma 681333 næstu daga. Til sölu borðstofuborð og 4 stólar, antik- skápur og antikkommóða, barna- bi'lstóll. Sími 687759. Til sölu 5 sæta hornsófi frá Pétri Snæland, áklæði frekar lúið. Verð ca. 10.000.-. Uppl. í síma 44315. Til sölu nýr, ónotaður rúskinnsjakki og Mazda 323 ‘78, góður bíll. Einnig Olympia rafmagnsritvél og sv/hv sjónvarp. Uppl. í síma 21387. Kettlingar fást gefins. Sími 83694. Relðhjólaverkstæðl til sölu Gott verkstæði sem hefur verið starfrækt í rúm 2 ár er til sölu. Það sem á að selja er nafn, verkfæri og lager. Húsnæði fylgir ekki. Fæst á skuldabréfi, sanngjarnt verð. Uppl. í síma 621309. Til sölu ódýrt stór sólarlampi á hjólastatívi á kr. 8.000.-, hvítur baðvaskur m / blöndunartækjum á kr. 2.000, WC skol hvítt m/blöndunartæki á kr. 2.000. Uppl.ísíma611711 e. kl. 17. Ford Escort ‘83 til sölu. Ekinn 64 þús. km, gullsanseraður, í góðu lagi og lítur vel út. Skipti á nýlegum bíl koma til greina, milligjöf staðgreidd. Uppl. í síma 681310 kl. 9 til 17. Mazda 818 árg. ‘78 til sölu. Ekinn aðeins 50 þús. km, vélin í toppstandi en bíllinn er illa farinn af ryði öðrum megin og þarfnast uppbyggingar. Upl. í síma 76932. Til sölu Amerískur ísskápur (General Elect- ric). Mjög vel með farinn, selst ódýrt. Uppl. í síma 14577 milli kl. 14-18. Lítlll gasísskápur óskast Óska eftir ísskáp sem gengur fyrir gasi. Uppl. í síma 44430. Húsnæði óskast Óskum eftir að taka á leigu íbúð í Reykjavík frá 1. júní. Uppl. í síma 623605, Anna Hildur og Gísli Þór. Tvíburakerra óskast helst ódýrt. Sími 16404. Óska eftir Hansa-hillum, skrifborði (f. barn) og harmonikuhurð. Uppl. í síma 667387. Selfoss - Reykjavík húsnæðlssklpii Óskum eftir góði 4-5 herbergja íbúð í Reykjavík í leiguskiptum fyrir stórt og gott einbýlishús á fallegum stað á Selfossi. Tilboð sendist auglýs- ingadeild Þjóðviljans. Ódýrt-ódýrt Það er raunverulega ódýrt að versla hja okkur. Mikið úrval af alls- konar vörum. Flóamarkaður Sam- bands dýraverndunarfélaga ís- lands, Hafnarstræti 17, kjallara. Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 14-18. Til sölu handunnar rússneskar tehettur og matrúskur (babúskur) í miklu úrvali. Róstkröfuþjónusta. Upplýsingar gefur Selma í síma 19239. Kaupið kaffið sem berst gegn Apartheid. Tanz- aníukaffi frá Ideele Import. Upplýs- ingar í síma 621083. Sólarlandaferð Happdrættisvinningur fyrir 50.000 kr. hjá Útsýn til sölu á 40.000. Gengur uppí allar sólarlandaferðir Útsýnar. Upplýsingar í síma 44430. Gasísskápur óskast Óska eftir ísskáp sem gengur fyrir gasi. Upplýsingar í síma 44430. Trabanteigendur athugið 5 sumardekk á felgum til sölu ódýrt. Upplýsingar í síma 18648. Húsgögn óskast Undirbúningshópur um stofnun samtaka um S-Afríku óskar eftir að-^ fá gefins skrifstofuhúsgögn' og önnur húsgögn sem að gagni mega koma. Vinsamlegást hringið í síma 74135, Kristinn eða Krístín. Til sölu Honda 1100 mótorhjól. Uplýsingar í síma 11988 til kl. 17. Húsnæði óskast Par, kennari og garðyrkjumaður, óska eftir 3-4 herbergja íbúð sem allra tyrst. Reglusemi og góðri um- gengni heitið svo og skilvísum greiðslum. Meðmæli auðfengin. Upplýsingar í síma 688601 á kvöld- in. Vantar þig aukatekjur? Ef svo er hafðu samband, því við viljum ráða fólk í áskrifendasöfnun tyrir ört vaxandi tímarit. Kvöld- og helgarvinna næstu vikurnar. Nánari uppl. í síma 621880. Fréttatímaritið Þjóðlíf. Tll sölu Svefnbekkur, borð og 2 stólar. Sími 84922. íbúð tll leigu í París Lítil íbúð á besta stað í miðborg Par- ísar er til leigu frá 1. júní til 1. sept. Verð 2.500 frankar á mánuði. Nán- ari uppl. gefur Ása í síma 30589 á kvöldin. Ýmislegt tll sölu Góður svefnsófi með skúffum, 3 bastgardínur og myndlykill. Einnig Toyota Cressida árg. ‘78. Fallegur bíll. Verð kr. 160.000. Uppl. eftir kl. 17 í síma 688204. 6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 5. maí 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.