Þjóðviljinn - 05.05.1988, Blaðsíða 9
pavogs i
BORG & BYGGÐIR
7
Hjörleifur Sveinbjörnsson
undir kostnaðinum við þessa
framkvæmd...
Já, og tilgangurinn með því var
tvíþættur: Bæði til að efla félags-
ólahljómsveit Kópavogs. Miklir möguleikar á
Dkið. Mynd: E.ÖI.
og menningarstarf í bænum, og
eins eru þetta hrein og klár við-
skipti, þar sem Kópavogskaup-
staður eignaðist fyrir bragðið 3.
hæðina af sjálfseignarstofnuninni
sem á og rekur húsið, en leigði
hana áður. Á þessari 3. hæð er
tæknideild bæjarins og bæjar-
skrifstofurnar síðan á þeirri
fjórðu. Bæjarfélagið á stærstan
hlut í sjálfseignarstofnuninni, en
á móti ýmsum félögum; Breiða-
bliki, kvenfélaginu, leikfélaginu
og fleiri. Stjórnina skipa svo
fimm manns; þrír tilnefndir af
bæjarstjórninni en tveir í samein-
ingu af aðildarfélögunum.
Verður breyting á rekstrar-
forminu núna þegar sér fyrir
endann á framkvæmdunum við
félagsheimilið?
Félagsheimilið er sjálfseignar-
stofnun þar sem bærinn er þung-
amiðjan og það stendur ekki til
að breyta því. En stjórnin hefur
einsett sér að ráða sérstakan
framkvæmdastjóra í haust til að
annast reksturinn.
Við leggjum áherslu á að halda
föstum kostnaði eins mikið í lág-
marki og mögulegt er. Við viljum
reka félagsheimili eða félagsmið-
stöð, en verðum ekki í sam-
keppni við veitingahúsarekstur á
höfuðborgarsvæðinu. Þannig
gerum við ekki ráð fyrir að sjá um
matseld fyrir matarboð hér þegar
um slíkt verður að ræða, heldur
verður maturinn aðkeyptur.
Búnaðurinn í eldhúsinu hjá okk-
ur nýtist síðan mætavel til að
halda heitu og þar fram eftir göt-
unum.
Laga gamalt
eða byggja nýtt?
Það er grunnt á það sjónarmið
hér á landi að meira vit sé í að
byggja nýtt en lappa upp á gamalt,
gagnið á ný
og endurbygging félagsheimilis-
ins hefur sætt gagnrýni eftir þess-
um nótum; hvernig horfir málið
við þér?
Pað fylgja því náttúrlega
augljósir kostir að byggja nýtt,
enda ekki nema satt og rétt að
hússkrokkurinn sneið okkur
þröngan stakk. Engu að síður er
þessi partur af umræðunni ærið
broslegur: Við stóðum frammi
fyrir því um 1980 að húsið var í
niðurníðslu og þá var ákveðið að
ráðast í endurbyggingu eins og
fram hefur komið. Hvað annað
var í rauninni hægt að gera? Ég
býst við að fólk sjái vankantana á
því að brjóta niður 1. og 2. hæð-
ina en ætla þeirri 3. og 4. jafn-
framt að hanga uppi! Eða átti
kannski að negla upp í gluggana?
Hins má geta að þegar ég sat í
bæjarstjórninni á síðasta áratug
vildi ég að byggt yrði yfir félags-
starfsemina annars staðar í mið-
bænum og að bæjarskrifstofurnar
yfirtækju alla bygginguna. Þessar
hugmyndir fengu ekki hljóm-
grunn á sínum tíma, en eftir á að
hyggja sýnist mér það miður far-
ið: núna er bærinn á að minnsta
kosti fjórum stöðum með sínar
skrifstofur.
Það breytir þó ekki því að við
getum verið stolt yfir því í dag
hvernig til hefur tekist.
Og starfsemin í framtíðinni,
svona í lokin...
Það opnast miklir möguleikar
núna þegar endurbyggingunni er
lokið. Þarna er aðstaða fyrir að-
ildarfélögin og margs konar
menningarstarfsemi, sem verður
haldið úti í náinni samvinnu við
Lista- og menningarráð Kópa-
vogs. Að mínu viti hefur Kópa-
vogur lengi verið í fararbroddi
sveitarfélaga þar sem menning-
armál eru annars vegar og varið
ákveðnu hlutfalli tekna til kaupa
á listaverkum og til stuðnings
öðrum menningarmálum.
Þá er eitt atriði sem ég vil ekki
láta hjá líða að drepa á þótt af
nógu sé að taka, en það er það
sem snýr að unglingunum. Við
212 manns geta setið til borðs í einu í aðalsalnum, en þar má einnig slá
upp balli og setja upp leikrit svo eitthvað sé nefnt. Mynd: Sig.
Kópavogsbíó hefur heldur en ekki fengið andlitslyftingu eins og sjá
má. Aðalsamkomusalinn vill Sigurður Grétar kalla fjölnotasal þar sem
unnt er að nýta hann í margvíslegu skyni. Mynd: Sig.
þurfurn að huga að því að nýta þá takist góð samvinna. Ef ekki
þessa aðstöðu fyrir þá og ég tel að er til lítils barist.
skólarnir eigi að taka virkan þátt í Og frá unglingunum til hinna
starfsemi félagsheimilisins. Ég öldruðu: félagsstarf aldraðra er
vona að við berum gæfu til að nú í félagsheimilinu og vonandi
verða unglingunum sem mest að verður engin breyting á því.
liði með þessu nýj a húsi og að við HS
Fimmtudagur 5. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9