Þjóðviljinn - 05.05.1988, Side 15
IÞROTTIR
Fótbolti
Enn einn ósigur
íslendingar lagðir að velli í Ungverjalandi í gær með of
stórum sigri 3-0
Það voru mikil vonbrigði þegar
íslenska landsliðið tapaði gegn
Ungverjum á Nep-leikvangnum i
Búdapest. Þetta var fyrsti vin-
áttulandsleikur þjóðanna og jafn-
framt fyrsti leikur. Sigurinn var
of stór því með miklum klaufa-
skap við markið urðu mörkin
þrjú.
Liðin sóttu bæði mikið í byrjun
leiksins en fyrsta færið kom á 12.
mfnútu þegar Ungverjar áttu
skot naumlega yfir markið. Lítið
var síðan um góð færi fyrr en
Ragnar Margeirsson átti skot að
marki heimamanna á 20. mínútu
en það fór yfir. Ungverjar áttu
næsta færi á 35. mínútu en Guð-
mundur Baldursson varði vel.
Leikurinn gerðist grófari þegar á
leið og á 42. mínútu var Pétri
Golf
Opið mót
Fyrsta opna mótið hjá Golf-
klúbbi Suðurnesja, Sól mótið,
verður haldið á Hólmsvelli í
Leiru laugardaginn 7. maí og
byrjað verður að ræsa út kl.
09.00. Hægt er að láta skrá sig f
síma 92-14100 eða í Golfskálan-
um í Leiru á fimmtudag eða
föstudag. Verðlaun eru gefin af
Sól hf og ef menn hafa áhuga er
best að skrá sig sem fyrst því búist
er við mikilli þátttöku.
Ogþetta
líka...
Loksins
er Johan Cruyff búinn að ákveða sig
en hann hefur ákveðið að taka við
Barcelona frá Spáni. Hann leysir af
hólmi Luis Aragones en sá tók við af
Terry Venables. Cruyff þjálfaði áður
Ajax og leiddi þá til verðlauna í Evr-
ópukeppni. Hann lék með Barcelona
frá 1973 til 1978 og varð liðið þá
deildarmeistari á fyrsta árinu hans.
Draumurinn
er búinn sagði Maradonna og átti þá
við drauminn um að vinna deildartiti-
linn í Italíu. Napoli á leik við Fiorentina
um helgina og Sampdoria helgina
þar á eftir en Milan með Ruud Gullit í
fararbroddi eiga leik við Juventus um
næstu helgi en helgina á eftir við
Como. Maradonna getur ekki leikið
með Napoli vegna meiðsla og því eru
möguleikar liðsins á titlinum enn
minni.
Steffi Graf
hætti við að taka þátt í tennismóti á
Italíu til að þurfa ekki að mæta Mart-
inu Navratilovu því Steffi vill ekki spila
við hana nema í stórum mótum. Á
síðustu stundu dró Martina sig einnig
úr keppni vegna meiðsla.
Grætt á falii
Knattspyrnuyfirvöld í Hollandi eru
ánægð með Den Haag skyldi falla.
Þeir segja að verstu ólátalýðurinn
fylgi Den Haag en í 2. deild séu bæði
færri leikir og minni vellir sem geri
lýðnum erfiðara fyrir.
Suður-Ameríka
Gremio frá Brasilíu lögðu River Plata
frá Argentínu 1-0 í "Supercup"
keppninni sem haldin er milli liða í
Suður-Ameríku. Valdo skoraði mark-
ið á 13. mínútu en það er líklega ekki
nóg því seinni leikurinn fer fram á
heimavelli River Plate.
Ormslev gefið gult spjald eftir að
hann svaraði fyrir sig þegar brot-
ið var á honum. Undir lok hál-
fleiksins fengu Ungverjar síðan
aukaspyrnu rétt utan vítateigs og
náðu að skora beint úr henni, 1-0,
og gafst íslendingum varla tæki-
færi á að byrja áður en blásið var
til leikhlés.
íslendingar urðu daufari strax í
síðari hálfleik og leikurinn varð
grófari. Ungverjar sóttu meira og
áttu skot í stöng strax á þriðju
mínútu síðari hálfleiks en íslensk-
ur varnarmaður náði að koma við
knöttinn. Á 10. mínútu komst þó
Viðar Þorkelsson óvænt í færi en
gott skot hans fór framhjá. Þar
kom þó að því að Ungverjum
tækist að skora. Það var á 17.
mínútu þegar íslenska vörnin
gerði mistök sem heimamenn
nýttu sér vel. Þeir voru síðan mun
meira í sókninni en tókst ekki að
nýta sér færin fyrr en á síðustu
mínútu leiksins þegar Þorvaldur
Örlygsson og Guðmundur mark-
vörður Baldursson gerðu gífurleg
varnarmistök, 3-0.
Þar með er þetta þriðji leikur-
inn í þessari keppnisferð lands-
liðsins og hafa allir tapast. Fyrst
voru það Hollendingar 1-0, síðan
komu Austur-Þjóðverjar 3-0 og
riú síðast Ungverjar með 3-0 aft-
ur.
íslenska liðlð: Guðmundur Baldurs-
son Val, Gunnar Gíslason Moss, Sæ-
var Jónsson Solothurn, Atli Edvalds-
son Bayer Uerdingen, Viðar Þorkels-
son Fram, Pétur Arnþórsson Fram-
(Rúnar Kristinsson KR), Ólafur Þórð-
arsson ÍA(Ormarr Örlygsson Fram),
Pétur Ormslev Fram, Ómar Torfason
Olten, Guðmundur Torfason Wint-
erslag, Ragnar Margeirsson ÍBK.
Fótbolti
Frestanir
teknar
fyrir
England
1-deild
Nott.Forest-Norwich.2-0
Tottenham-Luton.....2-1
Skotland
Úrvalsdeild
Aberdeen-Hibemian...0-2
Falkirk-Dundee Utd..1-2
Evrópa
Ovænt úrslit
Espanol með þrjú í nesti
Stórstjörnulaust spánskt
2.deildarlið vann Bayer Leverk-
usen í fyrri leik liðanna í Evróp-
ukeppninni sem fram fór í Barce-
lona á Spáni í gærkvöldi.
Það var ekki fyrr en undir lok
fyrri hálfleiks að Sebastian Losa-
da, sem er í láni frá stórliðinu
Real Madrid, náði forystunni
fyrir Spánverjana með skalla-
marki. Strax á þriðju mínútu
síðari hálfleiks skoraði Miguel
Soler síðan annað mark Espanol
en hann var maðurinn á bak við
sigurinn. Enn voru Spánverjar á
ferðinni 9 mínútum síðar og var
þar Losada með sitt annað mark.
Þegar leið á leikinn gerðust þjóð-
verjarnir örvæntingafullir og
náðu ekki að einbeita sér að spi-
linu en tóku meira til við brotin.
Það verður því ágætt nesti sem
Espanol fær með sér til Bæjara-
lands því það gæti reynst Leverk-
usen erfitt að skora 4 mörk án
þess að fá á sig neitt. Bæjararnir
hafa þó staðið fyrir sínu í Evróp-
ukeppninni því þeir hafa sigrað
ekki minni lið en samlanda sína í
Borussia Mönglegladbach og íta-
lana í Inter Milan og AC Milan.
Áhorfendur voru 42.000 en síðari
leikur liðanna fer fram 18.maí í
Þýskalandi. -ste
Guðmundur Baldursson kom inní landsliðið eftir langt hlé og hefur
hann örugglega leikið betri leiki en í gær.
Fatlaðir
Vor- og afmælismot
Dagana 5. til 7. maí fer fram
vor- og afmælismót íþróttafélags-
ins Aspar. Keppt verður í 5 grein-
um, boccia, borðtennis, sundi,
frjálsum og hokký, og fer keppn-
in fram á þremur stöðum, Öskju-
hlíðarskóla, Hagaskóla og Sund-
höllinni.
Borötennis verður í Öskjuhltðar-
skóla fimmtudaginn 5. maí og hefst
kl. 19.00.
Sundmótið fer fram í Sundhöll-
inni við Barónsstíg einnig á
fimmtudaginn og hefst upphitun
kl.19.00 en mótið kl.19.30.
Boccia verður í Hagaskóla
laugardaginn 7. maí og hefst
kl. 10.00. Öllum íþróttafélögum
þroskaheftra er boðin þátttaka.
Frjálsar verða einnig í Hagaskóla
laugardaginn 7. maí og hefst
kl.14.00. Kepþt verður í hástökki,
langstökki og kúluvarpi.
Innanhússhokký verður í
Hagaskóla laugardaginn um kl. 15.00
•og eru 7 í hverju liði.
Mótslit eru síðan í Tónabæ laugar-
dagskvöldið og hefst kl.20.00.
SumarstarftfA
í ReykjavíkSt
fyrir böm og unglinga
í þessari viku fá nemendur í grunnskólum Reykjavíkur
í hendur bækling með upplýsingum um framboð
á sumarstarfi borgarstofnana og félaga í Reykjavík.
Foreldrar eru hvattir til að skoða
bæklinginn vandlega með börnum sínum.
ms
Gleðilegt
sumar!
ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ
SÍMI: 62 22 15
Innritun í sumarstarf
á vegumÍTR.
Innritun í Laugardalshöll 14. og 15. maí
kl. 13.00- 18.00.
Framhaldsinnritun fer fram á
viðkomandi starfsstöðum frá 16. maí.
Ekki er innritaö í síma.
Þátttökugjald greiðist við innritun.
Upplýsingar í Laugardalshöll
14. og 15. maí í síma 680980.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15