Þjóðviljinn - 07.05.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 7. maí 1988 103. tölublað 53. órgangur
Forsetinn í þungum þönkum yfir
síðustu mótleikjum forsætisráð-
herrans.
Frakkland
Tveir etja
kappi
Á morgun mun alþýða manna í
Frakklandi klæðast betri fötun-
um og bregða sér af bæ til þess að
mismuna þeim Francois Mitter-
rand forseta Frakklands og Jacq-
ues Chirac fórsætisráðherra sama
lands.
Til skamms tíma var það al-
mannarómur að Mitterrand
myndi gjörsigra fjanda sinn en
veður kunna að hafa skipast í lofti
eftir óvæntan þríleik Chiracs á
elleftu stundu.
Sjá bls. 17
Fiskmarkaðir
Fiskverðið
hrapar
Slœm staða á
mörkuðunum og mikið
framboð orsaka verðhrun
Karfi og ufsi eru nánast á út-
sölu á fiskmörkuðunum innan-
lands þessa dagana og meðalverð
á þorski hefur síðustu daga hrap-
að úr 42 krónum í 25 krónur.
Ástæður fyrir þessu verðhruni
eru fyrst og fremst mikið offram-
boð af fiski, verðfall á erlendum
mörkuðum og slæm staða fisk-
vinnslunnar.
Sjá bls. 3
Leitin að
nýjum
leiðum
„Ég hef fundið þessar myndir
með því að vinna mig inn í ákveð-
inn massa eða efni,“ segir Örn
Þorsteinsson myndlistarmaður
sem opnaði skúlptúrsýningu í
Gallerí Grjót í gær.
Örn ræddi við blaðamann
Þjóðviljans um átök sín við form-
in og aðbúnað listamanna hér á
landi nokkrum dögum fyrir sýn-
ingu.
Sjá bls. 8
Örn við undirbúning sýningarinn-
ar: Ég er alltaf að fást við formin.
Bílakaup
samþykkt
samhljóða
Ragnar Júlíusson telur eðlilegt
að hann fái nýjan bíl frá fyrirtæk-
inu. Hann segir að þessi ráðstöf-
un hafi verið samþykkt sam-
hljóða í stjórn fyrirtækisins.
Davíð Öddsson, sem er tals-
maður stærsta eiganda Granda
hf., Reykjavíkurborgar, telur að
ekkert sé við það að athuga að
fyrirtækið láti mann, sem er í
fullri vinnu hjá ríkinu, fá lúxusbíl
til afnota.
Minnihlutinn borgarstjórnar
ber fram hörð mótmæli.
Sjá bls. 3
Heilsugœsla
Myndlist
Grandi
Krabbameinslækningar
komnar á villigötur?
Möguleg lœkning
eða oftrú á
hátœknigaldra ?
S iturforvarnastarf
áhakanum?
Verður sigur unninn á krabba-
meini með kóbaltgeislum og
sinnepsgasi?
Eða hefur átrúnaðurinn á
tæknigaldur sérfræðinganna af-
vegaleitt okkur í baráttunni gegn
þessum válega sjúkdómi?
Sú er skoðun Edgars Borgen-
hammars prófessors við Norræna
heilsugæsluháskólann í Gauta-
borg, sem segir að eins og menn
hafi haft oftrú á blóðtöku gegn
öllum kvillum hér áður fyrr, þá
beiti menn nú hátæknilækningum
gegn mögulegum og ómögu-
legum sjúkdómum.
Þetta kemur fram í afar athygl-
isverðri grein eftir Borgenhamm-
ar, sem Sunnudagsblaðið birtir í
dag.
I greininni kemur fram að þeir
séu 10-20 sinnum fleiri sem látast
af völdum reykinga en þeir sem
læknast með þeirri geisla- og
lyfjameðferð sem hátæknilæknis-
fræðin býður uppá gegn krabba-
meini.
Vandi krabbameinslækning-
anna er einfaldlega sá að þær hafa
ekki skilað þeim árangri sem af
þeim var vænst og á meðan er
forvarnarstarfið látið sitja á hak-
anum. Það er læknisfræðilegt, fé-
lagslegt, efnahagslegt og pólitískt
hneyksli að stjórnvöld skuli til
dæmis ekki taka tóbaksvarnirnar
fastari tökum, en setja trú sína á
hátæknigaldurinn í staðinn, segir
prófessorinn.
Sjá Sunnudagsblaðið,
bls. 16-17